Morgunblaðið - 21.01.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.01.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990 C 31v Gunnar Ormslev blæs í tenórsaxafóninn. KK sextettinn 1948. Fremst frá vinstri: KK, Gunnar Ormslev, Guðmundur Vil- 'bergsson, Steinþór Stein- grímsson og fyrir aftan Svavar Gests við trommurnar og Hall- ur Símonarson á kontrabassa. SÍMTALID... ER VIÐ KATRÍNU ÓSKARSDÓTTUR HJÁ KJÓLFÆXLEIGU KATRÍNAR. ____ ÍKJÓL OGHVÍTT 76928 Halló. - Já, er þetta hjá Katrínu? Jú, Katrín hér. - Komdu sæl, þetta er Kristín Maija Baldursdóttir á Morgunblað- inu, ert þú ekki með kjólfataleigu? Jú. - Hvenær nota karlmenn kjólföt, - eru þeir ekki löngu hættir því? Nei, það er heilmikið að aukast get ég sagt þér. Það eru margir sem gifta sig í þeim, og þá klæðast oft svaramennirnir þeim líka, svona við stærri brúðkaup. Nú þegar menn fara sem gestir í eitt skipti í stúkur eða reglur þá leigja þeir sér föt. Svo kemur fyrir að ég leigi söngvurum . . . - . . . Já, þeir eru auðvitað allt- af í kjólfötum. Oft, ef það eru fínni tónleikar. Ungir menn fá líka leigð kjólföt, ég leigði tveimur núna síðast á laugardaginn sem voru að fara á árshátíð. - í kjólfötum?? Já já, það er mikið að aukast að ungir menn noti kjólföt. - Ég skal segja ykkur það, og hvernig stendur á því? Ég get nú varla svarað því, ja fólk er bara orðið fínna heldur en það var. - Einhver tíska? Ekki tíska held ég, því kjólföt verða alltaf fínustu spariföt herra. Þetta er meira spurning um tíðarandann. - En hvað áttu mörg kjólföt? Nú fórstu al- veg með mig, bíðum nú við, maður getur nú aldrei legið með mikið magn af fatnaði, ætli ég sé ekki með fimmtán föt í öll- um stærðum. Nú svo er allt sem tilheyrir, skyrtan, vestið, slaufan, axla- böndin . •. . - Það er sem sagt hægt að fá allt. Já, að vísu er ég ekki með pípu- hatta. - Er nokkur sem notar þá? Jú, t.d. á peysufatadegi Verslun- arskólans, þá er spurt um pípuhatta hér daginn út og daginn inn. - En hvað ertu búin að vera með þessa leigu lengi? Ég er búin að vera með brúðar- kjólaleiguna í fimm ár, síðar komu smokingar, kjólföt og núna síðast samkvæmiskjólar. - Er mikið um að fólk noti sér þessa þjónustu? Já og eykst stöðugt. Það er nauð- synlegt að geta leigt sér svona fatn- að, sérstaklega fyrir fólk sem þarf ekki að nota hann nema kannski einu sinni til tvisvar á ári. - Hvernig fékkst þú þessa hug- mynd? Mér féll það ekki vel að þurfa að vinna úti, því ég var með börn og heimili, og fór þá að hugsa hvað ég gæti gert. Svo var ég stödd í verslun og heyrði þá einhvern segja hvað það væri slæmt að geta ekki leigt sér brúðarkjól. Þeir eru jú bara notaðir einu sinni, eru rándýr- ir, og mikið umstang að láta sauma þá. Ég held að hugmyndin hafi orðið til þá. - Svona inni í verslun, alveg óvart!? Já, en ég hafði nú líka þekkt konu sem var einnig með leigu, þannig að ég var ekki alveg ókunn- ug- - Þeir fara þá að koma til þín herramennimir núna þegar árshátíðir byija? Jú það vona ég, og með dömurnar með sér til að fá samkvæmiskjóla! - Að sjálf- sögðu. Jæja, Katrín, ég þakka þér fyrir spjallið og gangi þér vel. Jú þakka þér fyrir. Katrín Óskarsdóttir FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍÐ STUNDUM ÞYKIR æskilegt að takmarka þjónustu við almenna borgara í þeim tilgangi að fyrirbyggja óæski- legar samkomur, ólæti eða „hangs“. Má t.d. minnast áforma um styttri opnunartíma pylsuvagna og greiða- sölu í miðbænum um helgarnætur. Á fyrri hluta sjöunda ártugar- ins var ráðist gegn „sjoppuhangsi" með skyldum aðferðum. r Osæmilegtog ónauðsynlegt ■ Sjoppuhangs 1964 ; DosW-visi ní'-t Jeppuhangsið ur sc"""”. Ctm * •**? Sjoppumar hafa víða verið til ónæðis. Það hefur verið algengt að unglingar úr hverfunum hafi safnazt saman inn í sjoppunum og hangi þar fram eftir öllum kvöld- um, þambandi gosdrykki, og temj- andi sér miður góða mannnasiði. Það er alkunna, að stundum þegar fólk hefur komið inn í sjoppurnar til að kaupa ýmsar vörur, sem það hefur vanhagað um, hefur það orð- ið fyrir ágangi og dónalegu orð- bragði þessa unga fólks og oft hefur ekki orðið svefnsamt í næstu húsum.“ Fyrrgreint má lesa i fréttagrein í dagblaðinu Vfe/þriðju- daginn 7. apríl 1964. — Hér var þó ekki „hefðbundin neikvæð frétt" heldur var fyrirsögnin „Umbætur á þjónustu". Og umbæturnar voru m.a: „Með nýju reglununj er verið að afnema sjoppustandíð svokall- aða sem viðgengizt hefur undan- farin ár í öllum hverfum borgarinn- ar. í staðinn fyrir sjoppurnar eins og þær hafa verið munu nú koma sölugöt eða lúgur, viðskiptamenn- imir standa á stéttinni fyrir utan lúguna og fá þar afgreiðslu.“ Umbætur Tilefni þessara fréttaskrifa Vísis var að fyrsta dag aprílmánaðar hafði ný samþykkt um afgreiðslu- tíma verslana o.fl. tekið gildi. Af- greiðslutími verslana var lengdur verulega en aftur á móti var starf- semi söluturna takmörkuð — aðal- lega að því er virðist - af tillits- semi við borgarana og umhyggju fyrir æskulýðnum. „Umbæturnar" áttu sér nokkurn aðdraganda. Snemma árs 1962 rit- uðu Kaupmannasamtök íslands borgarráði bréf um nauðsyn breyt- inga á lokunartíma sölubúða. Páli Líndal skrifstofustjóra borgarstjóra og Sigurði Magnússyni formanni Kaupmannasamtakanna var falið þetta mál til athugunar. Vísir sagði frá því 5. des. 1962 að tvímenning- amir leggi til að ein verslun í hveiju bæjarhverfi yrði opin til kl. 22, einnig á sunnudögum. Enn- fremur var greint frá því að leitast hafi verið við „eftir því sem unnt er með lögum og reglum, að sporna við hangsi barna og unglinga á sölustöðum, það er í verzlunum og söluturnum“, að sögn blaðsins var gert ráð fyrir því að söluturnum skyldi lokað eigi síðar en kl. 10 á kvöldin. Árið 1963 tóku tillögumar á sig fyllri mynd m.a. um sölulúgur sölutuma. Sigurður Magnússon sagði í viðtali við Vísi 17. sept 1963 að í söluturnunum hefði verið leiðinda- og ómenningarbragur sem almennt muni vera áhugi fyrir að uppræta. Og með reglunum: „Unnið að því að koma í veg fyrir ósæmilega og ónauðsynlega úti- veru óþroskaðra unglinga að kvöldi." Sölutumaeigendur voru þessu ósammála og söfnuðu t.a.m. undir- skriftum þar sem takmörkunum var mótmælt. Greinargerð frá þeim birtist í blöðunum 18. og 19. sept- ember. Þeir sögðu m.a. að tilgang- ur reglnanna væri að lama eða eyðileggja starfsemi þeirra, draga sölu frá þeim til „annarra aðila“, væntanlega til þeirra verslana sem fengu að vera opnar á kvöldin og bentu á að óvíst væri með kvöld- sölu verslana vegna kjarasamninga verslunarmanna (og reyndust í því efni sannspáir). Sölutumaeigendur sögðu lúgufyrirkomulag færa neyslu út á götur og óþrif hljótast af. Þeir mótmæltu því að sjoppu- hangs ætti sér almennt stað. Haf- liði Jónsson píanóleikari og sölu- turnseigandi á Njálsgötu 1 sagði í samtali við Þjóðviljann 18. septem- ber, að í eina tíð hefði nokkuð ver- ið um sjoppuhangs þegar glym- skrattarnir eða ,jukeboxin“ tíðkuð- ust, en tæpast lengur. Málið var tekið til meðferðar í borgarráði 19. september. Nokkar breytingatillögur komu fram og var sú veigamest að söluturnum var heimilað að hafa lúguna opna fram til kl. 23.30. Betri bæjarbrag’ur Sem fyrr var getið komu regl- urnar til framkvæmda 1.‘ apríl 1964. Þórhallur Halldórsson heil- brigðisfulltrúi Reykjavíkurborgar greindi frá því, 25. apríl í Vísi, að kvöldsölustöðum hefði fækkað úr 107 í 75, hann fagnaði endalokum „sjoppuhangsins": „í heild mætti segja að þaulsetur unglinga á þess- um stöðum væru úr sögunni og bæjarbragurinn að því leyti þegar orðinn allur annar og ánægjulegri." - En ókleift reyndist að fram- fylgja þessum reglum. Nokkuð var um að hurðir söluturna „hrykkju upp“ en einnig minnast fáeinir við- mælendur Morgunblaðins nú á aldrinum 37 til 45 ára þess að hafa hangið við sjoppulúgur. Mæð- ur þessara einstaklinga hafa einnig haft á orði að „sjoppustöður" hafi verið þeim verulegt áhyggjuefni, m.a. vegna þess að unglingunum var ósýnt um að klæða sig eftir veðri. Fljótlega sótti því aftur í gamla farið og í dag á reykvískur æskulýður þess kost að hanga í sjoppum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.