Morgunblaðið - 03.12.1989, Blaðsíða 36
MORGVSBLÁDID, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
DAGUR
TIL JÓLA
Lögreglustj órinn
í Reykjavík:
Sum svæði
ekki örugg
um helgar
BÖÐVAR Bragason lögreglu-
sljóri í Reykjavík segir að tilefn-
islaust ofbeldi hafi færst i vöxt,
og sum svæði borgarinnar séu
ekki örugg um helgar. Hann seg-
ir að lögreglan hiki við að senda
menn inn á staði fáa saman ef
ekki sé vissa um að þeir sleppi
þaðan heilir á húfi.
Böðvar segir lögregluna hafa
fjarlægst fólkið, og ótækt sé
að gahgandi lögreglumenn séu nán-
ast horfnir af götunum. Nauðsyn-
legt sé að fjárveiting fáist til að
ráða fleiri lögregluþjóna til starfa
til að létta á ástandinu, en mikið
álag sé á starfsfólki lögreglunnar
og þá einkum um helgar.
Sjá viðtal við Böðvar Bragason
á bls. 12 og 13.
Sjómenn á loðnuflotanum
halda til fimdar á Akureyri
Kemur ekki til greina að leyfa þeim síldveiðar segir sjávarútvegsráðherra
Þungt hald-
inn eftir átök
í miðbænum
Trilla sökk
eftir árekst-
ur við ísjaka
Neskaupstað.
KRISTIN NK, sem er 3,5 tonna
trilla, rakst á ísjaka í mynni hafn-
arinnar á Neskaupstað klukkan
fimm í gærmorgun. þegar hún
var á leið til veiða. Gat kom fram-
arlega á kinnung trillunnar og
fylltist hún fljótlega af sjó.
Einn maður var um borð í trill-
unni, Steingrímur Kolbeins-
son, og tókst honum að sigla henni
upp í fjöru áður en hún sökk. Isjak-
inn er talinn hafa borist með Norð-
fjarðará í hlýindum sem verið hafa
undanfarna daga.
Agúst
Morgunblaðið/Þorkell
Framkvæmdir á Arnarneshæð í fullum gangi
Mikið jarðrask er nú á Amameshæð vegna fyrirhugaðra brúarframkvæmda og mikið var um að vera
þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að í gærmorgun. Á næstu mánuðum verður sprengt skarð í Arnar-
neshæðina og Hafnarfjarðarvegur lagður í vikið, en Arnarnesvegur verður á brú yfir gjána. Einnig verður
gerð ný brú á Kópavogslæk fýrir eystri akbraut Hafnarijarðarvegarins. Á þessum vegarkafia, sem um
20.000 bflar fara um á hverjum degi, hafa orðið fjölmörg slys.
SAUTJÁN ára piltur lenti í al-
varlegum átökum í miðbæ
Reykjavíkur um kl. 1:40, að-
faranótt laugardags, á gatna-
mótum Pósthússtrætis og Aust-
urstrætis við Reykjavíkurapó-
tek.
Pilturinn hlaut alvarlega höfuð-
áverka og liggur meðvitund-
arlaus á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans. Tildrög átakanna eru
óljós og biður rannsóknarlögregl-
an þá, sem einhverjar upplýsingar
geta veitt, að gefa sig fram við
rannsóknarlögreglu ríkisins.
Skömmu fyrir átökin við
Reykjavíkurapótek, var ráðist á
mann í Grófinni með þeim afleið-
ingum að hann var fluttur á slysa-
varðstofuna og um kl. 4:30 kom
til átaka milli fjögurra manna á
Hótel íslandsplani í Austurstræti.
Voru þrír fluttir á slysadeild Borg-
arspítalans en einn í fangageymslu
lögreglunnar.
SKIPSHAFNIR á 37 loðnubátunum á miðunum fyrir norðan land
hafa sent Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra, símskeyti þar
sem þeir fara fram á að fá leyfi til síldveiða vegna þess að engin
loðna finnst og verkefhaleysi blasir við flotanum næstu vikurnar.
Bátarnir voru flestir á leið í land i gærmorgun og ætluðu loðnusjó-
menn að reyna að halda fund á Akureyri í gærkvöldi, laugardag,
vegna þeirrar stöðu sem upp er komin eftir árangurslausa loðnuleit
og tillögu sjávarútvegsráðherra um að stöðva veiðarnar um sinn.
Halldór Ásgrímsson segir að ekki komi til greina að fara að veiða
meiri síld til bræðslu. „Það er búið að útluta síldinni til annarra
skipa. Það hefur tekið 18 ár að byggja þennan sfldarstofii upp, og
ekki kemur til greina að fara að eyðileggja þann árangur í ein-
hverju óðagoti núna,“ sagði ráðherrann.
„Okkur líst ekk-
ert á þetta, en það
er ekkert annað að
gera. Loðnan er
svo hrikalega smá
að ekkert er hægt
að veiða," sagði Svanur Zophanías-
son, stýrimaður á Þórshamri GK
75, þegar hann var spurður hvernig
honum litist á að þurfa að hætta
loðnuveiðunum. Skipveijar á Þórs-
hamri létu þá reka í mynni Eyja-
ijarðar. Svanur sagði að menn
sættu sig ekki við annað en að loðn-
an væri til einhvers staðar dg gerðu
sér vonir um að hún væri undir
ísnum út af Vestfjörðum og skjóti
svo upp kollihum einhvers staðar.
Maron Bjömsson, skipstjóri á
Guðmundi Olafi ÓF 91, var sama
sinnis, sagðist hafa trú á því að
loðnan skilaði sér. „Menn trúa þessu
innst inni þó útlitið sé ekki björgu-
legt. Loðnan hefur platað okkur oft
íslendingar mæli ósónlagið
ÓSÓNGATIÐ yfir Suðurskauts-
landinu er með stærsta móti.
Fyrir mánuði bárust þær fréttir
af nýjustu mælingum að í haust
hefði þetta gat á ósonlaginu
verið jafin stórt og það var 1987,
þegar það var stærst. Þetta
kemur fram í viðtali við Guð-
mund G. Bjarnason, eðlisfræð-
ing og sérfræðing í lofthjúps-
fræðum, í blaðinu í dag. Einnig
upplýsir hann að útfjólublá
geislun á Suðurskautslandinu
hafi mælst mjög há, á sama tíma
og ósónlagið er að þynnast þar.
jf
Iviðtalinu segir Guðmundur að
íslendingar hafi mælt heildar-
magn ósóns fyrir ofan okkur síðan
1957. Veðurstofan hefur annast
þær mælingar, sem eru taldar
meðal bestu mælinga á ósóni á
norðurhveli. Niðurstöður hafa far-
ið í gagnabanka í Kanada og er
heildarúrvinnsla enn í gangi. Tel-
ur Guðmundur að nú, þegar ný
tæki hafa verið keypt til mælinga
í háloftunum með loftbelgjum frá
Keflavíkurflugvelli, þurfi ekki
annað en að bæta við þau einum
ósónnema, til að mæla ósónlagið
og breyt.ingar á því. Telur hann
að íslendingar eigi að hafa þarna
frumkvæði vegna þess hve góðar
Reykjavíkurmælingarnar á ósón-
magninu hafa verið og vegna
æskilegs samanburðar á þeim og
ósónlaginu eftir hæð frá jörðu.
Sjá viðtal á bls. 16.
áður. En menn eru auðvitað ugg-
andi vegna þess hversu langt er lið-
ið á vertíðina,“ sagði hann. Maron
sagði að lítið væri hægt að segja
við því þó veiðarnar væru stöðvaðar
á því svæði sem þeir hefðu verið
á, þar sem torfurnar væru mjög
blandaðar smáloðnu og lítið hægt
að veiða. Hann taldi þó ekki veij-
andi að loka öðrum svæðum sem
bátarnir hefðu ekki haft aðstöðu til
að kanna enda væri ekki nóg að
hafa 3-4 skip við leit næsta hálfa
mánuðinn.
í gærmorgun þegar Morgun-
blaðið ræddi við Maron var Guð-
mundur Ólafur að koma inn í höfn-
ina á Ólafsfirði. Sjómennirnir ætl-
uðu að fara til Akureyrar á fund
loðnusjómanna ef af honum yrði.
„Okkur langar að fá að vita um
möguleika okkar til að lifa. Það er
margt fólk sem hefur framfæri sitt
af þessu og allir eru búnir að skrifa
upp á loðnuvíxilinn. Bjart útlit var
fyrir þessa vertíð, t.d. fengum við
stærsta byijunarkvóta sem úthlutað
hefur verið en svo er grundvellinum
kippt undan okkar á einum degi,“
sagði Maron. Hann sagði að loðnu-
skipin hefðu stundað ýmsar aðrar
veiðar, til dæmis bolfiskveiðar og
ekki síst síldveiðar. Nú væri búið
að taka þetta allt af þeim og loðnan
átt að duga. Við núverandi aðstæð-
ur vildu menn kanna möguleikana
á að endurheimta eitthvað af þeim
veiðiheimildum sem tapast hefðu.
Maron sagði að áhafnir 37 loðnu-
skipa sem voru á miðunum síðast-
liðinn fimmtudag hefðu sent Hall-
dóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráð-
herra símskeyti og farið fram á að
fá að veiða síld. Hann sagði að
þeir teldu að mikið væri af síld og
vildu fá að nota bátana til þeirra
veiða fram til jóla. „Við erum með
sérútbúin nótaveiðiskip og getum
hafið síldveiðarnar nú þegar án
nokkurs aukatilkostnaðar," sagði
Maron.
Bremerhaven;
Ráðizt á
íslenzkan
sjómann með
hnúajárnum
RÁÐIZT var á íslenzkan sjó-
mann í Bremerhaven fyrir
nokkrum dögum og hann
meiddur illa. Lítur út fyrir
að árásarmennirnir hafi not-
að hnúajárn. Maðurinn er á
batavegi.
Að sögn Ludwigs Janssen,
ræðismanns íslands í Bre-
merhaven, er ekki fulljóst með
hvaða hætti árásin átti sér stað
og vinnur lögreglan ennþá að
rannsókn málsins. Allt bendir
til þess að maðurinn hafi lent
í átökum við hóp manna fyrir
utan skemmtistað.
Að sögn ræðismannsins 'er
kona sjómannsins nú komin til
hans og heilsa hans fer batn-
andi. Janssen sagði að þetta
væri í fyrsta sinn, sem íslenzk-
ur sjómaður yrði fyrir slíkri
árás í borginni svo hann myndi
eftir, en hann hefur verið ræðis-
maður frá 1971.