Morgunblaðið - 31.12.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐH) SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
B 25
nar um árið 1990 ?
Vogin
23. september til 22. október
Vogarfólkið er yfirleitt blítt og þýtt, hlýlegt í viðmóti og hefur
jákvæðara lífsviðhorf en flest önnur merki - með sínum undantekn-
ingum að vísu. Vogin er heilsteypt merki, áhugamál fólks í því
af öllum mögulegum toga en meirihlutinn á það sameiginlegt að
það langar til að öðrum geðjist að því. Vegna þess að vogin er
sjálf ljúf í lund kemur henni óþyrmilega á óvart neikvæð afstaða
annarra og allur gróf leiki hvort sem er í framkomu fólks eða öðru.
Vogin er seinþreytt til vandræða en reiðist illa. Henni er margt
betur gef ið en vera snögg að taka ákvarðanir, sveif last þar nokkuð.
Vogin er gædd skarpri ályktunarhæfni og hún gæti nýtt hana
betur en hún gerir, einmitt undir þeim kringumstæðum þegar
vefst fyrir henni að finna réttu niðurstöðuna.
Árið nýja verður mikilvægt í lífi vogarinnar, einkum seinni hluti
þess. Margir eftirminnilegir atburðir munu gerast, einkum hjá
þeim sem eru komnir af barnsaldri. Breytingar í sambandi við nám
og starf eru þar efstar á blaði eftir því sem segir í stjömunum.
Vogin verður að gera ráð fyrir að axla aukna ábyrgð í kjölfarið
og þar sem hún er að eðlisfari samviskusöm ætti það ekki að
vefjast fyrir henni.
Margar vogir eru í þann veginn að taka á sig skuldbindingar í
einkalífi; ógiftar vogir ganga margar í hjónabönd og/eða stofnað
er til varanlegra kynna. Svo virðist sem einhver ókyrrð sé á
heimavígstöðvum þar sem voginni finnst tekið fram fyrir hendum-
ar á sér. Ástæðan kynni að vera sú að vogin hefur verið svo lengi
að ákveða sig að einhverjum fjölskyldumeðlima hefur þótt nóg um.
Þó svo að vogin sé væn og góð er víðs fjarri að hún láti ráðsk-
ast með sig. Þvert á móti getur hún átt til stífni sem kemur ýmsum
á óvart sem þekkja hana aðeins sem blíðlynda og hugljúfa. Hún
stendur fast á sínu þegar hún hefur ákveðið hvað það er og rök-
fimi bregst henni ekki þegar svo stendur á. Ýmsar vogir era að
ljúka viðburðaríku ári sem þær búa lengi að. Margar þeirra þurfa
tíma til að melta þau áhrif með sér fram eftir nýja árinu.
Nokkrir íslenskir rithöfundar í vogarmerki: Ólafur Jóh. Sigurðs-
son, Steinn Steinarr, Sigríður frá Munaðarnesi, Svava Jakobs-
dóttir, Stephan G. Stephansson, Guðbergur Bergsson, Guðmundur
Daníelsson.
Steingeitin
22. desember tii 19. janúar
Steingeitin hefur upplifað svo miklar breytingar á gamla árinu
og aðskiljanlegar sviptingar að spurningin er hvort hún hefur ekki
fulla þörf fyrir að blása mæðinni ögn. Samkvæmt því sem stjöm-
urnar segja mun líka hægjast nokkuð um á fyrra helmingi ársins
og steingeitin getur þá sinnt fjölskyldu sinni betur og styrkt tengsl
við vini sína sem hún mun þurfa mjög á að halda þegar kemur fram
á vorið.
Svo virðist sem steingeitin þurfi að taka meiriháttar ákvörðun
á árinu og það getur síðan brugðið til beggja vona hvernig eða
hvort það skilar þeim árangri að ekki sé nú minnst á ánægjuna
sem steingeitin vonaðist eftir.
Steingeitin er seig og gædd miklum dugnaði. Hún kemst og oft
framúr öðram þó hún fari ekki alltaf geyst. Aðrar steingeitur era
ákafameiri en þeim hættir til að ganga fram af sjálfri sér og öðr-
um. Steingeitin hefur fíngert taugakerfi og viðkvæma lund þó hún
virki oft hranaleg og hispurslaus. Margar steingeitur hafa hvassa
og bragðmikla kímnigáfu sem gerir þær vinsæl samkvæmisljón.
Margt bendir til að steingeitin þurfi á árinu að ijúfa tengsl við
fortíð sem henni þykir eftirsjá að. Þegar fram líða stundir mun
hún líklega átta sig á að það verður öllum fyrir bestu. Skapandi
steingeitur ná miklum og góðum árangri á nýju ári og era yfirleitt
í piýðis góðu formi til allrar tjáningar. Peningamál gætu snögg-
breyst til hins betra þegar kemur fram á sumar. Þá er samt nauð-
synlegt að sýna aðgát og flana ekki að neinu.
íslenskir rithöfundar í steingeitarmerki: Bjami Thorarensen,
Vatnsenda Rósa, Vilhjálmur frá Skáholti, Guðrún Lárasdóttir,
Matthías Johannessen, Tómas Guðmundsson
Sporðdrekinn
23. október tii 21. nóvember
Sporðdrekinn er kynþokkafyllsta merkið í stjömuhringnum,
hann er öfgafullur, slóttugur, kaldur á ytra borði og nýtur sjaldn-
ast sannmælis - nema meðal annarra sporðdreka. En sporðdrek-
inn hefur marga eiginleika sem öðrum merkjum þykja eftirsóknar-
verð og hann hefur yfir sér einhvers konar dulúð sem mörgum
finnst spennandi og gerir hann enn leyndardómsfyllri. Sporðdrek-
inn er vinafár og það er hans eigið val því hann sér engan sjarma
við það að koma sér upp vinahóp. Hinir fáu vinir hans geta treyst
honum fullkomlega.
Sporðdrekinn er ofurviðkvæmur og þykir'óbærilegt að aðrir finni
það svo hann temur sér að halda fólki í hæfilegri fjarlægð - með
þægilegu en ópersónulegu viðmóti.
Sporðdrekinn er mikill vinnuþjarkur og ímyndunarafl hans er
auðugt og hann hefur dijúga skipulagsgáfu. Þetta nýtist honum
vel í starfi en sem yfirmaður má hann gæta sín að hrinda ekki
fólki frá sér af því hann er smeykur um að gefa af sjálfum sér.
Sporðdrekar mýkjast þó nokkuð með aldrinum.
Á nýju ári skyldi sporðdreki ekki dvelja við liðna tíð um of.
Margt nýtt og spennandi kemur uppá. Það getur gefið honum
mikla ánægju að takast á við nýtt verkefni og hann þarf ekki að
velkjast í vafa um að hann getur ráðið vel við það.
Sumt kemur meira að segja sporðdreka á óvart. Kyndug af-
staða innan fjölskyldu gæti bakað honum óþægindi og óþarfa fyrir-
höfn. Með lagni virðist mega leysa málið þó það sýnist flókið í
fyrstu. Allt hnígur í þá átt að rík sköpunarþörf og sköpunargáfa
sporðdrekans blómstri á árinu, en nokkur sjálfsgagnrýni við verk-
efni sem honum er falið myndi ekki skaða.
Sporðdrekar era miklir höfðingjar og gæta ekki alltaf hófs í
eyðslu. Margt sýnist benda til að þeir komi betra lagi á þau atriði
á árinu. Rómantíkin verður í því jafnvægi sem hægt er að búast
við af sporðdreka.
Rithöfundar í sporðdrekamerki: Einar Benediktsson, Jónas Hall-
grímsson, Sigurður frá Holti, Jón Sveinsson (Nonni), Kristmann
Guðmundsson, Oddur Bjömsson, Vésteinn Lúðvíksson, Matthías
Jochumsson.
Vatnsberinn
20. janúar til 19. febrúar
Vatnsberanum gefst kostur á að fara í langt ferðalag snemma
á nýja árinu og geti hann nýtt sér það mun það bjóða uppá alls-
kyns lífsreynslu og nýstárlega viðburði sem vatnsberinn er svo
sólginn í. Nýr vinskapur sem reynist endingargóður gæti orðið
uppskeran.
Vatnsberinn er sjálfstæðastur allra stjömumerkjanna og honum
er nauðsyn að fá að hafa sjálfan sig í friði. Hann hefur vingjam-
legt fas en menn skyldu ekki láta það blekkja sig og halda að
þeir hafi öðiast vináttu hans. Vatnsberinn er bestur vina en hann
er bæði vandfýsinn og mjög seintekinn. Vatnsberinn er ekki aðeins
sjálfstæður í hugsun, honum er nauðsyn að _ ráða sér sjálfur og
þolir illa að honum sé sýndur yfirgangur. Á hinn bóginn telur
hann oft fyrir neðan virðingu sína að karpa við fólk. Hann tekur
hatt sinn og gengur af vettvangi ef honum finnst sér misboðið eða
er ofboðið - og hann kemur ekki aftur.
Mörgum finnst vatnsberinn erfiður í samvinnu og segja að hann
sé þijóskur og einsýnn. Vatnsbera er lagið að túlka slíkar yfirlýs-
ingar sér í hag og telur sig fastan fyrir og einarðan í afstöðu
sinni. Vatnsberar eru framsýnir og sagt er að þeir hugsi núna það
sem aðrir hugsa eftir áratug. Þeir era ekki sagðir rómantískir en
það er fjarri sanni. Þeir eiga til rómantík og geta verið afar tilfinn-
ingaríkir en flíka hvorugu nema í návist þeirra sem þeir treysta
til fuilnustu. _
Vonbrigði era óhjákvæmileg og vatnsberinn er betur undir það
búinn en margir að taka þeim, einkum af því honum kemur sjald-
an neitt algcrlega á óvart. Slæmar fréttir á vordögum gætu dreg-
ið úr honum kjark í bili en hann hefur sig upp úr því. Vatnsberi
finnur meiri ánægju í starfi sínu þetta ár en oft áður og gengur
þar af leiðandi margt í haginn. Einhveijir vatnsberar sem eru að
íhuga breytingu á því sviði ættu að gera alvöru úr því. Einkamál-
in era dálítið ruglingsleg framan af en skýrast eftir fyrsta árs-
fjórðung eða svo.
Nokkrir íslenskir rithöfundar í vatnsberamerki: Davíð Stefáns-
son, Elín Pálmadóttir, Oddný Guðmundsdóttir, Páll J. Árdal, Ár-
mann Kr. Einarsson, Jón úr Vör og Jón Thoroddsen yngri.
Bogmaðurinn
22. nóvember til 21. desember
Ny viðhorf, nýjar áherslur, nýtt gildismat hjá bogmanni á nýju
ári. Hvorki meira né minna. Samt sem áður ætti bogmaður að
fara svona sæmilega hægt í sakirnar. Það bendir samt margt til
þess að uppstokkunin geti leitt til betri afkomu og jákvæðari
straumar sem leika um merkið gera lífið allt töluvert bjartara en
ýmiss konar strit liðins árs, sem endaði þó vel hjá flestum bog-
mönnum.
Bogmaðurinn hefur nautn af því að vera í sviðsljósinu og það
verður hann án efa á þessu næsta ári. Hann er eftirsóttur, leggur
margt viturlegt til mála og nær trausti og vináttu fólks sem hefur
ekki verið alveg visst um hvar það hefði hann.
Þó stjömumar gefi vísbendingu um skemmtilegt og ábatasamt
ár er ekki alveg víst að bogmaðurinn kunni að notfæra sér hin
ýmsu tækifæri sem eru innan seilingar. Því ræður hlédrægni hans
sem fæstir taka alvarlega. Öllum finnst að þetta glaðbeitta og
hressa fólk geti ekki verið feimið eða í vandræðum með sig. En
auðvitað er málið sjaldnast svo einfalt. Bogmaðurinn hefur hins
vegar tamið sér öragga framkomu og þannig stíl að það er kannski
ekki von að allir átti sig á honum.
Sagt hefur verið að bogmaðurinn sé næst á eftir vatnsbera það
merki sem þarfnast þess mest að vera sjálfstæður og fara eigin
leiðir. Hann er þó samvinnuþýður ef rétt er að honum farið og
sveigjanlegri og opnari persónuleiki en vatnsberi. Bogmaðurinn
er afskaplega fróðleiksþyrstur og vill vita margt um sem flest.
Hann er vandlátur á félagsskap en dyggur sínu fólki.
íslenskir rithöfundar í bogmannsmerki: Öm Amarson, Einar
Ól. Sveinsson, Hannes Pétursson, Hannes Hafstein, Einar Kára-
son, Kristján Þórður Hrafnsson.
Fiskarnir
19. febrúar til 20. mars
Fiskarnir eru annað tveggja merkja stjörnuhringsins sem er
tvískipt og gegnir að mörgu leyti sama máli með þá og tvíbura
að ólíkari einstaklingar eru innan þess en hinna tíu. Fiskurinn er
þó almennt mikil tilfinningavera og hefur oft verið nefndur í sömu
an'drá og krabbinn hvað það snertir. En fiskurinn er oft mikill
baráttumaður, orðhákur og hikar ekki við að fara inn á nýjar braut-
ir - stundum er kappið þó meira en forsjáin.
Árið sem er að líða hefur vitanlega verið upp og ofan en ýmis-
legt situr eftir sem fiskamir eiga bágt með að sætta sig við. Þeim
finnst þeir ekki metnir að verðleikum og skella skuldinni á aðra,
eins og mörgum er eiginlegt til að afbera mótlætið. En fiskamir
era eindregið hvattir til að l(ta í eigin barm. Þó það geti verið
dálítið ónotalegt.
En stjömurnar spá því að margir fiskar verði með ýmis umsvif
á nýju ári og er þá bæði átt við hið félagslega svið og hið fjár-
hagslega. Þeir eru áfjáðir í að brydda upp á nýjungum en skortir
suma úthald til að góðar hugmyndir verði að.veraleika. Fiskarnir
sem era nær vatnsberamerki annars vegar og hrútsmerki hins
vegar eru þó ívið skeleggari og kappsamari en þeir sem eru um
miðbikið.
Margir telja fiska veikgeðja en slík alhæfing er auðvitað út í
hött enda hafa margir fiskar sýnt og sannað allt annað. Breytingar
í starfi gætu orðið til góðs og virðist oft fylgja fjárhagslegur ávinn-
ingur. Fiskar sem hafa tekið á sig miklar peningalegar skuld-
bindingar mega hafa sig alla við en munu sjálfsagt spjara sig.
Svo virðist sem seinni hluti ársins verði skemmtilegri og gæti dreg-
ið til óvæntra tíðinda þegar minnst vonum varir. Fiskamir ættu
ekki að hika við að grípa gæsina þegar hún gefst. Einhver vand-
ræði hafa verið innan fjölskyldu fisksins trúlega sakir veikinda
ogværi öllum sem í hlut eiga best að sýna umburðarlyndi og styrk.
íslenskir rithöfundar í fiskamerki: Páll Ólafsson, Jón Dan, Hann-
es Sigfússon, Þorsteinn frá Hamri, Pétur Gunnarsson, Sigurður
Breiðfjörð, Þórbergur Þórðarson