Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989
Basar Kven-
félags Hall-
grímskirkju
HINN árlegi basar Kvenfélags
Hallgrímskirkju verður haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar í dag,
laugardaginn 4. nóvember og
hefst klukkan 14. Verður þar að
vanda margt góðra muna á boð-
stólum, svo sem mikil og íjöl-
breytt handavinna félagskvenna
sjálfra og margvíslegar jólavörur.
Basarinn er megin burðarás Qár-
öflunar Kvenfélagsins og að baki
býr þrotlaus vinna fárra, fórn-
fiísra og atorkusamra félags-
kvenna.
i Frá upphafi Hallgrímssafnaðar
hefur Kvenfélagið unnið mikið starf
í þágu kirkjunnar. Allur skrúði kirkj-
unnar og mest af búnaði kirkju og
safnaðarheimilis er frá Kvenfélaginu
kominn og nú nýverið afhentu fé-
lagskonur enn einu sinni stórupphæð
til orgelsjóðs Hallgrímskirkju.
Hallgrímssöfnuður og allir hollvinir
Hallgrímskirkju standa í mikilli
þakkarskuld við Kvenfélag Hallgr-
ímskirkju.
Ég vil hvetja safnaðarfólk og aðra •
borgarbúa til að íjölmenna á basar-
inn, gera góð kaup og styðja jafn-
framt starf félagskvenna.
- Karl Sigurbjörnsson
GENGISSKRÁNING
Nr. 211 3. nóvember 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari * 62,23000 62,39000 62,11000
Sterlp. 97,89400 98,14600 97,89800
Kan. dollari 53,05000 53,18600 52,86600
Dönsk kr. 8,69440 8,71670 8,70500
Norsk kr. 8,99670 9,01980 9,03680
Sænsk kr. 9,69310 9,71810 9.71840
Fi. mark 14,61480 14,65240 14,65900
Fr. franki 9,95640 9,98200 9,98070
Belg. franki 1,60950 1,61360 1:61420
Sv. franki 38,47650 38.57540 38,74610
Holl. gyllini 29,92470 30,00170 30,02590
V-þ. mark 33,78670 33,87360 33.89360
ít. líra 0,04601 0,04613 0,04614
Austurr. sch. 4,79930 4,81160 4,81490
Port. escudo 0,39450 0,39550 0,39510
Sp. peseti 0,53390 0,53530 0,53360
Jap. yen 0,43404 0,43515 0,43766
írsktpund 89,63300 89,86300 89,99700
SDR (Sérst.) 79,32830 79,53230 79,47600
ECU, evr.m. 69,24020 69,41820 69,33650
Tollgengi fyrír nóvember er sölugengi 30. október
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Kvikmyndir
fyrir börcr
BRYDDAÐ verður upp á þeirri
nýjung í Norræna húsinu í nóv-
ember að sýna kvikmyndir fyrir
börn á sunnudögum.
Fyrsta kvikmyndasýningin verð-
ur á morgun kl. 15.00. Þá verða
sýndar tvær sænskar teiknimyndir
„Lilla syster Kanin“, sem höfðar
til yngri aldurshópa og „Johnny
Katt oeh piratvalsen" fyrir börn á
aldrinum 8—14 ára.
Myndirnar eru með sænsku tali
og eru ekki með íslenskum texta.
Aðgangur er ókeypis.
Messa í minn-
ingu látinna
Undanfarin ár hefur söftiuður-
inn í Grindavík minnst þeirra
sóknarbarna er látist hafa firá
næstu Allraheilagramessu á
undan og verður það einnig gert
næstkomandi sunnudag. Messan
er með hefðbundnu sniði en að
viðbættum sérstökum þætti þar
sem nöfn hinna látnu eru lesin
upp og klukkum samhringt til
að heiðra minningu þeirra.
Sóknarprestur hefur skrifað bref
til eins aðila úr hverri fjölskyldu
syrgjenda og hvatt til þátttöku
hans og annarra ættingja og vina.
Enda þótt aðeins verði lesin upp
nöfn þeirra er látist hafa sl. 12
mánuði er messan um leið ætluð
öllum þeim er minnast vilja ástvina
sinna og genginna kynslóða, segir
í fréttatilkynningu frá séra Erni
Bárði Jónssyni. Að þessu sinni
verður minnst (í röð eftir dánar-
dægri): séra Jóns Árna Sigurðsson-
ar, Kristjáns Ottós Mássonar, Jóns
Árnasonar, Haraldar Harðar
Hjálmarssonar, Stefaníu Sigríðar
Guðlaugsdóttur, Hjálmars Sigurð-
ar Thomsen, Erlu Hjördísar Olafs-
dóttur, Ingibjargar Elíasdóttur,
Helgu Þórarinsdóttur, Jóhanns
Sverris Jóhannssonar og Jóns Örn-
óifs Bárðarsonar.
Sýningu Kristins
að ljúka
SÝNINGU Kristins G. Jóhanns-
sonar í FÍM-salnum, Garðastræti
6, lýkur á sunnudag.
Sýninguna kallar hann Málverk
um landslag og er hún 5. einkasýn-
ing hans í Reykjavík, en hann hef-
ur haldið flölmargar aðrar sýning-
ar.
Borgin tekur
tilboði Vara
REYKJAVÍKURBORG mun
ganga að tilboði Vara hf. í örygg-
isgæslu á vegum borgarinnar.
Borgarstjórn staðfesti á fúndi
sínum á fimmtudag tillögu
stjórnar Innkaupastoftiunar þar
að lútandi með 9 atkvæðum sjálf-
stæðismanna gegn 5 atkvæðum
borgarfulltrúa minnihlutans.
Fulltrúi Kvennalistans sat hjá
við atkvæðagreiðsluna.
I umræðum um málið á borgar-
stjórnarfundinum kom fram, að tvö
fyrirtæki hefðu gert tilboð í örygg-
isgæslu á vegum borgarinnar,
Securitás og Vari, og hefði tilboð
Vara verið 20% lægra. Borgarfull-
trúar Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags og Framsóknarflokks töldu
óráðlegt að ganga að því, þar sem
Vari byði þjónustu sína út til undir-
verktaka," og því fyrirkomulagi
fylgdi hætta á því að fyllsta örygg-
is yrði ekki gætt.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks töldu á hinn bóginn, að þjón-
usta þeirra fyrirtækja, sem buðu í
verkið, væri fyllilega sambærileg,
og því bæri að taka lægra tilboð-
inu. Það væri mál starfsmanna
fyrirtækjanna sjálfra, en ekki borg-
arinnar, að ákveða hvort þeir réðu
sig til vinnu sem undirverktakar
eða launþegar.
Nýja gallerí-
ið 10 ára
MAGNÚS Þórarinsson opnaði
Nýja galleríið 3. nóvember 1979
á Laugavegi 12.
í tilefni tíu ára afmælisins eru
nú til sýnis og sölu gömul verk
Magnúsar, þ.e. olíumálverk, vatns-
litamyndir, krítarmyndir og klippi-
myndir, sem flestar eru nýjar.
Galleríið er opið kl. 9—17 virka
daga, nema laugardaga kl. 9—15.
Lokað er á sunnudögum.
Bláflallagangan
hefst á sunnudag
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands hefur á sunnudagsmorg-
un gönguferðaröð frá þeim stað
þar sem samkvæmt rituðum
heimildum hefúr verið elsta sam-
fellda byggð á landinu.
Gönguferðaröðin hefst í Grófinni
kl. 10 (við bólvirkið á bak við Ála-
fossbúðina) og verður gengið í
áföngum á sunnudagsmorgnum
eftir svokallaðri Bláfjallaleið sem
liggur eftir helstu útivistarsvæðum
borgarinnar og endar við Skíða-
skálann í Bláfjöllum.
Stansað verður á leiðinni á
nokkrum stöðum og settar upp
„fræðslustöðvar", þ.e. kynntir
verða ákveðnir þættir í jarðfræði,
lífríki eða mannvistarsögu svæðis-
ins sem gengið verður um. Þá verða
þátttakendur aðstoðaðir við að
kanna svæðið upp á eigin spýtur.
í tengslum við gönguna verða einn-
ig settar upp litlar sýningar sgjm
kynna náttúrufar, ömefni og
mannvistarsögu hluta Bláfjallaleið-
ar.
Allraheilagra-
messa í Laugar-
neskirkju
AUraheilagramessa verður
sungin í Laugarneskirkju á
morgun kl.' 17. Sungin verður
messa eftir norska tónskáldið
Egil Hovland.
Allir liðir messunnar eru sungn-
ir. Ann Toril Lindstad stjórnar
kórnum en Þröstur Eiríksson leikur
á orgelið en auk þess leika málm-
blásarar undir stjórn Lánisar
Sveinssonar. Einsöngvarar verða
Laufey G. Geirlaugsdóttir og Þórð-
ur Búason. Á morgun verður einn-
ig barna- og íjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11.
Leiðrétting
I þætti Morgunblaðsins „Hvað er
að gerast um helgina“ á föstudag-
inn var frá því greint að Aðal-
heiður Valgeirsdóttir sýndi akríl-
og þurrkrítarmyndir í Ásmundar-
sal. Þetta er ekki með öllu rétt,
hún sýnir grafík- og þurrkrítar-
myndir.
Haustmót Taflfé-
lags Reykjavíkur
HAUSTMÓT Taflfélags
Reykjavíkur 1989 hefst á morg-
un og verður að minnsta kosti
fyrst um sinn teflt í húsakynnum
félagsins á Grensásvegi 44—46.
Lokaskráning í aðalkeppnina er
í dag kl. 14—18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri
á haustmótinu hefst laugardaginn
18. nóvember kl. 14. Tefldar verðá
níu umferðir eftir Monrad-kerfi,
umhugsunartími er 40 mínútur á
skák. Keppnin tekur þqár iaugar-
daga, þqár umferðir í senn.
Haustmótið er jafnframt meist-
aramót Taflfélags Reykjavíkur og
hlýtur sigurvegari í efsta flokki tit-
ilinn „Skákmeistari Taflfélags
Reykjavíkur“.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 3. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 71,00 40,00 66,20 6,689 442.850
Þorskur(ósf) 80,00 38,00 70,93 6,710 475.902
Þorsk(umálósl) 20,00 20,00 20,00 0,043 860
Ysa 88,00 49,00 76,71 . 6,790 520.925
Ýsa(ósl.) 97,00 62,00 69,56 7,904 549.797
Smáýsa(ósL) 26,00 26,00 26,00 0,044 1.131
Karfi 33,00 20,00 31,52 0,251 7.896
Ufsi 27,00 27,00 27,00 0,380 10.247
Ufsi(ósL) ' 27,00 27,00 27,00 0,036 972
Steinbítur 81,00 72,00 79,33 1,035 22.071
Hlýri 55,00 55,00 55,00 0,204 11.220
Langa 32,00 32,00 32,00 0,134 4.288
Langa(ósf) 32,00 32,00 32,00 0,518 16.560
Lúða 330,00 190,00 244,72 0,566 138.485
Koli 66,00 35,00 44,15 0,197 8.676
Kolaflök 112,00 112,00 112,00 0,238 26.656
Keila 24,00 24,00 24,00 0,735 17.628
Keila(ósf) 24,00 24,00 24,00 0,505 12.120
Samtals 70,72 33,227 2.349.839
Á mánudag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 87,00 25,00 78,26 11,841 926.665
Ýsa 80,00 50,00 67,80 17,267 1.170.664
Karfi 36,00 32,00 35,59 105,262 3.745.821
Ufsi 27,00 27,00 27,00 0,066 1.782
Steinbítur 67,00 57,50 65,19 0,926 60.362
Langa 26,00 26.00 26,00 0,038 982
Lúða 400,00 110,00 204,30 0,471 96.225
Keila 12,00 12,00 12,00 0,106 1.272
, Lýsa 18,00 18,00 18,00 0,531 9.558
Samtals 43,77 138,1236.045.124
Á mánudag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 67,00 49,00 59,57 29,795 1.775.023
Ýsa 73,00 39,00 66,26 16,660 1.103.864
Karfi 27,00 . 15,00 23,98 1,167 27.981
Ufsi 22,50 21,00 21,70 0,879 19.075
Steinbítur 35,00 15,00 30,05 0,323 9.705
Langa 35,00 29,00 33,40 1,531 51.132
Lúða 195,00 70,00 146,51 0,115 16.775
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,005 175
Keila 19,50 10,00 16,95 3,363 57.014
Skata '70,00 70,00 70,00 0,250 17.500
Tindaskata 10,00 10,00 10,00 0,130 1.300
Skötuselur 110,00 110,00 110,00 0,010 1.100
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,040 200
Samtals 56,56 54,545 3.084.999
Selt var úr Búrfelli KE og öðrum dagróðrabátum. í dag verður selt úr dagróðrabátum og hefst uppboðið klukkan 14.30.
jWeðður
á morguti
Guðsþjónustur í Reykjavikurpróf-
astsdæmi sunnudag 5. nóvember
1989.Allra heilagra messa.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 4. nóv.:
Barnasamkoma kl. 10.30. Egill
Hallgrímsson. Sunnudag 5. nóv.:
Messa kl. 11. Dómkórinn syngur
Organisti Marteinn Hunger Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 14
fjölskylduguðsþjónusta. Forsöngvarí
Hallur Vilhelmsson. Organisti Mar-
teinn Hunger Friðriksson. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra eru hvött
til að koma. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson. Miðvikudag 8. nóv. kl. 20.30.
Tónlistardagar Dómkirkjunnar hefj-
ast með orgeltónleikum prófessors
Flemming Dreisig. Laugardagur 11.
nóv. kl. 17. Tónleíkar Dómkórsins.
Sunnudag 12. nóv. kl. 17. Tónleikar
Dómkórsins. Prestarnir.
ÁRBÆJAflPRESTAKALL: Barna-
samkoma kl. 11 árdegis. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson. Guðsþjónusta
kl. 14. Allra heilagra messa. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra í
guðsþjónustunni. Öldunarstarf í
safnaðarheimili Árbæjarkirkju:
Mánudag 6. nóv. fótsnyrting kl.
15—17, tímapantanir í síma 74521.
Þriðjudag: Leikfimi eldri borgara kl.
14. Miðvikudag: Opið hús í safnaðar-
heimilinu frá kl. 13.30. Fyrirbæna-
stund kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þor-
stpji3§S9r).|,|. ;-c ti.OS.; ii)il:r
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala
Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir
messu. Munið kirkjubíltnn. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14, áltaris-
ganga. Organisti Daníel Jónasson.
Að lokinni messu verður kaffisala til
fjáröflunar starfs kirkjukórsins.
Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18.30. Fimmtudag: Biblíulestur kl.
20.30 í umsjá sr. Jónasar Gíslason-
ar, vígslubiskups. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr.
Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta
kl. 14. Allra heilagra messa. Minnst
látinna. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Einsöngur Eiríkur Hreinn
Helgason. Félagsstarf aldraðra mið-
vikudag e.h. Æskulýðsfundur mið-
vikudagskvöld kl. 20. Sr. Pálmi Matt-
híasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Cecil Haraldsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Organ-
isti Pavel Smid ásamt söngfólki
Fríkirkjunnar.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Sunnu-
dag: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðspjall dagsins:
Jesús prédikar um sælu.
Matt.5.
Messa kl. 14, altarisganga. Prestur
sr. Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Guðný M. Magnúsdóttir.
Mánudag: Æskulýðsfundur kl.
20.30. Þriðjudag: Starf fyrir 12 ára
börn kl. 17—18. Miðvikudag: Guðs-
þjónusta með altarisgöngu kl. 20.
Sóknarprestar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík. Barna-
guðsþjónusta kl. 11, Guðsþjónusta
kl. 14, orgelleikari Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KFUM óg K. Almenn samkoma kl.
20.30 Amtmannsstíg 2B. Upphafs-
orð Bjarni Gunnarsson. Ræða sr.
Guðmundur Óli Ólafsson.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barnamessa kl. 11 í Félagsmiðstöð-
inni Fjörgyn við Foldaskóla. Sunnu-
dagspóstur/söngvar. Skólabíll ferfrá
Hamrahverfi kl. 10.30. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Sunnudag 5.
nóv. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11,
sameiginleg fyrir öll börn í barna-
samkomunum. Nýir sálmar. Foreldr-
ar velkomnir með börnunum. Guðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega boðin.
Kynningarfundur fyrir foreldra ferm-
ingarbarna eftir guðsþjónustuna.
Kaffiveitingar. Fimmtudag 9. nóv.
Almenn samkoma kl. 20.30. Ungt
fólk með hlutverk. Föstudag 10.
nóv. Unglingastarfið fyrir 10—12 ára
börn kl. 17. Laugardag: Biblíulestur,
og bænastund kl. 10. Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabilinn.
Messa kl. 14. Altarisganga. Einsöng-