Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 40
e
EINKAREIKNINGUR Þ/NN
í IANDSBANKANUM m
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Gjaldið fyrir skrán-
ingu hlutafélaga tólf-
faldað með reglugerð
UM ÁRAMÓTIN var gefín út ný reglugerð um aukatekjur ríkis-
sjóðs. Með reglugerðinni eru ýmis gjöld vegna löggildingar og opin-
berrar skráningar hækkuð verulega, jalhvel margíölduð frá þvi sem
var. Meðal annars hækkar gjald fyrir skráningu hlutafélaga og sam-
vinnufélaga úr 8.000 í 100.000 krónur, rúmlega tólffalt. Það hafði á
liðnu sumri verið hækkað úr 6.800 krónum í 8.000. Hins vegar hækk-
ar gjald fyrir leyfísbréf til heildsölu ekkert frá því sem var í tveggja
ára gamalli reglugerð og er eftir sem áður 70.200 krónur.
Að sögn Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra ligg-
ur það að baki þessum hækkunum
að færa til eðlilegs horfs greiðslu
fyrir leyfi til atvinnustarfsemi,
verslunarstarfsemi, reka hlutafélag
eða annarrar leyfis- eða skráning-
arskyldrar starfsemi og til að
tryggja það að um alvöru verknað
sé að ræða. „Eins og við vitum er
mikið af gervihlutafélögum í
landinu sem hafa verið stofnuð án
nokkurs rekstrartilgangs, hugsan-
lega eingöngu í skyni skattahag-
ræðingar fyrir hluthafana. Með
þessu er verið að tryggja að menn
fari ekki út í stofnun hlutafélags
án þess að hafa í huga að hefja
alvörurekstur. Ef menn hafa slíkt
'“"í huga þá er þetta gjald aðeins brot
af því sem til þarf,“ sagði fjármála-
ráðherra.
Af öðrum hækkunum samkvæmt
reglugerðinni má nefna að leyfi til
lögmanna til málflutnings fyrir
Hæstarétti og leyfi til læknis til að
kalla sig sérfræðing hækkar úr
14.300 krónum í 75 þúsund krónur
og leyfi til að stunda almennar
lækningar og tannlækningar og til
að flytja mál fyrir héraðsdómi
hækka úr 4 þúsund krónum í 50
þúsund krónur.
Morgunblaðið/Sverrir
Alfreð
Gíslason
íþróttamað-
ur ársins
Alfreð Gíslason, landsliðsmað-
ur í handknattleik, var í gær
kjörinn Iþróttamaður ársins
1989 af Samtökum íþrótta-
fréttamanna.
Alfreð átti góðu gengi að
fagna í ár, eins og félagar hans
í landsliðinu sem sigraði í B-
keppni heimsmeistaramótsins í
Frakklandi. Þar var Alfreð kjör-
inn besti leikmaður mótsins. Fé-
lagar Alfreðs úr landsliðinu,
Kristján Arason og Þorgils Óttar
Mathiesen, komu næstir í kjöri
SÍ og þar á eftir Bjami Friðriks-
son júdómaður og Ragnheiður
Runólfsdóttir, sundkona.
Sjá nánar íþróttir bls. 39.
Atlanta hf. kaupir Arnarflugsþotuna:
Um 35 skip á
loðnumiðunum
BÚIST var við að um 35 skip
yrðu á loðnumiðunum norð-
austur af Langanesi í nótt en
loðnuveiðar hófust á ný á
miðvikudag. „Þama em
nokkuð góðar dreifar af
ágætis loðnu en hún stendur
nokkuð djúpt og straumurinn
er óhagstæður,“ sagði Ást-
ráður Ingvarsson hjá Loðnu-
nefiid.
Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson fór í loðnuleiðangur í
gær.
Fjögur loðnuskip tilkynntu
um afla_ í gærmorgun. Guð-
mundur Ólafur tilkynnti um 600
tonn til Raufarhafnar, Beitir
1.100 tonn til Neskaupstaðar,
Guðrún Þorkelsdóttir 600 tonn
til Éskifjarðar og Hólmaborg
400 tonn til Eskifjarðar.
100 mílljóna skuld Aruar-
flugs við rikid án trygginga
Arnarflugsþotan hefur lækkað í verði um 56 milljónir króna á einu ári
ARNARFLUG hf. skuldar Ríkisábyrgðasjóði yfír 100 milljónir kr. eftir
að rikið hefiir selt flugfélaginu Atlanta hf. þotuna sem ríkið leysti til
sín frá Arnarflugi fyrir tæpu ári, að sögn fjármálaráðherra. Skuld
þessi er ekki sérstaklega tryggð og það em ekki heldur gamlar skatt-
skuldir Arnarflugs við ríkið sem enn eru ógreiddar. Búist er við að
fulltrúar fjármálaráðuneytis og Arnarflugs ræðist við í dag til að fara
yfír stöðu mála eftir sölu þotunnar. í febrúar á siðasta ári, þegar Arnar-
flug leysti til sín þotuna, var markaðsverð hennar talið vera um 8
milljónir bandaríkjadala en verð hennar hefur lækkað og var hún seld
Atlanta hf. á 7,1 milljón, verð hennar hefiir því lækkað um 56 miHjón-
ir íslenskra króna á þessum tima.
Ríkið leysti til sín þotuna sem
Amarflug hafði fengið á kaupleigu
frá erlendu fyrirtæki vegna þess að
félagið gat ekki staðið við skuld-
bindingar sínar en áunninn eignar-
hluti Amarflugs í vélinni hafði verið
settur sem trygging fyrir greiðslum
af láni sem ríkið hafði ábyrgst. Ríkið
leysti þotuna til sín á 4,2 milljónir
bandaríkjadala og lánið með ríkis-
ábyrgðinni var upphaflega 2,5 millj-
ónir dala. Að auki hefur ríkið þurft
að greiða leigu frá þeim tíma sem
Amarflug var með vélina, hluta af
skoðun hennar og ýmsan annan
kostnað. Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra segir að skuld Arn-
arflugs eftir söluna sé enn yfir 100
milljónir kr. Forráðamenn Arnar-
flugs segjast ekki hafa átt von á að
skuldin væri svo há.
LIU áskilur útgerð-
um rétt til skaðabóta
Grindavíkurbátar reru ekki í nótt
LANDSSAMBAND íslenskra útvegsmanna sendi í gær aðvörun til
verkalýðs- og sjómannafélaga á Austfjörðum, sem eiga I deilum við
útgerðir og fískkaupendur um fískverð. Orðsending LIU hafði reyndar
ekki borist öllum félögunum í gær. í bréfinu er útgerðarfélögunum
áskilinn réttur til skaðabótakrafna vegna aðgerða sjómanna á skipum
félaganna. Sjómenn á Eskifirði, Fáskrúðsfírði og Vopnafírði hafa ekki
komið til skips og því ekki verið hægt að halda til veiða eftir áramót-
in. Sjómenn víðar um landið hafa krafíst hækkunar á skiptaverði. Til
dæmis tókust ekki samningar í Grindavík þannig að bátar þar reru ekki
'i nótt.
Deila sjómanna á Eskifjarðartog-
urunum Hólmanesi og Hólmatindi
er óleyst og starfsfólk Hraðfrysti-
hússins komið á atvinnuleysisskrá
þess vegna. Sjómenn krefjast 30%
hærra fiskverðs en útgerðin hefur
boðið 10%.
, Fáskrúðsfjarðartogaramir Hoffell
og Ljósafell eru bundnir við bryggju.
Sjómennimir krefjast 37% hækkunar
fiskverðs og slitnaði upp úr viðræð-
um þeirra og útgerðarinnar, Kaup-
félags Fáskrúðsfirðinga, í gær.
Ekki tókust samningar á milli sjó-
manna á Vopnafjarðarskipunum
Brettingi og Eyvindi Vopna í gær.
Brettingur átti að halda til veiða í
fyrradag og Eyvindur Vopni í gær
en bæði skipin eru enn í höfn vegna
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
Sjómenn á Eskifirði fylgjast með þegar Hrafnkell A. Jónsson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Arvakurs, ræðir við löglræðing Sjómannasam-
bands íslands um lagalega stöðu sjómanna í fiskverðsdeilunni.
deilunnar.
Sjómenn á þeim vertíðarbátum í
Grindavík sem landa hjá fiskverk-
endum lögðu í gær fram kröfu um
fast fiskverð.
Útvegsmenn/fiskverkendur gerðu
þeim tilboð um klukkan 22 í gær-
kvöldi. Fulltrúar sjómanna ræddu
saman um tilboðið um borð í Hörf-
ungi II og höfnuðu því fyrir miðnæt-
tið. Sögðust þeir ekki róa í nótt.
Víðar hafa sjómenn rætt um
hækkun fiskverðs. Þannig hafa sjó-
menn á skipum Þormóðs ramma á
Siglufirði krafist hækkunar en fiski-
skipin héldu þó til veiða eftir áramót-
ín.
Sjá fréttir á miðopnu.
Þijú tilboð í vélina hafa að undan-
fömu verið til athugunar í fjármála-
ráðuneytinu. Tilboð Arnarflugs hf. í
samvinnu við írskt fyrirtæki um að
taka vélina á leigu og kaupa hana
eftir eitt ár eða tvö á 8 milljónir
bandaríkjadala, eða um 494 milljónir
íslenskra króna, var ekki talið ásætt-
anlegt. Arnarf lug gæti skilað vélinni
og væri ekki skuldbundið til að kaupa
hana auk þess sem félagið gæti ekki
sett fullnægjandi tryggingar fyrir
leigugreiðslum. Amarflug stóð í
samningum við hollenska f lugfélagið
KLM um að útvega verkefni fyrir
þotuna. Þá stóðu eftir bein kauptil-
boð Atlanta hf. og fransks fyrirtæk-
is sem bæði miðuðust við stað-
greiðslu. Tilboð Atlanta hf. var
hærra, 7,1 milljón dollara,. eða 438
milljónir ísl. króna, og var því tekið.
Skrifað var undir kaupsamning í
gær.
Stjórnendur Amarflugs telja að
þotan hafi verið seld fyrir full lágt
verð en ráðuneytismenn telja sölu-
verðið eðlilegt miðað við þær athug-
anir sem þeir hafi gert á markaðn-
um. Markaðsverð vélanna hafi lækk-
að verulega á því tæpa ári sem hún
hafi verið í eigu ríkisins, sérstaklega
í kjölfar þess að í ljós komu gallar
á þotu sömu gerðar á Hawaii og því
þyrfti að gera kostnaðarsama breyt-
ingu á þotunni innan ákveðins frests.
Atlanta hf. er íslenskt flugfélag
sem er í leignflugi erlendis, núna
fyrir Finnair, og hyggst nota þotuna
meðal annars við þau verkefni. Arn-
grímur Jóhannsson, fyrmm yfirflug-
stjóri Arnarflugs, er einn af eigend-
um félagsins. Hann segir að vélin
sé keypt með aðstoð bandarísks
kaupleigufyrirtækis.
Sjá einnig fréttir á bls. 16.