Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.11.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 23 Varamaður á þingi: Arni Johnsen leggur fram átta ný þingmál I FJARVERU Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, tekur Árni Johnsen, fyrsti varamaður flokksins á Suðurlandi, sæti á Alþingi. Árni lagði fram í gær átta ný þingmál; Iagafrumvörp og þingsályktunartillögur. Þau þingmál sem Árni leggur fram ásamt ýmsum öðrum þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins eru eftirfarandi: Tillögur til þingsálykt- unar um forkönnun á gerð jarð- ganga milli lands og Eyja, um hita- lögn í Suðurlandsveg.í Hveradala- brekku, um einkarétt og íslensk sérkenni í skráningarkerfi bifreiða, um áætlun um varnargarða gegn landbroti sunnan nýju Markarfljóts- brúarinnar, um könnun á áhrifum steinatöku í náttúru íslands og hert- ar reglur í þeim efnum til náttúru- verndar og um sérstakt veiðieftir- litsskip og frumvörp til laga um lyijafræðslunefnd og áfengis- fræðslu. Árni Johnsen, fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. STUTTAR ÞINGFRÉTTIR Tilraunaeldi lúðu Tilraunaeldisstöð Hafrann- sóknastofnunar hefur í samvinnu við tvær norskar stofnanir staðið að rannsóknum á lúðueldi, sam- kvæmt rannsóknaráætlun, sem gerð var til þriggja ára, sagði Halldór Asgrímsson sjávarútvegs- ráðherra í svari við fyrirspurn Hreggviðs Jónssonar (FH-Rn) sl. fimmtudag. A næsta ári verður hafinn undirbúningur að klaki og seiðaeldi sjávarfiska, en til að byrja með verður lögð áherzla á lúðuseiðaeldi. Höfundarréttargjald af auðum myndböndum Ingi Björn Albertsson (FH/Rvk) spurði Svavar Gestsson menntamálaráðherra hversvegna reglugerð, sem ráðherra hefur gefið út, geri ráð fyrir því að greiða þurfi höfundarréttargjald af auðum myndböndum og auðum segulspólum. Eg ber fulla virðingu fyrir höfundarréttargjaldi fyrir notkun efnis í tali og mynd, sagði þingmaðurinn, en hvers vegna á ég, spurði hann, að greiða höfund- arréttargjald til einstaklinga út í bæ fyrir það t.d. að taka band- mynd af börnum mínum? Svavar Gestsson menntamála- ráðherra vísaði til höfundarréttar- laga sem gerðu ráð fyrir því að greiða þurfi höfundarréttargjald fyrir upptöku verka á bönd til einkanota. Þessi reglugerð væri nú í endurskoðun. Framkvæmdaáætlun fyrir fatlaða Síðastliðið eitt og hálft ár hefur félagsmálaráðuneytið unnið að könnun og skráningu á þjónustu- þörf fatlaðra - í öllum landshlut- um. Könnunin og skráning vóru forsendur þess að hægt væri að meta þjónustuþörfina og byggja framkvæmdaáætlun til að mæta henni á raunhæfu og faglegu mati, sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra, þegar hún svaraði fyrirspurn frá Inga Birni Albertssyni (FH/Rvk), þess efnis, hvort ráðherra hyggist verða við áskorun Öryrkjabandalags Is- lands, Landssamtakanna Þroska- hjálpar, Bandalags háskóla- manna, Bandalags kennarafélaga og BSRB og ASI um að leggja fram á yfirstandandi þingi fjög- urra ára ætlun um að eyða þeim neyðarlistum eftir húsnæði og þjónustu fyrir fatlaða sem nú liggja fyrir. Þingmenn, sem þátt tóku í umræðu um málið, fögnuðu könn- un og skráningu ráðuneytisins. Stjórnarandstöðuþingmenn töldu hinsvegar að heildarkönnun á málefnum fatlaðra mætti ekki drepa á dreif tafarlausum fram- kvæmdum til að leysa úr málum sem hafa eigi neyðarforgang. Sjálfstæðismenn í neðri deild: „Ekknaskatturinn ‘ ‘ verði aftiuminn ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins í neðri deild hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignárskatt, þar sem afinunin er sú hækkun á eignarsköttum, sem samþykkt var á síðasta þingi og hinn almenni eignarskattur til ríkisins verði á ný í einu þrepi, 0,95%. Er gert ráð fyrir að af fyrstu 2.500.000 kr. reiknist eng- inn skattur. í greinargerð frumvaipsins segir meðal annars að ríkisstjórnin hafi beitt sér á síðasta þingi fyrir hækk- un hins almenna eignarskatts úr 0,95% í 1,2% og einnig fyrir sérstöku viðbótarskattþrepi á skattlausa eign einstaklinga yfir 7 milljónir kr. og hjóna yfir 14 milljónir kr. Eignar- skattur á lögaðila hafi og verið hækkaður í 1,2%. Því hafi eignar- skattur á einstaklinga í hærra eign- arskattsþrepinu verið hærri en skatt- ur á fyrirtæki. „Er það nýjung í skattamálum hérlendis og athyglis- vert framlag af hálfu ríkisstjórnar sem kennir sig við jafnrétti og fé- lagshyggju,“ segir í greinargerðinni. Um framkvæmd skattlagningar- innar segir í greinargerðinni að þá hafi í ljós komið, það sem spáð hafði verið; hækkunin hafi komið sérlega illa við ekkjur, ekkla, einstæða for- eldra og aðra þá sem einir stæðu að heimilisrekstri. í mörgum tilvik- Veitingarekstur til leigu Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur auglýsir til leigu veitingarekstur í sjómannastofunni Vör frá 1. jan. 1990. Nánari upplýsingar veita Hinrik eða Sævar í síma 92-68655. Tilboðum má skila til félagsins, Hafnargötu 9, Grindavík, fyrir 25. nóv. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Stjórnin. um hafi margfaldast það óréttlæti sem þessir einstaklingar hafi áður þurft að búa við. Frumvarpið miðar einvörðungu að því að afnema þá hækkun sem ákveðin hafi verið á síðasta þingi, en hins vegar er þeirri spurningu varpað fram í greinargerð hvort í eldri skipan hafi verið fólgið nægjan- legt réttlæti gagnvart einstaklingum miðað við hjón. Ættfræðiþjonustan Kynnið ykkur þjónustuna: Ættfræðinámskeið, ættrakning (ættartölur og niðjatöl), leit að týndum ættmennum og önnur upplýsingaöflun, sala ættfræði- bóka og hjálpargagna í ættfræði. Sími27101 ATVINNUAUGráNGAR RIKISSPITALAR Barna-og unglingadeild Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa. Um er að ræða heilar stöður í vaktavinnu. Fóstra óskast á bamadeild í fullt starf í vakta- vinnu. Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 602500. Reykjavík8. nóvember 1989. snaca auglýsingar t*JÓNUSTA Rafl. og dyrasímaþj. Gestur rafverkt. s. 623445,19637. Wélagslíf I.O.O.F. 7 = 1711188V2 = □ HELGAFELL 59891187 VI 2. I.O.O.F. 8 = 1711188V2 = E.T.1. V.H. 9.I. □ Glitnir 59898117 - 1 Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Sálarrannsóknarfélagið í Hafnarfirði heldur fund í Góðtemplarahus- inu á morgun fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg fundarstörf. 2. Skyggnilýsing: Þórhallur Guð- mundsson, miðill. Aðgöngumiðar fást i bókabúð Ólivers Steins. Stjórnin. H+H SAMBAND ÍSLENSKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Samkoma i Krlstniboðssalnum, Háaleitisbraut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Páll Friðriks- son. Allir velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Ferðafélag íslands - myndakvöld Ferðafélagið efnir til mynda- kvölds miðvikudaginn'8. nóv. i Sóknarsalnum, Skipholti 50a og hefst það kl. 20.30 stundvislega. Efni: Karl Ingólfsson og Jón Við- ar Sigurðsson segja frá í máli og myndum terð sem þeir fóru 'í sumar til Kákasusfjalla, en þar klifu þeir hæsta tind í A-Evrópu sem heitir E L B R U S (5642 m). Kákasusfjallgarðurinn liggur milli Svartahafs og Kaspíahafs i Rússlandi. Forvitnilegt og fram- andi ferðalag. Þorsteinn Bjarnar sýnir myndir frá Austfjörðum og viðar eftir kaffihlé. Aðgangur kr. 200,-. Allir velkomnir félagar og aðrir. Miðvikudaginn 22. nóv. verður fyrsta kvöldvaka vetrarins. Ferðafélag íslands. Hvítasunnukirkjan Ffiadelfía Almennur bibliulestur í kvöld kl. 20.30. SJÁLPSTÆDISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Ungt sjálfstæðis- fólk- herðum sóknina! Óðinn á Austurlandi heldur opinn stjórnar- fund á Seyðisfirði, laugardaginn 11. nóv- ember kl. 14.00. Gestur fundarins verður Guölaugur Þór Þórðarson, varaformaður SUS og mun hann ræða starf SUS, sam- starf SUS og félaganna með tilliti til sveitar- stjórnaskosninga og sjórnmálaástandið. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. Samband ungra sjálfstæðismanna. Herðum sóknina Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna á Vestfjörðum Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu á Ísafírði sunnudaginn 12. nóvember kl. 16.00. Gestur fundarins verður Belinda Theriault mun ræða störf SUS, samstarf SUS og félaganna með tilliti til sveitastjórnarkosn- inga og stjórnmálaástandsins. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Erindi: Belinda Theriault. Ungt sjálfstæðisfólk á Vestfjörðum er hvatt til að mæta. Stjórnin. Sjálfstæðisfélagið Kópavogi Fundur um bæjarmálefni Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20.30 í Hamraborg 1 veröur haldinn fundur um bæjarmálefni í Kópavogi. Sérstaklega verður fjallað um skipulagsmál bæjarins. Framsögumenn verða Richard Björgvinsson, Guðni Stefánsson og Kristinn Kristinsson. Mætum öll. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.