Morgunblaðið - 29.12.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAG.UR 29. DBSEMBER 1989
STÆRSTRt
dectid nc
DCðiinub
Þessi lýsingarorð nota KRingar, keppinautar okkar í
flugeldasölu,í auglýsingum sínum þessa dagana.
Við nennum ekki að elta ólar við ósannar fullyrðingar,
staðreyndirnar tala sínu máli.
Þó KRingar hafi, eins og öllum er orðið Ijóst, mikla þörf
fyrir íslandsmeistaratitil, þá er íslandsmeistaratitillinn í
flugeldasölunni í höndum hjálparsveitanna
- hefur verið þar í 20 ár og verður væntanlega áfram.
Okkur líkar vel að keppa í flugeldasölunni, en tökum
ekki þátt í keppni í karlagrobbi - þar mega KRingar vera
krýndir eða ókrýndir meistarar, okkar vegna.
A
L.H.S
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA