Morgunblaðið - 05.01.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
Leikklúbburinn
Saga:
Fúsi froska-
gleypir aft-
ur á íjalirnar
SÝNINGAR Leikklúbbsins Sögu
á Fúsa froskagleypi hefjast að
nýju eftir nokkurt hlé á sunnu-
daginn, en þá verður 7. sýning á
leikritinu. Sýningin hefst kl. 17.
og er leikritið sýnt í félagsmið-
stöðinni Dynheimum við Hafhar-
stræti.
Næsta sýning á verkinu verður
á þriðjudagskvöldið 9. janúar og
síðustu sýningarnar verða helgina
13. Og 14. janúar næstkomandi.
Leikritinu hefur verið vel tekið og
aðsóknin góð. Alls taka 23 leikarar
þátt í sýningunni og eru þeir á aldr-
inum 13-22 ára. Leikstjórar eru þau
Jakob Bjarnar Grétarsson og Stein-
unn Ólafsdóttir. Olga Guðrún Árna-
dóttir þýddi verkið, tónlist er eftir
Jóhann Morávek, Arnar Tryggva-
son og Friðþjóf Sigurðsson, en höf-
undur söngtexta er Ólafur Haukur
Símonarson.
Leikritið fjallar um óþokkann
Fúsa froskagleypi sem pínir litlu
strákana sem skortir vöðva en ekki
vit, því þeir leika Fúsa oft grátt.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri var formlega sett við athöfh í húsakynnum deildarinnar við Glerárgötu, en það lánaði Kaupfélag
Eyfirðinga skólanum endurgjaldslaust til þriggja ára. I fyrsta hópnum sem nám hefúr við deildina eru 14 nemendur, en námið er til fjögurra
ára og er markmið þess að mennta einstaklinga í undirstöðuatriðum íslensks sjávarútvegs og þjálfa þá í að beita faglegum vinnubrögðum
við lausn verkefna í sjávarútvegi.
Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri formlega tekin til starfa:
Stjórnvöld vænta árangurs af starf-
Þrettánda-
gleði Þórs
Þrettándagleði íþróttafé-
lagsins Þórs verður haldinn á
félagssvæði Þórs á morgun,
laugardaginn 6. janúar og
hefst hún kl. 17.00.
Álfakóngur og drottning mæta
á svæðið ásamt ýmsum furðuver-
um, álfum, púkum og tröllum og
munu þau skemmta gestum. Boð-
ið verður upp á skemmtiatriði og
má þar nefna að Halli og Laddi
munu bregða á leik, Bjartmar
Guðlaugsson spilar og syngur og
Jóhann Már Jóhannsson söngvari
syngur nokkur lög.
Að lokum verður flugeldasýn-
ing, en Þórsarar ætla einnig að
selja flugelda í Hamri frá kl.
13.00 um daginn á stórlækkuðu
verði.
Brennuball Þórsara verður
haldið í húsi aldraðra um kvöldið
og þar sem Halli og Laddi og
Bjartmar Guðlaugsson skemmta.
semínní til hagsbóta fyrir þjóðarbúið
- segir Jón Þórðarson forstöðumaður sjávarútvegsdeildar
Sjávarútvegsdeild við Háskólann á Akureyri var formlega sett
við athöfn i húsakynnum deildarinnar við Glerárgötu í gær. Við
setninguna voru viðstaddir ráðherrar, þingmenn kjördæmisins,
bæjarfulltrúar og fulltrúar sveitarsljórna við Eyjafjörð, starfsmenn
Háskólans og stúdentar sem nám eru að hefja við hina nýju deild.
Alls verða nemendur við deildina 14, en nýir nemendur verða
væntanlega teknir inn næsta haust. „Það að stofnað er til deildar-
innar nú þrátt fyrir verulega efhahagsörðugleika og fyrirsjáanleg-
an samdrátt í sjávarfangi á næsta ári, sýnir að sljórnvöld vænta
árangurs af þessari starfsemi til hagsbóta fyrir þjóðarbúið. Það
verður hlutverk okkar sem hér störfum að sjá til að svo verði,“
sagði Jón Þórðarson forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Háskólans
á Akureyri.
Við setningarathöfnina kom
fram að stofnaður hefur verið
starfshópur sem í vinna skal að þvi
að efla samstarf rannsóknastofn-
ana á sviði sjávarútvegs. Starfsemi
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
mun verða undir sama þaki og sjáv-
arútvegsdeildin og einnig mun unn-
ið að því að útibúi Hafrannsókna-
stofnunar sem verið hefur á
Húsavík verði flutt til Akureyrar.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sagði við setningu
deildarinnar að efla þyrfti menntun
á svið sjávarútvegs, en það hefði
of lengi verið vanrækt á Islandi.
Þá minntist hann einnig á að ekki
væri fyrir hendi nægilega mikill
áhugi fyrir því meðal landsmanna
að starfa við sjávarútveg og væri
m.a. sá hugsunarháttur víða
ríkjandi að eitt það versta sem
menn gæti hent væri að vinna í
ffystihúsi. „Þetta er mikill misskiln-
ingur, þessi störf eru afar mikilvæg
samfélaginu og þvf fyllsta ástæða
til að hvetja ungt fólk til að fara
inn á þessar brautir," sagði Hall-
dór. Hann ræddi einnig um mikil-
vægi rannsókna, en þær væru ekki
í miklum mæli stundaðar á svæð-
inu. Vilji væri hins vegar fyrir því
að tengja stofnanir sjávarútvegsins
betur starfsemi Háskólans á Akur-
eyri. Fiskeldi Eyjafjarðar hefur ver-
ið falið að annast þjónustu Hafrann-
sóknastofnunar á Akureyri um
stundarsakir.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra lagði á það áherslu að
mikil ábyrgð hvíldi á forráðamönn-
um sjávarútvegsdeildar og vand-
lega yrði fylgst með störfum deild-
arinnar. Hann sagði að stuðningur
Við vitum að þetta
verður erfitt nám
- segja Ágúst, Erlingnr og Kristinn sem
eru að hefja nám í sjávarútvegsdeild
„VIÐ VITUM að þetta verður erfitt nám, en þá er bara að vinna
vel og við munum reyna að standa okkur eins vel og við framast
getum,“ sögðu þeir Agúst Guðmundsson frá Akureyri, Erlingur
Amarson frá Keflavík og Kristinn Ólafsson frá Reykjavík, en
þeir eru að hefja nám við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri.
Erlingur sagði að hann hefði í
fyrstu íhugað að fara til Tromsö í
Noregi í sjávarútvegsfræðinám, en
hætt við er hann sá auglýst eftir
stúdentum í deildina á Akureyri.
„Ég ákvað að fara í þetta nám
strax og ég hafði lokið námi í út-
gerðartækni við Tækniskólann,"
sagði Erlingur, en hann hefur unn-
ið við sjávarútveg bæði á sjó og í
landi.
Ágúst hefur fram 15 ára aldri
unnið hann m.a. mikið hafa unnið
vestur á Patreksfirði, en Kristinn
hefur einnig verið til sjós og þá
hefur hann unnið við kvíaeldi.
Nám í sjávarútvegsdeild skiptist
í fimm meginhluta, í þeim fyrsta
er áhersla lögð á efnafræði, við-
skipta- og hagfræðigreinar í öðrum
hluta og félags- og skipulagsgrein-
ar í þeim þriðja. I fjórða hlutanum
er lögð áhersla á tæknigreinar og
líffræði og fiskifræði i þeim
fimmta. Ekki er von til þess að
rannsóknir verði stundaðar í öllum
þessum greinum af starfsmönnum
deildarinnar á fyrstu starfsárum
deildarinnar og sagði Jón Þórðar-
son forstöðumaður hennar sam-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kristinn Ólafsson, Erlingur Arnarson og Ágúst Guðmundsson,
en þeir eru að heíja nám við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akur-
eyri.
komulag við rannsóknastofnanir
sjávarútvegsins um stuðning og
samstarf því ómetanlegt.
„Við erum bjartsýnir á þetta nám
og það hefur á allan hátt verið vel
að þessu staðið,“ sögðu piltarnir,
en Jón Þórðarson sagði í lok ræðu
sinnar við setningu deildarinnar að
útgerð hennar verði að sjálfsögðu
háð þeim kvóta sem úthlutað verði
af fjárlögum hverju sinni. „En það
verður skylda okkar sem við deild-
ina störfum að hámarka aflaverð-
mæti og gæði afurða á hveijum
tíma.“
við Háskólann á Akureyri væri
víðtækur á Alþingi og það væri
fagnaðarefni að deildin skyldi nú
taka til starfa, þó svo að víða væri
verið að spara og skera niður.
Markmiðið að mennta
einstaklinga í
undirstöðuatriðum
sjávarútvegs
í máli Jóns Þórðarsonar forstöðu-
manns sjávarútvegsdeildar kom
fram að markmið námsins er að
mennta einstaklinga í undirstöðuat-
riðum íslensks sjávarútvegs og
þálfa þá í að beita faglegum vinnu-
brögðum við lausn verkefna í sjáv-
arútvegi. Starfsmenn deildarinnar
eru í upphafi 3, enþeim mun fjölga
eitthvað á árinu. I fyrsta hópnum
eru 14 nemendur, en umsóknir voru
um 20, einhveijir hættu við og aðr-
ir uppfylltu ek,ki skilyrði um starfs-
reynslu við sjávarútveg.
Kaupfélag Eyfirðinga hefurján-
að skólanum húsnæði á tveimur
hæðum við Glerárgötu og þar verð-
ur innréttuð kennslustofa fyrir
verklega efnafræði og rannsóknar-
stofa sem þjóna mun sjávarútvegs-
deildinni og Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. Einnig verður það
aðstaða fyrir aðra verklega kennslu
og vinnuaðstaða bæði fyrir kennara
og nemendur. Bókleg kennsla verð-
ur í húsnæði skólans við Þórunnar-
stræti. Jóhannes Sigvaldason for-
maður stjórnar Kaupfélags Eyfirð-
inga sagði að stjórn KEA hefði
samþykkt að gefa skólanum kost á
að fá endurgjaldslaus afnot af hús-
næðinu á þeim tíma þegar óljóst
var hver örlög skólans yrðu
skömmu fyrir jól. Hann sagði
skólann einn af sterkustu hlekkjun-
um til eflingar byggðar á svæðinu
og því hefði stjórnin talið eðlilegt
að styðja við bak hans með þessum
hætti.
Haraldur Bessason rektor þakk-
aði kaupfélaginu sem og öllum öðr-
um þeim sem lagt hefðu skólanum
lið. Skeyti barst skólanum frá Sig-
mundþ Guðbjamasyni rektor Há-
skóla íslands þar sem hann óskaði
Háskólanum á Akureyri farsældar
á nýju ári. „Megi hann fara ótroðn-
ar slóðir, traustum skrefum."