Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLÍAÐKV ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1090 '■< Hatton-Rockall svæðið: Boði Breta um tvíhliða viðræður verði tekið -segir í bókun firá utanríksmálanefnd Alþingis Utanríkismálanefiid Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær bókun þess efhis að forsætisráðherra svari hið fyrsta bréfi frá Margaret Tatcher, forsætisráðherra Bretlands frá 7. desember síðastliðnum og þiggi boð hennar um áframhaldandi tvíhliða viðræð- ur um hafsbotnsréttindi á Hatton-Rockall svæðinu. Það verði gert í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. í bréfi Tatchers segir hún meðal annars svo: „Eftir að hafa skoðað málið aftur er ég sannfærð um að norðurhluti Hatton-Rockall slétt- unnar tilheyrir brezka landgrunn- inu og enginn grundvöllur er í al- þjóðalögum fyrir þeim kröfum sem skarast og settar eru fram 1985 af Danmörku og síðan íslandi. Við höfum náð samkomulagi við írska lýðveldið um markalínu sem nær þvert yfir hásléttuna. Við eru um það bil að festa í brezk lög línuna sem samkomulag er um. Undir þessum kringumstæðum eru nauðsynlegar forsendur fjórhliða viðræðna til að nálgast spurning- una um skiptilínur ekki fyrir hendi. Þetta útilokar hins vegar ekki að skiptast á tvíhliða skoðunum og við erum mjög fús að halda áfram viðræðum milli Bretlands og íslenzkra sérfræðinga í lögum, sem byrjuðu fyrir nokkrum árum. Ef þér eruð því sammála að þetta geti verið gagnlegt til að færast nær viðfangsefninu mundi sendi- herra yðar ef til vill seta sig í sam- band við brezka utanríkisráðuneyt- ið.“ Eyjólfur Konráð Jónsson, al- þingismaður, sagði í samtali við Morgunblaðið, að bréf Tatcher’s væri það jákvæðasta, sem frá Bret- um hefði borizt í umræðunum um Hatton-Rockall svæðið. Alþingi hefði ályktað um það í á annan áratug, að leggja áherzlu á sam- vinnu nágrannalandanna um mögulega nýtingu á þessu svæði. Hins vegar væri það eðlilegt að Bretar teldu nú ekki forsendur fyrir fjórhliða viðræðum til að nálgast spurninguna um skiptilín- ur, þar sem samkomulag hefði náðst milli þeirra og íra um mark- alínu þvert yfir Hatton-Rockall hásléttuna. VEÐURHORFUR í DAG, 23. JANÚAR. YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á VI, VII, VIII, Norður- djúpi, Austurdjúpi, Færeyjadjúpi og Suðausturdjúpi. Um 200 km norður af Melrakkasléttu er 960 bm lægðarmiðja sem fjarlægist. Álíka djúp lægð skammt fyrir vestan land mun grynnast. Um 800 km suður af landinu er vaxandi 970 mb lægð á hreyfingu norðaust- ur. Hiti breytist lítið í fyrstu, en á morgun fer að kólna. SPÁ: Norðan og norðvestan hvassviðri eða stormur með snjókomu norðaustanlands, norðan kaldi eða stinningskaldi og él norðvestan- lands en hæg norðvestanlæg eða breytileg átt og dálítil él suðvest- urlands, en úrkomulítið suðaustanlands. Kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðlægátt. Snjó- koma eða éljagangur norðanlands, einnig dálítil él við vesturströnd- ina á miðvikudag en annars léttskýjað um alit suðvestanvert landið. Frost 4-10 stig. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus V y Skúrir Él = Þoka = Þokumóða ’ , » Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veöur Akureyrl 1 skýjað Reykjavík 0 skýjað Bergen 8 alskýjað Helsinkí +10 kornsnjór Kaupmannah. 8 þokumóða Narssarssuaq - vantar Nuuk vantar Osló vantar Stokkhólmur 2 rigning Þórshöfn 6 hálfskýjað Algarve 16 léttskýjað Amsterdam 9 súld Barcelona 11 léttskýjað Berlín 10 skýjað Chicago 1 aiskýjað Feneyjar 1 þoka Frankfurt 5 skýjað Glasgow 7 skúr Hamborg 9 rigning Las Palmas 19 léttskýjað Lóndon 11 skýjað Los Angeles 12 heiðskírt Lúxemborg 1 þoka Madríd 6 léttskýjað Malaga 15 léttskýjað Mallorca vantar Montreal vantar New York vantar Orlando 20 skýjað París 5 rigning Róm 13 þokumóða Vín 10 skýjað Washington vantar Winnipeg +7 léttskýjað Morgunblaðið/Sigurgeir Ólafúr Guðmundsson og Ágúst Einarsson gera við skemmdirnar í brú skipsins. V estmannaeyjar: Loðnuskipið Gígja fékk á sig brotsjó Vestmannaeyjum. LOÐNUSKIPIÐ Gígja VE fékk á sig brotsjó á sunnudag er hún var við Hrolllaugseyjar á leið til Eyja með loðnufarm. Engin slys urðu á mönnum en talsverðar skemmdir urðu í brú skipsins. Brotsjór skall á brúnni bakborðs- megin og fór gegnum glugga á brúnni. Talsverður sjór komst í brú skipsins og fór hann í rafmagns- töflu þannig að skipið varð raf- magnslaust. Skipstjóri og vélstjóri voru í brúnni er brotið reið yfir en þá sak- aði ekki. Sighvatur Bjarnason VE var á svipuðum slóðum og Gígja er óhappið varð og fylgdust bátarnir að til Eyja. I gær var unnið að viðgerð á Gígju. Sjór hafði komist í tæki og var unnið að því að hreinsa þau auk þess sem unnið var að lagfæringum á því sem brotsjórinn skemmdi. Vonast er til að viðgerð á Gígju ljúki í kvöld og hún komist þá á veiðar á ný. Grímur Skoðanakönnun FII: 72% vilja íslenskar vörur í stað erlendra í skoðanakönnun, sem Gallup vann fyrir Félag íslenskra iðnrek- enda í desember sl. sögðu 72% aðspurðra að fremur ætti að velja innlendar iðnaðarvörur en erlendar. Til samanburðar má nefiia að í desember 1988 voru 66,5% þessarar skoðunar og í janúar í fyrra 68,5%. I könnuninni i desember sl. kom einnig fram, að 60% að- spurðra töldu smásöluverð innlendrar vöru hærra en erlendrar. Þetta kemur fram í nýútkomnu fréttariti Félags íslenskra iðnrek- enda, Á döfinni. Þar segir enn frem- ur, að þegar umrædd 72%, sem vildu velja íslenskt fremur en er- lent, voru spurð hvers vegna fólk ætti fremur að velja íslenskar iðnað- arvörur nefndu 22,4% þeirra að það væri til að tryggja atvinnu. Þegar fólk var spurt nánar sögðu 63% að það ætti að styrkja íslenskan iðnað. í könnuninni í desember var fólk- ið, 1000 manna úrtak á aldrinum 15 til 70 ára, beðið um að bera saman innlendar vörur og erlendar sem það kaupir að jafnaði. Þá töldu 24% þeirra gæði íslenskra iðnaðar- vara vera meiri, 6% minni, 37% álíka en 30% misjöfn. En 4% töldu verðið á íslenskum vörum almennt betra, 60% verra, 14% álíka og 17% misjafnt. Þegar að gæðum hráefna kom töldu 47% að íslensk hráefni væru betri, 5% verri, 23% álíka en 17% misjöfn. Sjálfstæðismenn á Selfossi: Bryndís efet í prófkjörinu Selfossi. ÚRSLIT í profkjöri sjálfstæðis- manna á Selfossi vegna niðurröð- unar á framboðslista við bæjar- stjórnarkosningarnar í vor urðu þau, að Bryndís Brynjólfsdóttir, * Arangurs- laus fundur með Sleipni SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu Sleipnis, félags langferðabíl- stjóra, og viðsemjenda þeirra hjá ríkissáttasemjara í gær var ár- angurslaus og lauk án þess að boðað væri til annars fundar. Stjórn og trúnaðarráð Sleipnis fundaði í gærkvöldi um stöðu mála, en kjarasamningur þeirra gekk úr gildi um áramót. Sleipnismenn voru í þriggja daga verkfalli í síðustu viku. bæjarfúlltrúi og framkvæmda- sfjóri, varð efst. Sigurður Jónsson kennari í öðru sæti og Björn I. Gíslason, háskerameistari í þriðja sæti. Prófkjörið, sem var á laugar- dag, var bindandi í þijú efstu sæti á lista flokksins. í fjórða sæti varð Haukur Gísla- son, bæjarfulltrúi, Þorgeir Ingi Njálsson, hérðasdómari í fimmta, Ingunn Guðmundsdóttir, banka- starfsmaður í sjötta sæti, í því sjö- unda varð Óskar Jónsson, bygginga- riðnfræðingur, áttunda Svavar Valdimarsson, byggingaverktaki og því níunda Sigurður Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Frambjóðendur í prófkjörinu voru 19 talsins og í kosningunni var merkt við 9 framnbjóðendur. Ails tóku 517 þátt í prófkjörinu. Sjálf- stæðismenn eiga þrjá fulltrúa í bæj- arstjórn, Brynleifur H. Stein- grímsson, oddviti þeirra og forseti bæjarstjórnar, gaf ekki kost á sér í prófkjörinu. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.