Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBBR 1989 29 Minning: Bergþóra Jónsdótt- ir Vestmannaeyjum Andlát Bergþóru föðursystur minnar kom ekki á óvart. Hún var orðin háöldruð og þreytt. Þó hélt hún uppá 95 ára afmæli sitt með ættingjum og vinum á heimili sonar síns þann 10. október síðastliðinn. Það er mikill sjónarsviptir að henni í fjöiskyldunni. í augum margra okkar markar andlát henn- ar tímamót. Hún er sú síðasta sem byggði hús sitt og heimili við gömlu Vestmannabrautina og þar stendur heimili hennar enn. Bergþóra var fædd 10. október 1894 í Núpakoti undir Eyjafjöllum, dóttir hjónanna Jóhönnu Magnús- dóttur og Jóns Einarssonar, bónda þar og síðar í Steinum í sömu sveit. Var fjölskyldan síðar kennd við þann bæ. Fjölskyldan varð fyrir þeirri þungu raun, að heimilisfaðir- inn missti heilsuna af völdum liða- gigtar, á besta aldri. Varð hann ófær að vinna hin erfiðu störf sem fylgdu forsjá heimilis í þá daga. Það lagðist fljótt á ungar herðar Beggu að aðstoða móður sína og rúmliggjandi föður. Af veikum mætti reyndi faðirinn að vinna ýmis störf í rúminu, þar á meðal að binda inn bækur. Þar með var þessi fátæklega baðstofa orðin menningasetur sem margir sóttu heim til fróðleiks og skemmtunar. Börnin urðu öll sérlega bókelsk, sem hefur fylgt þeim alla daga. Ung giftist hún Guðjóni Jónssyni frá Björnskoti, miklum dugnaðar- manni. Þau byijuðu búskap í Rim- húsum, rýru koti, og voru móðir hennar og yngri bræður í skjóli þeirra, eftir að faðirinn var látinn. En fyrirheitna landið beið í hill- ingum við sjónarrönd, Vestmanna- eyjar, þangað streymdi unga fólkið frá yfirfullum sveitum Suðurlands. Þau fluttu til Eyja 1920 og tóku strax þátt í útgerð, í félagi við unga og duglega menn. Ekki var lífið áfallalaust, börnin urðu tíu og varð hún að sjá á eftir fjórum þeirra, ungum og á besta aldri. Mikið heilsuleysi hijáði hana um miðbik ævinnar og kom sér oft vel hið mikla æðruleysi sem einkenndi hana ásamt góðu og glöðu skapi. En ' á efri árum, þegar aðstæður breyttust hófst nýr kafli í lífi henn- ar. Nú lét hún ekki nægja bóklest- ur. Hún tók að ferðast um landið sitt og sjá önnur lönd, eftir því sem tækifæri buðust. Er Norðmenn, af höfðingskap sínum, buðu öldruðum Vestmanneyingum til Bodö, í gos- inu, fór hún með. Þrátt fyrir hömlur í tjáningu var þetta mikil ævintýraferð, því vinátt- an talar alþjóðlegt mál. Ég kveð hana með söknuði og þökk, er hún sofnaði inn í birtu jólanna. Jóhanna M. Guðjónsdóttir I dag verður amma okkar, Berg- þóra Jónsdóttir, Reykjum, Vest- mannaeyjum, jarðsungin frá Landakirkju. Hún lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 20. desember sl. rúmlega 95 ára að aldri. Amma í Eyjum fæddist að Syðra-Bakkakoti undir Austur- Eyjafjöllum 10. október árið 1894. Foreldrar hennar voru Jóhanna Magnúsdóttir og Jón Einarsson. Á fyrsta aldursári fluttist amma með foreldrum og systkinum að Steinum undir Eyjafjöllum. Af átta systkin- um ömmu komust sjö upp og í dag eru tveir bræður hennar á lífi, þeir Minning: Mona G. Sigurðsson Fædd 16. mars 1937 Dáin 18. desember 1989 En fyrir handan hafið þar hillir undir land. I gullnum geislum vafið það girðir skýjabarid. (Valdimar Briem) Að áliðnu sumri árið 1957 stóð ung kona á Reykjavíkurflugvelli og' virti borgina og fjöllin í norðri fyrír sér í fyrsta sinn. Á handleggnum bar hún átta mánaða gamlan son. Allt var henni hér í umhverfinu framandi á þeirri stundu og hefur eflaust í huga sér borið það saman við lygn vötnin og græna skóga á æskustöðvum sínum í Vestur-Finn- landi. Þó átti það fyrir henni að liggja að binda slíku ástfóstri við hin nýju heimkynni, að aldrei hvarflaði að henni að flytja til baka. Mona Gudrun Sigurðsson fædd- ist á eyjunni Nötö í finnska skeija- garðinum 16. mars 1937 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Marthá og Fridtjof Andersson. Fað- ir hennar lést fyrir tæpum 30 árum en móðir hennar býr á heimili aldr- aðra í heimabyggð sinni. Systkinin voru fjögur, tveir eldri bræður og yngri systir. Eldri bróðirinn Holger er látinn fyrir nokkrum árum. Nokkru eftir fermingu hélt Nona til Stokkhólms og bjó þar um skeið á heimili móðursystur sinnar. Þar stundaði hún nám í sænskum trygg- ingaskóia og vann um skeið hjá sænsku tryggingarfélagi. Tæplega tvítug sneri hún aftur til Finnlands. Æskuheimili sínu ann Mona mjög og fór þangað oft í sumarleyf- um sínum. Á uppvaxtarárunum í stríðshijáðu landi, þar sem barátta fyrir daglegu brauði var hörð, naut hún samheldni og dugnaðar fjöl- skyldu sinnar. Með henni, systkin- um hennar og móður var afar kært og tengslin náin þótt langt yrði síðar milli heimili þeirra. Mona settist að í Hafnarfirði í janúar 1958 og átti þar heima nær óslitið. Með fyrri manni sínum, Sig- urði Óskarssyni, eignaðist hún tvo syni, Stefán Sigurð árið 1957 og Róbert Friðþjóf árið 1960. í uppeldi drengjanna lagði Mona alla um- hyggju sína og metnað. Heimili hennar einkenndist af eðlislægri reglusemi hennar sjálfrar og smekkvísi. Lífshamingja hennar var undirstrikuð þegar synimir stofn- uðu sín eigin heimili og hún eignað- ist ástríkar tengdadætur og sá bamabörnin dafna. Stefán býr ásamt konu sinni Árnýju Helgadótt- ur og ungum syni, Daníel Holger, í Hafnarfirði og starfar á Keflavík- urflugvelli. Róbert á Akureyri ásamt konu sinni, KristínU Sveins- dóttur, og kornungri dóttur, Mörtu Sigríði. Hann er kennari við Menntaskólann á Akureyri. Elsta bamabarnið, Hafsteinn Eyvindur Stefánsson, dvelst ásamt móður sinni í Bandaríkjunum. Árið 1960 stofnaði Mona með þáverandi eiginmanni sínum ásamt núverandi aðaleigendum, Sælgætis- gerðina Mónu. Nokkrum árum síðar seldi fjölskylda hennar sinn hlut í fyrirtækinu. Auk húsmóðurstarf- anna stundaði Mona skrifstofu- og vérslunarstörf í Hafnarfirði, en hin síðari ár vann hún á skrifstofu Rammagerðarinnar í Reykjavík. Á skammri stundu skipast veður í lofti. Fyrir örfáum vikum gekk Mona hress og bjartsýn að störfum á heimili og vinnustað. En kallið kom óvænt og enn á ný er hún á leið til fjarlægra heimkynna. Hún lést á Borgarspítalanum í Reykjavík hinn 18. desember sl. eftir skamma sjúkdómslegu. Aldraðri móður, systkinum og fjölskyldum þeirra er vottuð innilegasta samúð. Samferðamaður Wélagslíf IBIj Útivist Gamla þjóðleiðin til Reykjavíkur laugard. 30. des. Hraunholtslœkur - Grófin. Gengið að mestu með strönd- inni. Göngufólki boðið upp á hressingu að göngu lokinni á bólvirkinu í Grófinni. Takið þátt i síðustu dagsferð ársins. Ekkert þátttökugjald. Brottför kl. 13 frá BSÍ - bensínsölu. Fyrsta ferðin á nýja árinu verður 7. jan. Árleg kirkju- og nýársferð: Breiðabólstaður í Fljótshlíð. Uppl. á skrist., Grófinni 1, símar 14606 og 23732. Sjáumst. Útisvist. + Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR ODDUR SIGURÐSSON stöðvarstjóri, Háaleitisbraut 56, lóst í Landspítalanum 21. desember. Jarðarförin fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30. Herdís Sigurjónsdóttir, Einar Sigurðsson, íris Sigurðardóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Óttar Sigurðsson. Einar og Steindór Jónssynir. Einar er orðinn 97 ára og dvelst á Hrafn- istu í Hafnarfirði, en Steindór er 81 árs og býr í Kópavogi. Amma mundi tímana tvenna, hún hafði lifað tvær heimsstyijaldir, heimskreppu, Kötlugos og síðast en ekki síst gosið á Heimaey. En eins og hún sjálf sagði bjargaðist þetta allt með góðri samvinnu og Guðs hjálp. Hún taldi sig líka muna eftir jarðskjálftanum árið 1896 en ekki mun það hafa verið nema óljós skynjun um að eitthvað óvenjulegt hafi verið á seyði. Ein fyrsta bernskuminning ömmu var þegar faðir hennar var fluttur í söðli til Reykjavíkur, mjög illa farinn af liðagigt sem hann fékk aldrei nema litla lækningu við, upp frá því hvíldi hiti og þungi heimilisins á herðum langömmu okkar sem sýndi ótrúleg- an dugnað við að halda barnahópn- um sínum saman og um hana hafa verið skrifaðar greinar í blöð og flutt útvarpserindi. Amma í Eyjum var mjög fróð- leiksfús og komst hún oft í bækur hjá föður sínum en hann starfaði við bókband. Lítið varð þó úr skóla- göngu því móðir hennar átti erfitt með að missa hana frá bústörfun- um. Hún hafði þó fengið folald í fermingargjöf sem hún gat selt fyr- ir 300 kr. og keypti hún annan klár til heimilisins en afganginn, 200 kr., notaði hún til kvöldskólanáms hjá Hólmfríði Árnadóttur. Þar lærði hún meðal annars ensku og dönsku. Það varð nú aðeins hálfur vetur því faðir hennar var orðinn mikið veik- ur og bað hana að koma heim. Hún tók sér þá far með Botníu til Eyja og réð sig þar í vist meðan hún beið í þijár vikur eftir að komast með mótorbát upp á Sand. Faðir hennar dó nokkrum mánuðum seinna. Árið 1918 eða sama ár og Katla gaus giftist amma afa okkar Guð- jóni Jónssyni frá Björnskoti undir Eyjafjöllum, syni hjónanna Jóns Filippussonar og Guðbjargar Sig- urðardóttur. Þau byijuðu sinn búska í Rimhúsum undir Eyjafjöll- um en fluttust til Vestmannaeyja árið 1920 þar sem afi gerðist for- maður á bát er Kópur hét. Ári síðar keypti hann hlut í Höfrungi og má geta þess til gamans að þegar gert var upp eftir fyrstu vertiðina var hlutur afa 9.999 kr. Upp úr því byggðu þau íbúðarhúsið Reyki að Vestmannabraut 54. Timbur var keypt hjá Sveini í Völundi, sem var systkinabarn við föður ömmu. Afi seldi hlut sinn í bátnum til að standa straum af kostnaði við húsbygging- una en keypti seinna hlut í bát sem hét Gullfoss. Afi Iést árið 1967 og hefur amma búið á Reykjum síðan eða þar til hún lagðist á Sjúkrahús Vestmannaeyja. Amma og afi eignuðust tíu böm en sjúkdómar og slys hafa höggvið stórt skarð í Reykjaíjölskylduna. Þau misstu Þórhall ársgamlan, Lilju 8 ára gamla, Jón Óskar lést úr berklum og Þorleifur skipstjóri lést af slysförum, þeir voru uppkomnir. Þorleifur var kvæntur Rannveigu Unni Sigþórsdóttur. Eftir lifa sex af börnum þeirra afa og ömmu. Þau eru Guðmundur umsjónarmaður, kvæntur Ásu Gissurardóttur, Jó- hanna sjúkraliði, gift Victori Hall- dórssyni, Guðbjöm járnsmiður, kvæntur Katrínu Valtýsdóttur, Magnús bifreiðastjóri, kvæntur Ed- ith Jóhannesdóttur, Þórhallur verk- stjóri, kvæntur Svölu Ingólfsdóttur og Haukur bifreiðastjóri, kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur. Enda þótt amma hafi í gegnum árin þurft að þola sitt af hveiju, bæði sjúkdóma sjálfrar sín og sinna nánustu gat hún litið stolt yfir far- inn veg. Alltaf voram við • bamabömin velkomin til sumardvalar á Reykj- um og þar dvöldumst við á sumrin við leik og störf í góðri umsjón afa og ömmu. Hún naut þess að vera í samvistum við sína nánustu og vonandi hefur hún uppskorið eins og til var sáð. Amma hafði mjög gaman af að ferðast og varla leið það sumar sem hún húsvitjaði ekki undir Eyjafjöll- in. Um áttrætt fór amma að ferð- ast utanlands, fyrst til Noregs en þangað fór hún með eldri borguram Vestmannaeyja í boði norska Rauða krossins, norsk-íslensks sambands og íslendingafélagsins í Ósló. Þetta var eftir Heimaeyjargosið og dvöld- ust þau í Bodö í Noregi. Amma hafði lesið Noregskonungasögumar á gömlu íslenskunni og hafði hún mjög gaman af ferð þessari og tal- aði oft um hve vel var tekið á móti þeim. Hún hélt líka bréfasambandi við fjölskylduna sem hún bjó hjá. Hún ferðaðist líka tvisvar sinnum til Danmerkur að heimsækja dóttur- dóttur sína sem þar dvaldist ásamt fjölskyldu sinni. Minnisstæður er sá atburður er henti hana í annarri ferðinni. Hún átti að fljúga til Kaup- mannahafnar þar sem tekið yrði á móti henni en svo illa vildi til að flugfélagið sem hún flaug með fékk ekki lendingarleyfi í Kaupmanna- höfn og var flogið með hópinn til Hamborgar. Þar var ömmu og ungri sonardóttur komið í lest sem flytja átti þær til Danmerkur. Það gekk allt vel nema hvað aðstandendumir í Danmörku vissu ekkert hvað um þær varð og héldu heim til Horsens á Jótlandi til að bíða þeirra þar. Svo var fylgst með öllum lestarferð- um og allt í einu birtust þær á braut- arstöðinni með fríhafnarpokana sína og ferðatöskur. Þegar við spurðum ömmu hvernig hún hefði farið að þessu sagðist hún bara hafa spurt Tyrkja sem var í lestinni hvar hún ætti að fara út og það bjargaðist allt þó tungumálin væra óskyld. í hitt skiptið sagði hún okk- ur frá lífshlaupi nágrannans og kom þá í Ijós að hún gat bjargað sér á dönskunni sinni og sagði hún hon- um frá gosinu í Vestmannaeyjum svo við hin yngri sem áttum fullt í fangi með að gera okkur skiljanleg komum alveg af fjöllum hvað hún var dugleg að bjarga sér. Hún átti svo gott með að kynnast fólki og aldrei munum við eftir að hún hafi mælt styggðaryrði um nokkurn mann. Síðustu árin dvaldi amma á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja við góða umönnun starfsfólks, bama og tengdabarna. Við kveðjum elskulega ömmu okkar með söknuði við æskuminn- ingar okkar. Hennar lífshlaupi er nú lokið en við munum ylja okkur við minninguna um þá ömmu sem pijónaði handa okkur og fjölskyld- um okkar lopapeysuí, vettlinga og sokka og þá ömmu sem annaðist okkur svo vel í Eyjum. Blessuð sé minning hennar. Vigdís, Lilja Dóra, Bergþóra og Guðjón Þór. V M SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINH FÉLAGSSTARF Seyðisfjörður Aðalfundur sjálfstæðisfélagsins Skjaldar á Seyðisfirði verður haldinn í dag, föstudaginn 29. desember, kl. 20.30 í fólagsheimilinu Herðu- breið. Dagskrá: ★ Skýrsla stjórnar og reikningar. ★ Kosning formanns. ★ Stjórnarkjör. ★ Baejarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfiröi ræða stöðu bæj- armála. ★ Framboðsmál vegna komandi bæjarstjórnakosninga. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.