Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 3
3
iir,7T|r|
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
■ ■ ! . < . . , : ■ > / ' ■ 1 , . . ' '■ ■ ,
........ . • • 5 i. .•
IÐUNN
.
>=■ T „ >
bv*5f
♦ ♦♦
Eg er ljón
í þessu magnaða skáldverki spinnur
Vigdís Grímsdóttir á listrænan hátt
ótrúlega örlagasögu ungrar stúlku úr
þeim margslungnu þráðum er leynast í
mannlegu eðli. Ástin og hatrið, sektin og
sakleysið hljóta á ný djúpa og óvænta
merkingu í hugum lesandans.
Ég heiti ísbjörg • Ég er ljón er í senn
spennandi frásögn og Ijóðræn túlkun,
saga stúlku sem bíður dóms. Á tólf
stundum rekur hún sögu sína fyrir
lögfræðingi og um leið fær lesandinn að
kynnast því stig af stigi hvaða áhrifavaldar
í lífi hennar ráða ferðinni. Hvers vegna
verða örlög hennar slík að hún verður
viðskila við samfélag manna? Eftir situr
hin áleitna spurning: Hver er ísbjörg og
hver er kominn til að dæma?
Vigdís heillar lesendur með
áhrifaríkum frásagnarstíl og hefur þegar
skipað sér sess meðal okkar fremstu
samtímahöfunda.