Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 21
21" MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 Endalok Elenu Ceausescu Nicolae og Elena Ceausescu voru dæmd til dauða á Jóladag fyrir glæpi sína gagnvart rúmensku þjóðinni og tekin af lífi skömmu síðar. Myndir af réttar- höldunum hafa verið sýndar víða um heim og rúmenska ríkissjónvarpið hef- ur birt myndir af líkum þeirra, sem teknar voru á aftökustaðnum en ekki hefur verið skýrt frá því hvar líflátsdómnum var fullnægt. Þessi mynd af líki Elenu Ceausescu, hötuðustu konu Rúmeníu, var tekin af sjónvarps- skermi en ekki liggur fyrir hvenær sjálf frummyndin var tekin. Alþýða manna í Rúmeníu fagnaði ákaflega er þær fréttir bárust að einræðisherrann og eiginkona hans hefðu verið tekin af lífi en ríkisstjórnir nokkurra vestrænna ríkja hafa harmað það að Ceausescu-hjónin skyldu ekki hafa verið látin svara til saka í opinberum réttarhöldum. Ceausescu lét Msa framleiðslutölur Búkarest. Reuter. FJÖLMIÐLAR í Rúmeníu fagna nú nýfengnu firelsi með því að flytja eiginlegar fréttir af ástandinu í efnahags- og þjóðmálum. I gær skýrðu þeir til dæmis frá því, að yfirlýsingar Ceausesu- stjómarinnar um landbúnaðarframleiðsluna á þessu ári hefðu verið stórkostleg fölsun, uppskeran hefði verið miklu minni en haldið var fram. og breyttum starfsháttum sé unnt að stórauka landbúnaðar- framleiðsluna á næstu tveimur árum en bandarískir sérfræðing- ar segja, að minni matvælaút- flutningur frá Rúmeníu geti komið sér mjög illa fyrir Sovét- menn, sem hafi leyst skortinn heima fyrir að hluta með kjöti og grænmeti þaðan. í Búkarest er nú hægt að kaupa appelsínur og kaffi í versl- unum fyrir innlendan gjaldmiðil en þessar vörur og margar aðrar svokallaðar lúxusvörur hafa að- eins verið fáanlegar í gjaldeyris- verslununum. í gær afnam Þjóð- arráðið einnig lög, sem takmarka rafmagnsnotkun við eitt kílówatt á mann á dag en það nægir til að hita upp eitt herbergi eða nota eina litla rafmagnshellu. Þeir, sem brutu þessi lög, voru látnir greiða allt að 300% álag ofan á umframnotkunina eða að rafmagnið var jafnvel tekið af þeim. Fyrir rúmum mánuði sagði Ceausescu, að kornuppskeran hefði verið 60 milljónir tonna á árinu en dagblaðið Romania Li- bero vitnaði í gær í skýrslu frá landbúnaðarráðuneytinu þar sem fram kemur, að uppskeran var rétt rúmlega 18 milljónir tonna. Þá segir, að af hveijum hektara hafi fengist 14 tonn af kartöfl- um, ekki 81 eins sagt var; 24,7 tonn af sykurrófum, ekki 100, og 0,83 tonn af hrísgijónum, ekki 8,1. Ávaxtauppskeran var 4,7 tonn af hektara, ekki 19, og sítrónuuppskeran sérstaklega var 4,2 tonn en ekki 20. Áætlun Ceausescu-stjórnar- innar um að greiða upp allar erlendar skuldir á fáum árum olli miklum matarskorti í Rúm- eníu en eitt af fyrstu verkum Þjóðarráðsins var að stöðva mat- vælaútflutning til að tryggja, að almenningur hefði nóg að borða. Victor Surdu, sem líklegur er til að verða næsti landbúnaðarráð- herra, segir, að með fijálsræði Honecker rekinn úr embætti eftir deilur við Gorbatsjov í Berlín Austur-Berlín. Reuter. HORST Sindermann, fyrrum félagi í stjórnmálaráði Austur-Þýska- lands, segir í viðtali við austur-þýska dagblaðið Junge Welt, sem birtist á miðvikudag, að Erich Honecker hafí deilt við Míkhaíl Gorb- atsjov þegar hann kom í heimsókn til Austur-Þýskalands og það hafi gerí útsiagið og valdið því að flokksleiðtoga. „Við gerðum okkur æ betur grein fyrir því að Honecker varð að víkja,“ segir Sindermann, sem áður var forseti austur-þýska þingsins en var rekinn úr flokknum í nóvember. „Dropinn sem fyllti mælinn var heimsókn Gorbatsjovs í tilefni 40 ára afmælis [Austur-Þýskalands 7. október]. Gorbatsjov átti mjög góð- ar viðræður við stjórnmálaráðið. Hann ræddi um eigin vanda og okkar og sagði að perestrojka væri auðveldari fyrir okkur en Sovét- menn því að efnahagsástandið væri betra hér,“ sagði Sindermann. Honecker var rekinn úr embætti Að sögn Sindermanns dró Honec- ker þá fram tölur frá Sameinuðu þjóðunum sem sýndu að framleiðni væri meiri í Austur-Þýskalandi en í Sovétríkjunum. „Þetta notaði hann til að réttlæta að ekki yrði hvikað frá gömlu stefnunni og sagði við Gorbatsjov að við gætum vel ráðið okkar eigin málum.“ Og Sinder- mann heldur áfram: „Nú var okkur nóg boðið. Við yfirgáfum fundinn og komum okkur saman um að leggja til í stjómmálaráðinu að Honecker viki. Og það var það sem gerðist.“ Astralía: Ottast að tugir manna hafí farist í jarðskjálfta Newcastle. Reuter. Björgunarstarf hélt áfram í gær eftir öflugan jarðskjálfta í áströlsku borginni Newcastle í fyrrinótt, þar sem að minnsta kosti ellefu manns fórust og hugsanlega miklu fleiri. „Svo virðist sem fjöldi manna geti verið undir rústunum en það tekur tíma að ganga úr skugga um það,“ sagði Bob Hawke forsætisráðherra, sem var augljós- lega miður sín eftir að hafa kann- að skjálftasvæðið. Lögreglan ótt- ast að allt að fimmtíu lík geti enn verið undir rústum félagsheimilis verkamanna, þar sem flest líkin höfðu fundist. „Þetta er algjört einsdæmi. Við höfum ekki orðið fyrir manntjóni og eyðileggingu af völdum jarðskjálfta áður en við munum veita borgarbú- um alla þá aðstoð sem við geturn," sagði Hawke við skelfingu lostna borgarbúa, sem söfnuðust saman á myrkvuðu torgi í borginni. jarðskjálftinn, sem mældist 5,5 stig á Richter-kvarða, reið yfir borg- ina laust eftir miðnætti í gær. Bygg- ingar hrundu í nokkrum úthverfum borgarinnar. Skjálftans varð vart í Melbourne og Tasmania um 1.000 km sunnar. Félagsheimili, skemmtistaðir, kvikmyndahús, hótel, slökkviliðsstöð, sjúkrabílastöð og verslanamiðstöð urðu fyrir miklum skemmdum. Björgunarstarfið fór aðallega fram í rústum félagsheimilis verkamanna, en þegar skjálftinn reið yfir, klukkan hálf ellefu f.h. að staðartíma, var bingó á heimilinu fyrir eftirlauna- menn. Rafmagns- og símasambandslaust varð í borginni og rýma þurfti sjúkra- hús vegna skemmda. „Það er engu líkara en stríð hafi geisað hér í hálft ár. Tjónið er ótrúlegt," sagði borgar- fulltrúinn George Keegan. John Westmore, aðalforstjóri Tryggingar- Reuter Maður fórst er þessl veggur hrundi í jarðskjálfta í einu af úthverfúm áströlsku borgarinnar Newcastle í fyrrinótt. áðs Ástralíu, sagði að samkvæmt milljörðum ástralskra dala (70 mill- bráðabirgðatölum næmi tjónið 1,5 jörðum ísl. kr.). Egyptar og Sýrlending- ar taka upp samband á ný Kairó. Reuter. EGYPTAR og Sýrlendingar hafa ákveðið að taka upp stjórnmála- samskipti að nýju en flest öll Ara- baríkin slitu sambandi við Egypta árið 1979 vegna friðarsamninga þeirra við ísraela. Líbýumenn eru nú eina Arabaríkið sem ekki hefúr sljómmálasamband við Egypta. I sameiginlegri yfirlýsingu sem birt var á miðvikudag segir að ríkin tvö hafi ákveðið að taka upp fullt stjórnmálasamband á ný „vegna þró- unarinnar á alþjóðavettvangi og væntanlegra áhrifa hennar í Araba- heiminum." Fyrr um daginn hafði Atef Sedki, forsætisráðherra Egyptalands, haldið til Damascus í Sýrlandi og átt fund með Hafez al- Assad Sýrlandsforseta. Hafði svo háttsettur egypskur embættismaður ekki komið til Sýrlands í tíu ár en Sýrlendingar voru helstu hvatamenn þess að Arabaríkin slitu stjómmála- sambandi við Egypta og rufu þau tengsl fyrstir allra árið 1977 eftir sögulega för Sadats þáverandi Egyptalandsforseta til ísraels. Sérfræðingar í málefnum Araba- ríkjanna kváðu ákvörðun þessa þjóna hagsmunum beggja ríkjanna. Mu- barak hefði ákaft reynt að nálgast nágrannaríkin á ný til að öðlast við- urkenningu þeirra og auka áhrif Egypta í Arabaheiminum. Assad hefði einangrast á alþjóðavettvangi vegna hernaðaríhlutunar Sýrlend- inga í Líbanon og meints stuðnings hans við hin ýmsu samtök hryðju- verkamanna.. S 2 e Hringdu! Upplýsingasíminn er (91) |' 6/8 6/8 í þessu númeri getur þú fengiö upplýsingar og svör viö spurningum þínum um íslandsbanka. Upplýsingasíminn er opinn virka daga kl. 9.00-16.00. F Ef þú ert meö spurningu, hringdu! ÍSLANDSBANKI - í takt viö tiyja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.