Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.12.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989 43 ItiémR FOLK ■ ÍSLAND og Noregur leika annan landsleik í handknattleik í kvöld og hefst hann kl. 19, senni- lega í íþróttahúsinu Seltjai’nar- nesi. Reynt verður að fá leikinn inni í Laugardalshöll, en þar stendur yfir Reykjavíkurmót í knattspymu innanhúss. ■ SIGURÐUR Sveinsson er greinilega vinsælasti handknatt- leiksmaður íslands. Áhorfendur vom sannarlega með á nótunum, þegar kappinn fór inná, en hann lék aðeins samtals í fjórar mínútur og var með 100% skotnýtingu — skor- aði úr víti. ■ KRISTJÁN Arason var einnig með 100% skotnýtingu, skoraði úr fjómm skotum og átti að auki fjór- ar línusendingar, sem gáfu mark. Hann missti knöttinn einu sinni. ■ JAKOB Sigurðsson var einnig í 100% klúbbnum, skaut einu sinni og skoraði. ■ ÞORGILS ÓTTAR Mathiesen var með 77,77% skotnýtingu, gerði 7 mörk í 9 tilraunum, átti eina línu- sendingu, en missti knöttinn tvisvar. ■ HÉÐINN Gilsson var með 71,4% skotnýtingu, gerði fimm mörk í sjö tilraunum, fiskaði eina vítakast Islands, en missti boltann einu sinni. ■ ALFREÐ Gíslason skaut tvisvar í fyrri hálfleik og skoraði í bæði skiptin, en eina skot hans eft- ir hlé missti marks. Hann átti eina línusendingu, sem gaf mark og missti boltann einu sinni. ■ VALDIMAR Grímsson gerði tvö mörk í þremur tilraunum og missti knöttinn einu sinni. ■ SIGURÐUR Gunnarsson var með 50% skotnýtingu, gerði þijú mörk í sex tilraunum. Hann átti tvær línusendingar, sem gáfu mark. ■ JÚLÍUS Jónasson og Gunnar Beinteinsson voru lítið með og sama má segja um Leif Dagfinns- son, markvörð. Bjarki Sigurðsson og Konráð Olavson fengu hins vegar ekki að spreyta sig að þessu sinni. ■ ÍSRAELSKU dómararnir, Bo- ker og Zinger, eru fyrstir landa sinna til að dæma á íslandi. Gerður hefur verið samningur um að Isra- elsmenn dæmi á íslandi annað hvert ár og íslenskir dómarar fari til israel hitt árið. íslenskt dóm- arapar fer til ísrael í mai á næsta ári og dæmir í úrslitakeppni 1. deildar mótsins. ■ MARK Ward var í gær seldur til Manchester City frá West Ham. Um skipti var að ræða; Ian Bishop og Trevor Morley fóru til West Ham fyrir miðheij- Frá ann. Bob M PAUL Godd- Hennessy ard ræddi við John ÍEnglandi Docherty hjá Mill- wall í gærkvöldi, en Docherty bauð Derby 800.000 pund í miðheijann, sem er 30 ára og hefur gert 11 mörk á tímabilinu. Goddard býr í London og standist hann læknis- skoðun í dag, stendur ekkert í veg- inum fyrir félagaskiptum. Góð byrjun íDan- mörku „Baráttan var aðal liðsins“ íslendingarsigruðu bandarískt úrvalslið í fyrsta leiknum Morgunblaðið/Einar Falur Kristjan Arason atti fjórar fallegar línusendmgar, sem gáfu mark. Hér er ein í fæðingu; örskömmu síðar greip Þorgils Ottar Mathiesen boltann og skoraði af línu sem svo oft í leiknum. Hafnfirðingamir af- greiddu Norðmenn HAFNFIRÐINGARNIRí íslenska landsliðinu, Kristján Arason, Þorgils Óttar Mathies- en og Héðinn Gilsson, voru mennirnir á bakvið sigur ís- lendinga á Norðmönnum í Laugardalshöllinni í gær, 25:22. íslendingar voru yfir all- an leikinn og sigurinn öruggur þrátt fyrir að aðeins hafi mun- að þremur mörkum. Íslendingar náðu undirtökunum strax í byrjun og léku mjög vel framan af fyrri hálfleik. Undir lok fyrri hálfleiks gáfu þeir þó aðeins eftir og Norðmenn Logi Bergmann náðu að minnka Eiðsson muninn úr sex skrifar mörkum í tvö. En íslendingar voru ekki af baki dottnir og Hafnfirðing- amir gerðu hvert glæsimarkið á fætur öðru og tryggðu íslenskan sigur. „Við byijuðum vel en gáfum eft- ir um miðbik leiksins en það er kannski eðlilegt. Vömin var ekki góð en batnar vonandi þegar Geir kemur aftur í liðið,“ sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari íslenska lands- liðsins. „Liðið hefur ekki komið saman síðan í febrúar og það er mikil vinna framundan," sagði Bogdan. Kristján Arason var besti maður íslenska liðsins í gær. Hann var sterkur í vöminni, ömggur í sókn- inni og átti margar glæsilegar send- ingar. Þorgils Ottar nýtti færi sín vel á línunni og Héðinn Gilsson stóð sig vel. Sigurður Gunnarsson stjórnaði leik liðsins og fórst það vel úr hendi, gerði falleg mörk og átti góðar sendingar. Vörn íslenska liðsins var frekar slök og þarfnast greinilega samæfingar og mark- varslan því ekki nógu góð. „Ég held að þetta hafi verið nokkuð góður leikur þegar á heild- ina er litið. Að vísu var vömin ekki nógu hreyfanleg og menn vom svo- lítið óömggir en það á eftir að skána,“ sagði Kristján Arason. „Norðmenn hafa tekið miklum framfömm og þeir em með mun sterkara lið en fyrir nokkrum ámm og því er ég ánægður með sigur- inn,“ sagði Kristján. Islenska landsliðið í körfuknatt- leik byijaði vel á fjögurra liða móti í Danmörku sem hófst í gær. íslendingar sigmðu bandarískt úr- valslið 98:88 og lék íslenska liðið mjög vel, einkum Guðjón Skúlason sem fór á kostum í fyrri hálfleik. íslendingar vora yfir í leikhléi 56:51 og var það helst að þakka vaskri framgöngu Guðjóns sem gerði 20 stig í fyrri hálfleik, þaraf fjórar þriggja stiga körfur. íslendingar héldu forskotinu í síðari hálfleik og sigur þeirra nokk- uð þraggur. Á sama tíma sigmðu Eistlend- ingar Dani, 95:83. íslendingar mæta Eistlendingum í dag en þeir era taldir með sterkasta lið mótsins. Stig íslands: Guðjón Skúlason 28, Pétur Guðmundsson 26, Guðmund- ur Bragason 14, ívar Ásgrímsson 11, Sigurður Ingimundarson 8, Nökkvi Már Jónsson 4, Rúnar Áma- son 3, Páll Kolbeinsson 2 og Birgir Mikaelsson 2. Ísland-Noregur 25 : 22 Laugardalshöllin, vináttulandsleikur í handknattleik, fimmtudaginn 28. des- ember 1989. Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 4:2, 7:5, 11:5, 11:9, 12:11, 13:11, 14:12, 17:12, 19:17, 22:17, 23:19, 25:20, 25:22. ísland: Þorgils Óttar Mathiesen 7, Héðinn Gilsson 5, Krispán Arason 4, Sigurður Gunnarsson 3, Alfreð Gisla- son 2, Valdimar Grímsson 2, Jakob Sigurðsson 1 og Sigurður Sveinsson 1/1. Júlíus Jónasson, Gunnar Bein- teinsson, Konráð Olavson og Bjarki Sigurðsson. Varin skot: Einar Þorvarðarson 9 (þar af 5, er knöttur fór aftur til mót- heija), Leifur Dagfinnsson. Utan vallar: 4 mínútur. Noregur: Östein Havang 8, Roger Kjendalen 4, Ole Gustav Gjekstad 3, John P. Sando 2, Karl Erik Böhn 2, Ronald Johnsen 1, Simen Muffetangen 1 og Morten Schönfeldt 1. Varin skot; Finn Ove Smith 5, Fred- rik Brubakken 4. Utan vallar: Ekkert. Dómanir: David Boker og Avner Zing- er frá ísrael. Dæmdu ágætlega. Áliorfendur: Um 2.400. KNATTSPYRNA / U-18 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR KORFUBOLTI ■ BERNARD GaUacher hefur tekið við fyrirliðastöðunni í Evrópu- liðinu í Ryder-bikarnum í golfi af Tony Jacklin. Callacher, sem er fertugur Skoti, hefur verið aðstoð- armaður Jacklins undanfarin ár mun stjórna liði Evrópu eftir tvö ár er liðið reynir að veija titilinn í Suður-Karólínu í Bandaríkjun- um. lyftingar Reykjavíkurmót Reykjavíkurmótið í lyftingum verður haldið í lyftingahúsi KR laugardaginn 30. desember og hefst kl. 14. Skráningerísíma 621437. Sigurður Sigursteinsson ÍSLENSKA piltalandsliðið í knattspyrnu byrjar vel á al- þjóðlega mótinu í ísrael. Það tapaði með minnsta mögulega mun, 1:0, gegn sovéska liðinu í fyrsta leik, en í gær unnu strákarnir jafnaldra sína frá Kýpur2:1. Að sögn Sveins Sveinssonar, fararstjóra, sýndu piltamir ágætis leik við erfiðar aðstæður, því völlurinn var langt því að vera góður. „Baráttan var aðal liðsins," sagði Sveinn. Kýpur tapaði 4:0 gegn Portúgal í fyrsta leik og æt- luðu Kýpveijar nú að bæta um bet- ur. íslendingamir áttu von á mik- illi mótspyrnu, en hún varð meiri en þeir höfðu gert ráð fyrir. Góð mörk Leikurinn var fjörugur og mikið um færi, en fyrsta markið kom, þegar tvær mínútur vom liðnar fram yfir hálfleikstíma. Ríkharður Daðason gaf inn fyrir vörn mótheij- anna á Bjarka Gunnlaugsson, sem skoraði glæsilega í homið fjær. Á 56. minútu lauk laglegu upp- hlaupi piltanna með góðu marki. Þórhallur Jóhannsson gaf á Bjarka Pétursson, sem skallaði á Ríkharð og hann skallaði í netið, 2:0. Strák- arnir fengu tvö mjög góð tækifæri skömmu síðar til að auka muninn, en brást bogalistin og níu mínútum fyrir Jgikslok minnkuðu Kýpveijar muninn — einn þeirra skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Kýpveijar sóttu stíft til loka, en íslendingum tókst að halda fengn- um hlut. Ólafur Pétursson varði tvö nær óveijandi skot meistaralega og stóð sig vel. Sigurður Sigursteins- son átti mjög góðan leik og einnig nefndi Sveinn Þórhall Jóhannsson og Bjarka Gunnlaugsson. íslenska liðið mætir, því portú- galska í dag, svissneska liðinu á morgun og því pólska á sunnudag, en 2. janúar verður leikið um sæti. Urslit í riðli íslendinga: ísland—Sovétríkin.....................9:1 Kýpur—Portúgal.........................0:4 Sviss—Pólland.........................3:1 Portúgal—Pólland...................... 1:1 Sovétríkin—Sviss.......................3:! Ísland-Kýpur...........................2:1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.