Morgunblaðið - 07.12.1989, Síða 63

Morgunblaðið - 07.12.1989, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. UESEMBER 1989 63 Fjölmenni á átta- tíu ára afmælis- hátíð Mývetnings Björk, Mývatnssveit. UM 300 manns sóttu áttatíu ára afinælisfagnað ungmennafélags- ins Mývetnings, sem haldinn var í Skjólbrekku nýlega. Hófst fagnaðurinn með borð- haldi klukkan 20. Formaður fé- lagsins, Jóhanna Njálsdóttir, setti samkomuna og bauð gesti vel- komna. Veislustjóri var Erlingur Sigurðarson. Síðan var flutt fimm klukkutíma dagskrá. Stefanía Þorgrímsdóttir rakti sögu félagsins í all löngu máli. Þar kom meðal annars fram, að íþróttir hafa frá upphafi ætíð skipað veglegan sess í starfsemi félagsins. Má í þvi sam- bandi nefna íslenska glím'u, skíði, sund og knattspyrnu, enn fremur fijálsar íþróttir. Þess má einnig geta að mývetnskir glímu- og skíðamenn hafa verið í fremstu röðum í þeim greinum. Þrír skíða- menn, Jón og Matthías Kristjáns- synir og ívar Stefánsson voru heiðraðir sérstaklega fyrir frábær- an árangur í skíðakeppnum fyrr á árum. Mývetningur hefur á sínum starfstíma ávallt látið margskonar menningarmál til sín taka, meðal annars með sýningum fjölda leik- rita. í tilefni afmælisins sýndu níu félagar þætti úr „Ævintýri á gönguför", undir stjórn Þráins Þórissonar. Félagið sýndi þetta leikrit fyrir allmörgum árum. Blandaður kór söng nokkur lög úr leikritum, sem áður hafa verið sýnd á vegum félagsins, við undirleik Arnar Friðrikssonar. Hann lék einnig undir einsöng Steinþórs Þráinssonar. Félaginu barst mikiil íjöldi skeyta, gjafa og afmælisóska. Jón Ólafsson flutti kveðjur og afhenti gjöf frá stjórn Ungmennafélags Islands. Margar ræður voru fluttar og ávörp og gjafir afhentar af full- trúum ungmennafélaganna í sýsl- unni, svo og HSÞ. Sparisjóður Mývetninga gaf félaginu 100 þús- und krónur og Sveinn Helgason á Grænavatni sömu upphæð. Sveit- arstjórn Skútustaðarhrepps ákvað að gefa heitt vatn í sundlaug fé- lagsins á Álftabáru. Frá stofnun félagsins hafa 36 menn og konur gegnt formennsku og búið var að festa upp á vegg félagsheimilisins myndir af þeim flestum. Heiðurfélagar ungmenna- félagsins eru 12 og fengu þeir all- ir, sem viðstaddir voru, afhent sér- stök heiðursskjöl. Milli skemmtiat- riða var almennur söngur. Formað- ur hátíðarnefndar var Kristján Ing- varsson, Hann og kona hans, Sig- rún Jóhannsdóttir, færðu félaginu að gjöf skáp, til að geyma ýmsa muni félagsins. Óhætt er að segja að þessi fagn- aður félagsins tókst vel og verður vafalaust mörgum minnisstæður. Hér með eru félaginu færðar bestu framtíðaróskir. Vonandi verður saga þess gefin út á prenti hið fyrsta. Kristján Skemmtileg saga fyrir alla fjölskylduna BRÚÐAN HANS BORGÞÓRS eftir útvarpsmanninn vinsæla Jónas Jónasson. Hlýleg kímni einkennir þessa hugljúfu sögu um Borgþór smið, Ólínu konu hans, brúðuna Hafþór skipstjóra, Heiðu litlu, borgarstjóra hjónin Jörund og Kolfinnu og fleiri íbúa í Ljúfalandi. Fallegar myndir Sigrúnar Eldjárns falla einkar vel að sögunni BRUÐAN HANS ^ BORGÞÓRS Nýiu <2oxclL vetrarpeysurnar eru koranar í verslanir Fást á eftirtöldum stööum: REYKJAVÍK Álafossversiunin, Vesturgötu 2 Exell búðin, Laugavegi 55 Fatabær, Giæsibæ fslenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3 Rammagerðin, Kringlunni Rammagerðin, Hafnarstræti 19 Topphúsið, Austurstræti 8 Topphúsið, Laugavegi 21 KEFiAVÍK íslenskur Markaður, Keflavíkurflugvelli AKRANES Verslunin Ósk, Suðurgötu 83 BORGARNES Kaupfélag Borgfirðinga, Egilsgötu 11 GRUNDARFJÖRDUR Verslunin Rocky, Sæbóli 32 KRÓKSFJARÐARNES Kaupfélag Króksfjarðar ÓIAFSVÍK Verslunin Vík, Ólafsbraut 19 STYKKISHÓIMUR Verslunin Þórshamar, Aðalgötu 17 BOLUNGARVÍK Verslun Einars Guðfinnssonar, Aðalgötu 21-23 ÍSAFJÖRDUR Jón og Gunna, Ljónið, Skelði PATREKSFJÖRÐUR Verslunin Kjailarinn, Aðalstræti 65 BIÖNDUÓS Búðin, Húnabraut 13 HÓLMAVÍK Kaupfélag Steingrímsfjarðar SAUDÁRKRÓKUR Fataverslunin Ká, Aðalgötu 21 AKUREYRI París hf., Hafnarstræti 96 DALVÍK Verslunin Kotra, Skíðabraut 3 HÚSAVÍK Skóbúð Húsavíkur, Garðarsbraut 13 SIGLUFJÖRDUR Verslunin Nes, Aðalgötu 9 DJÚPIVOGUR B H Búðin, Dalberg EGILSSTADIR Verslunin Gríma, Bjarkahlíð 6 NORDFJÖRDUR Nesbær, Egilsbraut 5 FÁSKRÚDSFJÖRDUR Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Skólavegi 59 HVOLSVÖLLUR Kaupféiag Rangæinga, Austurvegi 4 SELFOSS Verslunin Lindin, Eyrarvegi 7 Heildsölubirgðir: ÁRBLIK HF Smiðsbúð 9,210 Garðabær Sími 91 -641466, Fax 91 -45028 '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.