Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 „ AubvitcÁ vil egbjoba- þér ut ab borbcu. 'A hvorn sicxSinn viLtu -íorrx? ' Með morgunkaffinu nokkrum þroska áður en ég segi honum að þú sért pabbi hans ... Höldum vímueftialaus j ól Til Velvakanda. Ég sendi öllum mínar blessunar- kveðjur. Mikil guðsblessun er það í svartasta skammdeginu að eiga blessuð jólin og fagnaðarboðskap frelsarans sem þá kemur svo skýrt út að jafnvel eldri menn verða börn í annað sinn, og þá vilja allir að öllum líði sem best. Og menn takast í hendur og bjóða hver öðr- um gleðileg jól. Ljósin í hverri átt og allt svo fallegt. Ég minnist gömlu jólanna heima fyrir 70 árum, þegar allir kepptust við að gleðja aðra og gæta þess að enginn færi í jólaköttinn, og jólaljósin, vaxkertin okkar, með eðlilegum Ijósum, þöktu gamla tréð okkar, sem frændi smíðaði og málaði og við gengum í kringum, hring eftir hring og vorum svo glöð og sung- um um frelsarann, sem og lofuðum Drottin sem gaf okkur bestu jóla- gjöfina sem nokkur mannlegur hafði áður þegið. Gleðin um jólin þarf að haldast mikið lengur en oft vill verða að önnur stefna hefir þá verið tekið, því miður, og annar konungur hefir leitt í aðra átt. Menn fara út að „skemmta sér“, en hvað er það og hvernig endar ballið. Það er enginn vafi að víman í hverri mynd sem er leiðír alltof marga út á ógæfubrautina og er hörmulegt til að vita. Góðir landsmenn. Höldum þessi jól vímuefnalaus. Ekki eingöngu þessi jól, en alltaf framvegis, þá gefum við landinu okkar heilbrigða menn í hraustum líkama, betri þjóð og þjóðfélag. Megi guð gefa að svo verði. Gpð blessi land og þjóð og gefi öllum góð og gleðileg jól og farsæld á komandi árum. Árni Helgason Víkverji skrifar HÖGNI HREKKVÍSI Samkeppnin á tímaritamarkaðn- um birtist fólki á ýmsa vegu. Kunningi Víkveija í sveitinni telur sig hafa verið svikinn í viðskiptum við eitt blaðið. Maður sem safnar áskriftum fyrir fréttatímaritið Þjóðlíf hringdi til að bjóða áskrift. Kunning- inn hafði í fyrstu ekki áhuga og var að reyna að losna úr símanum þegar sölumaðurinn náði athyglinni aftur með því að segja: Þú ert heppinn! Þú hefur verið dreginn út! Talað var um afmælistilboð, 50% afslátt frá útsöluverði og fleira. Kunninginn ákvað að slá til og nýta sér þetta góða boð. Þegar hann hafði fengið tvö blöð fékk hann gíróseðil með rukkun um tæpar f imm þúsund krón- ur. Ekki átti maðurinn von á svo hárri rukkun, þar sem talað hafði verið um þijú þúsund og eitthvað í símanum, en við nánari athugun sá hann að fimmþúsundkallinn er fyrir átján mánaða áskrift. Hann bar sig saman við næstu nágranna sína og kom þá í ljós að þeir höfðu líka ver- ið svona „heppnir" og lent í „úrdrætt- inum“. Minn maður hringdi í Þjóðlíf án þess að kynna sig og spurði hvað áskrift að blaðinu kostaði í átján mánuði og fékk uppgefna nákvæm- lega sömu fjárhæð og stóð á gíróseðl- inum hans. Samkvæmt þessu hafði öll þjóðin verið jafn „heppin“ og hann og lent íþessum „úrdrætti" sem sölu- maðurinn sem upphaflega hringdi í hann vitnaði svo mikið til. Sveitamað- urinn vill ógjaman láta plata sig og sagði áskriftinni umsvifalaust upp enda fannst honum efni þeirra tveggja blaða sem hann hafði fengið ekki vera þannig að hann gæti ekki verið án blaðsins — burtséð frá svik- unum. xxx Sífellt algengara er að heyra ráð- herra segja: Ég hef ákveðið, ég hef gert þetta og ég hef gert hitt. Fyrrverandi ráðherra segir Víkveija að þetta hafi ekki tíðkast í stjómsýsl- unni fyrir fáum árum. Þá hafi ráð- herrar og embættismenn sagt: Ráðu- neytið hefur gert þetta og hitt. Með þessu virðast ráðherramir vera að auglýsa sjálfa sig og eigna sér mál sem kannski margir hafa unnið að. xxx O* skaplega virðist það koma dag- skrárstjómm sjónvarpsstöðv- anna mikið á óvart að fyrirtæki vilji auglýsa hjá þeim fyrir jólin. Tíma- setning dagskrárliða sem stöðvamar senda dagblöðum og öðmm til birt- ingar fór öll úr skorðum marga daga nú í desember eins og oft áður á sama tíma. Víkveiji tók eftir því að eitt kvöldið hófst dagskrárliður á Stöð 2 hálftíma síðar en auglýst dagskrá og er hann alls ekki viss um að það sé versta dæmið í þessu auglýsingaflóði. Kannski er Víkveiji illa innrættur, en getur það verið að annað búi á bak við þetta en skipu- lagsleysi og fyrirhyggjuleysi? Éra stöðvamar viljandi að draga fólkið að skjánum áður en þættimir hefj- ast? Víkveiji dagsins skorar á þá sem bera ábyrgð á dagskrá sjónvarps- stöðvanna að vanda betur áætlanir um auglýsingar og leiðrétta dag- skrárkynningar eins oft og þurfa þykir, þannig að fólk geti betur treyst dagskránni sem birt er daglega í blöðunum. XXX Ameríski körfuboltinn er uppá- halds sjónvarpsefni Víkveija dagsins. Stöð 2 hefur veitt honum og fleiri þakklátum unnendum úrvals köi-fubolta góða þjónustu með frá- bæram þáttum síðdegis á sunnudög- um undanfama vetur. Lítið hefur farið fyrir NBA-boltanum í vetur. Er ekki tími til kominn að halda fram þar sem frá var horfið í vor?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.