Morgunblaðið - 06.01.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990
17
Noriega gaf sig fram
fyrir fortölur prestsins
Daily Telegraph.
ÞAÐ var fyrir fortölur kaþólsks prests, að Manuel Noriega, fyrrum
einvaldur í Panama, ákvað að gefa sig fram við bandarísku hermenn-
ina. „Viltu láta nunnurnar hér þvo af þér nærfotin það sem þú átt
eftir ólifað?“ spurði Jose Sebastian Laboa, sendimaður páfa í Pa-
nama, og Noriega átti engin svör við spurningunni. Starði bara á
hvítkalkaða veggina í herberginu þar sem ekkert var nema einn
kross, rúmfletið og gamalt, bilað sjónvarpstæki. Jafiivel rúðurnar
í gluggunum voru ógagnsæjar.
í herberginu var engin loftkæl-
ing og þegar Noriega hafði sötrað
bjórinn, sem hann fékk við komuna
í sendiráðið, var honum meinað um
allt áfengi. Fékk ekki einu sinni
eitt staup af uppáhaldsviskíinu
sínu, Old Parr. Uzi-hríðskotabyss-
an var tekin af honum og hann
fékk ekki að klæðast stjörnum
Washington. Reuter.
NÝ skýrsla mannréttindasamta-
kanna Amnesty International um
aðferðir ísraelska hersins hefur
vakið mikla athygli og er þar um
að.ræða eina harkalegustu gagn-
rýni sem samtökin hafa látið í
ljós gagnvart Islraelsstjórn. Isra-
elssljórn hefur neitað þeim ásök-
unum sem þar koma fram og
Bandaríkjastjórn hefur stutt
ísraela og telur of djúpt í árinni
tekið í skýrslunni.
í skýrslu Amnesty International
sem kom út fyrr í vikunni segir að
ísraelski herinn hafi nú þá stefnu
að myrða Palestínumenn sem taka
Azerbajdzhan:
Landamæra-
girðingar
riftiar upp
Moskvu. Reuter.
TIL átaka kom í gær á landa-
mærum sovétlýðveldisins Az-
erbajdzhans og Irans en ekki er
talið, að þau hafi verið jafn mik-
il og í fyrradag þegar þúsundir
manna réðust á og rifu niður
varðturna og girðingar. Erlend-
um fréttamönnum var þá bannað-
ur aðgangur að svæðinu og einn-
ig skipað á brott frá höfúðborg-
inni Baku.
Haft er eftir Nazim Ragimov,
blaðamanni í Azerbajdzhan, að um
30.000 manns hafi safnast saman
á fimmtudag í landamærahéraðinu
Nakhistjevan til að mótmæla frétta-
flutningi Prövdu og Ízvestíu af
ástandinu. Að því búnu hefði fólkið
farið að landamærunum við Iran
og rifið upp þær girðingar, sem enn
stóðu eftir atburði gamlársdags. í
sovéskum fjölmiðlum hefur mátt
lesa, að uppþotin stöfuðu af vax-
andi trúarofsa meðal múslima en
sjálfir segja Azerar, að ástæðan sé
eftirsókn eftir ræktarlandi við
landamærin auk þess sem þeir vilji
nánara samband við Azera í íran.
Séndinefnd frá sovéska komm-
únistaflokknum var í gær í Nak-
histjevan til viðræðna við yfirvöld
þar og þá var einnig skýrt frá því,
að formaður flokksins í héraðinu
hefði iátið af embætti.
í Azerbajdzhan búa sex milljónir
manna en Azerar í íran eru sagðir
átta milljónir og að sumra sögn
miklu fleiri. Eru þeir múslimar af
shíta-grein en tungan er tyrkneskr-
ar ættar. i • itvds n.utvtli i
prýddum hershöfðingjabúningnum.
Skyrtubolur og bláar buxur voru
einkennisklæðnaðurinn hans í tíu
daga. Noriega hefur lengi hatast
út í kirkjuna en að lokum leitaði
hann á náðir hennar í þeirri von,
að hann kæmist til Kúbu.
George Bush Bandaríkjaforseti
skýrði Páfagarði svo frá, að Nori-
þátt í mótmælum gegn hernámi
Israela á Vesturbakkanum og
Gaza-svæðinu. Að sögn Amnesty
eru viðmiðunarreglur sem ísraelsk-
um hermönnum er gert að starfa
eftir við notkun skotvopna þess
eðlis að þær heimili óréttmæt dráp.
Einng er gagnrýnt að rannsókn á
misgjörðum hermanna sé oft ábóta-
vant. Lýst er yfir áhyggjum yfir
því að svo virðist sem hlutfallslega
margir Palestínumenn falli án þess
að hafa tekið þátt í óeirðum.
í skýrslunni segir að 560 Pa-
lestínumenn hafi verið skotnir til
bana tvö fyrstu ár uppreisnarinnar
á hernumdu svæðunum, 70 hafi
látist af völdum táragass og 15
verið barðir til dauða. Talsmenn
ísraelshers segja að 543 Palestínu-
menn hafi fallið í átökum við herinn
á sama tímabili. Samkvæmt Reut-
ers-fréttastofunni hafa 607 fallið á
þessum tveimur árum.
ega yrði ekki hleypt til Kúbu og'
þá var ekki annað fyrir Laboa að
gera en láta reyna á fortöluhæfi-
leikana.
„Þú færð trúlega notalegan
fangaklefa með ýmsum þægindum
ef þú bíður ekki of lengi, annars
lendirðu í Alcatraz," sagði Laboa
einu sinni og minnti Noriega á
annan einræðisherra, Anastasio
Somoza, sem hrökklaðist frá Nic-
aragua og var síðan drepinn í
Paraguay.
Noriega svaraði þessu fáu til að
byija með, virtist mjög áhyggjufull-
ur og jafnvel hálfruglaður, allt
öðruvísi en hinir flóttamennirnir í
sendiráðinu. Meðal þeirra voru til
dæmis fjórir baskneskir hryðju-
verkamenn, sem höfðu áður notið
verndar hershöfðingjans. Þeim var
lýst sem „fyrirmyndargestum“ og
þeir fóru úr sendiráðinu á undan
Noriega. Hann reyndi að halda það
út lengur en gafst upp þegar hann
heyrði hrópin í þúsundum manna,
sem safnast höfðu saman fyrir utan
sendiráðið, þar á meðal í fólki, sem
leynilögregla hans hafði pyntað.
Noriega setti þrjú skilyrði fyrir
uppgjöfinni: Að hann yrði ekki tek-
inn af lífi; að hann fengi að vera
í hershöfðingjabúningnum og yrði
fluttur burt í skjóli nætur.
Forseti Rússlands:
Framboð Jeltsíns
BORIS Jeltsín, einn af þekktustu
leiðtogum umbótasinna á sovéska
þinginu, verður í framboði til
embættis forseta Sovétlýðveldis-
ins Rússlands í mars, að sögn
danska blaðsins Jyllands-Posten.
Jeltsín var tilnefndur forsetafram-
bjóðandi af kjósendum í Ramenkíj-
hverfi í Moskvu. Hann var áður
flokksformaður í Moskvu en féll í
ónáð er hann gagnrýndi Míkhaíl
Gorbatsjov fyrir seinagang í umbóta-
baráttunni. Rússland er lang-stærsta
og fjölmennasta lýðveldi Sovétríkj-
anna.
Reuter
Lestarslys íPakistan
Fundist hafa yfir 300 lík á slysstað á Sangi-brautarstöðinni nálægt
borginni Sukkur í Pakistan þar sem farþegalest ók á fullri ferð á
vöruflutningalest á miðvikudag. Meira en 400 slösuðust og enn er
óvíst hve margir týndu lífi. Stjórnandi farþegalestarinnar komst lífs
af, mikið slasaður, og segir hann járnbrautarstarfsmenn hafa sagt sér
að leiðin væri greið framundan. Hann hefði ekki séð hina lestina, sem
var ekki á ferð, fyrr en of seint. Umræddir starfsmenn er flúnir, að
sögn lögreglu. Benazir Bhutto forsætisráðherra hefur fyrirskipað rann-
sókn á tildrögum slyssins.
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, sem
glöddu mig meÖ heimsóknum, gjöfum og
heillaóskum á áttrœÖisafmœli mínu 31. des-
ember sl.
Guð blessi ykkur öll á nýja árinu og alla tíma.
Vilborg Helgadóttir,
Eystra-Súlunesi.
Atökin á hernumdii svæðunum:
Skýrsla Amnesty vek-
ur harkaleg viðbrögð
Starfsmenn bandaríska eiturlyfjaeftirlitsins leiða Noriega um borð
i flugvélina, sem flutti hann til Bandaríkjanna.
Músíkleikfimin
hefst mánudaginn 15. janúar.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur
á öllum aldri.
Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer
fram í íþróttahúsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022
um helgar og virka daga i sama síma
eftir kl. 16.
Samskipti foreldra og barna
Ný námskeið eru að hefjast.
Leiðbeinendur:
Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingar.
Upplýsingar og skráning í símum 621132 og 626632.