Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1990 27 Félag starfsmanna Landsbankans; Bankamenn áttu enga möguleika gegn Garðari MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi starfsmanna Landsbanka Is- lands.: „í tilefni fréttar í Morgunblaðinu sunnudaginn 21. janúar sl. varðandi ráðningu Garðars Sigurðssonar að Landsbankanum vill stjórn Félags starfsmanna Landsbanka íslands gera eftirfarandi athugasemd við ummæli Sverris Hermannssonar bankastjóra. Bankastjórn Landsbankans ætti að vera ljóst að í kjarasamningum bankamanna er skýrt tekið fram að allar stöður sem losna er skylt að auglýsa innan bankans. Ennfremur er kveðið svo á í. kjarasamningum að bankamenn sitji fyrir við ráðningar í slíkar stöð- ur. Haft er eftir Sverri að allir haft átt jafna möguleika, en að mati stjórnar félagsins átti enginn mögu- leika þar sem Garðar hafði þegar hafið störf í bánkanum áður en umsóknarfrestur um téða stöðu var iiðinn. Reyndir og hæfir banka- menn sóttu um stöðuna, en þeim umsóknum var hafnað. Stjórn Félags starfsmanna Landsbanka íslands mótmælir harðlega stöðuveitingu þessari, og telur brot á kjarasamningum, móðgun við þá aðila sem sóttu um stöðuna, og síðast en ekki síst, að hér sé um mjög svo alvarlegt for- dæmi að ræða.“ Runólfur SH 135 i Grundarfjarðarhöfn. Grundarfj örður: Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir Runólfiir bilar á leið úr slipp Grundarfirði. TOGARINN Runólfur SH 135 frá Grundarfírði varð fyrir því óhappi seint á föstudág að skrúfuöxull fór úr sambandi og gekk aftur í stýrið. Skipið var statt út af Deild á heimleið frá Akureyri þar sem það hafði verið i slipp í rúman mánuð. „Það bara dró niður í vélinni og svo drap hún á sér,“ sagði Runólfur Ný neyðarþjónusta Al-virkis: Viðgerðarmenn til taks allan sólarhringinn AL-virki hf. er verktakafyrirtæki sem nýlega var stofnað á Suður- nesjum. Það býður upp á neyðarþjónustu allan sólarhringinn, en auk þess tekur það að sér smærri og stærri verkefni við húsbyggingar, viðgerðir og viðhald, smíði á gluggum, hurðum, innréttingum svo eitthvað sé nefnt. skipstjóri í símtali við fréttaritara. ,;Varðskipið Óðinn dró okkur inn á Onundarfjörð þar sem kafað var niður og bilunin athuguð. Þarna lágum við svo fram á laugardags- morgun en veðrið var slæmt á föstu- dag og fram á nóttina. Menn eru að vonum óhressir að fara aftur í slipp en ekki á veiðar," sagði Run- ólfur Guðmundsson að lokum. Run- ólfur SH 135 er annar af 'tveimur togurum Grundfirðinga pg leggur upp hjá Sæfangi hf. Óðinn dró Runólf til Akureyrar. Togarinn var tekinn upp í slipp hjá Slippstöðini á sunnudag og strax hafist handa við viðgerð. - Ragnheiður Lífiínan: Kristileg- ur boðskap- urígegn umsíma „FÓLK getur hringt á nóttu sem degi og hlustað á upp- örvandi kristilegan boðskap eða valið fyrirbæn og leið- beiningar," sagði Eiríkur Sigurbjörnsson sem nýlega stofiiaði Líflínuna, sem er kristileg símaþjónusta. Líf línan var opnuð í desem- ber síðastliðinn og sagði Eirík- ur að frá upphafi hafi mörg hundruð manns hringt inn. Hann sagði að fólk gæti lagt inn skilaboð eftir að hafa hlustað á boðskapinn og þá er haft samband við það og reynt að hjálpa því eftir óskum þess með fyrirbænum og upp- örvun. „Við erum nokkur sem stöndum fyrir þessu. Við not- um tölvutækni, svipaða og símabankamir nota. I framtíð- inni munum við bæta við upp- lýsingum um kristilegt efni í útvarpi og sjónvarpi, góðar bækur, fyrirlestra, fréttir utan úr heimi og fleira. Ég ákvað að byija þar sem neyðin er mest. Það eru marg- ir sem þola skammdegið illa og eitthvað þarf að gera fyrir þetta fólk," sagði Eiríkur. Símanúmer Líflínunnar er 91-623700. Leiðrétting í ættfræðipistli Guðjóns Friðriks- sonar í sunnudagsblaðinu misritað- ist nafn Jóns Ragnars Jónassonar. Var hann sagður heita Jón Einar Jónasson. Morgunblaðið biðst vel- virðingar á mistökunum. Grétar Guðlaugsson, einn eig- enda Al-virkis hf. sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið taki að sér ákveðin verkefni og sér síðan um að útvega þá iðnaðarmenn sem þarf til verksins. Að fyrirtækinu standa fimm menn, þar af fjórir smiðir. Neyðarþjónustan byggist á því að ef t.d. pípulögn bilar eða rúða brotnar er hægt að hringja í ákveð- ið númer hjá Al-virki, hvenær sólar- hringsins sem er, og þeir senda við- FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 22. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 86,00 70,00 82,07 53,776 4.413.370 Þorskur(óst) 72,00 64,00 68,88 1,675 115.369 Þorskur(smár) 54,00 30,00 40,61 1,222 49.620 Ýsa 125,00 87,00 116,88 13,538 1.582.205 Samtals 86,05 75,952 6.535.145 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 80,00 52,00 69,05 16,715 1.154.197 Þorskur(ósl.) 70,00 60,00 66,84 4,097 273.847 Ýsa 103,00 65,00 90,38 2,227 201.270 Ýsa(ósl.) 122,00 65,00 92,75 3,165 293.546 Ufsi 40,00 40,00 40,00 0,036 1.440 Samtals 72,76 33,466 2.435.105 i dag verða meðal annars seld 12 tonn af ýsu og 18 tonn af grálúðu úr Jóni Baldvinssyni RE og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Linuþorskur 104,00 72,00 89,47 7,197 643.924 Þorskur(1-2n) 82,00 53,00 70,51 43,761 3.085.463 Ýsa 110,00 40,00 95,33 7,544 719.130 Karfi 43,00 36,00 42,14 3,254 137.116 Ufsi 43,00 17,00 42,59 19,911 848.071 Samtals 66,05 89,023 5.880.289 I dag verður selt óákveðið magn úr línu - og netabátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 15. til 19. janúar. Þorskur 142,33 116,315 16.554.616 Ýsa 226,92 4,575 1.038.154 Ufsi 103,34 1,200 124.014 Grálúða 158,72 1,125 178.564 Samtals 145,41 123,325 17.932.283 Selt var úr Gullveri NS f Grimsby 18. janúar. GÁMASÖLUR í Bretlandi 15. til 19. janúar. Þorskur 129,42 465,235 60.208.911 Ýsa 193,60 101,959 19.739.221 Ufsi 99,42 5,791 575.781 Karfi 92,08 4,635 426.775 Koli 170,13 16,998 2.721.665 Samtals 141,13 626,922 88.479.580 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 15. til 19. janúar. Þorskur 120,32 0,846 101.793 Ufsi 97,80 - 32,420 3.170.587 Karfi 136,11 107,915 14.688.538 Samtals 118,59 155,365 18.425.376 Selt var úr Margréti EA í Bremerhaven 15. janúar. gerðarmenn á staðinn á innan við klukkustund hvar sem er á Suður- nesjum eða á höfuðborgarsvæðinu. Efni og verkfæri eru tilbúin á kerru sem skellt er aftan í bíl og lagt af stað. Grétar sagði að fyrirtækið væri það nýtt að enn væri ekki komin reynsla á þessa þjónustu. Nú er verið að kynna hana t.d. hjá öllum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Lítil veiði vegna brælu LÍTIL loðnuveiði hefúr verið und- anfarna daga vegna brælu á mið- unum fyrir austan land. A sunnudag tilkynntu þessi skip um afla: Sighvatur Bjamason 700 tonn til FIVE, Gígja 670 til FES, Fífill 260 til SR á Seyðisfirði, Börk- ur 100 til Neskaupstaðar, Sjávarborg 300 til Eskifjarðar, Háberg 200 til Eskifjarðar, Sunnuberg 230 til Eski- fjarðar, Þórshamar 100 til Eskifjarð- ar, Bergur 50 til Eskifjarðar, Víkur- berg 160 til Neskaupstaðar og Júpít- er 300 til Eskifjarðar. Kveimalistakomir báðu ekki um dóm forseta Alþingis MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi athugasemd frá kvennalistakonum: „Misskilnings gætir í grein Þor- steins Pálssonar í Morgunblaðinu laugardaginn 20. janúar sl., þar sem hann fjallar um þátt Kvennalistans og forseta Alþingsi í bankaráðsmál- inu. Kvennalistakonur báðu ekki for- seta Alþingis að kveða upp neinn dóm í því máli. Þær leituðu aðeins fulltingis forseta við að fá álit til þess hæfra aðila, sem þær töldu fyrst og fremst vera Bankaeftirlit Seðlabankans og Lagastofnun há- skólans, en eins og Þorsteinn veit er það vissum vandkvæðum bundið fyrir þingmenn og þingflokka að leita sjálfir álits Lagastofnunar háskólans. Það er svo aftur annað mál, að forsetar leituðu aldrei álits Laga- stofnunar, eins og um var beðið. Það sem hins vegar skiptir mestu er, að kvennalistakonur nýttu til- efnið til víðtækrar umfjöllunar og fengu þijár nokkuð ítarlegar álits- gerðir með þrenns konar niðurstöð- um, sem leiddu það glöggt í ljós, hversu ófullnægjandi reglur um þessi efni eru. Ur því verður að bæta, og að því munu kvennalista- konur vinna. Þær hafa þegar lagt fram á Alþingi fyrirspurn um full- trúa í stjórnum og ráðum peninga- stofnana hins opinbera og ennfrem- ur tillögu til þingsályktunar um setningu reglna um stjórnir pen- ingastofnana. Rækjutogarinn Drangavík ST: Reglurnar iim spilbúnaðinn taka ekki gildi fyrr en 1. júlí REGLUR um spilbúnað í skipum frá 1988 taka gildi 1. júlí n.k. sam- kvæmt upplýsingum Magnúsar Jóhannessonar siglingamálastjóra, þegar Morgunblaðið ræddi við hann um vöntun á grandaspili í rækju- togaranum Drangavík ST. Siglingamálastjóri sagði einnig, að haf- færnisskírteini togarans rynni út 10. febrúar og það væri Ijóst fyrir að togarinn þyrfti að fara í skoðun. Magnús sagði ennfremur að það kæmi fyrir að ekki væri hægt að Ijúka ákveðnum breytingum innan tilgreinds tíma. „Til að taka slíkt til greina verður einhver skýring, sem við teljum eðlilega og réttmæta í slíkum tilfellum, að liggja fyrir. Við höfum reynt að hafa strangt aðhald og yfirleitt hefur samkomu- lagið verið gott. Það hefur sýnt sig að þessi leið hefur skilað mjög góð- um árangri." í blaðinu fyrir helgi var haft eft- ir Hafþóri Rósmundssyni, formanni Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu- firði, að vinnuslys í rækjutogaran- um Drangavík, er skipveiji hand- leggsbrotnaði, mætti rekja til þess að grandaraspil væri ekki um borð í skipinu. Högni Halldórsson, fram- kvæmdastjóri skipsins, sagði í gær að þetta væri ekki rétt, en vildi að öðru leyti ekki ræða um málið, sagði að ekkert hefði verið vanrækt og benti á reglugerð um grandaraspil. Drangavík kom til Siglufjarðar á fimmtudagskvöld, en hélt aftur út á laugardagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.