Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NOVEMBER 1989
17
Árangurslaus brandaraleit
_________Leiklist_____________
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélag Hafnarljarciar sýnir í
Bæjarbíói
Leitin að týnda brandaranum
Leikstjórn, leikgerð og tónlist:
Valgeir Skagljörð
Aðstoðarleikstjóri og leikmynd:
Ragnhildur Jónsdóttir
Búningar: Alda Sigurðardóttir
Lýsing: Egill Ingibergsson
Söngtextar: Hörður Zóphanías-
son, Hulda Runólfsdóttir, Val-
geir Skagfjörð
Sýningarstjóri: Svafa Arnardótt-
ir
Revíur og grinleikir með fjöri og
góðum bröndurum, tónlist og trall-
arí geta verið hin besta skemmtun.
Staðbundnir brandarar í slíkuni
leiksýningum höfða að vísu stund-
um til takmarkaðs hóps sem þekk-
ir til allra aðstæðna og uppákoma
á svæðinu en af má þó oft hafa
heilmikið gaman.
Hinir landsfrægu HafnarQarðar-
brandarar eru að deyja út og að
því er best er vitað er aðeins einn
sem hefur varðveist. Því er ákveðið
að senda Jón Þumba á stúfana og
hafa upp á stórri bók sem líklega
er einhvers staðar og inniheldur
alla gömlu góðu brandarana. Jón
leggur af stað til Hafnarfjarðar í
þessum erindagjörðum, rekst á
dóttur bæjarstjórans á stoppistöð-
inni og er það ást við fyrstu sýn.
í Hafnarfirði. er bæjarstjórinn í
ráðhúsleik, álfkonur hafast við í
hamrinum, þreifingar eru á bæjar-
stjórnarfundi, hermenn á æfingum
raska bæjarlífinu og ónáða frú
Lúðvigsen, framhjáhöld og
skemmtanir, maður með farsíma
gengur um göturnar og nokkrir
rónar sveiflast um. Undir lokin
finnst brandarabókin og ættu þá
allir að vera glaðir. Þá var lopinn
teygður enn um hríð og varð ekki
vart að líðanin skánaði. En út af
fyrir sig ætti að vera hægt að
skemmta sér ef tekst að gera eitt-
hvað úr þessum hugmyndum.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur á
stundum verið með ágætar sýning-
ar þau ár sem ég hef skrifað um
leikhús og hefur stundum fengið
prýðilega leiðbeinendur. Leikgleði
og hæfileikar ýmissa úr Hafna-
fjarðarliðinu hafa oft átt hlut að
því að úr hafa orðið minnisverðar
sýningar.
Stór hópur og litríkur kemur hér
til sögunnar, leikendur fara flestir
með ýms hlutverk og smeygja sér
léttilega milli þess að vera álfkon-
ur, ritarar eða rannsóknarmenn og
tekst oft bærilega. Aftur á móti
var sýningin ekki vel heppnuð;
textinn var rýr og ekki fyndinn sem
er eiginlega hreint afleitt þegar
revía eða grínleikur er annars veg-
ar. Staðsetningar eru dálítið tilvilj-
anakenndar og ærsl og sprikl leik-
ara missa oft marks, þau eru ekki
nógu vel unnin og leikstjóri hefur
ekki nóg taumhald á hópnum.
Jón Þumbi er í höndum Karls
Hólms og þrátt fyrir að Karl fari
út í öfgar — sem hann ræður ekki
alltaf við — í túlkun og hreyfingum
á hann þó góðar senur inn á milli.
Karl hefur húmor og léttleika en
meiri vandvirkni þarf til að leika
sniðugan ærslaleik en flest. Hanna
Björk Guðjónsdóttir er Kría bæjar-
stjóradóttir og reynir að stilla
gauragangi í hóf. Erlendur Pálsson
fer mörgum sinnum of geyst sem
Gunnar Aki bæjarstjóri. Guðbjörg
Kvien átti einna skemmtilegastan
ieik í litlu hlutverki frú Lúðvigsen
og svo söng hún prýðilega. Það
gerðu raunar fleiri. Tónlistin var
til mikils léttis en hópatriði voru
ekki alltaf eins þokkaleg og efni
hefðu getað staðið til.
Þessi umsögn er skrifuð eftir
aðra sýningu. A henni voru einkum
Hafnfirðingar og sumir þeirra
skemmtu sér vel.
Byssuskefti
hvarf úr bíl
Vitni vantar að
ákeyrslum
Rannsóknarlögreglan í Hafii-
arfirði vill beina því til fojreldra
barna í grennd við Sjávargötu
í Bessastaðahreppi að þau at-
liugi hvort börnin hafi undir
höndum forláta skefti af hagla-
byssu. Skeftið, sem hvarf úr aft-
ursæti bíls fyrir utan hús í hverf-
inu, er engum hættulegt en eig-
andinn saknar þess sárt þar sem
án þess er dýr haglabyssa hon-
um gagnslaus um rjúpnaveiðit-
ímann.
Telur lögreglan ekki ólíklegt að
börn sem leið hafi átt hjá bílnum
með skeftinu hafi látið freistast til
að taka skeftið og að auka með
því ógnarmátt leikfangabyssu.
Þá leitar rannsóknarlögi’eglan í
Hafnarfirði vitna að því þegar ekið
var á blásanseraða Hona Civic
fólksbifreið við Breiðvang 2 þar í
bæ aðfaranótt síðasatliðins laugar-
dags, 4. nóvember. Hægri aftur-
hurð bílsins er mikið skemmd.
Slysarannsóknadeild iögregl-
unnar í Reykjavík óskar eftir að
ná tali af vitnum að því þegar
ekið var á grænan Daihatsu
Charade á stæði við Eyjabakka 6
aðfaranótt mánudagsins 6. nóvem-
ber. Vinstri hurðir bílsins eru mik-
ið skemmdar.
Niður
með hita-
kostnaðinn
OFNHITASTILLAR
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
I í
ISUZU
TROOPER
Hió þekkta tímarit „Four Wheeler" í
Bandaríkjunum hefur nú, fjórða árið í
röð, valið Isuzu Trooper hagkvæmasta
og besta fjórhjóladrifs jeppann, af 10
á markaðnum.
Veró frá kr. I .692.000,- stgr.
Veró frá kr. 1.925.000,- stgr.
ISUZU TROOPER er sparneyfinn sem fólksbíll - sterkbyggóur jeppi
2,6 I. 1 15 ha. bensínvél m/beinni innspýtingu
2,8 I. 100 ha. dísilvél með forþjöppu og beinni innspýtingu.
| Mjúk og þægileg sjálfstæð fjöðrun að framan og blaðfjaðrir að aftan.
Fjöórun
Mál i m/m
Lengd 4,075/4,425 - Breidd 1,650 - Hæð 1,800 - Lengd milli hjóla
2,300/2,650 - Hæð undir lægsta punkt 225.
Staólaóur búnaóur:
Aflstýri - Framdrifslokur - Tregðulæsing á afturdrifi - Sam-
læsing á hurðum - Rafdrifnar rúðuvindur (LS gerð) - Sport-
felgur - Rafhituð framsæti (LS gerð) - Utvarp m/segulbandi
- Háþrýstiþvottur fyrir aðalljós - Dagljósabúnaður.
m n
BÍLVANGUR st=
Höfðabakka 9, símar 687300 - 674300 (bein lína)