Morgunblaðið - 08.11.1989, Page 21

Morgunblaðið - 08.11.1989, Page 21
'i'iw'vov s jrji'Aouxi'OiM •in/.f.-vi ••f.ov MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 21 Söfiiun fyr- ir björgun- arþyrlu Nemendafélag Stýrimanna- skólans í Reykjavík stendur fyrir söfnuu til eflingar Björgunar- sjóði Stýrimannaskólans. Sjóð- urinn var stofhaður 1988 af nem- endum með framlögum þeirra. Markmið sjóðsins er að safna fé til styrktar kaupum á öflugum björgunarþyrlum. Söfnunin fer fram með.símhring- ingum til félaga og fyrirtækja í landinu. Með hjálp sjómannakven- félaganna í Reykjavík, sem munu leita til kvenfélaga víða um land, verður fljótlega leitað til almenn- ings eftir stuðningi. Staðið verður fyrir söfnun um borð í öllum skip- um flotans og eru uppi hugmyndir um afrakstur eins dags frá hverri skipshöfn og útgerð. Litabækur hafn- firskra barna í TILEFNI JC-dagsins í ár, sem hafði kjörorðið „Búum börnum betri framtíð", gaf JC-Hafnar- Ijörður út fitabók og hélt grímu- ball í Pélagsmiðstöðinni Vitan- um í Hafharfírði. Litabókin var gerð í samráði við Umferðarráð og var ætluð sem umferðarfræðsla fyrir börn á aldr- inum 2-6 ára. Bókinni var dreift á . allar dagvistarstofnanir í Hafnar- firði og sá lögreglan um umferðar- fræðslu og dreifingu endurskins- merkja í leiðinni. Einnig fengu öll börn hjá dagmæðrum bókina. Grímuballið var auglýst fyrir börn 2-6 ára og mættu 130 börn og 50 fullorðnir. Málþing um fisk- veiðisljórnun Sjávarútvegsstofnun Háskól- ans stendur fyrir málþingi og ráðstefhu um fiskveiðistjórnun. Málþingið verður haldið fimmtu- daginn 9. nóvember klukkan 13 í Norræna húsinu. Ráðstefnan verður á sama stað mánudaginn 13. nóvember og hefst kjukkan 14. í frétt frá Háskóla íslands segir: „Að undanförnu hefur verið lífleg umræða um kvótakerfið í tengslum við væntanlega endur- skoðun á lögum um fiskveiðistjóm- un. Mörg sjónarmið hafa komið fram og telur stjórn stofnunarinnar brýnt að þær athuganir og rann- sóknir sem tengjast þessu við- fangsefni séu kynntar opinberlega. A málþinginu verða flutt 15 stutt erindi. Jakob Jakobsson setur ráð- stefnuna, en ráðstefnustjóri verður Davíð Ólafsson, fyn-verandi seðla- bankastjóri. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður og verður sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás- grímsson, meðal þátttakenda. Málþing Félags íslenskra ft-æða Félag íslenskra fræða boðar til málþings í Norræna húsinu, laugardaginn 11. nóvember, næstkomandi, þar sem fjallað verður um hlutverk nokkurra rannsóknarstofhana á sviði íslenskra fræða: Sagnfræðistofn- unar, Bókmenntafræðistofnun- ar, Þjóðminjasafns, Árnastofn- unar, Þjóðskjalasafhs og Orða- bókar Háskóla Islands. Á þinginu verður spurt um fjölda starfsmanna, þróun og möguleika á endurnýjun, ráðningarform, rannsóknarstefnu og rannsóknar- verkefni. Þá verður fjallað um verk- efni undanfarna áratugi, þjónustu þessara stofnana við almenning og fræðimenn, hugsanlega samvinnu við fyrirtæki og samtök á einka- vettvangi og síðast, en ekki síst, sjálfstæði rannsóknarstofnana á vegum ríkisins. Tvö framsöguerindi verða flutt um hveija stofnun, eitt af starfsmanni stofnunarinnar og hitt af starfandi fræðimanni í við- komandi grein utan hennar. Fyrirspurnir og opnar umræður verða um hveija stofnun og undir lokin verða pallborðsumræður þar sem fulltrúi mennamálaráðherra kynnir stefnu stjómvalda í málefn- um íslenskra fræða. Sigrún Eyjólfsdóttir og dætur hennar, Elín og Kristín Andrésdætur, í verzluninni Blóm og listmunir. Blóm og list- munir BLÖM og listmunir heitir verzl- un, sem opnuð hefur verið í Kringlunni 6 í Reykjavík. Þar eru á boðstólum blóm og listmunir en aðaleigandi verzlunar- innar, Sigrún Eyjólfsdóttir, hefur starfað við blóm og blómaskreyt- ingar um árabil. Guðjón Magnús- son, arkitekt, sá um innréttingar. Verzlunin er opin öll kvöld og um helgar til klukkan 22. Leit vegna bil- unar í ratsjár- stöð BILUN í fjarskiptabúnaði í rat- sjárstöðinni á Gunnólfsvíkur- Qalli varð þess valdandi að send- ingar hófust á neyðarbylgju að morgni mánudags. Björgunar- sveitir voru kallaðar út á Bakka- firði og Þórshöfh og fjórir bátar lióíh leit. Þá var flugvél Land- helgisgæslunnar send austur til að miða sendingarnar út og kom þá í Ijós að þær komu frá ratsjár- stöðinni á Gunnólfsvíkurfjalli. Jarðstöð í Bodö í Norður-Noregi nam sendingar á neyðarbylgju frá Norðausturlandi frá gervihnettin- um Cospas-sarsat um klukkan 6 á mánudagsmorgni. Upplýsingarnar voru sendar til Qarskiptamiðstöðv- arinnar í Gufunesi sem kom þeim áfram til Flugstjórnarmiðstöðvar- innar, Landhelgisgæslunnar og Slysavarnafélags íslands. Sendin- garnar voru þannig að taldar voru 67% líkur á að slys hefði orðið, en ekki vitað hvernig, að sögn Hálf- dáns Henryssonar deildarstjóra hjá Slysavarnafélaginu. Jón Böðvarsson forstöðumaður Ratsjárstofnunar segir að bilun í fjarskiptabúnaði sem verið er að ganga frá í stöðinni á Gunnólfsvík- urfjalli hefði orsakað sendingarnar. Starfsmenn þar hefðu ekki vitað af þeim fyrr en þeir fengu boð um , það eftir að flugvél Gæslunnar” hafði miðað sendingarnar út. Félagsmálaslj ór- ar fylgjandi ft*umvarpi „Fundur Samtaka félagsmála- stjóra á íslandi, sem haldinn er í Garðabæ dagana 23. og 24. október 1989, liefur kynnt sér fyrirliggjandi drög að frumvarpi til laga um félagslega þjónustu sveitarfélaga. Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir öllum meginatriðum frum- varpsdraganna. Einkum telur fund- urinn að samræming allra megin- þátta félagslegrar þjónustu sveitar- félaga hjá einu ráðuneyti sé í fram- faraátt og verði heildrænni og virkri félagsþjónustu, við alla þjóð- félagshópa, til framdráttar." , Gjafir til Eyr- bekkinga Að undanförnu hafa borist gjafir lil Eyrarbakka frá Gísla Sigurbjörnssyni, forstjóra Elli- heimilisins Grundar. Á liðnu ári gaf hann 50.000 krónur til dvalarheimilisins Sól- valla. Stofnendasjóður Grundar hefur einnig gefið tvær minningar- gjafir til Sólvalla á þessu ári. Sú fyrri var til minningar um Lýð Guðmundsson (1897-1988) fv. hreppstjóra í Litlu-Sandvík, en sú seinni um Vigfús Jónsson (1903- 1988). Báðir voru þeir Lýður og Vigfús um árabil í elliheimilisnefnd Árnes- sýslu og áhugamenn um starfið á heimilunum í Ási/Ásbyrgi í Hvera- gerði. Hvor minningargjöfin var að upphæð 100.000 krónur. Silo heimsækir * Island Argentínumaðurinn Mario Rodriguez Cobos, sem þekktur er undir rithöfundarnafiiinu Silo, kemur hingað til lands, fóstudaginn 10. nóvember. Þetta er þriðja heimsókn hans til landsins. Þessi þriðja heimsókna Silo er í tengslum við útkomu bókar hans „Að gera jörðina mennska“, sem bókaútgáfan , Hildurgefurút. Fyrst . kom hann árið 1980 til að vera viðstadd- ur útgáfu bókar sinnar Innri ró, ári síðar, 1981, kom Silo hingað öðru sinni og flutti þá m.a. ávarp á fundi í Háskólabíói fyrir fullu húsi. Mánudaginn 13. nóvember mun Silo flytja fyrirlestur á Kjarvals- stöðum. Þar fjallar hann um efni bókarinnar og túlkun sína á Háva- málum og Völuspá sem undirstöðu evrópskrar menningar. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 7. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 93,00 85,00 87,62 10,620 930.489 Ýsa 108,00 92,00 104,92 8,629 905.363 Karfi 56,00 50,00 55,28 0,335 18.520 Ufsi 41,00 41,00 41,00 2,371 97.217 Steinbítur 70,00 51,00 54,08 0,567 30.665 Hlýri 50,00 50,00 50,00 0,148 7.400 Langa 53,00 53,00 53,00 0,694 36.782 Lúða 345,00 255,00 329,32 0,120 39.370 Keila 19,00 19,00 19,00 0,445 8.455 Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,343 1.717 Samtals 85,53 24,272 2.075.978 Selt var meðal annars úr Stakkavík ÁR. í dag verður selt óákveð- ið magn af blönduðum afla úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 102,00 66,00 80,41 24,313 1.954.951 Ýsa 105,00 25,00 85,25 7,026 598.942 Karfi 44,00 36,00 41,03 2,123 87.101 Ufsi 47,00 31,00 42,92 0,844 36.228 Hlýri+steinb. 65,00 51,00 51,33 0,371 19.045 Langa 38,00 38,00 38,00 0,162 6.156 Lúða 280,00 190,00 224,31 0,311 69.760 Skarkoli 44,00 25,00 29,79 0,107 3.188 Keila 21,00 21,00 21,00 0,079 1.659 Skötuselur 140,00 140,00 140,00 0,019 2.660 Lýsa 18,00 18,00 18,00 0,071 1.278 Blandað 26,00 26,00 26,00 0,358 9.308 Samtals 77,98 35,784 2.790.276 1 dag verða meðal annars seld 100 tonn af karfa, 7 tonn af ufsa og óákveðið magn af ýsu og fleiri tegundum úr Margréti EA, Jóni Vidalin AR og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 69,00 30,00 65,20 19,538 1.273.833 Þorskur(umál) 38,00 30,00 36,23 0,451 16.338 Ýsa 90,00 40,00 82,31 7,570 623.100 Ufsi 20,00 10,00 14,26 0,373 5.320 Steinbítur 21,00 21,00 21,00 0,067 1.407 Langa 53,00 15,00 42,74 1,734 74.104 Lúða 300,00 200,00 201,82 1,749 352.985 Keila 24,00 10,00 18,60 2,090 38.873 Blandað 15,00 15,00 15,00 0,110 1.650 Samtals 70,89 33,682 2.387.610 Selt var úr Sæmundi HF, Nirði EA, Víði KE, Ólafi GK, Sigrúnu GK og Reyni GK. 1 dag verður meðal annars selt úr Búrfelli KE og Víkingi III. IS. Bændur fá 100 milljónir króna of lítið fyrir ullina Syðra-Laiigholti, Hrunamannahreppi. ÁTAK til kynningar meðal sauð- fjárhænda á úrbótum í ullarmál- um hófst í síðustu viku. Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins hélt Qóra fundi, einn í hveijum lands- fjórðungi, með íhlltrúum bænda. Á fundina komu íslenskir og nor- skir ullarmatsmenn, fulltrúar frá Álafossi hf., Framleiðsluráði land- búnaðarins og ullarþvottastöðinni í Hveragerði. Fyrsti leiðbeining- arfundurinn var haldinn að Hrafhkelsstöðum og Flúðum í Hrunaniannahreppi mánudaginn 30. október og síðan voru haldnir fundir á Hesti í Borgarfirði, í Eyjafirði og Skriðuklaustri í Fljótsdal. Átakinu verður haldið áfram m.a. með útgáfu leiðbein- ingabæklinga til sauðfjárbænda og gerð inyndbands, svo og með frekari menntun ullarmatsmanna. Snemma á þessu ári tók til starfa, að frumkvæði Framleiðsluráðs land- búnaðarins, starfshópur sem falið var að vinna að úrbótum í ullarmál- um. Þórarinn Þoi’valdsson stjórnar- maður í Framleiðsluráði landbúnað- arins er formaður fyrir hópnurn og stjórnar leiðbeiningarátakinu. Til- gangur þess er að auka verðmæti ullarinnar. Talið er að bændur fái um 100 milljónum króna minna fyr- ir ull en gert er ráð fyrir í verðlags- grundvelli landbúnaðarins. Á leiðbeiningafundinum á Hrafn- kelsstöðum rúðu tveir kunnir rún- ingsmenn góðan hóp af veturgöml- um ám og Emma Eyþórsdóttir ullar- Morgunbladið/Sigurður Sigmundsson Aðalsteinn Aðalsteinsson og Enima Eyþórsdóttir meta ull á Hrafn- kelsstöðum, Þórarinn Þorvaldsson stjórnar samkoinunni. matsformaður og Aðalsteinn Aðal- steinsson á Vaðbrekku, ullarmats- maður á Austurlandi, sýndu sauð- fjárbændum á hvern hátt bæri að meðhöndla ullina eftir að búið væri að rýja með því að taka strax frá gula hnakka og skæklull svo og dökka bletti úr hvítum reyfum. Einn- ig að ganga frá hveiju reyfi fyrir sig í ullarpokana. Það kom frarn í máli leiðbeinéndanna að alltof mikill hluti ullarinnar hjá íslenskum bændum væri sem næst verðlaus vara og er þá átt við sumarrúna ull svo og þá flóka sem búnir eru að vera á fénu fram á haust. Á árinu 1988 flokkuð- ust t.d. 226 tonn eða 16% af allri innlagðri ull það ár 1 flóka sem er algerlega verðlaus vara. Á hinn bóg- inn voru á sl. hausti lögð inn um 70 tonn af haustull, þ.e. ull af fé sem rúið var í nóvember, nær ein- göngu af Norðurlandi. Af þeirri ull voru 43% metin í úrvalsflokk. Það kom fram hjá leiðbeinendun- um að þeir hvetja bændur eindregið til að rýja sauðfé sitt tvisvar á ári, þ.e. í nóvembermánuði og aftur í mars. Gæði ullarinnar séu mest áður en hún fari að þófna á fénu í fjár- húsunum en þar komi í hana óhrein- indi og mor. Verðmæti þeirrar ullar er mest en nú eru greiddar kr. 390 fyrir úi”valsflokk af slíkri ull og kr. 340 fyrir 1. flokk. Af veturgömlum ám getur því verðmæti reyfisins verið 600-700 kr. Þá kom það fram hjá leiðbeinendunum að þeir leggja áherslu á að fækka mislitu fé. Sam- kvæmt tölum' frá sláturleyfishöfum er mislitt fé um 15% af fjárstofnin- um. - Sig.Signi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.