Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
Veldur
okkur von-
brigðum
- segir Hörður Ein-
arsson stjórnarfor-
maður Arnarflugs
„OF snemmt er að segja til um
það. Það fer meðal annars eftir
uppgjöri við ríkið,“ segir Hörður
Einarsson hrl., stjómarformaður
Arnarflugs hf., þegar hann var
spurður um áhrif þess á framtíð
félagsins að ríkið seldi Atlanta hf.
þotuna sem ríkið leysti til sín frá
Amarfiugi fyrir tæpu ári en Arn-
arflug hefur reynt að fá vélina
keypta.
Forráðamenn Amarflugs hafa
vonast eftir verulegum söluhagnaði
af vélinni sem átti að vera liður í því
að rétta fjárhag þess af. Aðspurður
um niðurstöðu sölunnar með tilliti til
þessa, segist Hörður telja að vélin
væri seld fyrir full lágt verð. Hann
kveðst þó vona að þetta ríði félaginu
ekki að fullu og baráttunni yrði hald-
ið áfram. „En það veldur okkur von-
brigðum að vélin skyldi vera seld
svona, þar sem við teljum að fyrir
hafi legið hagstæðari kostur, okkar
tilboð," segir Hörður.
Kristinn Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs, telur að
markaðsverð þotunnar sé nær 8
milljónum dollara en þeim 7,1 milljón
sem hún var seld á til Atlanta hf.
„Við vorum búnir að gera ráðuneyt-
inu tilboð sem er að mínu mati miklu
betra en það sem ráðuneytið gekk
að og hefði leyst málið betur. I því
fellst hagstætt samkomulag sem við
vorum langt komnir með að ná við
hollenska flugfélagið KLM um nýt-
ingu þotunnar í þeirra þágu. Ekki
var búið að reyna á samninga við
okkur á þessum grundvelli," segir
Kristinn.
Kristinn og Hörður vildu ekki tjá
sig um uppgjör á því sem eftir stend-
ur af skuld Amarflugs við ríkið, sem
fjármálaráðherra segir að sé yfir 100
milljónir kr. Hörður segir þó að þessi
upphæð sé hærri en þeir hafi átt von
á.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Arngrímur Jóhannsson forsvarsmaður Atlanta hf. skipast á undirrituðum samningi um þot-
una sem ríkið seldi flugfélaginu. Aðrir sem viðstaddir voru undirritun samningsins eru f.v.: Sigurgeir Jónsson ráðuneytissljóri, Hörður
Torfason hrl., Sigurður G. Thoroddsen deildasrsljóri hjá Ríkisábyrgðarsjóði, Harald S. Andrésson forstöðumaður Ríkisábyrgðarsjóðs (á bak
við íjármálaráðherra), Þórhallur Arason skrifstofustjóri íjármálaráðuneytis óg Tómas Þorvaldsson hdl.
Atlanta hf. hyggst nota Arnar-
flugsþotuna í verkefiii erlendis
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hf., sem er íslenskt félag í leiguflugi erlend-
is, keypti í gær Arnarflugsþotuna sem ríkið leysti til sín fyrir tæpu
ári. Kaupin fjármagnar Atlanta hf. með aðstoð erlends kaupleigufyr-
irtækis og staðgreiddi kaupverðið, sem er ja&ivirði 440 milljóna
íslenskra króna. Söluandvirði þotunnar gengur til greiðslu upp í
skuld Arnarflugs við ríkið. Að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar fjár-
málaráðherra dugar það ekki fyrir öllum skuldunum, yfir 100 milljón-
ir kr. stæðu eftir.
Fjármálaráðuneytið hefur haft
þijú tiiboð í þotuna til athugunar
að undanförnu, frá Arnarflugi hf.
í samvinnu við írskt fyrirtæki, frá
frönskum aðila og frá Atlanta hf.
Að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar
fjármálaráðherra var tilboð Arnar-
f lugs að forminu til kaupleigusamn-
ingur. Arnarflug' hefði átt rétt til
kaupa á vélinni eftir eitt ár eða tvö
ár, án skuldbindingar um kaupin.
Félagið hefði því fyrirvaralust getað
skilað vélinni til ríkisins eftir eitt
ár eða tvö. Tilboð félagsins hafi
falið í sér nýjan leigusamning, en
ekki sölu á vélinni og hafi tilþoðið
því ekki verið ásættanlegt. Tilboð
Frakkanna og Atlanta hafi verið
kauptilboð þar sem boðin var stað-
greiðsla, eins og venja væri í við-
skiptum með notaðar flugvélar. I
tilboði Amarflugs var miðað við 8
milljónir dollara en Ólafur sagði að
því hefðu fylgt ýmsir skilmálar sem
hefðu lækkað kaupverið verulega.
Tilboð Atlanta var 7,1 milljón
bandaríkjadollara, jafnvirði 440
milljóna íslenskra króna, en franska
tilboðið lægra. Því hafi hann ákveð-
ið að taka tilboði Atlanta.
Við undirritun samnings ríkisins
og Atlanta hf. í gær sagðist Ólafur
Ragnar vera ánægður með að geta
selt þotuna til íslensks fyrirtækis
sem, þó hljótt hefði farið, hefði
getið sér gott orð erlendis. Þotan
þjónaði áfram íslenskum viðskipa-
og atvinnuhagsmunum.
Atlanta hf. er með leiguflugvél
í verkefni fyrir Finnair og fer nýja
þotan til þeirra verkefna og við-
bótarverkefna sem félaginu hafa
boðist. Einn af eigendum Atlanta
hf., Arngrímur Jóhannsson fyrrum
yfirflugstjóri Arnarflugs, býst ekki
við að vélin verði notuð í leiguflug
hér á landi. Atlanta hefur starfað
í um tveggja ára skeið, aðallega í
leiguverkefnum erlendis, og er
heimili félagsins í Mosfellsbæ. Um
þijátíu Islendingar vinna hjá félag-
inu.
Arngrímur segir að eigendur
Atlanta hefðu verið að leita að hent-
ugri f lugvél og þótt þessi kaup fýsi-
legasti kosturinn. Hann segir kaup-
in fjármögnuð með aðstoð erlends
kaupleigufyrirtækis.
Umrædd þota er af gerðinni
737-200. Arnarflug fékk hana sam-
kvæmt kaupleigusamningi á árinu
1984. Áunninn eignarhluti félags-
ins í vélinni var settur til trygging-
ar greiðslum af láni sem ríkið hafði
ábyrgst og til tryggingar leigu-
greiðslunum sjálfum. Þegar Arnar-
f lug gat ekki staðið í skilum notaði
ríkið kauprétt Arnarf lugs að vélinni
til að tryggja hagsmuni sína. Ríkið
eignaðist þotuna í febrúar á síðasta
ári og hefur hún verið til sölu síðan,
eða í tæpt ár. Arnarflug og Sam-
vinnuferðir hafa haft hana á leigu
stóran hluta þess tíma, eða þar til
þotan þurfti að fara í stóra skoðun
í Bandaríkjunum á dögunum. Þeirri
skoðun er nú lokið en vélin er enn
í Bandaríkjunum. Hún verður af-
hent flugvélaginu Atlanta hf. eftir
nokkra daga.
Söluverð þotunnar fer til lækkun-
ar á skuld við ríkisábyrgðarsjóð.
Ólafur Ragnar segir að söluverðið
dugi ekki fyrir allri skuldinni, eftir
muni standa yfir 100 milljónir kr.,
en tók fram að eftir væri að fara
yfir þau mál og ræða við Arnar-
flug. Aðspurður um framtíð Arnar-
flugs í ljósi þessa sagði fjármála-
ráðherra að það væri ekki verkefni
ríkisins að greiða úr slíkum spurn-
ingum, heldur stjómenda fyrirtæk-
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Stjórnarfundur Sambandsins í dag:
Líkur eru á að kauptilboði
Landsbankans verði tekið
Megn óánægja meðal sumra í stjórninni með tilboðið
STJÓRN Sambands íslenskra samvinnufélaga kemur saman til
fundar á hádegi í dag og fjallar um kauptilboð Landsbankans í
52% hlut Sambandsins í Samvinnubankanum. Búist er við því að
fundurinn verði stormasamur, þar sem innan stjórnarinnar munu
skoðanir vera skiptar um ágæti tilboðsins. Þó er talið líklegt að
úr þessu sé lítið annað að gera fyrir stjórnina en samþykkja
kauptilboðið og að það sjónarmið verði ofan á, þótt einhverjir
stjórnarmenn verði sölunni andvígir.
Þeir sem eru eigendur að þeim
48% sem eftir standa í Samvinnu-
bankanum, verði af samningum á
milli Landsbankans og Sambands-
ins telja að til augljósra hags-
munaárekstra geti komið innan
nýs bankaráðs Samvinnubankans,
þar sem fulltrúar Landsbankans
myndi meirihluta stjómar. Því
mun það vera vilji forsvarsmanna
þeirra fyrirtækja sem þama eiga
hlut að máli, eins og ESSO, Sam-
vinnutrygginga, KEA, KRÓN og
fleiri að selja Landsbankanum
einnig sína hluti í Samvinnubank-
anum, eignist bankinn á annað
borð meirihluta í Samvinnubank-
anum. Sú mun einnig vera hug-
mynd Landsbankans, en fyrst í
stað mun hann vilja reka Sam-
vinnubankann sem sjálfstæðan
banka, en kaupa síðan upp hluti
annarra eigenda á ákveðnu tíma-
bili og sameina rekstur Lands-
bankans og Samvinnubankans,
Þó gæti það orðið ágreiningsatríði
milli Landsbankans og áður-
nefndra fyrirtækja að Lands-
bankinn mun ætla sér góðan tíma
í kaupin, en forsvarsmenn fyrir-
tækjanna telja að ganga beri frá
þeim innan skamms.
Þótt talið sé að meirihluti verði
á fundi stjórnar Sambandsins fyr-
ir sölunni á hlut þess í Samvinnu-
bankanum, þá ér ekki þar með
sagt að almenn ánægja ríki með
það tilboð sem um verður fjallað
á fundinum í dag. Eru ýmsir Sam-
bandsmenn þeirrar skoðunar að
Jón Sigurðsson, bankamálaráð-
herra hafi beitt Landsbankann
ákveðnum þrýstingi til lækkunar
verðtilboði sínu, þannig að rétt-
læting_ á verði því sem ríkið fékk
fyrir Útvegsbankann fengist, en
eins og kunnugt er hefur það af
mörgum verið talið of lágt.
Sambandsmenn sem eru þess-
arar skoðunar, telja jafnframt að
í upphaflega tilboðinu þann 1.
september hafi verið gert ráð fyr-
ir þeim fyrirvörum sem svo marg-
oft síðan hafa verið tíundaðir í
fjölmiðlum. Farið hafi verið yfir
hvern hlut fyrir sig og samið um
hvem hlut fyrir sig. Samið hafi
verið um að lækka fasteignamatið
um 50 milljónir króna. Auk þess
hafi verið samið um að ef færustu
sérfræðingar, sem báðir aðilar
samþykktu, kæmust að þeirri nið-
urstöðu að lífeyrissjóðsskuldbind-
ingar Samvinnubankans væru
umfram það sem þá var gert ráð
fyrir, þá gengi Sambandið í
ábyrgð fyrir þær. Sambandsmenn
hafa reyndar haldið því fram allar
götur síðan í september að lífeyr-
issjóðsskuldbindingarnar væru
ekki umfram það sem þá kom
fram. Loks hafi aðilar gert með
sér samkomulag um að varasjóðir
í bankanum til þess að tryggja
tapaðar skuidir væru nægilega
stórir. Það mat sem byggst hafi
á því að tapaðar skuldir væru 89
milljónir króna, væri miðað við
nánast verstu mögulegu útkomu.
Það liggur fyrir að ákveðnir
stjómarmenn Sambandsins og
varamenn em andvígir þessu til-
boði og ætla á fundinum í dag
að leggjast gegn því. Á hinn bóg-
inn er staða þeirra talin veikari
en hinna, því þeir hafi engan val-
kost að bjóða upp á, í stað Lands-
bankans. Þeir sem eru talsmenn
þess að tilboðinu verði tekið, þrátt
fyrir galla þess, að þeirra mati,
segja að andstæðingar þessara
viðskipta hafi frá áramótum túlk-
að þetta nýja tilboð neikvætt, án
þess að kynna sér til hlítar hvað
í því felist.
Benda þeir á að þeir fyrirvarar
sem bankaráð Landsbankans hafi
sett í septemberbyijun sl. varð-
andi lífeyrisskuldbindingar, töpuð
útlán Samvinnubankans og lægra
fasteignamatsverð hefðu getað
falið það í sér að verð bankans
lækkaði úr 1593 milljónum króna
11160 milljónir króna. Nú sé gert
mun lægra kauptilboð í hlut Sam-
bandsins í Samvinnubankanum,
eða 605 milljónir króna í stað
828, en engir fyrirvarar séu i ára-
mótatilboðinu.
Samningarnir við Landsban-
kann fyrir hönd Sambandsins
vom einkum í höndum Kjartans
P. Kjartanssonar, fjármálastjóra
Sambandsins, sem sagði starfi
sínu lausu um áramót, m.a. vegna
óánægju sinnar með þetta nýja
kauptilboð Landsbankans. Kjart-
an sagðist í gær ekkert hafa um
málið að segja á þessu stigi. Hann
sagði að slíkt væri óeðlilegt á
meðan það væri enn til umfjöllun-
ar og óútkljað innan stjórnar Sam-
bandsins.
í Þjóðviljanum í gær er látið
að því liggja að Guðjón B. Ólafs-
son, forstjóri Sambandsins hafi í
höndunum atvinnutilboð frá
bandarísku fyrirtæki, sem hann
verði að svara fyrir lok þessa
mánaðar. Guðjón sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið í gær hvorki
neita þessu né játa. Á hinn bóginn
væri hann ekki að hlaupast á brott
frá verkefnum sínum hjá Sam-
bandinu.