Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 33 lags- og mannfræðingur, Ríkharður sálfræðingur, Eiríkur sálfræðingur, Jakob arkitekt og Anna talmeina- fræðingur. Ríkharður og Anna starfa í Kanada en Tryggvi, Eiríkur og Jakob á íslandi. Fósturlaunin til Islands_ eru því ósmá og tengsli sterk. í huga hennar takast á öfl sem hún ein býr yfir. Hugur einn það veit er býr hjarta nær einn er hann sér um sefa. Áður er hér minnst á áhyggjur Amalíu er hún yfirgefur átthaga til þess að eignast nýtt föðurland. Til- finning sú grípur hana á ný er tímar líða fram. Þar kemur að hún sem stendur í sporum skáldsins er þrisv- ar nam land og þrisvar byggði bæ, en varð samt að orði þegar hann hugleiddi liðna ævidaga: Ég á orðið einhvemveginn ekkert fóðurland. Svo saknaðarfull er tilfinning útflytjandans hvarvetna í heimi fyr- ir þeim æskuglaða sorglausa stað sem flestum okkar virðast heima- hagarnir hafa verið þegar horft er aftur. Hún taldi sig knúna til að hverfa á braut til heimshluta sem líkastur væri heimaslóð. Dæmi sýna að leið- in sú er fáum greið. Það heima sem var er ekki lengur þar, og maðurinn sem kemur er ekki sá sem fór. Umhverfið sem Amalía bjó sér á nýjum stað mun í mörgu hafa minnt á ísland og veru hennar þar. Má nefna myndir og bækur. Er hún vissi ævilok nálgast mælti hún svo fyrir að hennar hinsti staður skyldi á íslenskri jörð. Ævi slíkrar konu er stærri að inntaki en lýst verði í stuttri og ófullkom- inni minningargrein. En vinirnir skynja mikilleik lífsreynslu hennar. Einlæg virðing og þökk er fram borin. Börnum hennar, sem mest hafa misst, er vottuð djúp samúð. Margrét og Bergur Vigfússon Amalía Líndal-Webb rithöfundur fæddist 19. maí 1926 í Cambridge í Massachusetts-ríki í Bandaríkjun- um. Foreldrar hennar voru Edward 0. Gourdin hæstaréttardómari og kona hans Amalía fædd Ponce. Nám stundaði hún í kvennamennta- skóla í Boston árin 1939-41, J.E. Burke School 1942-44 og Boston- háskóla 1945-49, en þaðan lauk hún prófi í blaðamennsku. Árið 1949 var því Amalía vel menntuð og rit- fær ung stúlka, 23 ára gömul með próf í nýstárlegri grein. Margir færir vegir blöstu við henni í vax- andi veldi blaðamennskunnar. En ekki átti það fyrir henni að liggja að hasla sér völl á heimaslóðum, því að þetta sama ár flutti hún til Islands með manni sínum Baldri Líndal efnaverkfræðingi. Fyrstu þtjú árin hér á íslandi stundaði Ámalía auk húsmóður- starfa blaðamennsku fyrir hið virta og útbreidda blað Christian Science Monitor, en jafnframt þessi ár og æ síðan ritaði hún fjölda greina í önnur erlend blöð og tímarit. Þorri greinanna var um ísland og íslensk málefni. Amalía varð smám saman mjög vel að sér um málefni hins nýja heimalands síns, íslands, og árið 1965 réðst hún af miklum dugnaði og framsýni í útgáfu rits um íslensk málefni á ensku. Tímaritið var fal- legt og innihaldsríkt ársfjórðungsrit og kallaðist „65 Degrees North“ — 65 gráður norður — og var Amalía útgefandi og ritstjóri. Fyrsta blaðið kom út 1967 og var því haldið úti 5 þtjú ár. Hafði þá brautryðjanda- starf Amalíu sannfært aðra um ágæti slikrar útgáfu, svo að fleiri urðu um hituna. Ritverk Amalíu'; sem mesta at- hygli hefur vakið, er bókin „Ripples from Iceland" — Gárur frá íslandi. — Hún kom fyrst út hjá W.W. Norton í New York árið 1962. Hún var ófáanleg í mörg ár, en var gef- in út á ný ekki alls fyrir löngu. Amalía talar þar enga tæpitungu og lýsir þar landi og þjóð af ein- lægni, sem hennar var háttur. Frá- sögn Amalíu mun hafa komið við kauninn á ýmsum lesendum. Man ég er Amalía minntist þess kímin á svip, að Halldór Laxness hefði ráðlagt sér að vera að heiman þeg- ar bókin kæmi út. Mikið vatn er til sjávar runnið síðan „Gárurnar“ komu fyrst út og veit ég með vissu, að þær hafa nú í seinna sinnið vakið hrifningu ungs fólks er lesið hafa. Svo segir mér hugur um, að bókin verði um ókom- in ár talin mikill fengur sagnfræð- ingum. Hér segir ung og gáfuð kona, sprottin úr fjölskrúðugum menntaheimi stórþjóðar, hug sinn um reynslu sína í litlu landi þar sem hefðin ríkir, — íslandi um miðja 20. öld. Þau Amalía og Baldur Líndal eignuðust fimm börn. Þau hjón skildu. Árið 1973 urðu enn mikil þáttaskil í lífi Amalíu. Hún flutti þá búferlum með börn sín til Tor- onto í Kanada og var þá yngsta barnið, Anna, 10 ára. Það ár flutti ég ásamt konu og börnum frá Mon- treal til Toronto og kynntumst við brátt Amalíu og hennar ágætu börnum. Dvöldumst við í sömu borg í sex ár er við hjón fluttum til ís- lands. Tókustgóð kynni með öllum. Fyrstu árin í Toronto fékkst Amalía við blaðamennsku hjá ýms- um tímaritum og við ritstjórn sér- rita stórra samtaka. Þá starfaði hún hjá útgáfufýrirtæki, sem sérhæfir sig í útgáfu tímarita og kennir þar margra grasa. Viðfangsefni Amalíu voru hin margvíslegustu og var það kappsmál hennar að kynna sér rækilega ný verkefni, þótt málefnið hefði ekki talist til hugðarefna hennar fram að því. Forvitni hennar og skarpa greind komu vissulega að gagni, en aðdáunarverð var bar- áttugleði hennar í frumskógi sam- keppninnar sem ríkir á ritvöllum stórborganna. Samskipti við alls kyns menn lítilla sanda urðu að smellnum gamansögum í munni hennar, en á hinn bóginn leyndi sér ekki ánægjan við að hafa átt erindi við hugmyndaríkt fólk sem var hreint og beint í tali og háttum. í upphafi þessa áratugar réðist Amalía í útgáfu eigin tímarits ásamt seinni eiginmanni sínum, Fred Webb. Meginefni þess voru aðsendar smásögur, sem valið var úr, og greinar um smásagnagerð. Tímaritið kom út í þijú ár. Smá- sagnagerð kenndi Amalíu um sex ára skeið við háskólann í Toronto, en síðustu árin kenndi hún við há- skólann ' í Guelph, háskólaborg skammt frá Toronti, en þangað fluttu þau Fred fyrir nokkrum árum. Börn Amalíu sem áður er getið eru Tryggvi V. Líndal skrifstofu- maður og rithöfundur, mannfræð- ingur að mennt; dr. Ríkharður E. Líndal sálfræðingur; dr. Eiríkur J. Líndal sálfræðingur, kvæntur Halldóru Gísladóttur; Jakob E. Líndal arkitekt, kvæntur Sigríði Nönnu Sveinsdóttur; og Anna sál- fræðingur og talkennari. Þau Ríkharður og Anna eiga heima í Kanada, en hin systkinin hafa sest að hér heima á Islandi. Amalía Líndal Webb lést fyrir aldur fram á sjúkrahúsi í nóvember- lok 1989 eftir mikil veikindi síðustu mánuðina. Hún hafði sem löngum áður margt á pijónunum og átti margt ógert. Fijór hugur og atorka hefðu enn komið mörgu góðu til leiðar, ef aldur entist. En sár er harmur eiginmanns og barna. Megi samúðarkveðjur mínar, míns fólks og annarra sem þekktu Amalíu verða þeim nokkur huggun. Eftirminnilegir eru samfundir við Amalíu og hin gáfuðu börn hennar. Mörg voru umræðuefnin, þekking mikil saman komin og þess notið í ríkum mæli að láta gamminn geisa. Stjórnmál, bókmenntir, vísindi, voru vegin og metin — og svo umdeildari iðja á borð við stjörnu- speki. Fræði margs konar voru rædd, en aldrei gleymdust persónur leiksins hjá Amalíu. Hjá skáldinu Amalíu var skapgerð mannanna ofar fræðunum, sem fletja út við- brögð einstaklingsins. Sérhver var sérstæður. Og enginn var þannig gerður af hendingu, heldur með óljósum hætti endurskin himneskra viðburða. Blessuð sé minning hennar. Þór Jakobsson EinarD. Davíðs- son - Minning’ Fæddur 8. mars 1926 Dáinn 24. desember 1989 Þegar einkavinir manns kveðja skyndilega og að því að manni sjálf- um finnst, á besta aldri, þá liggur við að maður hiki við að viðurkenna raunveruleikann. Svo óraunveru- legt getur manni fundist það sem gerst hefir. Svo fór a.m.k. fyrir mér þegar vinur minn og svili, Einar Davíðsson trésmiður á Rauðalæk 6, lést snögglega laust eftir kl. fjög- ur á aðfangadag jóla. Að vísu var okkur sem nánast vorum tengd fjöl- skyldunni, kunnugt um það að hann var ekki lengur heilsuhraustur og hafði fyrir nokkru orðið að leita sér heilsubótar á sjúkrahúsi. En þó munu hvorki hann sjálfur eða ætt- ingjar og vinir hafa átt von á svo snöggum umskiptum. Með fráfalli hans er þungur harmur kveðinn, auðvitað fyrst og fremst að ijölskyldu hans en einnig að systkinum ásamt öðru vensla- fólki og vinum. Einar Davíðsson var fæddur í Stavangri í Noregi 8. mars 1926. Voru foreldrar hans Skafti Davíðs- son trésmiður, ættaður úr Reykjavík og kona hans Marie, er var norsk að ætt og uppruna. Hafði Skafti farið ungur utan og dvalið í Noregi allmörg ár. í Stavangri höfðu þau Marie stofnað sitt heim- ili og þar fæddust öll börn þeirra fjögur; Ólafur, Dagmar, Einar og Þórdís. En árið 1934 fluttist fjöl- skyldan til íslands og hefur hún búið hér síðan nema eldri systirin, Dagmar, er síðar fluttist til Noregs og er nú búsett þar. Ungur var Einar er hann kom til íslands með foreldrum sínum. En eins og flest önnur börn mun hann fljótt hafa aðlagast nýju lífi í nýju landi, þar sem árið skiptist í skólagöngu á vetrum og dvöl á íslensku sveitaheimili á sumrum, með þeim störfum, er því fylgdu fyrir börn og unglinga. En þegar að því kom að velja framtíðarstarf þá valdi hann iðngrein, er þjóðin hafði sýnilega mikla þörf fyrir, og lærði húsasmíði. Síðar sneri hann sér einnig að húsgagnasmíði og gerðist jafnvígur á hvort tveggja, enda var hann að eðlisfari bæði verklaginn og vandvirkur svo af bar. Að námi loknu mun hann í fyrstu hafa unnið með föður sínum að ýmsum verkefnum og einnig hjá öðrum. En fljótlega stofnaði hann ásamt félaga sínum fyrirtækið Linditré sf., sem þeir ráku í félagi nokkuð á þriðja áratug. Var framleiðsla þeirra á húsgögnum eftirsótt mjög, enda til allra hluta vandað af stakri kostgæfni. Hinn 15. apríl 1957 kvæntist Einar eftirlifandi konu sinni Sigríði Árnadóttur frá Bræðratungu í Stokkseyrarhreppi. Rúmu ári síðar kvæntist ég undirritaður systur hennar og hófst þá fyrir alvöru sá kunningsskapur, er fljótlega leiddi til vináttu, er ekki hefir fölskva borið á síðan. Hafa þau eignast íjögur börn talin hér í röð eftir aldri: Magnea kennari við Selja- skóla í Reykjavík; Hildur læknir, vinnur í Svíþjóð; Einar, sem nú er að ljúka framhaldsnámi í vélaverk- fræði í Danmörku og Sólveig, er starfar hjá Almenna bókafélaginu. Verður annað ekki sagt en að barnalán þeirra hjóna sé mikið, enda var alltaf jafn ánægjulegt að koma á heimili þeirra og hitta fjöl- skylduna. Fyrir nokkram árum tók Einar að finna til þess sjúkdóms, er að líkum hefir átt mestan þátt í hinum skjótu ævilokum. Um það bil hættu þeir félagar húsgagnaframleiðsl- unni, enda heppilegra að skipta um atvinnu. Gerðist hann þá starfsmað- ur við dagheimilið Hlíðarbæ, þar sem hann starfaði þar til yfir lauk. Enn fremur vann hann um tveggja ára skeið hlutastarf sem kirkjuvörð- ur í Laugarneskirkju. En við þessi umskipti og einkum starfið í Hlíðarbæ fannst mér ég finna nýjan þátt í skapgerð hans, sem ég hafði ekki gert mér fulla grein fyrir áður. Það var sérstakur hæfileiki til að hjálpa þeim sjúkling- um, er þarna nutu aðstoðar, skilja þá, viðhorf þeirra og vandamál. Komu þar einna skýrast fram þeir eiginleikar hans, sem maður áður þekkti, að vinna hvert verk svo vel, sem unnt var, hvers eðlis sem það var. Mun það ekki síður hafa komið fram í starfi hans fyrir kirkjuna. Með Einari Davíðssyni er góður drengur genginn. Ágætur heimilis- faðir, léttur í skapi við hvern sem var og góður vinur vina sinna. í fáum orðum sagt, maður sem ánægjulegt var að kynnast og vera samvistum við. Ásmundur Sigurðsson Það var dapurleg frétt sem barst þegar ég kom heim að aftansöng loknum er mér var tilkynnt andlát vinar míns Einars Dagfinns Davíðs- sonar, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu rétt áður en jólahelgin gekk í garð. Einar fæddist í Stavanger í Nor- egi 8. mars 1926 og var því aðeins 63 ára er hann lést. Foreldrar hans voru María Davíðsson og Skafti Davíðsson sem bæði eru látin. Einar dvaldist í Stavanger fyrstu 8 ár ævi sinnar en fluttist síðan með foreldrum sínum til íslands og ólst upp í foreldrahúsum í friði og eindrægni sem ríkti á því heimili. Fljótlega eftir heimkomuna kynntist hann félögum sínum, Jóni Þórarinssyni og Einari Sigurvins- syni, en þeir voru nágrannar hans, og síðan undirrituðum og Gunnari Guðjónssyni, en frá okkur og eigin- konum okkar eru þessi fátæklegu minningarorð um góðan dreng sem lést langt um aldur fram. Unglingsárin liðu áhyggjulaust. Einar gekk í Iðnskólann og nam húsasmíði. Ennfremur stundaði hann framhaldsnám í grein sinni í Svíþjóð. Á meðan á námi stóð og eftir það vann Einar á trésmíða- verkstæði með föður sínum þar til hann stofnaði eigið fyrirtæki, Lándi- tré sf., ásamt Reyni Ástþórssyni, og starfræktu þeir félagar það fyr- irtæki í mörg ár í sátt og samlyndi og var viðbrugðið hve góða vöru þeir létu frá sér fara. Eftir að þeir hættu rekstri verkstæðisins fór Ein- ar nokkru síðar að vinna við gæslu og þjónustu við alsheimer-sjúklinga og kom þá best í ljós hvern mann hann hafði að geyma, því undan- tekningarlaust naut hann virðingar samstarfsmanna og sjúklinga fyrir hlýju, vandvirkni og samviskusemi í starfi. Um tíma vann hann jafn- framt sem umsjónarmaður og með- hjálpari við Laugarneskirkju og vissi ég að hann naut þess að vera þar og bar virðingu fyrir starfinu. Á yngri árum iðkaði Einar íþrótt- ir og var í fremstu röð bringusunds- manna okkar, en vegna vinnu og náms erlendis varð hann að hætta keppni en aðstoðaði við þjálfun því áhugi fyrir sundinu var mikill. Eins og áður segir eru þessi orð sem hér eru rituð til að minnast yfir 50 ára félagsskapar við vin sem nú er Iátinn og í því sambandi minn- umst við feðra sem við félagarnir áttum saman innanlands einir sér og síðan sameiginlega með eigin- konum okkar innanlands og utan. Skarð er fyrir skildi í spilaklúbbnum okkar sem er orðinn allgamall. Alls þessa minnumst við og þökkum .samfylgdina um leið og við kveðjum góðan vin. Einar giftist eftirlifandi konu sinni, Sigríði Árnadóttur frá Stokkseyri, mikilli sómakomu, og ríkti þar gagnkvæm virðing. Þau eignuðust íjögur börn, Magneu kennara, Einar sem er að ljúka verkfræðiprófi, Hildi lækni og Sól- veigu verslunarmann. Allt er þetta efnisfólk svo sem þau eiga kyn til. Eiginkonu, börnum og systkinum hins látna sendum við og dýpstu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorg þeirra. Einar H. Hjartarson t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, áður Njálsgötu 74, er andaðist í Hafnarbúðum 18. desember verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins föstudaginn 29. desember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktarsjóð kirkju Óháða safnaðarins. Guðmundur Guðjónsson, Fanney Sigurðardóttir, Erna Guðjónsdóttir, Sverrir Guðjónsson, barnabörn og langömmubörn. t HERBERT GEORG JÓNSSON, Höfðagötu 2, Stykkishólmi, verður jarðsunginn í Stykkishólmskirkju laugardaginn 30. desemb- er kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hans, láti Sjúkrahús Stykkis- hólms njóta þess. Sætaferðir verða frá BS( sama dag kl. 8.00 að morgni. Fyrir hönd vandamanna, Bergmann Bjarnason. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.