Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1990 Nýir möguleikar við flutning á hrááli Hugmyndir um staðsetningu álvers í Þorlákshöfii ræddar Selfossi. Á FUNDI Sambands sunnlenskra sveitarfélaga og Alþýðusambands Suðurlands á Selfossi 12. janúar kom fram stuðningur við athuganir á möguleikum til staðsetningar álvers við Þorlákshöfh. Á fundinum voru flutt erindi um þætti sem snerta staðsetningu álvers. Þar kom fram í máli Edgars Guðmundssonar verkfræðings að nýir möguleik- ar hafa skapast við flutning á hrááli til landsins. Þessir möguleikar styrkja þá hugmynd að álver rísi í Þorlákshöfti. Iðnaðarráðherra flutti ávarp á fundinum og sagði meðal annars að þörf væri á nýju álveri fyrir efna- hagslífið og að það væri hagsmuna- mál fyrir þjóðina að það risi sem fyrst. Þeir möguleikar sem Edgar Guðmundsson benti á byggjast á því að flytja hráál til Rotterdam með stórum skipum og þanað til íslands með minni skipum. Hann sagði staðarvalsnefnd gera of mikið úr hafnarmálum í Þorlákshöfn. Á fundinum voru flutt erindi um aðflutning orku, atvinnumarkað á svæðinu, hafnarmál, staðarval ál- vers, skipaflutninga, útflutning jarðefna og álit heimamanna. Fundinn sátu þingmenn kjör- dæmisins, fulltrúaráð Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og stjórn Alþýðusambands Suðurlands. I lok fundarins var samþykkt eftirfar- andi ályktun: „Fundur Sambands sunnlenskra Edgar Guðmundsson verkfræð- ingur í ræðustól. sveitarfélaga og Alþýðusambands Suðurlands haldinn 1. janúar 1990 styður heilshugar athuganir á möguleikum til staðsetningar álvers við Þorlákshöfn. Greinargerð: Þær athuganir sem þegar hafa verið gerðar benda ótví- rætt til þess að skilyrði séu fyrir hendi við Þorlákshöfn varðandi byggingu og rekstur álvers. í þessu sambandi blasa við augljósir kostir, svo sem hagkvæmir orkuflutningar og nálægð við orkuver, Eins eru nú þegar fyrir hendi góðar sam- göngur á sjó og landi. í kringum þéttbýlið við Þorlákshöfn er mikið landsvæði sem auðvelt væri að tengja hafnarmannvirkjum. Um- hverfisaðstæður eru með tilliti til þétbýlis, gróðurs og mengunar óvíða jafn góðar og á þessu svæði. Varðandi mannafla er bent á atvinnusvæði í góðum samgöngu- legum tengslum sem telur 10-15 þúsund íbúa, Árborgarsvæðið og nærsveitir. í þessu sambandi og til áréttingar er eins bent á skýrslu Alþýðusambands Suðurlands þar sem fram kemur að íbúasvæðið getur vel annað þeirri eftirspurn eftir mannafla sem skapast myndi ef stóriðja á borð við álver yrði reist í Þorlákshöfn. - Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jðnsson. Frá fúndinum á Selfossi um staðsetningu álvers í Þorlákshöfn. Varanlenar vestur-þýskar gæðavðrur frá BOSCH JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF. 43 Sundaborg 13 -104 Reykjavlk - Sími 688 588 Morgunblaðið/Þorkell Á myndinni sést hvar dr. Olafúr R. Dýrmundsson afhendir Jón- asi Jónssyni búnaðarmálastjóra og Þorsteini Tómassyni for- stjóra Rannsóknarstofúunar landbúnaðarins styrk úr Minningar- sjóði dr. Halldórs Pálssonar búnaðarmálastjóra. Fyrsta úthlutun úr Minningarsjóði dr. Halldórs Pálssonar FYRSTA úthlutun ur Minnmgarsjoði dr. Halldors Palssonar búnaðarmálastjóra fór nýlega fram, en þá var veittur styrkur til kaupa á hljóðmyndatæki að upphæð 550 þúsund krónur. Tækið verður í umsjá Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins og Búnaðarfélags íslands, og er það gefið til rannsókna á fitu- og vöðvahlutföllum sauðfjár. Með því er unnt að mynda og mæla fitu- og vöðvaþykkt í hrygg á lifandi gripum, en slíkar mæling- ar tengjast vefjahlutfóllum skrokksins alls. Minningarsjóður þessi var stofnaður þann 18. ágúst 1989 í lok alþjóðlegs fræðafundar um sauðfjárrækt, sem haldinn var í Reykjavík til minningar um dr. Halldór Pálsson, en hann var meðal fremstu brautryðjenda í rannsóknum á vexti og kjötgæð- um sauðfjár, og mótaði öðrum fremur rannsóknir og leiðbeining- ar í íslenskri sauðfjárrækt um Iangt árabil. Sjóðnum er ætlað að stuðla að hvers kyns fram- förum í sauðfjárrækt, vinnslu sauðfjárafurða og sölu þeirra, og skulu framlög úr honum einkum veitt til námsstyrkja, rannsókna og vöruþróunar, eða til verðlauna fyrir framúrskárandi árangur á ofangreindum sviðum. Ýmis félög bænda, stofnanir og fjöldi ein- staklinga hafa lagt fram stofnfé sjóðsins, en stjórn hans skipa dr. Olafur Dýrmundsson, sem er for- maður, Böðvar Pálsson, Búrfelli, Einar E. Gíslason, Syðra-Skörð- ugili, Ólafur Sverrisson og dr. Sigurgeir Þorgeirsson. Með styrkveitingunni að þessu sinni vill minningarsjóðurinn efla starf sem miðar að því að mæta kröfum neytenda um fituminna dilkakjöt, en það telur sjóðstjómin vera meðal brýnustu hagsmuna- mála sauðfjárbænda um þessar mundir. Undanfarið hefur verið lögð sívaxandi áhersla á rann- sóknir og leiðbeiningar sem stuðli að auknum vöðvaþroska en minnkandi fitusöfnun lamba, en skortur á einfaldri og öruggri mælitækni til að meta þessa eigin- leika á lifandi gripum hefur tafið framfarir. ■ DAGATAL flugsins 1990 er komið út. Dagatalið er prýtt litljós- myndum úr flugi á íslandi en á forsíðu þess er mynd af Concorde, tákni framfara á sviði flugsins, á flugi yfir Reykjavík. Myndirnar á dagatalinu tók Pétur P. Johnson og eru þær úr ýmsum greinum flugsins, m.a. úr svifflugi, vélflugi, drekaflugi, módelflugi, _ fallhlífa- stökki og áburðarflugi. Á dagatal- inu er að finna margvíslegar upp- lýsingar, s.s. dagsetningar allra flugöryggisfunda 1990, en slíkir fundir verða haldnir í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, upplýs- ingar um öll mót í öllum-greinum flugíþrótta, upplýsingar um allar flugkomur og aðrar uppákomur flugáhugamanna auk fundardaga ýmissa áhugamannafélaga. Enn- fremur er við hvem dag gefinn rökkurtími (myrkur) miðsvæðis milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Dagatal flugsins 1990 fæst m.a. hjá forráðamönnum flestra flug- klúbba á Islandi. ■ / FERÐAÁÆTLUN Ferðafé- lags Islands fyrir árið 1990 er boðið upp á nýjung sem eru sérstak- ar ferðir til kynningar á árstíðunum í Heiðmörkinni. S.ú fyrsta nefnist Heiðmörk að vetri og verður farin næstkomandi sunnudag 21. janúar. I augum flestra er Heiðmörkin líklega fyrst og fremst sumarland til útiveru, en hún getur einnig ver- ið heillandi á veturna. í árstíðar- ferðunum verður jafnan farið í skógarreit Ferðafélagsins, en árið 1950 fékk félagið úthlutað spildu í Heiðmörkinni þar sem gróðursett hafa verið um hundrað þúsund tijáplöntur. Þangað hafa verið farn- ar gróðursetningarferðir á hverju vori og á síðari árum til grisjunar og áburðargjafar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.