Morgunblaðið - 29.12.1989, Side 19

Morgunblaðið - 29.12.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 19 Morgunblaðið/Bjami Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ari Trausti Guðmundsson, ritstjóri bókarinnar Energy Resources and Dams in Iceland, Páll Ólafsson, formaður ritneftidar, Jakob Björnsson orkumálastjóri og Hall- dór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar. Bók um íslenskar orku- lindir og stíflumannvirki ÚT ER komin bók á ensku um orkulindir og stíflumannvirki á íslandi. Bókin heitir Energy Resources and Dams in Iceland 9g er gefin út af Landsvirlqun, Orkustofhun og Landsneftid íslands um stórar stíflur í tilefni af 57. framkvæmdasljómar- fundi alþjóðanefiidar um stórar stíflur (ICOLD), sem haldinn var í Kaupmannahöfn síðastliðið sumar. Landsnefiidir íslands og Danmerkur stóðu að fúndinum og sóttu hann 550 fulltrúar víðsvegar að úr heiminum. Energy Resources and Dams in Iceland er heimildan-it um tvær megin orkulindir íslands, vatnsorku og jarðhita. í bókinni eru upplýsingar úm helstu vatns- aflsstöðvar og stíflumannvirki á íslandi, svo og helstu jarðhita- virkjanir og hitaveitur. Einnig er í bókinni sögulegt yfirlit um orkufrekan iðnað hérlendis. Ritstjóri bókarinnar er Ari Trausti Guðmundsson. Ritnefnd skipuðu Páll Ólafsson, sem jafn- framt var formaður nefndarinn- ar, Haukur Tómasson, Páll Sig- uijónsson, Andrés Svanbjöms- son og Páll Flygenring. Jón Sig- urðsson iðnaðarráðherra ritaði formála að bókinni. Energy Resources and Dams in Iceland fæst meðal annars í bókaverslunum Sigfúsar Ey- mundssonar og Máls og menn- ingar, svo og í Icemart í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Friðsæl jól á Reykhólum Reykhólum. JÓLAMÁNUÐURINN hefúr verið friðsæll hér í Reykhólahreppi. Á aðventunni var jólavaka i Reykhólakirkju og hélt Olafúr Vestmann Þóroddsson erindi og börn sungu. Börn héldu upp á litlu jólin um leið og þau fóru í jólaleyfi, foreldrafélagið og nemendur Reykhóla- skóla hjálpast að. Nemendur sjá um skemmtiatriðin en foreldrar um veitingar. Kirkjusókn var mikil hér um jólin ' en sóknarpresturinn, sr. Bragi Benediktsson, messaði í Gufudals-, Garpsdals- og Reykhólakirkjum. I Reykhólakirkju sungu börn undir stjórn Soffíu Bragadóttur kennara og lék hún undir á gítar. Organisti í Reykhólaprestakalli er Ólína Jóns- dóttir. Að lokinni messu á Reyk- hólum fóra þau sr. Bragi, Soffía og börnin upp í dvalarheimilið Barmahlíð og höfðu helgistund fyr- ir heimilisfólkið þar. - Sveinn Hringur Jóhannesson Egilsstaðir; Morgunblaðið/Einar Falur Hringur sýnir mál- verk 1 húsi RARIK Þingflokkur Kvennalistans í bréfi til þingforseta: Kannað verði hvort seta Kristínar í bankaráði sé andstæð lögum ÞINGFLOKKUR Kvennalistans hefúr farið þess á leit við forseta Alþingis að kannað verði hvort seta fulltrúa Kvennalistans í bankar- áði Landsbanka íslands gangi gegn lögum um viðskiptabanka. SÝNING á málverkum Hrings Jóhannessonar verður opnuð á sunnu- dag, gamlársdag, þann 31. desember, kl. 14.00 í húsi Rafmagns- veitna ríkisins á Egilsstöðum. í bréfi þingflokks Kvennalistans er þess farið á leit við forseta Al- þingis, að þeir láti kanna hjá til þess bæram aðilum, hvort seta Kristínar Sigurðardóttur, deildar- stjóra hjá Kaupþingi, í bankaráði Landsbankans bijóti í bága við lög um viðskiptabanka. Er þess óskað að niðurstaða liggi fyrir svo fljótt sem auðið er. í samtali við Morgunblaðið sagði Guðrún Helgadóttir forseti Samein- aðs þings að á fundi forseta þings- ins, sem haldinn var í gær, hefði verið ákveðið að fela Friðriki Ólafs- syni skrifstofustjóra Alþingis að kanna málið og skila niðurstöðu hið fyrsta. „Ég mun ýta á eftir því að málið gangi sem hraðast fýrir sig,“ sagði Guðrún og vildi ekki tjá sig efnislega um málið. Nýlega kom út bók Aðalsteins Ingólfssonar um listamanninn á vegum Listasafns ASÍ og Lögbergs. Málverkasýningarnar á verkum Hrings í Reykjavík og á Akureyri hafa verið fjölsóttar. Hringur Jóhannesson fæddist í Haga í Aðaldal 1932. Hann nam við Handíða- og myndlistaskólann í Reykjavík 1949-52. Hringur hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum heima og erlendis. Að sýningunni á Egilsstöðum standa verkalýðsfélag Fljótsdals- héraðs og bæjarstjórn Egilsstaða- bæjar. Á sýningunni á Egilsstöðum verða til sölu árituð eintök bókar- innar um Hring og er bókin seld á listasafnsverði. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. INNANLANDSFLUG Sérsveitin Sérsveitin Laugar- ásvegi 25 frumsýnd NÝ íslensk kvikmynd, „Sérsveitin Laugarásvegi 25“ („SSL 25“), verður frumsýnd í Regnboganum laugardaginn 30. desember. Hún fjallar um lítið fjölskyldufyrirtæki, einkareki Handritið var skrifað af Óskari Jónassyni, sem einnig leikstýrði. Tónlist var samin af Bjorku Guð- mundsdóttur. Stephen Macmillan kvikmyndaði, Kjartan Kjartansson sá um hljóð og David Hill klippti. Leikarar í myndinni eru Ingvar Sig- urðsson, Hjálmar Hjálmarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmar Jónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Pétur Einars- son. Kvikmyndin er lokaverkefni Óskars og tveggja Breta í „The Víkingasveit. Nationai Film and Television School“ í Englandi. Myndin var unnin í sam- vinnu við fyrirtæki Sykurmolanna, Hugleysu tm. hf., sem fjármagnaði myndina að hluta. Einnig verður sýnd í Regnbogan- um myndin „Vernissage", gerð af sömu mönnum við sama skóla. Hún fjallar um vandræðalega myndlistar- sýningu. „Vernissage" er 17 mínútna löng og „SSL 25“ er 32 mínútur. Báðar era teknar á 16 mm filmu. Þær verða sýndartil 8.janúarkl. 21, 22og23. FARPANTANIR & UPPLÝSINGAR 6 90 200 VÖRUAFGREIÐSLA 690585 & 690586 FLUGLEIÐIR J íff

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.