Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 Kvikmyndagerðar- maður kærir hótanir MAGNÚS Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður, sem gerði mynd- ina Lifsbjörg i Norðurhöfum, hefur lagt inn kæru hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Kæran er vegna hótunar, sem honum hefur borist, um að öll myndbönd með kvikmyndinni verði eyðilögð, verði þau seld í verslunum. Magnúsi barst í pósti fyrir skömmu pakki, sem innihélt sex Stjórn Flugleiða: Fyrirtæki um innan- landsflug STJÓRN Flugleiða hefur ákveðið að stcfna að stofnun sérstaks fyrirtækis um innan- landsflug. Hyggst félagið leita eftir samstarfi við flugfélög á landsbyggðinni um stofnun fyrii’tækisins. Að sögn Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa Flugleiða, er þessi ákvörðun tekin í framhaldi af steftiu stjórnvalda í samgöngumál- um, þar sem ákveðið er að sérleyfí á áætlanaleiðum renni út efíir þrjú ár. „Við höfum átt samstarf við tvö flugfélög, Flugfélag Austur- lands og Flugfélag Norðurlands og erum að auka samstarf við Flugfélagið Erni,“ sagði Einar. Samstarfið hefur fyrst og fremst verið á sviði markaðsmála með samræmingu ferðaáætlana. Byggt hefur verið upp þjónustu- net sem nær til fleiri staða cn þeirra tíu sem Flugleiðir fljúga til. „Það er stefna Flugleiða að styrkja innanlandsflugið með þessum hætti og fá til samstarfs fleiri aðila," sagði Einar. „Stefn- an hefur verið að sinna innan- landsfluginu með stórum vélum, sem geta flogið yfir veður og verður svo áfram á aðalleiðum en ef að stofnun þessa nýja fé- lags verður þá verður flugfloti þess blandaður. Enda er það hugsað þannig að nýja félagið sinni flugi til stærri og minni staða.“ Frumundirbúningur að stofn- un félagsins er vel á veg kominn en ekki hefur enn verið rætt við önnur flugfélög um þátttöku. sundursöguð myndbönd af kvik- myndinni. í meðfylgjandi orðsend- ingu sagði á þá leið að öll mynd- bönd, sem sett yrðu á markað, yrðu eyðilögð. Magnús hefur nú lagt inn kæru til Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Hann sagði í samtali við Morg- unblaðið að kæruna byggði hann fyrst og fremst á þeim hótunum sem kæmu fram í orðsendingunni. Hann vissi ekki hvort myndböndun- um hefði verið stolið og gæti því ekki kært vegna þess. Hins vegar mætti einnig benda á, að tveir al- þingismenn væru að ósekju bendl- aðir við málið, með því að nota jiafn annars þeirra sem sendanda og númer á pósthólfi hins. Myndbandið, sem er á énsku, var sett á markaðinn í júní. Það er selt í minjagripaverslunum og víðar. Magnús kvaðst ekki hafa tölur um fjölda seldra eintaka. Þess má geta, að hafí myndböndin sundursöguðu verið keýpt fullu verði hefur kaup- andinn þurft að greiða fyrir þau um 15 þúsund krónur. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Unnið við gerð grjótgarðs í Hvammstangahöfn. Hvammstangi: Framkvæmt undir kostnaðaráætlun Hvammstanga. UNNIÐ var við viðgerð á gamla hafnargarðinum i Hvammstanga- höfii í sumar, steyptur var viðlegukantur og þekja. Aætlað var að kostnaður yrði 10,6 milljónir króna. Verkið kostaði hins vegar að- eins 7,5 milijónir þannig að sparnaður varð um þrjár milljónir króna. Er þetta í þriðja sinn sem fram- kvæmdir við mannvirki Hvamms- tangahafnar eru unnar undir kostn- aðaráætlun og í öllum tilfellum ver- ið stjórnað af heimamönnum. Fyrir ónýtta fjárveitingu var ákveðið að gera gijótgarð sunnan hafnarinnar og mynda þannig kví fyrir smábáta sem fram að þessu hafa verið í höfninni. Með fjölgun skipa og báta á Hvammstanga hef- ur aðstaða smábáta þrengst og er mikil bót að rýmri aðstöðu fyrir þá. - Karl Þrír rjúpnaveiðimenn fimdust heilir á húfi eftir næturlanga leit MAÐUR um fertugt og tveir unglingspiltar, sem fóru til rjúpna frá Reykjavík á mánudag og ætluðu að koma aftur til byggða um kvöld- ið, fúndust heilir á húfí í gærmorgun. Þeir höfðu fest bíl sinn við veginn frá Hafnarfirði upp í Bláfjöll. Maðurinn, sem er fatlaður, var í bilnum, en piltarnir gengu í gærmorgun áleiðis til HafnarQarðar. Þegar þeir höfðu gengið um hríð fengu þeir far til byggða frá malar- gryfju ofan Hafnarfjarðar. Mennirnir þrír höfðu farið til ijúpna á mánudag og ætluðu að vera komnir aftur til byggða um klukkan 18.30. Síðdegis á mánudag fór bíll þeirra út af veginum undir Lönguhlíðum við Leirudalsvatna- stæði og festist. Piltarnir reyndu að koma honum aftur upp á veg- inn, en tókst það ekki. Þeir ætluðu að ganga til byggða, en voru nokk- uð blautir og óttuðust að villast, svo ákveðið var að þeir héldu allir þrír kyrru fyrir í bílnum um nóttina. Klukkan 3 aðfaranótt þriðjudags var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt að þeirra væri saknað og hófst þá leit í nágrenni Reykjavíkur. Um klukkan 9.30 í gærmorgun fór þyrla Landhelgisgæslunnar til leitar, en nokkrum erfiðleikum olli að ekki var vitað hvert mennirnir höfðu haldið. Um klukkan 10 kom áhöfn þyrlunnar auga á bíl mannanna og lenti þyrlunni þar. Reyndist þá maðurinn um fertugt, sem er hreyfihamlaður, vera einn í bílnum. Piltarnir tveir, 15 og 16 ára, höfðu lagt af stað fótgangandi til Hafnar- fjarðar í birtingu um morguninn. Þegar áhöfn þyrlunnar hafði að- stoðað manninn við að losa bílinn fór hún aftur í loftið og fylgdi vegin- um til Hafnarfjarðar. Þegar þyrlan kom að malamámum nokkuð ofan Hafnarfjarðar lenti áhöfnin henni þar til að spyijast fyrir um ferðir piltanna. Kom þá í ljós að þeir höfðu komið þangað og fengið far með malarbíl til Hafnarfjarðar. Menn- irnir þrír voru allir við góða heilsu. Ökumaðurinn, sem ekki vill láta nafns síns getið, sagði í samtali við Morgunblaðið að sér þætti leiðinlegt að valda öðrum miklum vandræðum og áhyggjum. Hann benti á, að hann hefði gjarnan viljað vera betur útbúinn til að geta látið vita af sér. Þá sagði hann þennan atburð sýna, að bílsími væri nauðsynlegt örygg- istæki fyrir fatlaða. Hann hefði til dæmis getað verið einn á ferð á milli bæja og þá hefði hann ekki átt neinn möguleika á að láta vita af sér. Tryggingastofnun ríkisins greiddi ekki nema 25 þúsund krón- ur af stofnkostnaði við slíkan síma, sem kostaði hátt á annað hundrað þúsund krónur. Magnús Einarsson, yfirlögreglu- þjónn, sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann vildi brýna fyrir mönnum að láta aðstandendur ávallt vita um ferðaáætlanir sínar, hvaða leið verður farin og hversu lengi menn ætla að vera í burtu. Orgeltónleikar í Dómkirkjunni ORGANLEIKARINN Prof. Flemming Dreisig frá Kaup- mannahöfh leikur á orgel Dóm- kirkjunnar í Reykjavík í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Á efnisskrá verða verk eftir Bach, Reger og eftir organleikara Helligaandskirkju í Kaupmanna- höfn. Prof. Dreisig er hér á vegum Dómkórsins til að leika á Tón- „ _ listardögum Prof.Flemming Dómkirkjunnar Dreisig. sem hefjast í kvöld. Tónleikar með söng Dómkórsins verða laugardag- inn 11. nóvember og sunnudaginn 12. nóvember. Júlíus Sólnes um vanda skipasmiðjanna: Til greina kemur að veita skattaívilnanir JÚLÍUS Sólnes, hagstofuráðherra, segir að til greina komi að veita íslenskum skipasmíðaslöðvum skattaívilnanir sem nemi um 10-15%. Hann segir að íslenskar stöðvar séu þjóðhagslega hagkvæmari þó að þær séu t.d. 10-15% dýrari og að hans mati komi til greina að jafna þennan mun með skattaívilnunum. í umræðum utan dagskrár í fyrra- dag sagði Halldór Ásgrímsson, sjáv- arútvegsráðherra, að ekki væri útlit fyrir vinnu við skipasmíði næstu ár- in. Flotinn væri þegar of stór og engin þörf fyrir ný skip. Júlíus Sólnes tók undir orð Hall- dors og sagði að vlssulégá væru skfp- in of mörg. Hinsvegar mætti bæta nýtinguna og án efa yrði um ein- hveija endurnýjun að ræða næstu árin, einkum vegna tæknilegra breytinga. Júlíus sagði að niður- greiðslur myndu ekki leysa vanda skipasmíðastöðvanna. Forlagið: Smásögur eftir Svövu Jakobs- dóttur og Birgi Sigurðsson Yngsti höfundurinn sjö ára BÓKAÚTGÁFAN Forlagið gefúr út á þriðja tug bóka að þessu sinni. Þar á meðal eru smásagnasöfn ellir Svövu Jakobsdóttur og Birgi Sigurðssoif, frásagnir Stefáns Jónssonar og Tove Engilberts og fyrsta ljóðabók Jónasar Þorbjarnarsonar. Yngsti höfundur Forlagsins er Sól Hrafnsdóttir, en hún var aðeins sjö ára í fyrra þegar hún skrif- aði söguna Feiti strákurinn, sem nú kemur út. Bók Svövu Jakobsdóttur heitir Undir eldfjalli og er fjórða smá- sagnasafn hennar. Frá himni og jörðu heitir smásagnasafn Birgis Sigurðssonar. Forlagið gefur út Ástir sam- lyndra hjóna, eftir Guðberg Bergs- son, í kilju en bókin kom fyrst út 1967. Höfundur hefur endurskoðað bókina með tilliti til stíls og frásagn- ar og ritar eftirmála þar sem hann gerir grein fyrir tilurð hennar. Á fjallaskiptum er ljóðabók eftir Birgi Svan Símonarson. Þetta er úrvai ljóða úr átta ljóðabókum frá árunum 1975 - 1988. í jaðri bæjar- ins er fyrsta ljóðabók Jónasar Þor- bjarnarsonar sem hlaut fyrstu verð- laun í ljóðasamkeppni Morgun- blaösins 'á 1101™ ári...... - --- Stefán Jónsson sendir frá sér endurminningabókina Lífsgleði á tréfæti með byssu og stöng. Aðrar endurminningabækur eru Eins manns kona, sem eru minningar Tove Engilberts, eftir Jónínu Mic- haelsdóttur og Dúfa Töframanns- ins, minningar Katrínar Hrefnu yngstu dóttur Einars Benediktsson- ar skálds. Bókin er eftir Gylfa Gröndal. Hershöfðinginn i völundarhúsi sínu er nýjast skáldsaga Gabriels García Márquez í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Hneyksli nefnist bók eftir japanska rithöfundinn Shus- aku Endo, sem Úlfur Hjörvar þýddi úr ensku. Hinsti heimur er ný skáld- saga eftir Austurríkismanninn Ohristoph Ransmayr; sem -Kristján Árnason þýddi og Sumarið fyrir myrkur nefnist bók eftir Doris Less- ing í þýðingu Helgu Guðmunds- dóttur. Barna- og unglingabækur For- lagsins eru Kuggur, Mosi og mæð- gurnar, eftir Sigrúnu Eldjárn, og er þetta þriðja bókin um Kugg. Fallegi flughvalurinn er eftir Olaf Gunnarsson með myndum eftir Jö- an Sandin og Feiti strákurinn er eftir Sól Hrafnsdóttur sem samdi söguna í fyrra þegar hún var aðeins sjö ára gömul. Heimur vísindanna er fjölfræði- bók eftir Annabel Craig og Cliff Rosneyj sem Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Oskubuska, Stígvélaði kött- urinn og Aladdín og töfralampinn eru þijár nýjar sögur í bókaflokkn- um Ævintýri barnanna í þýðingu Þorsteins frá Hamri. Fjórar nýjar sögur um köttinn Gretti koma út. Jim Davis teiknar myndirnar en Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Bækurn- ar heita í blíðu og stríðu, Oddi er besta skinn, Hvað er í matinn? og Elskhuginn mikli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.