Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 23
ÍíÓRduNBLAÐIÐ ÞRlÐJÚÖÁGtlR 23. JAltÚAR 1990 23 Bretland: Sir Anthony Meyer ekki studdur til þingfram- boðs á ný St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari FVímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs- ins. Ihaldsflokkurinn í Clwyd í Norður-Wales hafnaði því að styðja Sir Anthony Meyer á ný til framboðs til þings. Hann heíur ekki útilokað að bjóða sig fram utan flokka í kjördæminu í næstu kosningum. Sir Anthony Meyer bauð sig fram til leiðtoga gegn frú Margaret Thatcher sl. haust. Hann fékk að- eins 33 atkvæði. í framhaldi af því ákvað íhaldsflokkurinn í kjördæmi hans sl. föstudag að styðja hann ekki til framboðs á ný í næstu kosn- ingum. Mjög afgerandi meirihluti flokksmanna var andsnúinn hon- um. Það hefur ekki gerzt í 30 ár að íhaldsflokkurinn hafi neitað að styðja þingmann til framboðs í kjör- dæmi sínu. Þá neitaði flokkurinn í Bournemouth að styðja þáverandi þingmann sinn vegna andstöðu hans gegn innrás Breta í Súez. Sir Anthony sagði um helgina, að hann myndi hafa óbundnar hend- ur fram að næstu kosningum og gagnrýna stjórn Thatcher óspart á þeim tíma. Hann sagði framboð sitt í næstu kosningum ráðast af því, hvaða frambjóðanda flokkurinn í Clwyd veldi. Byði hann fram eindreginn stuðningsmann Thatcher, myndi hann fara fram sem óháður fram- bjóðandi. Meirihluti Sir Anthonys við síðustu kosningar var mikill og hann nýtur verulegs persónufylgis í kjördæminu. Framboð hans gæti því orðið íhaidsflokknum skeinu- hætt í þessu kjördæmi. ■ WASHINGTON - Vaclav Ha- vel, forseti Tékkóslóvakíu, mun á næstunni sækja heim ráðamenn í Moskvu og Washington og leggja að hvorumtveggja að draga heri sína frá Evrópu. Ekki er enn fullráð- ið hvenær Havel fer en búist er við, að hann verði í Moskvu um mánaðamótin næstu en í Washing- ton um miðjan febrúar. H VÍN - Hans-Dietrich Gensch- er, utanríkisráðherra Vestur- Þýskalands, lét svo ummælt á sunnudag að Austurríkismanna biði beinn og breiður vegur inn í EB. Austurríki, sem lýsti yfir ævarandi hlutléysi árið 1955, sótti um aðild að EB í fyrra en Genscher sagði, að vegna þeirra miklu breytinga, sem orðið hefðu á samskiptum Evrópuríkjanna, skipti hlutleysi eða ekki hlutleysi minna máli en áður. Á A ■' ’ ■ l I nýtt, stærra og glæsilegra húsnæði Rekstrarvörur, verslunar- og tramleiðslutyrirtæki með almennar rekstrar- og hreinlætisvörur íyrir íyrirtæki og stofnanir, var eitt af þeim fyrirtækjum sem lenti í stórbrunanum að Réttaiiiálsi 2, þann 4. janúar 1989. RV hefur nú flutt starfsemi sína aftur á Réttarháls 2 í nýtt, stærra og glæsilegra húsnæði. ... 1 ^ Nú geta allir komið á RV - IVIarkað og verslað w rekstar- og hreinlætisvörur á mjög hagstæðu R. o Q I verði. RV - Markaöur er ávallt með sérstaka til- | wf I boðspakka og mánaðartiiboð sem sniöin em að þörfum stofnana, fyrirtækja og heimila sem vi|ja spara. A RV - Markaðnum eru allar vömr strika- metktar til að hraða afgreiðslu og lækka rekstarkostnað. Viöl fcúWjrtRorVl pjonusf-i —1 " .. og þu faord ALLT ÁSAMA STAÐ Þekking - Urval - Þjónusta Dw REKSTRARVÖRU R l'V Réttarhálsi2 - 110R.vik - Simar31956-685554 __L <^p REKSTRARVORUR Rv |

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.