Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 27

Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990 27 Eygerður Péturs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 30. júní 1942 Dáin 27. desember 1989 Það var snemma vors árið 1947 að hafist var handa við byggingu húsanna nr. 16 og 18 við Nýbýla- veg. Þetta var í „gamla.daga" áður en nýi tíminn tók að þrengja að okkur frumbyggjum Kópavogs. Við krakkarnir á nr. 12 fylgdumst með byggingu húsanna af áhuga og daglega brann á vörum okkar stóra spumingin sem við þorðum ekki að spyrja uppátt: Skyldu koma krakk- ar í þessi hús — skemmtilegir krakkar og þá á okkar reki? Tíminn leið og undir haust var flutt í húsið nr. 16 og þá fengum við svar við spumingunni. Það voru krakkar í húsinu — þrjár stelpur og einn strákur, yngstur alveg eins og hjá okkur. Sigrún Asta stóra systir, tvíburarnir Eygerður og Anna og loks Davíð litla barn. Þarna vora þau komin ásamt fjölskyldu sinni, foreldranum Ástu Davíðsdóttur (f. 1912) og Pétri Guðmundssyni (f. 1903 d. 1971) og afa og ömmu. Er ekki að orðlengja það nema mikill vinskapur tókst með okkur miðSystrunum tveimur og Péturs- stelpunum þremur þrátt fýrir nokk- um aldursmun. Fyrstu vikurnar gekk okkur illa að þekkja tvíburana í sundur en það stóð ekki lengl, hvor um sig hafði sín sterku per- sónueinkenni sem ekki leyndu sér. Og mikið voru þetta skemmtilegar stelpur allar þijár. Sigrún svo ábyrgðarfull og „stór“ þó hún væri ekki nema hálfu öðra ári eldri en litlu systumar. Þær ijöragar eins og lömb á vorin, dálítið stríðnar og óstýrilátar þegar þær vora saman sem oftast var en komust ekki upp með moðreyk þegar okkur var að mæta. Við þurftum ekki annað en að ógna þeim með Dýrinu ógurlega sem við áttum í fóram okkar og gátum kallað á að vild ef þær vora með uppsteyt. Þá urðu þær Ijúfar eins og lömb. Já, þetta vora góðir dagar í frels- inu við Nýbýlaveginn og þar ólst Eygerður upp frá 5 ára aldri. Pétur faðir hennar vann sem bifreiða- stjóri hjá Norðurleið hf. um árabil og síðan sem verkstjóri hjá Kópa- vogskaupstað. Ásta var heimavinn-' andi húsmóðir eins og þá tíðkaðist og það var ekkert letilíf hjá heima- konunum í þá daga þegar þvotta- vél, ísskápur og ryksuga var lúxus- varningur sem fæstar húsfreyjur dreymdi um að eignast. Þá vora líka framreiddar tvær heitar máltíð- ir á dag í hverju húsi og karl og krakkar nestaðir í vinnu og skóla um morgna og eftirmiðdaga. Það var glaðvær fjölskylda og samheldin sem bjó á Nýbýlavegi 16; Pétur mikill félagsmálamaður og pólitíkus, einn af stofnendum Alþýðuflokksfélags Kópavogs og fyrsti formaður þess. Hann vildi sem vonlegt var útbréiða boðskap- inn og var iðinn við kolann sérstak- lega fyrir kosningar. Þá sat hann löngum stundum í eldhúsinu hjá foreldram okkar og reyndi að „kristna" þau en með litlum árangri a.m.k. að því er móður okkar áhrærði. Því fremur sem þau greindi á þeim mun skemmtilegra var að hlusta á tal þeirra um lands- mál og heimsmál, stríð og stór- veldi, krata og komma. Og síðast en ekki síst; um mál málanna í Kópvogi í þá daga — innansveitar- stríðið milli Finnboga Rúts og Þórð- ar á Sæbóli en Pétur var ötull tals- maður Þórðar og dyggur stuðnings- maður hans. Ekki er víst að tvíbur- arnir litlu hafi haft jafn gaman af pólitíkinni og við systurnar en þeim mun sólgnari voru þær í draugasög- urnar hennar mömmu, einkum þeg- ar þær vora sagðar á síðkvöldum eftir að farið var að dimma. Þá var eins víst að litlu stúlkurnar þyrftu fylgd heim til sín þó að leiðin væri ekki löng. Afaforeldrar Sigrúnar og Davíðs bjuggu uppi á lofti og voru ná- kvæmlega eins og afi og amma eiga að vera, virðuleg og prúð. Hann svolítið þybbinn með fallegt hár sem hvorki þynntist að ráði né gránaði þó að aldurinn færðist yfir. Hún grönn og beinvaxin, uppábúin og fín í peysufötum þegar hún fór í „bæinn“. Það var gott að vera bam á þessu heimili enda runnu systkin- in upp eins og fíflar í túni og ekki minnkaði gleðin þegar fimmta barnið fæddist í hópinn um það bil sem hin voru að komast á unglings- aldurinn. Það var Kristín litla — yndi allra og augasteinn. En sérhvað hefur sína tíð og brátt vora Eygerður og Anna orðnar ungar stúlkur, kjarkmiklar og dug- legar og brannu í skinninu eftir að fá að reyna vængina. Þær vildu faðma allan heiminn og gátu varla beðið eftir lífinu, það var svo skemmtilegt og spennandi. Helst hefðu þær viljað fara eitthvað langt út í heim en létu sér nægja — svona í fyrstu lotu — að taka á leigu her- bergi hjá Maríu í Neðridal, grann- konunni góðu sem Ásta mamma treysti eins og sjálfri sér. Þær voru 16 ára og ennþá óaðskiljanlegar og oftast nefndar í sama orðinu. En brátt var komið að þáttaskil- um í lífi þeirra. Þær hittu hvor um sig sinn draumaprins og verðandi lífsförunaut og Eygerður giftist Benedikt Eiríkssyni vélstjóra árið 1962. Óskabömin Pétur og Guðrún fæddust með eins og hálfs árs milli- bili árin 1963 og 1965 og meðan þau vora lítil var Eygerður heima- vinnandi húsmóðir. Eftir að þau stálpuðust og um hægðist hóf hún störf við prentiðn en við það hafði hún starfað fyrir giftingu. Hún vann í ýmsum prentsmiðjum, lengst af í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg sem var jafnframt síðasti vinnu- staður hennar. Það var góður vinnustaður og þar leið henni vel og hafði ekki í hyggju að breyta um á næstunni. Eygerður var hörkudugleg kona að hveiju sem hún gekk og félags- lynd eins og svo margir ættmenn hennar. Hún hafði mikinn áhuga á stéttarfélagi sínu, Félagi bókagerð- armanna, og var oft kjörin til trún- aðarstarfa á vegum þess m.a. í samninganefndir og sem trúnaðar- maður á vinnustað enda virt og vin- sæl að verðleikum. Við leiksystkinin á Nýbýlavegin- um forðum daga höfum ekki hist reglulega né haldið hópinn síðan á unglingsárum. Oft höfum við þó talað um — þegar einhver okkar hittust á fömum vegi — að gaman væri að koma saman og endumýja kunningsskapinn og í vor sem leið var ekki látið lengur sitja við orðin tóm heldur efnt til samkomu í Fé- lagsheimili Kópavogs. Þarna kom- um við saman flestir gömlu „krakk- amir“ úr húsunum nr. 10-18 og rifjuðum upp bernsku- og æskuárin sem vora svo sérstæð. Þar var Ey- gerður hrókur alls fagnaðar eins og endranær. Hún mundi ótal atvik og prakkarastrik sem sum okkar voru búin að gleyma — viljandi eða óviljandi. Var ákveðið að hittast aftur að vori en þá munum við sakna vinar í stað þar sem Eygerð- ur hefur nú yfirgefið hópinn svo skyndilega. Við kveðjum nú kæra leiksystur og góðan félaga. Við tvær og systk- ini okkar Guðjón og Hermann flytj- um fjölskyldu Eygerðar innílegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau. Eygerður Pétursdóttir var jarð- sungin frá Seltjarnarneskirkju í gær, fimmtudaginn 4. janúar. Helga Sigurjónsdóttir, Jóna Siguijónsdóttir. t Móðir okkar, BERGÞÓRA S. ÞORBJARNARDÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum 4. janúar. Kristrún Karlsdóttir, Þorbjörn Karlsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRDÍS HARALDSDÓTTIR, Hagamel 52, andaðist 28. desember. Jarðarförin hefur farið fram. Starfsfólki Hafnarbúða sendum við þakkir fyrir margra ára umönnun og alúð. Helga Brynjólfsdóttir, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Þór Jónsson, Guðrún Svanborg Hauksdóttir og Bryndís Brynjólfsdóttir, Jón Níelsson, Helga Bryndís Jónsdóttir, Þorbjörn Jónsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA HARALDSDÓTTIR, Hásteinsvegi 9, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 6. janúar kl. 14.00. Trausti Jónsson, Haraldur Traustason, Jón Steinar Traustason, Ágústa Traustadóttir, Brynja Traustadóttir, Óli ísfeld Traustason, Steinunn Traustadóttir, Ásta Traustadóttir, barnabörn og langömmubörn. EddaTegeder, Guðmundur B. Sigurgeirsson, Bonnie Harvey, Skarphéðinn H. Einarsson, Sigurður Stefánsson, t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLAFUR ÁGÚST ÖRNÓLFSSON loftskeytamaður, Drápuhlfð 2, Reykjavík, lést 4. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Ingvarsdóttir og synir. t Fósturfaðir okkar, BJÖRN VIGFÚSSON frá Guliberastöðum, Lundarreykjadal, sem andaðist í sjúkrahúsi Akraness 28. desember sl., verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. janúar kl. 10.30. Ingimundur Guðmundsson, Ragnhildur H. Moss, Þórður B. Sigurðsson og fjölskyldur. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÁRMANN SIGURÐSSON, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. janúar kl. 13.30. Ragna Kristjánsdóttir, Ragnheiður Ármannsdóttir, Sigrfður Ármannsdóttir, Sigurður Ármannsson, Kristján Ármannsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐMUNDA GUÐMUNÐSDÓTTIR frá Hurðarbaki, Skólavöllum 8, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 6. janúar nk. kl. 13.30. Kristján Guðmundsson, Guðmundur G. Kristjánsson, Sólveig R. Friðriksdóttir, Haraldur M. Kristjánsson, Guðlaug Guðmundsdóttir, Lárus Þór Kristjánsson og barnabörn. t Útför hjartkærs sonar okkar, bróður og mágs, JÓNS EIÐS GUÐMUNDSSONAR, sem lést 1. janúar sl., verðurgerð frá Siglufjarðarkirkju laugardag- inn 6. janúar kl. 13.30. Margrét Jónsdóttir, Guðmundur Jónasson, Jónas Guðmundsson, Anh-DaoTran, Arnfrfður Guðmundsdóttir, Gunnar Rúnar Matthfasson. t Við þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, STEFÁNS GUNNARSSONAR, Samtúni 10. Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk lyflækningadeildar 14 G í Landspítalanum fyrirfrábæra hjúkrun og kærleiksríka umönnun. Ragna Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Bjartmar Eyþórsson, Garðar S. Helgason, Gunnar Bjartmarsson, Guðrún Guðnadóttir, Guðbjartur S. Gunnarsson, Lilja V. Gunnarsdóttir. — MLennsla Vélritunarkennsla Ný námskeið eru að hefjast. Vélritunarskólinn, s. 28040. Wélagslíf □ St:.St:. 5990164 Rh.KI. 16.00 [KJj Útivist Þrettándaganga Laugardag 6. janúar. Lagt upp frá Árbæjarsafni kl. 16.00 og gengið i Ijósaskiptunum eftir skemmtilegri leið aö álfabrennu í Fossvogsdal. Þar verður tekið þátt í dagskrá sem Lif f Foss- vogsdal og skátafélagiö Kópar standa fyrir. Boðið upp á rútu- ferð til baka. Sjáumst. Útivist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.