Morgunblaðið - 08.11.1989, Síða 26

Morgunblaðið - 08.11.1989, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 Dóra Halldórs- dóttir - Minning Fædd 14. júlí 1906 Dáin 28. október 1989 Amma mín, Dóra Halldórsdóttir, lést 28. október sl. Hún fæddist í Hvammi í Langadal í Húnavatns- sýslu 14. júlí 1906. Ung flutti hún til Reykjavíkur og giftist afa mínurn Einari Þorsteinssyni en hann lést 1971. I æskuminningunni hefur heimili afa og ömmu yfir sér ævintýra- ljóma. Það var einstaklega fallegt og bar listrænum hæfileikum ömmu glöggt vitni. Amma var einstök kona. Falleg var hún og glæsileg svo af bar. Hún var listelsk mjög og hafði yndi af tónlist og ljóðum. Hún var víðles- in og hafsjór af fróðleik, einkum er varðar ljóðlist sem hún unni svo mjög. Alltaf var hægt- að leita til ömmu, fá lánaða bók, hlusta á hana fara með hin ýmsu ljóð, eða segja frá ljóðskáldunum sem mörg voru hennar samtímamenn. Þannig opn- aði hún okkur yngri kynslóðinni dyr inn í áður óþekkt ævintýralönd ljóð- listarinnar. Amma var ákaflega lífsglöð kona. Hún fylgdist grannt með okk- ur barnabörnunum og því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún var góður félagi og hafði alltaf tíma til að hlusta og gefa góð ráð. Nú þeg- ar ævi ömmu er á enda, er mér efst í hug þakklæti fyrir allt það góða sem hún kenndi okkur, fyrir að miðla okkur af fróðleik sínum og visku og síðast en ekki síst fyrir alla ástúðina og hlýjuna. Síðustu árin dvaldi amma á hjúkrunarheimili fyrir aldraða í Sunnuhlíð í Kópavogi, þar sem hún naut frábærrar umönnunar. Lífi ömmu hér á þessari jörð er lokið, en minningin um þessa ein- stöku konu mun lifa um ókomin ár. Megi hún hvíla í friði. Dóra Lúðvíksdóttir Dóra Halldórsdóttir fæddist að Hvammi í Langadal í Húnavatns- sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Halldór Guðmundsson og Guðrún Bjarnadóttir, sem voru þarna í hús- mennsku hjá stjúpa og móður Hall- dórs. Dóra ólst upp með foreldrum sínum og þar kom að þau fluttu að Æsustöðum í Langadal. Þangað kom í heimsókn ungur maður, Ein- ar Þorsteinsson, sem kom á reið- hjóli að sunnan og hafði farið heið- ai’vegi um hálendið, en þær leiðir voru þá varla farnar. Þetta var upphaf þess að Dóra fluttist með Einari suður til Reykjavíkur og giftu þau sig 1930. í fyrstu bjuggu þau þröngt í leiguhúsnæði, en fljótlega byggðu þau sér hús að Þjórsárgötu 4, Skeijafirði, sem þá var útborg í Reykjavík. Þau Dóra og Einar kunnu vel við sig þarna suður frá og ræktuðu garðinn sinn í orðsins beztu merkingu. Þau áttu þar fag- urt heimili, sem bar húsráðendum gott vitni. Inni var allt gert af mikl- um myndarskap húsfreyju en utan húss var fallegur blómagarður, þar sem unun var að vera á fallegum sumardegi. Oft var fjölmenni á Þjórsárgötu 4 því húsráðendur höfðu smekk fyrir tónlist og fögrum söng. Var kunningjahópurinn stór. Fyrir aldarfjórðungi flutti Dóra með manni sínum að Einimel 2 í glæsilegt einbýlishús, þar sem allir hlutir voru frábærlega smekklegir og báru höfðingsskap og fegurð vitni. Þegar Dóra var flutt á Einimel má segja að bóndadóttirin úr Húna- þing væri gengin undir regnbogann. Það er langur vegur frá litla torf- bænum í glæsilegt nútímahús í Reykjavík. En sólin stendur aldrei lengi í hádegisstað. Stóran skugga bar á líf Dóru í árslok 1971 þegar Einar Þorsteinsson maður hennar féll frá snögglega á rúmlega miðj- um aldri. Hann starfaði lengst af hjá_ Olíuverzlun íslands hf. eða OLÍS og var þar skrifstofustjóri. Hann sá að stórum hluta um fjár- málin og þetta var erfitt og slítandi starf. Dóra gekk nú um hljóðar stofurn- ar á Einimelnum, þar sem harpan var áður svo dýrt slegin. Minning- arnar lifðu áfram og Dóra undi við það að taka á móti börnum sínum og barnabörnum, sem komu í heim- sókn eða hún leit til þeirra. Síðustu árin átti Dóra við nokkra vanheilsu að stríða og dvaldi þá á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Hún hlaut þar alla þá beztu hjúkrun og aðhlynningu sem hægt var að veita. Eru öllum þar, bæði starfsfólki og læknum svo og stjórn heimilisins, færðar alúðar- þakkir fyrir þá hjálp, sem þeir veittu Dóru sjúkri. Dóra átti litríka ævi. Hún flutti úr sveit í borg, eins og kynslóð hennar gerði. Hún sá drauma sína rætast. Hún og maður hennar, Ein- ar Þorsteinsson, unnu öll störf sín með miklum sóma og voru hvar- vetna til fyrirmyndar í öllum hlut- um. Dóra var 83 ára þegar hún lést. Hún eignaðist þijú börn og jafnmörg tengdabörn. Barnabörnin eru orðin 11 og barnabarnabörnin 4. Og enn bætast nýjar Dórur í fjöl- skyjduna og erfa landið. Ég kom ungur á Þjórsárgötu 4 og heimsótti dóttur hennar, Val- gerði, sem varð svo kona mín. Dóra tengdamóðir mín tók mér vel og þetta ber að þakka. Síðan eru meira en 35 ár. Ég minnist Dóru fyrst og fremst sem myndarlegrar húsfreyju, sem stjórnaði heimili sínum af stórhug og rausn. Það var ekki hægt að ræða lengi við hana án þess að finna ríkan áhuga hennar á skáldskap. Ef rætt var um höfuðskáldin, þá mælti hún ljóð þeirra af munni fram. Rétt er að ljúka þessum línum með eftirfarandi kvæði, sem Guð- mundur Frímann skáld, en hann var hálfbróðir föður Dóru, orti um móður sína, Valgerði, látna: Ég man þig bezt, þegar vorið var að völdum setzt, með sitt ljóð og sinn draum, og engið þitt græna blómskrúð bar og bjarmann af sóleyjaljósum - er bakkinn við árinnar blakka straum var bleikur af eyrarrósum. Jarðarför Dóru fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag. Hún verður jarð- setti í Fossvogskirkjugarði í reit hjá látnum manni sínum, Einari, og móður sinni, Guðrúnu Bjarnadóttur, sem dvaldi hjá Dóru öll sín efri ár. Dóru er beðin blessun Guðs, þeg- ar hún nú kveður, en fær hvíld með þeim, sem henni voru kærastir. Megi hún hvíla í friði. Lúðvík Gizurarson Frú Halldóra Halldórsdóttir and- aðist laugardaginn 28. október sl. Síðustu árin dvaldist hún á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kðpa- vogi. Heilsan var farin og þrótturinn búinn, en. róseminni bélt hún til hinstu stundar. Mig langar til að þakka þessu heimili og starfsfólki þess hvernig það reyndist henni. Nú langar mig að hverfa nokkra áratugi til baka heim að Hvammi í Langadal. Þar bjuggu hjónin Hall- dór Guðmundsson og kona hans Guðrún Bjarnadóttir með börnum sínum, á þessu heimili var íslensk menning. Þar voru skyldur foreldr- anna uppfylltar að hlúa að bóklegri og verklegrr menningu barna sinna. Þarna hjálpuðust kynslóðirnar að. Börnin fræddust af afa og ömmu og lestri góðra bóka. A þess- um tímum var ekki auðvelt að setj- ast á skólabekk, sarnt fór Halldóra í Kvennaskólann á Blönduósi. Þá var þar skólastjóri frú Hulda Stefánsdóttir afburða kennari senr allir dáðu. Hún hafði nrikil áhrif á nemendurna sem gleymdust þeim aldrei. Nú var fallega heimasætan tilbúin að takast á við lífið, sem hún líka gerði. Hún kynntist Einari Þor- steinssyni glæsilegum manni ætt- uðum úr Árnessýslu. Þau tengdust tryggðaböndum, sem entust meðan bæði lifðu. Hann var skrifstofu- stjóri hjá Olíuverslun Islands. Heim- ili þeirra var á Þjórsárgötu 4 í Skerjafirði.: Þau eignuðust þijú börn, Margrét Sigríður er elst, þá Valgerður Guðrún og yngstur er sonurinn Þorsteinn. Þau-eru öll far- sællega gift og hafa sýnt úr hvaða jarðvegi þau eru sprottin. Á fjórða áratugnum réðst ég kennari að Miðbæjarskólanum og var beðin að kenna í Skeijafirðinum og á Grímstaðarholtinu sem var útibú frá Miðbæjarskólanum, sem og ég gerði. í nestið fékk ég mörg heilræði. Úthverfin voru talin erfið. Mér reyndist það öðruvísi. Þetta fólk hefur reynst mér sér- staklega vel og góðir borgarar, frá því á ég góðar minningar. Þarna mættumst við Margrét dóttir Hall- dóru og Einars og urðum við sam- ferða í fimm ár, það var góður tími. Okkur kennurunum var oft boðið heim til þeirra hjóna. Hughrifin sem maður fékk þarna er ógleymanleg. Heimilið var fagurt og smekklegt. Börnin fijálsmannleg og kurteis. Viðmót hjónanna ógleymanlegt. Heimilið andaði frá sér hlýju og menningu. Ég hef oft hugsað að við þyrftum að eiga fleiri svona heimili. Nú er frú Halldóra búin að stíga yfir þröskuldinn. Þar bíður Einar maður hennar sem hún saknaði ákaflega sárt og lést langt um aldur fram. + MINNINGARKORT + Ástkæreiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR H. PROPPÉ, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Sólheima í Grímsnesi. Ástráður J. Proppé, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, GUÐBJARTUR HÓLM GUÐBJARTSSON, Króki, Kjalarnesi, andaðist í J_andspítalanum 6. nóvember. Guðjón Hólm Guðbjartsson, Ólafur Hólm Guðbjartsson, Anna Margrét Hólm Guðbjartsdóttir, Hólmfríður Hólm Guðbjartsdóttir, Guðbjartur Hólm Guðbjartsson, Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÚLFARSSON, Bjarnhólastíg 24, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 10.30. Margrét Sigurðardóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Viggó Magnússon, Sigurður Kristjánsson, Áslaug Sverrisdóttir, Svanhvít Kristjánsdóttir, Guttormur Rafnkelsson, Leifur Kristjánsson, Aðalheiður Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför föður okk- ar, tengdaföður og afa, HELGA KRISTJÁNS PÁLMARSSONAR, Hátúni 6. Halldór Helgason, Selma Antonsdóttir, Vigdfs Helgadóttir, Ómar Helgason, Guðbrandur Haraldsson, Ásgeir Helgason, Stafanía Gissurardóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, FANNEY ÞORVARÐARDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áðurtil heimiiis íYstabæ 13, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Ragnheiður Jónasdóttir, Pálmar Vígmundsson, Gfsli H. Jónasson, Viktoría Karlsdóttir, Unnur Jónasdóttir, Hrafnkell Sigurjónsson, Jóhann R. Jakobsson, Sigrfður A. Pálmadóttir og barnabörn. + Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur vinarhug og samúð við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURJÓNS KRISTJÁNSSONAR skipstjóra. Steinar Sigurjónsson, Oddný Ólaffa Sigurjónsdóttir, Benedikt Hermannsson, Hreiðar Sigurjónsson, Trenna Mulligan, Kristján Sigurjónsson, Helga Kristjánsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Ólöf Hafdís Guðmundsdóttir, Sigrfður Steinarsdóttir, Einar Þórhailsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ELLERTS TRYGGVASONAR bifreiðastjóra, Kársnesbraut 70, Kópavogi. Fyrir hönd ættingja, llse Tryggvason, Helgi Ellertsson, Árni Ellertsson, Elín Ellertsdóttir, Gunnar Elfsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.