Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 15
 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 15 Iðnlánasjóður: Afgreidd lán 1,1 millj - arður króna árið 1989 Breyting á rekstri sjóðsins vegna bankasameiningar IÐNLÁN AS JÓÐUR lánaði samtals 1,1 miHjarð króna árið 1989, eða svipaða ijárhæð og árið 1988. Með sameiningu Iðnaðarbankans, Al- þýðubankans, Verslunarbankans og Útvegsbankans verður sú breyting á rekstri sjóðsins að hann tekur við því hlutverki, sem Iðnað- arbankinn hefur farið með fyrir hann með eigin starfsfólki. Iðnað- arbankinn hefur allt frá árinu 1953 annast daglegan rekstur Iðnlánasjóðs, enda kveðið á um það i lögum sjóðsins. Bragi Hann- esson, fyrrverandi bankastjóri Iðnaðarbankans, er forstjóri Iðn- iánasjóðs. í Iðnlánasjóðstíðindum, sem nú hefja göngu sína, segir meðal annars að Iðnlánasjóður muni í lok þessa mánaðar flytja í ný húsakynni í Ár- múla 13a en þar hefur sjóðurinn tek- ið á leigu tvær efstu hæðirnar. Starfsmenn Iðnlánasjóðs verða um 16 talsins. Að sögn Braga Hannessonar, for- stjóra Iðnlánasjóðs, er sjóðurinn ann- ar stærsti atvinnuvegasjóður lands- ins á eftir Fiskveiðasjóði. Efnahags- reikningur Iðnlánasjóðs er um 10 milljarðar króna. Á árinu 1989 dró úr beiðnum um fjárfestingarlán hjá sjóðnum en skuldbreytingarbeiðnum fjölgaði. Samdráttur varð í byggingu Kjarvalsstaðir: Myndir eftir og af Kjarval SÝNING á verkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals í eigu Reykjavíkurborgar verður opnuð í austursal Kjarvalsstaða í dag, laugardag. í forsal eru sýndar ljós- myndir af listamanninum. Sýning- in ber yfirskriftina „Kjarval og landið“. Á sýningunni eru 25 verk frá öllum ferli Kjarvals. Þau elstu eru frá fyrsta áratug aldarinnar og þau yngstu frá sjöunda áratugnum. Nokkur verkanna hefur safnið eign- ast á síðustu árum og hafa þau ekki verið sýnd almenningi áður. I austur-forsal eru ljósmyndir af Kjarval teknar við ýmsar aðstæður og við myndirnar eru tilvitnanir úr Kjarvalskveri eftir Matthías Johann- essen. Öllum skólanemum hefur sérstak- lega verið boðið að sjá sýninguna, sem opin er daglega kl. 11-18 til 11. febrúar. Aðgangur á hana er ókeypis. Bragi Hannesson forstjóri Iðnl- ánasjóðs. iðnaðarhúsnæðis á árinu en eftir- spurnum eftir lánum til bygginga- framkvæmda hafði hins vegar aukist verulega árið 1988. Iðnlánasjóður hóf feril sinn í Út- vegsbanka árið 1935, þar sem rekst- urinn var í umsjá starfsmanna Fisk- veiðasjóða en þegar Iðnaðarbankinn tók til starfa, árið 1953, var starf- semin flutt þangað. Stjórnarformaður Iðnlánasjóðs er Jón Magnússon en aðrir í stjórn eru Ólafur Davíðsson og Þórleifur Jóns- son. Morgunblaðið/Þorkell Frá kynningu á starfsemi Fjölmiðlaskóla Islands. Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigrún Stefáns- dóttir, ijölmiðlafræðingur, Lúðvík Geirsson, formaður Blaðamannafélags Islands og Gunnar Már Gunnarsson, einn eigenda Viðskipta- og málaskólans hf. Kennsla hafin í Fj öl- míðlaskóla Islands VIÐSKIPTA- og málaskólinn hf. hefiir sett á stofii Fjölmiðla- skóla íslands að Borgartúni 24, sem að sögn forráðamanna skólans er ætlað að uppfylla sívaxandi þörf fjölmiðla fyrir hæft starfsfólk. Jafnframt býður skólinn upp á námskeið fyrir fólk sem vill kynnast fjölmiðlum og koma málum sinum þar á fram- færi, og endurmenntunarnámskeið verða fyrir starfandi blaða- menn. í Fjölmiðlaskóla íslands verður til að byija með fyrst og fremst boðið upp á stutt námskeið, en í undirbúningi er eins árs nám í blaðamennsku á háskólastigi, sambærilegt því sem norrænir blaðamannaskólar bjóða upp á. Skólinn mun leitast við að fá til starfa vel menntað og reynslumik- ið fólk, en ráðgjafi og forstöðu- maður skólans fyrst um sinn verð- ur dr. Sigrún Stefánsdóttir fjöl- miðlafræðingur. Fjölmiðlaskóli ís- lands hefur gert samkomulag við Blaðamannafélag íslands um að það styrki félagsmenn sína fjár- hagslega sem sækja námskeiðin, og einnig munu útgefendur styrkja starfsmenn sína á sum námskeiðin. Meðal námskeiða sem boðið verður upp á í Fjölmiðlaskóla Is- lands á vorönn, sem hefst í byijun febrúar, er námskeið í fjármála- fræði fyrir blaðamenn, námskeið fyrir starfsfólk lítilla fréttablaða og aðra þá sem áhuga hafa á blaðamennsku, námskeið í sjón- varpsframkomu, námskeið í gerð kvikmyndahandrita, námskeið í siðfræði blaðamanna og lögum um tjáningarfrelsi, námskeið í tölvunotkun á ritstjórn, námskeið í notkun umbrotsforritsins „quark express“, námskeið í handritsgerð fyrir útvarp og sjónvarp og nám- skeið fyrir félagasamtök og fyrir- tæki sem þurfa að koma kynning- arefni á framfæri. Sinfóníuhljómsveit æskunnar heldur tónleika í Háskólabíói á sunnudag undir stjórn Pauls Zukofskys. Sinfóníuhljómveit æskunnar: Yerk eftir Schönberg SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT æskunnar frumflytur hérlendis verkið Pellias og Melisande eftir Schönberg nk. sunnudag undir stjórn Pauls Zukofskys. Þessir tónleikar eru afrakstur námskeiðs sem Sinfóníuhljóm- sveit æskunnar hefur staðið fyrir nú yfir áramótin. Hljómsveitin hefur áður frumflutt viðamikil verk hérlendis, þar á meðal 6. og 9. sinfóníur Mahlers. Sinfóníuhljómsveit æskunnar er nemendahljómsveit fyrir tón- listarnemendur af öllu landinu sem náð hafa ákveðinni leikni á sitt hljóðfæri og hefur hún starfað síðan á ári æskunnar 1985. Á þessu námskeiði eru um 80 tón- listamemendur sem æft hafa sleitulaust síðustu 10 daga og mun námskeiðinu ljúka með tón- leikum í Háskólabíói, sunnudag- inn 7. janúar 1989 kl. 14.00. Forsala aðgöngumiða er í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.