Morgunblaðið - 08.11.1989, Side 33

Morgunblaðið - 08.11.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 33 Þessir hringdu .. Gamalt kjöt S.J. hringdi: „Það er alltaf verið að láta okkur éta gamalt kjöt sem búið er að geyma í eitt eða tvö ár og jafnvel lengur. Hvers vegna er þetta kjöt ekki frekar soðið niður og selt sem dýrafóður, fyrir ketti og hunda. Refabændur gætu svo fengið restina á niðursetu verði í stað þess að kasta kjötinu á haug- ana eins og nú er gert. Það er mikið flutt inn af niðursoðnum dýramat og mætti spara töluverð- an gjaldeyri með þessu móti.“ Villa Borghildur Sigurðardóttir - hjá Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins hringdi: „Vegna skifa Víkveija í síðustu viku þar sem vitnað er í Upplýsingarit landbúnaðarins vil ég gjarnan koma leiðréttingu á framfæri. Setningin sem Víkveiji gerir að umræðuefni átti að hjóða þannig: „Sexmanna nefnd ákveður verð til bænda á þeim búvörum sem háðar eru verðlagsákvæðum." Beðist er velvirðingar á þessari villu í ritinu.“ Gullhringur Gullhringur með perlu tapaðist í Hjálmholti sl. sunnudag. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 32915. Gullnisti Lítið gullnisti sem er hamraður hringur með steini í miðju tapað- ist í Miðbænum fyrir skömmu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Lindu í síma 623694 að deginum. Köttur „Svartur högni með hvíta bringu og afturfætur og hvítar hosur á framfóltum fór að heiman frá sér að Löngubrekku í Kópa- vogi sl. miðvikudag. Vinsamlegast hringið í síma 41701 ef hann hef- ur einhvers staðar komið fram. Hanskar Svartir skinnhanskar töpuðust 21. október. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 33813. Veski Veski tapaðist í Kópavogs- strætó eða á leiðinni frá Bröttu- brekku að Menntaskóla Kópa- vogs. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 79199. Fundarlaun. Sýnið meira frá karate Til Velvakanda. Mig langar til að koma með dá- litla ábendingu til sjónvarpsstöðv- anna tveggja um áhugaleysi íþrótt- afréttamanna á karate íþróttinni. Fyrir tæpum tveimur vikum var haldið íslandsmót í karate og einn- ig Norðurlandamót. Þetta voru ör- ugglega geysiskemmtileg mót, sem ég því miður missti af en ég hugs- aði mér gott til glóðarinnar að sjá þau í sjónvarpinu. En viti menn. Aðeins nokkir 60 sek. bútar voru sýndir, þó eignuðumst við fyrsta Norðurlandameistarann í karate og fengum nokkur önnur verðlaun. Þetta var mjög góður árangur mið- að við hvað Norðurlandaþjóðirnar eru góðar á alþjóðavettvangi í kar- ate. Þetta er alltaf sama sagan, fót- boltinn er alltaf á skjánum. Ekki vantar áhuga á karate á íslandi, því öll karatefélögin eru troðfull af fólki. Karate er í mikilli uppsveiflu á íslandi. Svo að maður tali nú ekki um allan fjöldan sem fer á karate myndir í bíó eins og t.d. Tíarate kid. Ég hefði viljað fá að sjá a.m.k. 30 mínútur frá hvoru mótinu. Ég bara vona að Bjarni Felixson og Heimir Karlsson sjái að sér og sýni meira af karate íþróttum í framtíðinni, því ekki vantar áhuga hér á íslandi. Afgangar Til Velvakanda. Fjármálaráðherrann er ekki lítill á förunum þegar hann boðar lands- lýðnum gull og græna skóga í pen- ingamálum. Þegar flestir sjá ekkert annað en kreppu og gjaldþrot er kúfur á öllu í hans munni og nógir afgangar fyrir hann og Svavar að „negúsera" með. Þegar þeir félagar höfðu lokið við að stela nær öllum Þjóðarbók- hlöðupeningunum sáu þeir að eftir varð á Melunum naglfastur afgang- ur. Svavar brá við hart og ráðstaf- aði leifunum undir Laxness. Er gert ráð fyrir að húsnæðið komist í gagnið á 150 ára afmæli „Barns náttúrunnar". Mun flýta fyrir fram- kvæmdum, að Ólafur fjármála fann afgang hjá Happdrætti háskólans sem hann ráðstafaði strax til styrkt- ar málefninu. Þar af leiðir að enn meiri afgangur verður af Þjóðar- bókhlöðufé, svo halda má áfram gripdeildinni þar til styrktar háskól- anum væntanlega. Eftir er svo að skipta afganginum á fjárlögum fyr- ir árið 1989, og hefir Svavar menntamála skipað stóra nefnd, sem á að ráðstafa þeim afgangi til Lánsjóðs íslenskra námsmanna. Frést hefur um nýjan afgang, sem grípa má itil. Bankarnir þrír, sem keyptu_ Utvegsbankann, eru að kaupa Hus verslunarinnar fyrir 800 milljónir. Þá ganga 200 milljón- ir af þeim 1.000 milljónum, sem Jón bankamálaráðherra splæsti í bankapúkkið. Mun ætlunin að ráð- stafa þeim afgangi í refarækt og Stefán Valgeirsson. Þegar þessi afgangamál komu til umræðu í heitupottunum varð gamalli sveitakonu úr Framsóknar- flokknum að orði að verst væri að henni virtist ríkisstjórnin sjálf búin til úr tómum afgöngum. Og svo, bætti hún við, þegar þeir ætluðu að krydda kássuna með Borgara- flokknum reyndist það laxerolía. Melamaður Ármúla 29 símar 38640 - 686100 Þ. Þ0RGRIMSS0N & CO Armstrong LDFTAPLDTUR KORKDPLABT GÓLFFLÍSAR SJARM1PLA8T EINANGRUN GLERULL STEINULL Ny slðrsending Vetrarpils frá Gor-Ray. Ódýrar blússur, buxnapils, kjólar, allar stærðir. DRAGTIN Klapparstíg 37, sími 12990. í Kaupmannahöffn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI hefjast bráðlega hjá ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTUNNI (lýkur um miðjan desember). Leiðbeinandi Jón Valur Jensson. Innritun í síma 27101 daglega. Ættfræðiþjónustan Royal skyndibúðingur Vatnið rennur burt! Sala á vatnsdýnum hefur minnkað mjög á þessu ári í þeim löndum Evrópu, sem við höfum spurnir frá. Salan er talin vera 1/3 þess sem áður var í Danmörku. Ástæður þessa eru margþættar, svo sem mikil fyrirhöfn notenda og orku- kostnaður við að hita dýnuna (vatnið). * \. sama tíma hefur eftirspurn vaxið eftir sænska dýnukerf- inu, fjaðradýnunum frá SCAPA, sem er stærsta dýnuverk- smiðja Norðurlanda. Þannig hefur salan tvöfaldast fyrstu 8 mánuði ársins í IDÉ verslunum í Danmörku á þessum dýnum og þrefaldast í verslun okkar. 1 Húsgagnahöllinni er sérstök útstilling á SCAPA fjaðradýn- um sem gerir þér mögulegt á einfaldan hátt að fræðast og velja. Stífar dýnur, mjúkar og miðlungsstífar dýnur, mikið bólstraðar og lítið bólstraðar dýnur. Allar með þvottekta yfirdýnum. Og verðið er frá 11.890,- til 33.550,- sem er dýrasta dýnan. IComdu og skoðaðu okkar sérstöku útstillingu á þessum úrvalsdýnum, fáðu fræðslu og prófaðu dýnurnar. Kannski finnur þú dýnu sem þér líkar. Aðalatriðið er að þú sofir vel. SJÁUMST! Húsgagna-böllln REYKJAVlK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.