Morgunblaðið - 31.12.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
B 3
FLUGLEIDIR
OFAROGOFAR
NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • DESEMBER 1989
Bílaleigan heilsar
nýju ári með nýjum
bílum
Bílaleiga Flugleiða hefur
ákveðið að kaupa um 130
nýja bíla frá áramótum og
þá verður allur flotinn innan við
eins árs gamall. Hvort sem ferðinni
er heitið til fjalla eða í innkaupa-
leiðangur um höfuðborgina fá
viðskiptavinirnir fyrirtaksfarkosti
á lægsta verði sem býðst.
Bílaleiga Flugleiða hefur nú
afgreiðslustaði hjá Hótel Loftleiðum,
á innanlandsafgreiðslu á Reykjavíkur-
flugvelli, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
hjá Flugleiðum í Vestmannaeyjum og
á Höfn í Homafirði. Nýir afgreiðslu-
staðir munu bætast við á þessu ári.
Þótt sólin hækki á lofti með
degi hverjum þykir mörgum
nokkuð langt að bíða sumars.
Flugleiðir bjóða þeim forskot á
sumarsæluna í Florida á sérlega
hagstæðum kjömm. Fjögurra
manna fjölskylda sem flýgur með
Flugleiðum og býr saman í
fjölskylduherbergi á Floridian
hótelinu í Orlando greiðir aðeins
32.800 krónur fyrir manninn.*
Á Florida er allt innan seilingar,
Disney World, Bush dýragarðurinn,
geimferðastofnunin á Kennedyhöfða,
frábærir veitingastaðir, stórverslanir
og strendur. Og auðvitað sumarveður
sem bægir burt skammdegisdmngan--
um. Það býður varla nokkur betur.
* Verð miðast við tvo fullorðna og tvö böm yngri
en tólf ára.
Útflutningur með
flugi helmingi
meiri en í fyrra
r
Aárinu fluttu Flugleiðir út hér
um bil helmingi meiri frakt en
árið 1988. Fiskútflutningur
jókst mest. Með því að nota frakt-
þjónustu Flugleiða geta útflytjendur
boðið glænýjan íslenskan fisk á
mörkuðum víðsvegar um Evrópu og
í Bandaríkjunum.
Til að mæta þessari gífuriegu
aukningu í eftirspurn settu
Flugleiðir upp sérstaka frakt-
áætlun til New York, Billund í
Danmörku, London og Ostende
í Belgíu. Þangað er flogið reglulega,
einu sinni til tvisvar í viku, með 15-38
lestir í ferð. Vitaskuld flytur félagið að
auki frakt í öllum áætlunarferðum til
um.13 viðkomustaða erlendis.
Flugleiðir eru að undirbúa
nýjungar í þjónustu fyrir innan-
landsfrakt. Fyrsta skrefið var að
opna nýjan afgreiðslustað í frakt-
miðstöð félagsins að Bíldshöfða 20.
Að auki er fraktmóttaka fyrir
innanlandsflug á Reykjavíkurflugvelli.
Meira en 700
þúsund blöð og
tímarit á hverju ári
Farþega í millilandaflugi þyrstir
oft í nýjar fréttir að heiman og
frá þeim stöðum sem þeir ætla
að heimsækja. Til að fullnægja
þessari fréttaþörf lána Flugleiðir
farþegum meira en 700 þúsund
eintök af dagblöðum og tíma-
ritum á hverju ári. Að auki fá allir
farþegar í millilandaflugi eintak af
ílugblaðinu Atlantica og farþegar í
innanlandsflugi fá Við sem fljúgum.
Við erum að taka í notkun nýja
blaðavagna sem eru handhægari og
ættu að gera blaðadreifinguna
auðveldari.
Um borð í millilandaflugvélunum
eru öll íslensku dagblöðin, tímarit og
einnig fjöldi erlendra dagblaða og
tímarita. Flugleiðir leggja líka kapp á
að hafa ný íslensk dagblöð í Saga
Class setustofunum erlendis.
Skammdegisbót í
ódýrum helgarpökkum
Vaxandi ráðstefnuþjónusta
á Hótel Loftleiðum
Gleðilegt
flugsælt ár!
Hötel Loftleiðir býður
viðskiptavinum ráðstefnu-
þjónustu hótelsins sérstak-
iega hagstæð kjör á gerð skýringa-
mynda, litskyggna, litaglæra og
litmynda. Myndirnar eru unnar af
Teikniþjónustunni sf, sem hefur gert
samning um þessa vinnu við hótelið
og býður ráðstefnugestum þess 15%
afslátt. Við myndvinnsluna er beitt
fullkomnum tölvubúnaði sem gerir
línurit, súlurit, kökurit og texta-
myndir og getur auk þess tekið við
myndum úr fjölda forrita af tölvum
viðskiptavina.
Hótel Loftleiðir býður upp á
mesta og fjölbreyttasta úrval
fundasala á íslandi. Þar eru 14 vel
búnir fundasalir sem henta fyrir allt
frá nefndafundum til fjölmennra
alþjóðaráðstefna. Öll veitingasala
hótelsins hefur verið endur-
skipulögð í nýjum og glæsilegum
salarkynnum á fyrstu hæð.
Endurnýjun hótelsins lýkur ekki þar
því á næstu vikum verða nýjar og
glæsilegar innréttingar settar í 110
herbergi hótelsins. Hótel Loftleiðir
heilsar því viðskiptavinum sínum
á nýju ári með nýium svip.
Næstu tvo mánuði bjóða
Flugleiðir sannkallaða
skammdegisbót í helgar-
pökkum til fimm borga Evrópu.
Þú velur þá borg sem þú kannt best
við eða kannar nýjar slóðir. Flug og
gisting í þrjár nætur á góðu hóteli
kostar frá 23.290 krónum fyrir
manninn.
Hvort það er leikhúsið,
skemmtistaðimir, verslanimar eða
bara fjarlægðin sem togar í þig, þá
geturðu valið um helgarpakka
Flugleiða til eftirfarandi borga:
London (kr. 23.830), Lúxemborg
(kr. 23.850), Stokkhólmur
(kr. 27.440), Glasgow (kr. 23.290),
Frankfurt (kr. 24.100). Flogið er út
á fimmtudögum, föstudögum og
laugardögum og aftur heim á
sunnudögum, mánudögum og
þriðjudögum. Þú kemur heim
hvíld(ur) og endumærð(ur) úr
skammdegisupplyftingu með
Flugleiðum.
AUK/SlA k110d98-450