Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1990 félk f fréttum Morgunblaðið/Bjarní Skipshöfn Sigurbjargar ÓF 1 kom við hjá SH á leið til skips. Þegar myndin var tekin var Páll Pétursson, við borðsendann nær, að ræða um gæðamál. FISKVINNSLA Áhöfti Sigurbjargar fær línuna Skipshöfnin frystitogaranurn Sigurbjörgu ÓF 1 frá Olafsfirði mætti öll á fund hjá söludeild Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna á dögunum. Þar var farið yfir fram- leiðslu síðasta árs og reynt að spá í spiiin fyrir nýbyrjað ár. Jndriði ívarsson sölumaður hjá SH segir að efnt hafi verið til þessa fundar í framhaldi af sér- stökum fundi með útgerðarmönn- um frystitogaranna sem selja af- urðir sínar fyrir milligöngu SH. Hann segir að meðal annars hefði verið rætt um áherslur í fram- leiðslu og sölu á þessu ári og sjó- mennirnir fengið brýningu í gæðamálum. Christie vaggar smábarni í svefii. LANGLÍFI Forðast ber horað kvenfólk! TRÚAROFSTÆKI Ar frá því að Söngvar Satans voru brenndir St. Andrews. Fra Guðmundi H. Frimannssyni, frettaritara Morgunblaðsins. Rétt rúmt ár er liðið frá því að brezkir múhameðstrúar menn í Bradford brenndu bókina Söngva Satans opinberlega. Þeir vildu láta í ljósi hneykslun sína og reiði vegna þess að bókin særði trúartilfinningar þeirra. Mótmæl- in jukust síðan stig af stigi þar til Ayatollah Khomeini, þáverandi erkiklerkur í íran, gaf út dauða- dóm yfir Salman Rushide, höfundi bókarinnar, 14. febrúar vegna guðlasts og sagði hvern þann, sem dræpi Rushdie, sanna trúarhetju. Höfundurinn fer enn huldu höfði og Múhameðstrúarmenn mót- mæla bókinni enn. Rushdie fékk þegar í stað vernd lögreglunnar allan sóiarhringinn og hefur farið huldu höfði síðan. Hann skrifar öðru hverju ritdóma í blöð og tímarit og er að sögn vina hans að ljúka barnabók og hefur haldið dagbók í prísundinni. 6. febrúar nk. verður f luttur fyrir- lestur eftir hann í London, sem nefnist „Er ekkert heiiagt?" Leik- ritahöfundurinn Harold Pinter les. Múhameðstrúarmenn hafa haft í frammi stöðugar hótanir við út- gefendur bókarinnar, Viking Penguin. Á árinu hafa þeim borizt 5.000 hótunarbréf og. 25 sprengjuviðvaranir. Fimm sinnum hefur íkveikja verið reynd og ell- efu sinnum hafa sprengjusérfræð- ingar verið kallaðir til, einu sinni til eins af stjórnarmönnum fyrir- tækisins. Rushdie þrýstir stöðugt á Penguin um að koma pappírskilju- útgáfu bókarinnar á markað. Múhameðstrúarmenn hófu mót- mæli á ný við skrifstofur fyrirtæk- isins í síðustu viku og hyggjast halda þeim áfram, þar til fyrir- tækið lýsir því yfir, að pappírskilj- an verði ekki gefin út. Penguin hefur ekki sagt, hvenær bókin komi út, og áhyggjur af öryggi starfsmanna vega þungt gegn því að efla réttinn til málfrelsis. Sýrland og íran hafa bannað sölu bóka frá Penguin-forlaginu, en önnur múhameðstrúarlönd hafa ekki gert það. Talið er að þau ætli að bíða og sjá, hvort pappírskiljan kemur út. Penguin- fyrirtækið sjálft mun ekki skaðast verulega, þótt múhameðstrúar- lönd hætti viðskiptum með bækur frá því. Af um 250 milljón sterl- ingspunda veltu er einungis rúm- - lega hálf milljón sterlingspunda vegna viðskipta við múhameðs- trúarlönd. En Penguin er hluti af Pearson-samsteypunni, Sem á veruleg olíuviðskipti við Austur- lönd nær. Samsteypan gæti skað- ast mjög verulega, ef skorið yrði á viðskipti hennar við múhameðs- trúarríkin. Þetta mál hefur efit kynþátta- fordóma á Bretlandseyjum í garð múhameðstrúarmanna. Ráðizt hefur verið inn á skrifstofur sumra þeirra, sem staðið hafa að mótmælunum, börnum múham- eðstrúarmanna hefur verið hótað og stundum hefur þeim verið mis- þyrmt. Múhameðstrúarmenn segjast munu halda baráttu sinni áfram, unz hætt hefur verið við frekari útgáfu bókarinnar og hún ekki höfð opinberlega í frammi neins staðar. Christie Brinkley í góðum félagsskap. HJARTAHLÝJA Með jólin 1 farteskinu Fyrirsætan og móðirin, Christie Brinkley, eiginkona popparans Billys Joels, tók sig til skömmu fyrir síðustu jól og fékk risafyrir- tæki eitt til þess að reiða fram stórfé fyrir jólagjöfum sem hún ætlaði að mæta með í hið svokall- aða „Covenant house“ í New York, en þar búa hundruð munaðarlausra bama á ýmsum aldri. Christie keypti gjafimar að morgni og fór síðan á heimilið ásamt þriggja ára dóttur sinni, Alexu, eftir hádegið. Eyddi degin- um þar og var vel tekið sem von var. Hún sagði að það hefði verið erfitt að átta sig á þeirri neyð sem mætti finna allt í kring um mann þar til hún hefði litið inn á stað sem þennan. En börnin hefðu verið ynd- isleg og þau gæfu lífinu aukið gildi . . . Fyrir skömmu var greint frá konu nokkurri, Carrie White, sem er viðurkennd af heimsmetabók Guinn- es sem elsta núlifandi mannveran. Var og frá því greint að það væri hennar líf og yndi að sjá nafn sitt svart á hvítu í hinni merku bók. En nú bendir allt til þess að Carrie gamla sé komin í annað sætið og hafi raun- verulega alltaf verið þar. Fram er nefnilega kominn Georgiu-búinn Jackson Pollard sem fullyrðir að hann sé 122 ára gamall, en frú White er „aðeins" 115 ára. Ritstjórar heimsmetabókarinnar eru nú að kanna sannleiksgildi orða Pollards, en hann segist hafa fæðst á jóladag 1866, aðeins 21 mánuði eftir að Abraham Lincoln þáverandi Bandaríkjaforseti var veginn í lok borgarastríðsins vestra. Sheila Goldsmith, talsmaður ritstjómar bókarinnar, sagði að væru þessi tíðindi sönn væri Pollard ekki einung- is elsti núlifandi maðurinn, heldur jafnframt sá elsti sem nokkru sinni hefði verið á skrá hjá þeim sem slíkur. Pollard hefur búið einn alla sína tíð og eitt af leyndarmálunum að baki langlífisins er að hans sögn pip- arsveinslíferni, „menn verða að gera sér grein fyrir því hið fyrsta, að kon- ur eru vandamál holdi klædd, þær tæra menn af áhyggjum og það stytt- ir líf manna. Þetta uppgötvaði ég þegar í æsku og lét enga horaða kerlingu setja mig undir sinn hæl,“ segir öldungurinn. Pollard hefur og verið annálaður meðal nágranna sinna fyrir sjálfstæði sitt. Þetta sást árið 1972, er heilbrigðisyfirvöld í Dublin í Georgiu ætluðu að flytja „gamalmennið" á elliheimili. Þá tók hann á móti liðinu úti á tröppunum Jackson Pollard frá honum þessa dagana, enda sækja margir til hans og vilja leiðsögn. Áður var getið að menn skyldu vara sig á kvenfólki. En önnur holl ráð Poilards eru til dæmis þessi: Sleppið áfengi. Borðið nýtt grænmeti. Reykið pípu (!) og treystið Guði. Srdman Rushdie með bók sína, Söngva satans. heima hjá og veifaði haglabyssu ófriðlega. Er einhveijir í hópnum reyndu að tala um fyrir honum skaut - hann upp í loftið og lofaði því að næsta hleðsla færi í afturendann á einhveijum viðstöddum. Var þá horf- ið frá því að setja karlinn í vist og talið heppilegast að hann væri einn með sjálfum sér, um sinn að minnsta kosti. Pollard dvelur nú á Central State sjúkrahúsinu í Milledgeville í Georg- iu. Þaðan streyma langlífisheilræðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.