Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 12
12
MÓRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÁNÚAR 1990
Nm 0G GLÆSILEGT ÆFINGASVÆÐI
JUDO
NÝ BYRJENDANÁMSKEIÐ
ERU AD HEFJAST
Þjálfari er Michal Vachun fyrrverandi
i þjálfari tékkneska landsliðsins,-
“7 Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl. 16-22
síma 627295
OTSALA
VINNUFATABUDIN
Söguleg kynlífs-
saga Onnu á 11. öld
Bókmenntir
Kringlunni 3. hæð
sími 686613
Laugavegi 76
sími 15425
Hverfisgötu 26
sími 28550
Jóhanna Kristjónsdóttir
Regine Deforges: Himinninn yfir
Novgorod
Þýðandi: Þuríður Baxter
Útg. ísafold 1989
Margir íslenskir lesendur kann-
ast við þennan höfund, Regine De-
forges eftir að þríbók hennar um
Stúlkuna á bláa hjólinu var gefin
út í íslenskri þýðingu. Nú hefur
verið vakin athygli á ný á þessum
bókum þar sem höfundur hefur
verið dæmdur fyrir að taka trausta-
taki úr hinni frægu sögu A hverf-
anda hveli og nota í fyrsta bindi
þríbókarinnar. Ég varð ekki vör við
að neinn veitti þessu athygli hér,
og af skiljanlegum ástæðum hvarfl-
aði það til dæmis ekki að mér enda
hef ég aldrei lesið hina frægu bók
Mitehell né séð dásamaða mynd.
í sögunni hér erum' við stödd á
elleftu öld og þar segir frá því er
ung og fögur aðalsstúlka, Anne,
verður nauðug viljug að yfirgefa
ættland sitt hið rússneska og ger-
ast eiginkona Hinriks I. Frakk-
landskonungs. Hún þurfti ekki að-
eins að skiljast við ættland og fjöl-
skyldu heldur og við æskuástina
sína sem raunar fylgir henni án
vitundar hennar, afskræmdur á
líkama vegna eigin pyndinga og í
hinu versta sálarástandi. Kóngurinn
Hinrik hefur einkum náttúru til
pilta en hann verður að standa sig
■ í stykkinu og búa til erfingja og
enda er ekki að sökum að spyrja
að Anne er svo þokkafull og blíð
að hún vekur girnd kóngsa og eign-
ast þau nú nokkur afkvæmi átaka-
lítið.
Auðvitað eru valdasjúkir keppi-
nautar Hinriks á hveiju strái, alls
konar ribbaldar sýna henni losta
og hreint ekki þá virðingu sem
hæfir drottningu og það endar með
Regine Deforges
því að maðurinn sem hún fyrirleit
og óttaðist árum saman verður sá
sem gerir hana hvað sælasta.
Stúlkan Anne finnst mér vera
stúlkan á bláa hjólinu, bara á ell-
eftu öld, og persónur þeirrar bókar
ganga býsna mikið ljósum logum
um síður hennar þó svo að klæða-
burðurinn sé annar og aðstæður.
Erótískar lýsingar eru allfyrirferð-
armiklar enda telur höfundur það
vera þátt í þeirri baráttu kvenna
að bijótast undan oki karlmanna
að hafa ástafarslýsingar fijálslegar
og hispurslausar. Það er ágætt svo
langt sem það nær en verður
fjarska leiðigjarnt til lengdar enda
lýsingarnar ósköp mikil tugga og
engin sérstök hugkvæmni í þeim.
Þetta á að heita söguleg skáldsaga
og hefði höfundur átt að sinna sagn-
fræðinni af meiri áhuga og draga
úr þreytandi og samlitum kynlífs-
lýsingum.
Mynd mánaðarins í Listasafni Islands eftir Gunnar Örn Gunnarsson.
■ GUNNAR Örn Gunnarsson,
er höfundur myndar mánaðarins i
Listasafni íslands. Verkið sem ber
heitið „Mynd“ er unnið með olíulit-
um árið 1976, stærð þess er
145x130,5 sm og var það keypt til
safnsins árið 1976. Leiðsögnin
„mynd mánaðarins“ fer fram í fylgd
sérfræðings, fimmtudaga kl.
13.30—13.45 og er safnast saman
í anddyri. Listasafn Islands verður
framvegis opið alla daga, nema
mánudaga kl. 12—18. Veitingastofa
safnsins er opin á sama tíma. Að-
gangur er ókeypis svo og auglýstar
leiðsagnir. (Fréttatilkynning)
þ.ÞORGRÍMSSON &C0
mWASMA
‘W- PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
HARÐPLAST A BORÐ
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640