Morgunblaðið - 04.11.1989, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGfUR- 4'.-5NÓVBWBER 1989
__________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Bridsfélag Haftiarflarðar
Sl. mánudagskvöld, 30. október, var
spiluð þriðja og síðasta umferðin í
þriggja kvölda tvímenningi féiagsins.
Spilað var í tveimur tólf para riðlum
og urðu úrslit kvöldsins eftirfarandi:
A-riðilI:
Njáll Sigurðsson - Marino Guðmundsson 197
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 196
Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson 184
B-riðill:
Jón V. Jónmundsson - Sveinbjöm Ejjólfsson 194
Guðbrandur Sigurbergsson - Friðþj. Einarsson 190
Guðlaugur Ellertsson - Björn Arnarson 190
Lokastaðan:
Dröfn Guðmundsdóttir -
ÁsgeirÁsbjörnsson 595
Guðbrandur Sigurbergsson -
Friðþjófur Einai’sson 567
Baldur Baldursson -
Páll Sigurðsson 555
Njáll Sigurðsson -
Marinó Guðmundsson 547
Albert Þorsteinsson -
Sigurður Emilsson 547
Nk. mánudagskvöld, 6. nóvember, hcfst aðal-
sveitakeppni félagsins og verða spiluð 16 spil á
milli sveita, tveir leikir á kvöldi. Skráning í þá
keppni er hjá Kristjáni (s. 50275) og Ingvari (s.
50189) eða á spilastað eftir kl. 19.00, j). 6. nóvem-
ber. Stjóm félagsins hvetur alla spilara til að
mæta og taka þátt í einu skemmtilegasta formi
keppnisbrids.
Bridsfélag Kópavogs
Hafin er barometerkeppni með þátt-
töku 32 para og eru spilin tölvugefin.
Staðan eftir fj'rsta kvöldið:
Ólafur H. Ólafsson -
Hjálmtýr Baldursson Freyja Sveinsdóttir - 114
Sigríður Möller Ólína Kjartansdóttir - 93
Dúa Oláfsdóttir Óli M. Andreasson - 68
Vilhjálmur Sigurðsson Ármann J. Lárusson - 68
Ragnar Björnsson Grímur Thorarensen - 57
Guðmundur Pálsson 41
Bridsfélag Breiðholts Sl. þriðjudag lauk hraðsveitakeppni
félagsins. Sveit Guðmundar Baldurs-
sonar sigraði. Með honum spiluðu Jó- hann Stefánsson, Árni Már Björnsson
og Guðmundur Grétarsson. Úrslit urðu þessi: Guðmundur Baldursson 1.544
EiðurGuðjohnsen 1.502
Tryggvi Þór Tryggvason 1.458
Magnús Sverrisson 1.445
Baldur Bjartmarsson 1.420
Næsta þriðjudag, 7. nóvember, hefst
barometer, sennilega fimm kvölda
keppni. Skráning er í fullum gangi hjá
Hermanni í síma 41507 og Baldri í síma
78055. Spilað er í Gerðubergi.
Laugardagur kl.14:25 w w
44 LEIKVIKA- 4. nóv. 1989 111 X 121
Leikur 1 B„ Munchen - W. Bremen
Leikur 2 Arsenal Norwich
Leikur 3 Charlton - Man. Utd.
Leikur 4 Cheisea - Millwall
Leikur 5 Luton - Derby
Leikur 6 Man. City - C. Palace
Leikur 7 Nott. For. - Sheff. Wed.
Leikur 8 Southampton - Tottenham
Leikur 9 Wimbledon - Q.P.R.
Leikur 10 Brighton - Blackburn
Leikur 11 Ipswich - W.B.A.
Leikur 12 Wolves - West Ham
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002
Þrefaldur pottur!!!
Wélagslíf
□ GIMLI 598906117 - H.v.
DMÍMIR 59891167=11 Frl
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 Ofl 19533.
Dagsferð
sunnudaginn 5. nóv.:
Kl. 13.00 Kjalarnes - Músarnes.
Ekið að Brautarholti og gengið
þaðan um Músarnes. A leiðinni
til baka er gengið á Brautarholts-
borg. Létt gönguferð um lág-
lendi. Verð kr. 800,-. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Fritt fyr-
ir börn að 15 ára aldri.
Ath.: Næsta myndakvötd verð-
ur miðvikudaginn 8. nóv. i
Sóknarsalnum, Sklpholti 50a.
Ferðafélag íslands.
I dag kl. 14 til 17 er opið hús í
Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Litið
inn og spjalliö um lifið og tilver-
una. Heitt kaffi á könnunni. Við
syngjum saman kóra kl. 15.30.
Takið með ykkur gesti..
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Munið sunnudagaskólann í
fyrramálið kl. 11.00.
Auðbrekku 2.200 Kopavo»jr
Almenn fagnaöarsamkoma i
kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
jyjj Útivist
Dagsferðir
sunnudaginn 5. nóv.
Miðdalsheiði - Álfaborg. Létt
siðdegisganga fyrir alla fjölskyld-
una um fagurt vatnasvæði.
Brottför kl. 13.00 frá Umferðar-
miðstöð - bensinsölu. Stoppað
við Árbæjarsafn og i Mosfellsbæ
við kaupfélagið.
Sjáumst. Útivist.
t*JÓNUSTA
Rafl. og dyrasímaþj.
Gestur rafverkt. s. 623445,19637.
Viðhald - breytingar
Get bætt við mig vinnu nú þeg-
ar. Sími 20367 og 14068.
Samhjálp.
Árni Jónsson.
■ ■ B
Borgin
tekur við
Broadway
IÞRÓTTA- og tómstundaráð tók
við rekstri veitingahússins
Broadway við Alfabakka unt
síðustu mánaðarmót og verður
staðurinn formlega opnaður í
dag. I kvöld verður skemmtun
fyrir unglinga, þar sem fram
koma Bubbi, Valgeir, Megas,
Bjartmar og Sálin hans Jóns
míns. Kynnir verður Egill Ólafs-
son.
í frétt frá íþrótta- og tómstunda-
ráði segir, að húsið bjóð upp á fjöl-
marga möguleika til samkomu-
halds og að lögð verði áhersla á
að þar verði starfsemi fyrir alla
aldurshópa. Auk unglingastarfs á
vegum ÍTR og skóla verður húsið
leigt út til hvers konar samkomu-
halds meðal annars fyrir árshátíð-
ir, einkasamkvæmi, skólaskemmt-
anir, tónleika og skemmtanir fyrir
eldri borgara. Samið hefur verið
við Veitingahöllina hf. um rekstur
veitingasölu.
Við formlega opnunarhátíð í dag
verður kynnt niðurstaða í hug-
myndasamkeppni um nýtt nafn á
samkomuhúsið og höfundi nafnsins
veitt verðlaun. Forstöðumaður
skemmtistaðarins er Jónas Krist-
insson.
skemmdist mjög mikið og kastaðist
3-4 metra. Tjón eiganda er mikið.
Sá sem ók á Skódann gaf sig ekki
fram, heldur ók á brott. Hann
skildi hins vegar eftir brot úr ljós-
kúpli, svo ljóst er að bifreið hans
er af gerðinni Nissan Sunny Co-
upe. Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði biður ökumanninn að auka
sér leti og tefja ekki málið frekar,
heldur hafa samband hið bráðasta.
Þessa sömu nótt var ekið á Dai-
hatsu Charade á móts við Álfa-
skeið 46 og skemmdist hann á
vinstra frambretti. Ef einhver hefur
upplýsingar um þann atburð er
hann beðinn að gefa sig fram við
rannsóknarlögregluna í Hafnar-
firði.
Guðmundarmót-
ið í brids
Hvammstanga.
„Guðmundarmótið" í brids
verður á Hvammstanga í dag.
Bridsfélag Vestur-Húnvetninga
annast framkvæmd mótsins. Búist
er við þátttakendum af vestanverðu
Norðurlandi frá Akureyri, einnig
frá Borgarfirði, Stykkishólmi,
Grundarfirði og frá Hólmavík. Ef
mæting verður góð verða 36 pör á
mótinu. Spilað verður eftir Baro-
meter-kerfi.
Norðurlandsmót í brids var einn-
ig haldið hér fyrir nokkru og var
þátttaka góð.
- Karl
Allra heilagra
messa í Lang-
holtskirkju
ALLRA heilagra messa er á
morgun. Af því tilefhi verður
sérstök tónlistarhátíð í Lang-
holtskirkju.
Allur Langholtskórinn mun
syngja í messunni klukkan 14.
Einnig mun málmblásarahópur
leika með kórnum. Þessi tónlistar-
flutningur er styrktur af minning-
arsjóði Guðlaugar Pálsdóttur, segir
í frétt frá séra Þórhalli Heimis-
syni. Tilgangur sjóðsins er meðal
annars að kosta tónlistarflutning
sem þennan í einni messu á ári í
Langholtskirkju.
I messunni verður altarisganga.
Að messunni lokinni bjóða kórfé-
lagar öllum kirkjugestum upp á
molakaffi í safnaðarheimilinu. Þar
verður tekið á móti framiögum í
sjóðinn.
Sýning og basar
aldraðra
UM þessar mundir eru liðin 10
ár frá því þjónustuíbúðir aldr-
aðra við Dalbraut 27 voru teknar
í notkun. I tilefni af því er hald-
in sýning og basar á handunnn-
um munum íbúa og dagdeildar-
gesta. \
Jafnframt verður sýning á hand-
unnum brúðum gerðum af yfir-
manni handavinnudeildar Dal-
brautar, Arndísi Sigurbjörnsdóttur.
Sýningin verður opin í dag og á
morgun frá klukkan 14-17.
• •
Okumaður Niss-
an gefí sig fram
Rannsóknarlögreglan i Hafn-
arfirði óskar eftir að hafa tal af
ökumanni Nissan Sunny Coupe
bifreiðar, sem var ekið á mann-
lausan Skoda við Ásbúðartröð
þar í bæ aðfaranótt miðviku-
dags.
Skodinn, sem er. ljós á lit,
Jazztónleikar í
Heita pottinum
TRIO Omars Einars, ásamt Guð-
mundi Ingólfssyni, spilar í Heita
pottinum á morgun sunnudaginn
5. nóvember, klukkan 21.30.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ómar
Einarsson spilar í pottinum. í Tríói
Ómars eru Ómar Einarsson sem
spilar á gítar, Guðmundur Ingólfs-
son spilar á píanó, Þórður Högna-
son spilar á bassa og Matthías
Hemstock sem spilar á trommur.
Kynningarfimd-
ur hjá Yr
ITC deildin Ýr heldur kynningar-
fund, mánudaginn 6. nóvember
klukkan 20.30. í Síðumúla 17, sal
Frímerkjasafnara. Stef fundar er
„Kveiktu ljós“.
Sýningu
Ninnýjar að
ljúka
SÝNINGU Jóninu Magnúsdótt-
ur, Ninný, í Galleríi List lýkur á
morgun klukkan 18.
Á sýningunni eru verk unnin
með postulínslitum á flísar, olíu á
striga og krít á pappír.
Báti stolið í
Kópavogi
FIMMTÁN feta hraðbáti á kerru
var stolið aðfaranótt sl. sunnu-
dags, en hann stóð fyrir utan
vélsmiðjuna Faxa á Smiðjuvegi
í Kópavogi.
Báturinn er svartur á lit, með
brúnni innréttingu, búinn 115 hest-
afla Mercuiy-utanborðsmótor.
Hann stóð á grárri kerru, með
rauðri yfirbreiðslu. Þeir sem gætu
veitt upplýsingar um hyar báturinn
er nú niður kominn eru beðnir um
að hafa samband við rannsóknar-
deild lögreglunnar í Kópavogi.
Orator með
skemmtanir
ORATOR, félag laganema, hefur
tekið að sér skemmtanahald á
Hótel Borg á föstudags- og laug-
ardagskvöldum í vetur.
Félagið hefur gert samstarfs-
samning við Ólaf Laufdal veitinga-
mann sem nú rekur Hótel Borg,
en þetta er þriðji veturinn sem fé-
lagið sér um skemmtanahald á
Borginni um helgar.
Sandgerði:
Grunnskólanem-
ar útvarpa
NEMAR í grunnskólanum í
Sandgerði útvarpa á morgun
eíhi frá málræktarátaki sem var
í síðustu viku.
Á dagskránni verða viðtalsþætt-
ir, fréttir, tónlist, leikrit, skemmti-
efni, sögur, Ijóð, frásagnir og fleira.
Efnið er unnið af öllum nemum
skólans og verður sent út á FM
105,5 kl. 10—17.30 á morgun.
Hugræktar-
námskeið
KRISTJÁN Fr. Guðmundsson
kennir almenna hugrækt og
hugleiðingu að Álfaskeiði 95,
Hafharfírði og hefst námskeiðið
miðvikudaginn 15. nóvember nk.
Kristján hefur haldið hugrækt-
arnámskeið í tvö ár og er það byggt
á aðferðum þeim er Sigvaldi Hjálm-
arsson þróaði upp úr austrænum
jógafræðum og kristnu bænalífi.
Athyglisæfingar, hvíldariðkun og
andardráttaræfingar eru hluti af
námskeiðinu, auk þess sem veittar
eru leiðbeiningar um iðkun yoga.
Kvennalistinn
mótmælir riti
KVENNALISTINN hefur mót-
mælt ritinu „Nú er lag!“ „fleiri
konur í sveitarstjórnir, fleiri
konur á þing, ábendingar um
leiðir sem geta leitt til meiri jöín-
unar“, en útgefandi er Jafnrétt-
isráð og höfundur texta Stefanía
Traustadóttir.
Kvennalistakonur gerp ýmsar
athugasemdir við nokkur atriði í
umræddum bæklingi og mótmæla
því að Jafnréttisráð skuli láta frá
sér rit, þar sem algerlega sé sneitt
hjá þeirri staðreynd að hér á landi
eru til sérframboð kvenna bæði í
sveitarstjórnum og á Alþingi.
Kvennalistinn óskar eftir því að
Jafnréttisráð fjalli um mótmælin
og taki afstöðu til þess hvernig sé
hægt að leiðrétta þessi mistök.
Sýnishorn af munum.
Basar Hús-
mæðrafélagsins
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur sinn árlega basar á morg-
un að Hallveigarstöðum við Tún-
götu og hefst hann kl. 14.
Að venju er mikið af allskonar
handavinnu, s.s. sokkum, vettling-
um, peysum, húfum, jóladúkum og
jólasvuntum fyrir börn og full-
orðna. Ennfremur allskonar pijón-
uð dýr, ísaumaðir, prjónaðir og
heklaðir dúkar og fleira og fieira
að ógleymdum lukkupokunum fyrir
börnin.
Allur ágóði af sölu basarmuna
fer til líknarmála.