Morgunblaðið - 29.12.1989, Qupperneq 10
ió
MOktitíMíiÍIÁfelÍ)11'’ÖS11tJl>AGU!R -29/ ÐESEMBEB 1989/
Sviptingar
í sumarlandinu
stjóri og áhöfn Leikfélags
Reykjavíkur við og vinnur vel og
skemmtilega úr ' þessum ágæta
efnivið.
Þórunn Sigúrðardóttir hefur
nánast valinn mann í hveiju rúmi
og ýmsar lausnir hennar glúrnar
og til þess fallnar að ná til áhorf-
enda, meðal annars að útbúa svar-
tálfana sem leðuijakkatöffara.
Hún gætir nokkuð vel að yfirkeyra
ekki ærslin og leggur ekki neina
verulega áherslu á illskuna; eigin-
lega eru allir góðir innst inni þó
auðvitað fái þorparar ævintýrsins
makleg málagjöld. Annað hvort
væri nú.
Steinn Magnússon er Baldur,
ósköp venjulegur drengur. Baldur
á nokkuð undir högg að sækja hjá
félögum sínum sem skemmta sér
við að pína hann en verða undir
lokin að viðurkenna að hann er
hugaðri og útsjónarsamari en þeir.
Steinn Magnússon gerði Baldur
ágætlega úr garði en hefði ekki
skaðað að hann væri eilítið líflegri.
Jafnvel þótt hann verði aldeilis
hlessa að lenda alit í einu í Sumar-
landinu, þurfa að fást við alls kon-
ar uppákomur og verur hefði hann
mátt ná sér svona smátt og smátt.
Steinn hafði gott útlit í stráksa.
Kjartan Bjargmúndsson var
sóma Álfur og eftir nokkuð hik í
upphafi náði hann sér fýllilega á
strik og sýndi hæfilega blöndu
virðuleika og ærsla. Vilborg Hall-
dórsdóttir var fríð og hugnanleg
prinsessa með góðar og eðlilegar
hreyfingar en framsögnin nokkuð
krókótt. Margrét Ákadóttir
skemmti sér og áhorfendum prýði-
lega í hlutverki nomarinnar. Krist-
ján Franklín var í hlutverki prins
svartálfanna og Stjána sem hrellir
Baldur í skólanum og var hrana-
legur eins og var við hæfi. Kjartan
Ragnarsson var sannfærandi risi
Kristján Franklín Magnús í hlutverki svartálfaprins og Vilborg
Halldórsdóttir - Sóldís prinsessa.
og Eggert Þorleifsson var Fággi,
hálfur maður og hálfur svartálfur,
lengi framanaf fylgispakur galdra-
nominni en snýr við henni baki á
endanum. Framsögnin var nokkuð
eintóna en hreyfingar og fas
ágætt. Kolbrún Pétursdóttir og þó
sér í lagi Sólveig Halldórsdóttir
gerðu sér góðan mat úr hlutverk-
um Frosta og Fjalars. Ása Sva-
varsdóttir var á stundum dálítið
gloppótt Gloppa en átti góða
spretti.
Miklú fleiri komu við sögu og
óhætt að segja að allt gekk meira
og minna upp. Staðsetningar leik-
stjóra vora oftast eðlilegar og hóp-
atriði tókust vel. Leikmynd gaf
ekki sérlega sannfærandi mynd af
fegurð og unaði sumarlandsins en
ljósum var vel beitt og músíkin var
hressileg en textar skiluðu sér
ekki allskostar. Mér sýnist ekkert
efamál að þessi sýning verði vinsæl
hjá krökkum á öllum aldri enda er
í boði góð skemmtun og Leikfélag-
ið hefur vandað mjög til uppfærsl-
unnar.
Leiklist_____________
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi í Borgarleikhúsinu
Töfrasprotann eftir Benóný
Ægisson
Tónlist: Amþór Jónsson
Leikmynd og búningar: Una
Collins
Dansar: Hlíf Svavarsdóttir
Ljósahönnun: Láms Bjömsson
Aðstoðarmaður leikstjóra:
Guðný Helgadóttir
Sýningarsljórar: Kristín Hauks-
dóttir/Guðmundur Guðmunds-
son
Leiksljóri: Þómnn Sigurðar-
dóttir
Það er mikið um að vera í barna-
leikriti Benónýs Ægissonar sem
Leikfélagið framsýndi nú um jólin.
Til ævintýrs era kallaðar svona
nánast allar persónur sem krakkar
þekkja úr gömlum sögum og ævin-
týram, þar era skógarálfar og
svartálfar, prinsessan og drekinn
(að vísu orðinn að ormi hér),
hrímþursar og risar, dvergar og
galdranornin lætur sig ekki vanta
heldur. Ætla mætti að úr þessu
gæti orðið einn alls heijar hræri-
grautur en höfundi tekst mætavel
að segja söguna og hafa stjórn á
öllum þessum verum sem verða á
vegi drengsins Baldurs sem er
kvaddur inn í hamarinn til að kló-
festa töfrasprotann sem ormurinn
hefur á valdi sínu. Því vofir nú
bráðmikil hætta yfir íbúum sumar-
landsins og hætt við að þar bresti
á eilífur vetur með ofríki svartálfa
og hrímþursa í ofanálag.
En höfundur nær að flétta alla
þessa þætti saman í nokkuð skipu-
legt heildarverk svo að hvergi verð-
ur ofhlaðið og síðan tekur leik-
Ormurinn ógurlegi (Andri Örn Clausen) og Krákur svartálfiir(VaI-
geir Skagfjörð).
WZterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
,8 fttgygwiftltoftfft
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29
Utan á hús
Spássértúr í Þingholtum
Lúðvíg Hjálmtýsson
um og sérvisku þessara karla.
Bókarauki kallast svo þáttur sem
Páll Líndal hefur tekið saman um
Pétur Halldórsson borgarstjóra. Að
miklum hluta er þó sá þáttur tilvitn-
anir í menn sem þekktu Pétur og
rituðu um hann látinn. Þessi þáttur
er eins konar aðfararkafli að grein-
argerð Péturs um bæjarstjórnar-
fundinn fræga 9. nóvember 1932,
sem oftar gengur undir nafninu
„Gúttóslagurinn". Pétur stýrði þá
fundi sem forseti borgarstjómar. Á
þessari greinargerð lýkur bókinni.
Þessi bók er að mestu leyti rabb
vinar við vin. Skemmtilegt er það,
létt og gamansamt karlahjal, rosk-
inna spaugfugla sem hafa yndi af
vel sögðum sögum. Græskulaust er
það einnig og yfir því er borgara-
leg, samkvæmisleg fágun. Les-
Páll Líndal
andinn kynnist ýmsum persónum,
sem lifðu og störfuðu í Reykjavík
fyrr á öldinni og brugðið er upp
svipmyndum af ýmsu sem grerðist á
þeim tímum- Hvergi er þó rýnt djúpt
í sakir, enda hefur það sjálfsagt
aldrei staðið til. Trúlegt er að svo
megi líta á að þessi bók sé fremur
öðru hugsuð til skemmtunar og
vafalaust hafa ýmsir rosknir Reyk-
vikingar gaman af henni. Sumar
sögurnar eru og vissulega býsna
smellnar. Þeir félagar, Páll og
Lúðvíg, hafa áreiðanlega oft
skemmt sér Vel á þessum spássér-
túram sínum og öðrum samveru-
stundum og hafa því talið ástæðu
til að leyfa öðrum að njóta gleðinn-
ar með sér. Það gera vafalaust
ýmsir og ætti engum að verða meint
af.
Bókmenntir
21150-21370
LAKUS P, VALDIMÁR3SON framkvæmdaetjopi
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. 10GG. FASTtiGNAS.
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Þríbýli - allt sér - mikið útsýni
5 herb. íb. á efri hæð við Digranesveg Kóp. 110,6 fm auk sérgeymslu
og sameignar. Þarfnast nokkurra endurbóta. Bflskúrsréttur. Laus fljótl-
Sanngjarnt verð.
Ný einstaklingsíbúð
við Vallarás. 38,6 fm nettó auk geymslu. Mjög góð fullgerð sameign.
Husnæðislan kr. 1,7 millj. Laus fljótlega.
Ágæt íbúð við Álftamýri
2ja þerb. á 4. hæð 59,5 fm nettó. Sólrík suðuríb. Góð sameign.
Ennfremur til sölu
Góðar 3ja og 4ra herb. íbúðir við Dalsel, Bústaðaveg, Rauðarárstíg,
Hraunbæ, Rauðagerði, Langholtsveg og Sporhamra.
í Fossvogi eða nágrenni
óskast góð 4ra herb. íb. Kópavogur kemur til greina. Skipti mögul. á
2ja herb. úrvalsíb. í Fossvogi.
5-6 herb. sérhæð óskast
miðsvæðis íborginnl.
AIMENNA
FASTEIGWASAIAH
LAUGAVE6118 SÍMAR 21150-21370
Sigurjón Björnsson
Á götum Reykjavíkur. Páll Líndal
ræðir við Lúðvíg Hjálmtýsson.
Almenna bókafélagið. Reykjavík
1989. 271 blaðsíða.
í þessa snotru bók eru skráð við-
töl Páls Líndals og Lúðvígs Hjálm-
týssonar. Páli er spyijandi og skrá-
setjari. _ Bókin skiptist í eina átta
þætti. í þeim fyrsta segir lítið eitt
frá forfeðrum Lúðvígs, Bernhöftun-
um gömlu í Bakarabrekkunni í
Reykjavík. Þá víkur sögunni að for-
eldrum og systkinum, en það er
..Örstutt frásögn, ekki nema fáeinar
blaðsíður. öllu lengrl er lll. þáttur-
jpn sem nefnist æskuslóðir. Hanp
er saminn með sérstökum hætti.
Við hugsum okkur að við sjáum þá
félaga, Pál og Hjálmtý, rölta ejnn
góðviðrisdag um Þingholt og ná-
grenni. Báðir eru í konunglegp
skapi. Lúðvíg bendir á hús sem þeir
fara fram hjá, segir deili á íbúum
sem þar voru í bernsku hans og
hefur uppi gamanmál. Þettá er tölu-
vert labb og tekur dijúgan tíma.
Þar næst víkur sögu að bæjarlífinu
í Reykjavík á milli stríða og er það
einnig sambland gamáhs og alvöru.
í V. kafla greinir frá fyrstu starfs-
árum Lúðvígs, skólaárum á Laugar-
vatni og fyrstu stjórnmálaafskipt-
um. Frá mörgu smáskrítnu er þar
að segja og lesandinn fær að kynn-
ast svipsterkum persónum eins og
Jóni Þorlákssyni og Bjama á Laug-
arvatni. Næstsíðasti kaflinn er smá-
þættir um ýmsa sérstæða og
skemmtilega menn. Þar er að finna
býsna glúrnar mannlýsingar og
svipmyndir, smellnar sögur fljóta
með af ýmsum uppákomum, tiktúr-