Morgunblaðið - 08.11.1989, Page 35

Morgunblaðið - 08.11.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989 35 faúmR FOLK ■ SIGURÐUR Sveinsson, leik- maður Dortmund í Vestur-Þýska- landi, leikur með landsliðinu í hand- knattieik á mótinu í Tékkoslóvakíu í næstu viku. Nafn hans féll niður, er greint var frá leikmannahópnum í gær, og er beðist velvirðingar á því. ■ SIGMAR Þröstur Óskarsson, markvörður IBV, sem kemur inn í landsliðshópinn fyrir ferðina til Tékkoslóvakíu um helgina, á fjóra landsleiki að baki en hefur aldrei verið með í taplandsleik. Fyrst lék hann 1981, gegn Noregi, er ísland vann 25:19. Næst lék hann í 24:21 sigri á Lúxemborg ytra; á leiðinni á mót þar sem sigur vannst á Alsír, 22:17, og jafntefli varð við Frakka, 23:23. ■ TVEIR íslenskir knattspyrnu- þjálfarar eru þessa vikuna á þjálf- aranámskeiði á Tenerife á Spáni; Guðjón Þórðarson, þjálfari ís- landsmeistara KA, og Lárus Lofts- son, þjálfari unglingalandsliðsins. Margir kunnir kappar eru fyrirles- arar á námskeiðinu, svo sem Rinus Michels, þjálfari Hollendinga, er þeir urðu Evrópumeistarar í fyrra, Michel Hidalgo, fyrrum landsliðs- þjálfari Frakka, Bobby Robson, einvaldur enska landsliðsins og bræðurnir Bobby og Jackie Charl- ton. ■ ÞORGRÍMUR Þráinsson var kjörinn knattspyrnumaður Vals fyrir síðasta keppnistímabil. Þetta var kunngert á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Vals um síðustu helgi. Guðrún Sæmundsdóttir var best í meistaraflokki kvenna. Vals- maður ársins var hins vegar Ragn- heiður Víkingsdóttir og hlaut hún Júra-bikarinn til varðveislu í eitt ár. ■ AÐDÁENDUR körfuboltans í Bandaríkjunum finna eitthvað við sitt hæfi á skjánum í vetur. CBS stöðin sýhir 12 leiki beint á tímabil- inu og TNT kapal- Gunnar stöðin 50 leiki. Allir Valgeirsson leikir í úrslitakeppn- skrifar frá jnnj vel.ga svo vjta. Bandankjunum gkuld . beinnj -t_ sendingu. ■ PATRICK Ewiiiff hjá New York er launahæsti leikmaður NBA-deildarinnar. Hann er nú að heija sjötta tímabil af 10 ára samn- ingi — sem hann fær 32,5 miljónir dala fyrir; 2.015.000.000 — ríflega tveir milljarðar ísl. króna. ■ DAVID Robinson er að hefja þriðja árið af átta ára samningi, þó enn hafi hann ekki leikið fyrir San Antonio Spurs. Hann var í hernum síðustu tvö ár, en fékk engu að síður laun á þeim tíma frá félaginu — en fyrir árin átta fær hann 26 milljónir dala. I „MAGIC“ Johnson hjá Lakers gerði 5 ára samning upp á 25,2 milljónir dala í fyrra, og Michael Jordan hjá Chicago einnig. Sigmar. Guðjón. Lárus. Ewing. I LARRY Bird hjá Boston er fimmti launahæsti leikmaðurinn; hann gerði 4 ára samning í fyrra, og fær 12 milljónir dala á þeim tíma. Það skal tekið fram að þessar upp- hæðir fá kapparnir í grunniaun; að auki fá þeir miklar fúlgur í upp- bætur fyrir árangur. ■ HJA veðbönkum er lið Detroit talið sigurstranglegast 1/3, og La- kers kemur næst með 1/4. Þau lið sem eiga minnsta möguleika eru Charlotte Hornets og Miami með hlutfallið 1/1.000.000, ognýliðarnir Minnseota og Orlando með 1/10.000.000 — þ.e. ef einhver hefði tröllatrú á öðru hverju þeirra, héldi að það yrði meistari og legði einn dal undir, stæði sá hinn sami 10 milljón dölum ríkari í lok keppn- istímabilsins, ef annað þeirra sigr- aði! Hvað Boston Celtics varðar er hlutfallið 12/1, hjá San Antonio 1/30 og Philadelphia 1/75. ■ MOSES Malone, miðheiji Atl- anta, fór síðast út af með 6 villur í leik í NBA-deildinni í janúar 1978. Það eru því ellefu ár síðan — og á þeim tíma hefur hann spilað 985 leiki! Wilt Chamberlain, miðherj- inn frábæri sem lék með Lakers á sínum tíma, á metið — fékk aldrei sex villur í leik á ferlinum. Hann tók þátt í 1.045 leikjum í deildinni sjálfri, 160 leikjum í úrslitakeppni og 19 stjörnuleikjum. MKAREEM Abdul Jabbar, mið- heiji LA Lakers til fjölda ára, sem lagði skóna á hilfuna sl. vor, hefur ekki alveg sagt skilið við sína gömlu félaga. Hann hefur að undanförnu verið með Júgóslavann Divac á séræfingum; Evfópubúar eru vanir að spila svæðisvörn, en það er bann- að í NBA-deildinni, þar sem skylda er að leika maður-á-mann vörn. Evrópubúar í deildinni hafa átt erf- itt með að aðlagast þessu varnar- kerfi. Segja má að Jabbar hafi verið að kenna Divac að spila vörn! KNATTSPYRNA / SKOTLAND HANDKNATTLEIKUR Kvennalands- lið endurvakið Leikið gegn Finnuim íjanúarog fleiri verkefni á döfinni Isl^nska kvennalandsliðið í han- knattleik byijar vikulegar æfing- ar á fimmtudag í næstu viku undir stjórn Slavkos Bambirs, en það leik- ur gegn Finnum hér heima 5. og 7. janúar. Landsliðið lék gegn Tanz- aníu um helgina, en hafði þá ekki komið saman síðan í júní. Stefnt er að leikjum í febrúar og verið er að reyna að finna önnur verkefni fyrir C-keppnina, sem verður næsta haust. Boð barst um að taka þátt í B-keppninni í Danmörku í næsta mánuði, en ákveðið var að taka því ekki. „Við treystum okkur ekki að taka þátt með svona skömmum fyrir- DOMARAHORNIÐ vara. Bæði er að íslandsmótið er í fullum gangi og eins hafa orðið miklar breytingar á hópnum — við erum með mjög ungar stúlkur og þær þurfa meiri undirbúning, en liðinu var boðið sæti í mjög sterkum riðli," sagði Helga Magnúsdóttir í landsliðsnefnd kvenna við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Landsliðshópur skipaður 19 ára stúlkum og yngri kemur til með að æfa með a-liðinu, en Norðurlanda- mót U-19 verður hér á landi næsta haust. Þá er stefnt að því að hefja æfingar fyrir 16 ára stúlkur og yngri og verður hópurinn valinn eftir helgi. Vrlakastið Ísíðustu grein minni fjallaði ég aðeins um upplagt tnarkfæri og vítaköst. Það er því ekki úr vegi, að taka vítakastið nánar fyrir. Vítakast skal dæma í eftirfar- andi tilfellum: a) Þegar upplagt markfæri er eyðilagt á ólögmætan hátt, og gildir þá einu hvar á vellinum það er gert. Þetta á ekki einungis við þegar leikmenn eyðileggja upp- lagt markfæri, heldur einnig ef starfsmenn liðs gera hið sama. í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga, að dómarar eiga að dæma vítakast ef t.d. starfsmaður liðs eða leikmaður sem er utan vallar tekur boltann þegar honum er ieikið til leikmanns sem væri í upplögðu markfæri, ef hann hefði fengið hann. b) Þegar markvörður tekur boitann utan markteigs og fer með hann inn á teiginn. c) Þegar útileikmaður stígur inn á teiginn til ávinnings gegn mótherja, sem er með boltann. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að ef leikmenn nýta sér teig- inn vísvitandi og ítrekað til varna- raðgerða, þá eiga dómai-ar að refsa þeim persónulegri refsingu vegna óíþróttamannslegrar fram- komu, þ.e.a.s. að þeir eiga að veita þeim tiltal, síðan áminningu og ef það dugar ekki, þá eiga þeir að vísa þeim af leikvelli í 2 mínútur. d) Þegar boltanum er leikið vilj- andi til eigin markvarðar, sem er á eigin markteig. Oft og tíðum sjá menn dómara gefa bendingu um að stigið liafi verið á markteig til varnaraðgerða þegar þeir dæma vítakast. Menn hafa oft sagt að þeir séu með því að afsaka sig fyrir að dæma víta- kast. Sjálfsagt geta komið upp tilvik þar sem þetta er rétt, en staðreyndin er sú, að það er oftar sem dómarar dæma aðeins au- kakast í stað þess að dæma víta- kast. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að það er nóg ef varnarleikmaðurinn snertir iínuna, þar sem línan tilheyrir því svæði sem hún afmarkar, þ.e.a.s. þá hafa menn stigið á markteig. Ekki verður hjá því komist að benda mönnum á, að það er eng- inn mælikvarði á frammistöðu dómara, hvort þeir dæma 10 víti á annað liðið og aðeins 1 á hitt liðið, en það kemur oft fyrir að þeir eru gagnrýndir þegar slíkt kemur fyrir. Menn ættu að reyna að fylgjast með fótaburði varnar- leikmannanna og spytja sfðan hvort dómarinn hafi e.t.v. rétt fyrir sér þegar hann gefur merki um að stigið hafi verið á markteig. Það má þó ekki gieyma því, að það skiptir máli af hveiju leik- maður steig á teiginn. Það má t.d. ekki refsa með vítakasti ef honum hefur verið hrint inn á teiginn eða verið „pressaður“ þangað. Kveðja, Kjai-tan K. Steinbach formaður dómaranefiid- ar HSÍ Guðmundur frá um tíma eftir samstuð „ÉG kann mjög vel við mig hjá St. Mirren, en okkur hefur ekki gengið nægilega vel að undan- förnu. Höfum verið klatifar og tapað dýrmætum stigum á lokamínútum leikjanna. Eins og til dæmis gegn Motherwell á laugardaginn. Við náðum ekki að byrja með knöttinn á miðju eftir að Motherwell hafði jafn- að, 2:2,“ sagði Guðmundur Torfason, landsliðsmiðherji, sem leikur með St. Mirren. Guðmundur er markahæsti leik- maður liðsins — hefur skorað sex mörk og er ofarlega á blaði yfir markahæstu leikmenn Skot- lands. „Það má segja að hjá St. Mirren hafi ég náð að finna mig, eftir að hafa verið úti og inni hjá Beveren, Winterslag og Gent í Belgíu og Rapid Vín í Austurríki. Óvissutímabilið er úti,“ sagði Guð- mundur. Guðmundur lenti heldur betur í samstuði við enska landsliðsmann- inn Terry Butcher hjá Glasgow Rangers á dögunum. „Ég fékk slæmt högg á ökkla og um tíma hélt ég að ég væri fótbrotinn. Sem betur fer var það ekki. Ég bólgnaði mikið, en var orðinn góður fyrir leikinn gegn Motherwell.“ Guðmundur er nú í stuttu fríi á íslandi. „Þjálfarinn gaf okkur frí því að ekki er leikið í Skotlandi fyrr en eftir heimsmeistaraleik Skota og Norðmanna, sem fer fram í Glasgow á miðvikudaginn í næstu viku. Leikurinn er mjög þýðingar- mikill fyrir Skota. Þeir þurfa að ná einu stigi til að tryggja sér farseðil- inn til ltalíu,“ sagði Guðmundur. Kolbrún Jóhannsdóttir, mark- vörður Fram, er ein þeirra sem eiga sæti í landsliðshópnum. URSLIT Körftiknattleikur NBA-deildin: Einn leikur fór fram aðfararnótt þnðjudags: Orlando Magic - New York Knicks ..118:110 Knattspyrna England - 3. uniferð deildarbikarsins, aukaleikir: Bolton - Swindon.....................1:1 (eftir framlengingu. Að venjulegum leiktíma loknum var staðan 0:0. Liðin þurfa að mætast enn einu sinni, og sigui-vegarinn úr þeirri viðureign mætir Southampton á heiniavelli í A. umferðinni.) Bournemouth - Sunderland.............0:1 Frakkland, 1. deild: Bordeaux-Toulouse....................1:0 Klaus Allofs gerði eina mark leiksins. KRAFT Bikarmót í Garðabæ B! t ikarmót KRAFT fer fram í Garðaskóla, Garðabæ, á laug- ardag. Mótið, sem er að hluta til úrtökumót fyrir EM ’90, er verður hér á landi í maí, hefst kl. 12:30, en ráðgert er að Jón Páll Sigmars- son sýni ýmsar aflraunir um kl. 15. Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út í dag (Óskar s. 46900 eða Halldór s. 40146). Guðmundur Torfason. HAGGUJNDS DENISON VÖKVADÆLUR ☆ Olfumagn frá 19-318 l/mfn. ☆ Þrýstingur allt að 240 bar. ☆ Öxul-flans staðall sá sami og á öðrum skófludælum. ☆ Hljóðlátar, endingargóðar. ☆ Einnig fjölbreytt úrval af stimpildælum, mótorum og ventlum. ☆ Hagstætt verð. ☆ Ýmsar geröir á lager. ☆ Varahlutaþjónusta. ☆ Hönnum og byggjum upp vökvakerfi. SIG. SVEINBJÖRNSSON HF. Skeiðarásl, Carðabæ Símar 52850 -52661

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.