Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 Morgunblaðið/Rúnar Þór Úrvalslið Gunnars vann Bautamótið Úrvalslið Gunnars Níelssonar fór með sigur af hólmi í sjöunda Bautamótinu í innanhússknattspyrnu sem haldið var í íþróttahöllinni á Akureyri. Innan raða úrvalsliðsins voru valinkunnir knattspyniukappar, til að mynda marka- kóngur mótsins, Halldór Áskelsson. Alls tóku sextán lið þátt í mótinu og komust færri að en vildu. Flest liðanna voru úr Eyjafirði, en einnig tóku þátt lið austan úr Þing- eyjarsýslu og úr Skagafirði. Úrvalsliðið hlýtur auk sæmd- arinnar málsverð á Bautanum. Á myndinni skorar marka- kóngurinn Halldór Áskelsson hjá Þorvaldi Jónssyni, en að baki hans má sjá í hinn nýja þjálfara Leiftursmanna í Ólafsfirði, Ómar Torfason. Á innfelldu myndinni er Gunnar Níelsson kampakátur með bikarinn. Loðnuveiðar: Tveir bátar til veiða strax eftir áramót Utgerðarmenn Súlunnar EA og Þórð- ar Jónassonar EA segjast vera bjart- sýnir á að loðnan fari að gefa sig LOÐNUSKIPIN Súlan EA og Þórður Jónasson EA halda til veiða strax eftir áramót og eru útgerðarmenn skipanna bjart- sýnir á að úr loðnuvertíðinni rætist. Sverrir Leósson, sem gerir út Súluna, sagði að skipið færi líklega til veiða 3. janúar, eða strax og skipin mega halda út. „Ég er bjart- sýnn á að þetta fari að bresta á eftir áramótin," sagði Sverrir. Súlan EA er búin að fá 1.530 tonn af loðnu það sem af er haustvertíð, en skipið byijaði á loðnu í nóvem- ber. Á sama tíma á síðustu vertíð var Súlan búin að fá um 7.600 tonn. Hreiðar Valtýsson, sem gerir Þórð Jónasson EA út, kvaðst einnig bjartsýnn á að ioðnan færi að gefa sig eftir áramótin, en Þórður heldur til veiða strax á nýju ári. „Við treystum því að loðnan veiðist eftir áramótin, ég trúi ekki öðru,“ sagði Hreiðar. Þórður Jónasson EA var búinn að fá um 800 tonn af loðnu það sem af er haustvertíð, en á sama tíma á síðustu vertíð hafði skipið fengið um 7.000 tonn. Hreið- ar sagði að úthaldsdagar skipsins væru fáir, það hefði lengst af legið við bryggju á meðan beðið var frétta af miðunum. „Við trúum ekki öðru en úr vertíðinni fari að rætast," sagði Hreiðar. Krossanesverksmiðjan: Starfefólki sagl upp vegna aflabrests á loðnuveiðum „Hefði mátt standa betur að uppsögnunum, “ segir Björn Snæbjörnsson varaformaður Einingar ÖLLU starfsfólki Krossanesverksmiðjunnar, 26 að tölu, hefur verið sagt upp störfiim, en jafnframt var þess farið á leit að starfsfólkið ynni áfram hjá fyrirtækinu til loka loðnuvertíðar um mánaðamótin apríl/maí á næsta ári. Um er að ræða verka- og iðnaðarmenn auk skrifstofufólks. Ástæða þess að starfefólki er nú sagt upp störfiim öðru sinni á þessu ári er fyrst og fremst sú að loðnuveiðar brugðust og fjárhagsstaða verksmiðjunnar er afar slæm. Geir Zoéga framkvæmdastjóri Krossanesverksmiðjunnar sagði að verksmiðjan hefði verið tilbúin í allt haust að taka á móti loðn'u sem ekki kom, en geysimiklar endur- bætur hefðu verið gerðar á verk- smiðjunni á síðustu þremur árum og væri hún nánast sem ný á eftir. Áætlað framleiðsluverðmæti verksmiðjunnar á haustvertíðinni var um 300 milljónir króna, ef veiðar hefðu verið með svipuðum hætti og síðustu ár. Útlagður kostnaður verksmiðjunnar við að taka á móti loðnu nú í haust er á bilinu 60-70 milljónir króna, m.a. vegna starfsmanna, rafmagns og þess háttar. „Þetta er að sjálfsögðu beint tap verksmiðjunnar og þar sem við ætluðum okkur að hafa tekjur af loðnu sem aldrei kom á móti verð- ur tapið enn meira. Það er því öll- um mönnum ljóst að staðan er hrikaleg," sagði Geir. Ástæðu uppsagna starfsmanna Krossanesverksmiðjunnar sagði hann fyrst og fremst vera vegna loðnuleysis, en stjóm verksmiðj- unnar og eigendur myndu vinna að því að finna leið út úr þeim vanda sem Við blasti. Krossanesverksmiðjan verður formlega að hlutafélagi um ára- mótin, en hún verður áfam að lang- stærstum hluta í eigu Akureyrar- bæjar, en auk bæjarins eiga fjórir einstaklingar hlut í verksmiðjunni. Björn Snæbjömsson varafor- maður Verkalýðsfélagsins Eining- ar sagði að við uppsögnunum væri lítið hægt að segja, en betur hefði mátt standa að uppsögnunum. „Það hefði verið eðlilegt að boða starfsmennina á fund með stjórn- inni þar sem þeim hefði verið sagt hvað stæði til,“ sagði Björn. „Það er alvarlegt mál þegar starfsmönn- um er sagt upp störfum tvisvar sama árið og ekki til þess fallið að styrkja þá í því atvinnuleysi sem hér er ríkjandi." Skagaströnd: Söfnunin gengur vel SÖFNUN til styrktar konu sem missti unnusta sinn, föður tveggja ungra barna, í húsbruna á Skagaströnd aðfaranótt 14. desember hefúr geng- ið vel að sögn sr. Ægis Fr. Sigurgeirssonar sóknarprests. Tekið er á móti framlögum á áví- sanareikning nr. 9977 hjá Búnaðarbankanum á Skagaströnd. Sr. Ægir sagði að framlög hefðu borist í söfnunina víðs vegar að af landinu. Söfnun fór fram á Skagaströnd áður en söfnun hófst á landsvísu, og sagði sr. Ægir að sú söfn- un hefði gengið mjög vel. Akureyrarprestakall: Fimm guðsþjónustur í bænum um áramótin Hátíðarguðsþjónusta verður á Dvalarheimilinu Hlíð kl. 16 á gamlársdag og þar mun kór aldr- Vetraríþróttahátíð ISÍ: Táknræn opnun á nýársdag Undirbúningsnefnd vetrarí- þróttahátíðar ÍSÍ 1990 verður með athöfh, einskonar tákn- ræna opnun íþróttahátíðarinn- ar á nýársdag og verða þá af- hjúpuð tvö kynningarspjöld, sem minna á hátíðina. Á gatnamótum Hlíðarbrautar og Hörgárbrautar verður afhjúp- að spjald kl. 15.30 og ef veður leyfir munu ungir skíða- og skautamenn skokka með kyndla þaðan og að spjaldi sem komið hefur verið upp á flötinni austan samkomuhússins, en það verður afhjúpað kl. 16.00. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjómar flytur þar stutt ávarp og í lokin verður flugeldasýning. Nýárstrimm fer fram í Kjama- skógi og verður svæðið opnað kl. 16.00, en það verður opið til 19.00. Þar getur fólk gengið á skíðum eða án og mun liggja frammi gestabók sem fólk er hvatt til að rita nöfn sín í til að gefa hugmynd um fjölda þátttak- enda. Skautasvell Skautafélags Ak- ureyrar verður opið á nýársdag frá kl. 10.00-19.00 og verður að- gangur ókeypis. Þar mun einnig liggja frammi gestabók. Undirbúningsnefnd hvetur alla sem geta að taka þátt í athöfn- inni, ganga í Kjarna eða fara á skauta sér til gagns og gleði. (Fréttatilkynning) aðra syngja, en stjórnandi og organisti verður Sigríður Schiöt. Aftansöngur í Akureyrarkirkju verður kl. 18. á gamlársdag, þar syngur kór Akureyrarkirkju og stjórnandi og organisti verður Bjöm Steinar Sólbergsson. Á nýársdag verður hátíðarguðs- þjónusta í Akureyrarkirkju kl. 14. Blokkflautusveit úr Tónlistarskóla Akureyrar leikur, stjórnandi verður Sigurlína Jónsdóttir. Þá verður einnig hátíðarguðsþjónusta á Fjórð- ungssjúkrahúsinu kl. 14 og mun félagar úr kór Lögmannshlíðar- kirkju syngja. Stjórnandi og organ- isti verður Áskell Jónsson. Hátíð- arguðsþjónusta verður á Seli kl. 17, organisti verður Áskell Jónsson. Sóknarprestar Akureyrarpresta- kalls hvetja fólk til að kveðja gamla árið og heilsa hinu nýja í guðs- þjónustum og færa þeir sóknar- börnum þakkir fyrir allt gott á ár- inu sem er að líða. (Fréttatílkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.