Morgunblaðið - 29.12.1989, Side 31
MOKGUNBLAÐIÐ FÖSTUdÁgUR- 29. DESEMBER 1989
81
Baldvin Baldvins
son - Minning
Fæddur 29. september 1943
Dáinn 15. desember 1989
Enginn veit sína ævina fyrr en
öll er. Baldvin Baldvinsson er allur,
aðeins 46 ára að aldri. Þessi ungi
og glæsilegi maður er horfinn langt
um aldur fram. Baldvin var lands-
þekktur knattspymumaður og átti
stóran hóp samferðamanna sem nú
sakna vinar í stað.
Það var mikill happafengur þeg-
ar Baldvin gekk í raðir okkar KR-
inga. Á sínum ungdómsárum hafði
hann æft og keppt með Fram og
varð meðal annars íslandsmeistari
með því félagi árið 1962. En faðir
Baldvins, alnafni hans Baldvin
Baldvinsson, var mikill og einlægur
KR-ingur og um vorið 1965 fetaði
sonurinn í fótspor föðurins og kom
heim til föðurhúsanna. Bjartur yfir-
litum, stæltur með stál, harðskeytt-
ur og fylginn sér, allra manna fljót-
astur og marksækinn með afbrigð-
um. Baldvin fór strax á kostum og
suma leiki vann hann upp á sitt
einsdæmi. Mörkin hlóðust upp og
hápunktur á glæsilegum ferli Bald-
vins var úrslitaleikurinn gegn Akra-
nesi árið 1965, þegar hann bókstaf-
lega hljóp af sér allt Akranesliðið,
einlék hálfan völlinn og skoraði sig-
urmarkið í þessum eftirminnilega
baráttuleik. Þá var völlur á mínum
manni. Þá stóð honum enginn snún-
ing.
Baldvin þurfti ekki mikla æfing-
ar. Hann var náttúrutalent, hreyst-
in uppmáluð, vöðvastæltur og frár
á fæti og skotharður svo af bar.
En hann var lika drengur góður og
mikill félagi. Baldvin var skap-
mikill og viljasterkur og gat verið
fastur fyrir. En skapið hljóp aldrei
með hann í gönur og alla jafna var
hann ljúfmenni, prúður, hláturmild-
ur og glettinn. Hann var hreinn og
beinn, traustur og heiðarlegur og
vandur að virðingu sinni.
Margar voru keppnisferðirnar,
bæði með landsliðinu og KR sem
við máttum þola súrt og sætt og
margar eru minningarnar sem
Baldvin Baldvinsson sem geymast
í huga og munnmælum. Hann var
trúr sínu félagi, sjálfum sér sam-
kvæmur og sterkur persónuleiki. I
stórum hópi litríkra einstaklinga,
sem ég hef kynnst í knattspyrn-
unni, var Baldvin sérstakur karakt-
er og þjóðsagnapersóna í lifanda
lífi. KR-ingar voru og eru stoltir
af þessum liðsmanni sínum og hann
var stoltur af félagi sínu.
Baldvin var fæddur í Flatey á
Breiðafirði 29. júní 1943. Foreldrar
hans voru Baldvin Baldvinsson,
járnsmiður og kona hans, Þrúður
Finnbogadóttir. Baldvin fluttist
ungur til Reykjavíkur, þar sem hann
fékk skólagöngu og tók verslunar-
skólapróf um vorið 1963. Eftir
skólagöngu dvaldi hann og starfaði
í Danmörku en síðan stundaði hann
almenn skrifstofu- og verslunar-
störf í Reykjavík, lengst af sem
hópferðastjóri hjá BSÍ. Nú síðast
starfaði hann hjá G. Hansson sem
rekur langferðabifreiðir og naut sín
vel í því starfi, enda hnútum kunn-
ugur.
Baldvin kvæntist Moniku Helga-
dóttur árið 1976 og áttu þau tvær
dætur, Þórunni fædda 27. júlí 1975
og Hrönn fædda 8. nóvember 1983.
Þau skildu. Áður átti Baldvin tvö
börn, Hebu og Baldvin Þór. Þau
dóu bæði kornung og tregaði Bald-
vin mjög þessa augasteina sína.
Nú síðustu árin hefur Baldvin
búið með dóttur sinni Þórunni og
er mér sagt að miklir kærleikar
hafi verið með þeim feðgininum og
eins og yngri dótturinni.
í seinni tíð hefur samverustund-
um okkar félaganna fækkað í önn-
um hversdagsins eins og gengur.
En við hittumst á vellinum, við hitt-
umst á förnum vegi og á góðra vina
fundum og alltaf var það sami
Balli, sami gamli góði vinurinn, sem
heilsaði hress í bragði, myndarlegur
sem fyrr, látlaus sem fyrr, ærlegur
og einlægur sem jafnan áður.
Tryggðarböndin frá æskuárunum
rofnuðu aldrei.
Baldvin lést úr hjartaslagi 15.
desember sl. Megi minning þessa
góða drengs lengi lifa. Félagar hans
ög vinir í KR, sem og félagið sjálft
og stjórn þess, senda fjölskyldu
Baldvins, móður og dætmm, sínar
innilegustu samúðarkveðjur. Bald-
vin mun ekki gleymast svo lengi
sem knattspyrna er stunduð í KR,
svo lengi sem andi hans svífur yfir
vötnunum. Og vellinum.
Ellert B. Schram
Far þú svo vel í eilífð inn
með öll þín góðverk klár,
til betra en skipt um bústaðinn,
og byijað nýtt dýrðarár,
merkileg dyggða minningin
í mannheimum eftir stár.
Læt ég svo dijúpa um legstað þinn
ljóðandi þakkartár.
(Hjálmar Jónsson frá Bólu.)
Elsku Þórunn mín og aðrir að-
standendur. Ég sendi ykkur mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Bryndís
Kveðjuorð frá Knatt-
spyrnudeild KR
Föstudaginn 15. desembersl. lést
langt fyrir aldur fram KR-ingurinn
og knattspyrnumaðurinn Baldvin
Baldvinsson.
Baldvin var aðeins 46 ára gam-
all þegar hann féll svo skyndilega
frá og þrátt fyrir þá staðreynd að
hann hafi um nokkurt skeið keont
sér þess meins er dró hann til dauða
hvarflaði ekki að nokkrum sem til
þekkti að svo stutt væri í að kallið
kæmi.
Baldvin Baldvinsson hóf knatt-
spyrnuferil sinn í Fram í Reykjavík
en gekk til liðs við KR-inga er hann
kom heim frá starfi og námi í Dan-
mörku vorið 1965. Það er skemmst
frá því að segja að Baldvin kom,
sá og sigraði í KR. Að öðrum ólöst-
uðum átti hann stærstan þátt í því
að meistaraflokkur KR stóð uppi
sem sigurvegari í 1. deild haustið
1965 og hann varð markakóngur
1. deildar og skorðai mörg glæsileg
mörk og m.a. úrslitamarkið í úr-
slitaleik íslandsmótsins það ár.
Hann var frábær knattspyrnu-
maður og vann til allra æðstu titla
í íslenskri_ knattspyrnu með KR.
Hann var íslandsmeistari I 1. deild,
bikarmeistari í meistaraflokki,
Reykjavíkurmeistari og sigurvegari
í meistarakejipni KSÍ. Hann lék og
í landsliði Islendinga og á þeim
vettvangi skoraði hann einnig mörk.
Hann var glæsilegur íþróttamaður
og með keppnisskapi sínu og dugn-
aði hreif hann aðra liðsmenn með
sér og á ferli sínum í KR reyndist
hann hinn ágætasti félagi ogtraust-
ur liðsmaður í hvetjum leik og
stendur félagið í mikilli þakkar-
skuld við hann.
Þegar glæsilegum keppnisferli
hans lauk hélt hann áfram tryggð
við sitt gamla félag, mætti á völl-
inn, hvatti yngri menn til dáða og
fylgdist jafnan af áhuga með ár-
angri KR í knattspyrnu.
Þá reyndist Baldvin félagi sínu
einnig vel á öðrum sviðum. Hann
lagði sitt af mörkum þegar sala
getraunamiða var helsta tekjulind
knattspyrnudeildarinnar og í starfi
sínu sem hópferðastjóri hjá Bif-
reiðastöð íslands gerði hann KR
margan greiðann þegar útvega
þurfti áætlunarbíla með stuttum
eða engum fyrirvara og sá um að
félagið nyti ávallt bestu þjónustu í
þeim viðskiptum.
Hann hafði létta lund, var glett-
inn og skemmtilegur félagi og hrók-
ur alls fagnaðar á góðri stund og
þannig minnumst við gömlu félag-
arnir úr KR Baldvins og erum jafn-
framt þakklátir fyrir að hafa fengið
að vera honum samferða um skeið.
Það er því með söknuði og harmi
sem Baldvin er kvaddur en sárastur
er harmur hans nánustu og eru
eftirlifandi móður, dætrum og öðr-
um ástvinum sendar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Baldvins
Baldvinssonar.
G.P.
Kær skólabróðir og elskulegur
vinur er nú fallinn frá. Hann varð
bráðkvaddur er hann var að leika
sína uppáhaldsíþrótt, fótbolta, með
vinnufélagumm sínum, klæddur
KR-búningnum.
Ósjálfrátt reikar hugurinn aftur
í tímann. Við hittumst fyrst í 1-B
í „gamla Versló" haustið 1959.
Þegar ég leit í kringum mig fyrsta
skóladaginn varð mér strax star-
sýnt á þennan glæsilega, ljóshærða
pilt, sem sat í hinni röðinni fyrir
aftan mig. Þar sem ég var bæði
yngst og minnst í bekknum lagði
ég mig dálítið fram við námið, til
að vera nú ekki sú vitlausasta líka,
vafalaust til að hann tæki svolítið
eftir manni. Og þegar blessuð
Versluriarskólaböllin byijuðu í
gamla Sjálfstæðishúsinu vorum við
nokkuð margar, sem skimuðum í
kring um okkur í leit að „hjarta-
knúsaranum" Baldvini Baldvins-
syni! Maður var líka dálítið upp með
sér, þegar hann bauð manni upp
oftar en tvisvar, enda var hann
bæði fjörugur og skemmtilegur.
Þessi fjögur ár í Versló liðu und-
ur hratt. Orlögin urðu þó þannig
að ég giftist til suðrænna landa og
hann eignaðist unnustu á íslandi.
Þau áttu eina dóttur, Hebu, sem
andaðist 5 ára gömul eftir hjarta-
uppskurð í London. Síðar eignaðist
hann son í Vestmannaeyjum, Bald-
vin Þór, lifandi eftirmynd föður
síns, er lést af slysförum tveggja
ára gamall. Síðan giftist hann og
eignaðist tvær yndislegar dætur,
Þórunni, skírða eftir móðurömmu
sinni sem var honum mjög kær og
Hrönn. Þau hjónin slitu samvistum,
en eldri dóttirin var áfram í umsjá
föður síns, enda ákaflega kært á
milli þeirra feðgina. Baldvin var
sérstök barnagæla og elskaði börn
sín heitt. Þórunn fermdist sl. vor
og er mér sérstaklega minnisstætt
hve mkið hann lagði á sig, til að
gera fermingarveislu hennar sem
veglegasta.
Baldvin var einn sá fjölhæfasti
persónuleiki sem ég hef kynnst. Til
að mynda æfði hann fótbolta, fyrst
með Fram, en síðar með KR (og
leiddist mér það ekkert sérstaklega
þegar hann fór að spila í Vestur-
bænum), og lék með laridsliðinu.
Teiknari var hann með afbrigðum
góður og teiknaði t.d. í Viljann,
blað Verslunarskólans. Ef hann sló
glöku við lærdóminn tók hann oft
á tíðum hæstu prófín, stundum
bara til að stríða kennurunum!
Hestamaður var hann mikill og
góður tamningamaður. Átti hann
hesthús í Víðidal með föður sínum
og bróður. Músíkalskur var hann,
spilaði á gítar, tók lagið í góðra
vina hópi, og fór létt með það eins
og annað.
Föður sinn og alnafna, Baldvin
Baldvinsson, missti hann í maí
1987. Móður sinni, Þrúði Finn-
bogadóttur frá Flatey á Breiðafirði,
var hann einstaklega góður og
kærleiksríkur sonur. Samband
þeirra var. einkar sérstakt. Hún
trúði alltaf á hann og studdi hann
i blíðu og stríðu. Það tómarúm sem
hann skilur eftir sig verður aldrei
fyllt. Móður hans, dætrum og öðr-
um ástvinum votta ég mína dýpstu
samúð.
Guð blessi eldhugann Baldvin
Baldvinsson.
Helga Guðmundsdóttir
Það kom yfir okkur sem reiðar-
slag er við fréttum lát Baldvins 14.
desember. Það er ávallt erfitt að
trúa því að svo ungir menn séu
kvaddir burt. Reyndar erum við
varla farin að trúa því enn að við
heyrum ekki hans glaðværu rödd
framar. Baldvin var fæddur í Flatey
á Breiðafirði 28. júní 1943, en ólst
upp í Reykjavík. Eftir verslunarpróf
vann hann ýmis verslunarstörf, þar
til hann réðst til BSÍ, þar sem hann
starfaði sem hópferðastjóri ( 15 ár.
Um tíma starfaði hann hjá fýrir-
tækinu Rútur og bílar hf., þar sem
hann var framkvæmdastjóri.
Síðastliðið ár vann Baldvin hjá G.
Hanssyni hf. þar sem hann sá um
fjármál og daglegan rekstur. Einnig
sá Baldvin um erlend viðskipti fyrir
G. Hansson hf. og Bílasölu Álla
Rúts. Einn stærsti viðskiptavinur
þeirra er fyrirtæki í Þýskalandi sem
heitir Alga. Viðbrögð forstöðu-
manna Alga er þeir fréttu andlát
Baldvins lýsa best því trausti og
áliti sem Baldvin vann sér alls stað-
ar sem hann kom. í skeyti sem
þeir sendu sögðust þeir ekki trúa
því að þeir fengju ekki að sjá þenn-
an hressa mann aftur, en Baldvin
var einmitt staddur þar viku fyrir
andlát sitt. í þessu skeyti kom einn-
ig fram að þeir höfðu sjaldan kynnst
traustari og jákvæðari manni. Það
lýsir einnig Baldvini mjög vel að
þegar ferðaskrifstofurnar hringdu
til hans og báðu hann um að leysa
erfið verkefni sagði Baldvin ,já“
og leysti þau. Okkur finnst skap-
gerð og vinnugleði Baldvins best
lýst með þessum dæmum. Baldvin
hafði nýlega keypt tvo hesta handa
sér og Þórunni dóttur sinni og
framtíðin virtist björt. Baldvin var
fráskilinn og bjó Þórunn, eldri dótt-
ir hans, hjá honum. Var samband
þeirra einstaklega náið og gott. Þau
hugðust eyða jólafríinu saman á
Spáni, en enginn sér inn í framtíð-
ina.
Við vottum ættingjum Baldvins
innilegustu samúð okkar, þó sér-
staklega dætrunum Þórunni og
Hrönn, Þrúði móður hans og systk-
inum. Við biðjum Guð að styrkja
ykkur í sorg ykkar.
Starfsmenn og eigendur
G. Hansson hf.
í dag er til grafar borinn frændi
okkar Baldvin Baldvinsson. Hann
var staddur á íþróttaæfingu ásamt
félögum sínum er kallið kom 14.
desember sl. Hann var fæddur 29.
júní 1943 og var sonur hjónana
Þrúðar Finnbogadóttur ættaðri frá
Flatey á Breiðafirði og Baldvins
Baldvinssonar frá Eiði á Seltjarnar-
nesi. Var Venni, eins og við kölluð-
um hann alltaf, elsta barn þeirra.
Hin eru Finnbogi Þór og Jóhanna
Hrefna. Það má segja að okkur
frændsystkinum hans hafi brugðið
í brún er við fengum þá harma-
fregn, að hann hafi verið burtkall-
aður svo snögglega, á besta aldri,
frá öllu sem hverjum manni er
kærast, ástvinum, heimili og störf-
um. Vissulega er dauðinn staðreynd
sem enginn kemst framhjá, og
reyndar hið eina sem vitað er um,
þegar ferðin er hafin.
Sársaukinn sem kreppist um vit-
und þeirra sem eftir lifa, er því oft
tilfinning, sem á ekkert skylt við
rökrétta hugsun, þessi tilfinning,
er sennilega sjaldnast sprottin af
ósætti við að dauðinn hafi lagt líkn
með þraut, heldur hins algjör van-
máttar, sem við finnum til frammi
fyrir gátunni miklu. Ekki ætlum við
að rekja æviferil Venna frænda með
þessu greinarkomi, heldur þakka
allar góðu minningarnar sem við
öll eigum. Góðu minningamar frá
Kleppsveginum, frá Langholtsvegi
202, og úr Sogamýrinni.
Þá var ævin björt og blíð,
bærði litt á meini.
Þá var lundin létt og þýð.
Sem lækur rynni af steini.
Við viljum senda dætrum hans,
Hrönn og Þómnni, einnig systkin-
um hans og fjölskyldum þeirra okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur. Dúu
móður hans sendum við alveg sér-
stakar kveðjur. Við trúum því að
það hafi verið lítil stúlka og lítill
drengur sem hafi tekið vel á móti
pabba sínum þann 14. desember.
Ég get svo fátt sem býr í bijósti sagt.
Það bindur tungu sterkur hugartregi.
En aðeins kærleiks blómin blessuð lagt,
á bleikan hvarm þinn, vinur elskulegi.
(Höf. Guðmundur Guðmundsson.
Frá Mörtu börnum.
Baldvin var framkvæmdastjóri
BSÍ-hópferðabíla í tæp 15 ár og við
fyrram samstarfsfélagar á BSI eig-
um í hugum okkar góðar og mjög
skemmtilegar minningar frá þeim
tímum sem seint gleymast.
Baldvin var úrræðagóður og
fljótur að taka ákvarðanir og leysa
mál sem upp komu, oft með litlum
sem engum fyrirvara. Þegar eitt-
hvað fór úrskeiðis þá var því strax
kippt í lag og gert gott úr. Það var
gott og uppörvandi að vinna með
honum.
Baldvin hafði dálæti á knatt-
spymu, skák og hestamennsku.
Mjög ánægjulegt var að taka þátt
í áhugamálum hans með honum eða
hlusta á þegar hann var að segja
frá knattspymuleikum sem hann
hafði leikið, bæði hér heima og er-
lendis, en í mörg ár lék hann með
landsliðinu.
Baldvin var á góðri stund í góðra
vina hópi hrókur alls fagnaðar:
Flutti ræður, frumort kvæði, spilaði
á gítar og söng.
Við fyrrum samstarfsfélagar
Baldvins vottum dætram hans, ætt-
ingju'm og vinum okkar dýpstu sam-
úð.
Samstarfsfélagar á BSÍ.
Hér ætla ég að segja nokkur orð
um hann pabba minn sem var ekki
aðeins bara faðir minn heldur minn
besti vinur. Ég vildi óska að öll
sambönd foreldra við bömin sín
væru eins náin eins og okkar sam-
band var, því það var alveg ein-
stakt. Við gátum setið tímunum
saman og rætt allt milli himins og
jarðar, því að pabbi var mjög góður
hlustandi og það var næstum ekk-
ert sem hann gat ekki skilið og leið-
beint mér. Eitt af okkar áhugamál-
um voru hestamir okkar og fóram
við mikið saman á hestbak. Við
fórum nokkur skipti saman til út-
landa og við ætluðum að fara þessi
jól líka saman. Hrönn systir mín
lifir núna erfiða tíma, því að pabbi
var henni eins kær og mér.
Að lokum vil ég þakka Guði fyr-
ir að hafa átt svona góðan pabba
og vin.
Þórunn
t
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN JÓHANNSSON
skipstjóri,
Smáratúni 4,
Keflavík,
verður jarðsunginn fró Keflavíkurkirkju laugardaginn 30. desem-
ber kl. 14.00.
Ólöf Pétursdóttir,
Stefanía Guðjónsdóttir, Walter Baltrym,
Auður Guðjónsdóttir, Bjarni Haildórsson,
Björk Guðjónsdóttir, Ottó Jörgensen,
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Sveinbjörn Jónsson
og barnabörn.