Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 48
Sleipnir boðar til verkfalla STJÓRN og trúnaðarmannaráð Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis boðaði í gærkvöldi til tveggja verkfalla, fjögurra daga verkfalls 31. janúar næstkomandi og fimm daga verkfalls 10. febrúar. Að sögn Óskars Stefánssonar, gjaldkera Sleipnis, voru menn, eftir árangurslausan fund Sleipnis- manna með viðsemjendum sínum í gær, einhuga um að ekkert annað kæmi til greina en að boða til verk- falls á ný. „Við fengum engin svör við kröf- um okkar. Við vonum að það verði ekki jafn mikil harka í þessum verk- föllum ogþví síðasta," sagði Óskar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sundlaugin við Glerárskóla vígð NY sundlaug var vígð við Glerárskóla á Akureyri um helgina. Sundlaugarbyggingin hefur verið lengi á döfinni, en er nú loks orðin að veruleika unga fólkinu til mikillar ánægju, enda fékk það að vígja laugina. Kostnaður við byggingur laugarinnar nemur um 70 milljónum króna. Sjá nánari frétt á Akureyrarsíðu. Fríhöfhin á Keflavíkurflugvelli flytur veltufé sitt á reikninga hjá Islandsbanka: Miinar milljónum frá vöxt- um sem Landsbanki greiddi Fimmtungi minna sorp vegna kreppu „HINGAÐ barst um 15-20% minna sorp á síðari árshelmingi 1989 en á fyrri árshelmingi. Á þessu kann ég aðeins eina skýringu, að kreppu sé um að kenna og af henni leiði minni neysla en verið hefúr,“ sagði Jóhann Diego, um- sjónarmaður sorphauganna í Gufúnesi. Jóhann sagði að þegar harðnaði í ári kæmi það fyrst fram í magni sorps. „Það dró úr magni hér á síðasta ári, en þó var það sérstak- lega áberandi síðari hluta ársins. Þar sker síðasti ársfjórðungur sig úr, jafnvel þó jólin komi þar inn í. Við erum til dæmis vanir að taka við töluverðu magni sorps milli jóla og nýárs. Nú var það í minnsta'fagi." Jóhann sagði að árið 1986 hefði verið tekið við 532 þúsund tonnum af sorpi á viku, árið 1987 hefðu það verið 621 þúsund tonn á viku og árið 1988 658 þúsund tonn. Þar er átt við allt sorp, bæði húsasorp og iðnaðarsorp. „Tölur fyrir síðasta ár liggja ekki fyrir, en það er ljóst að um samdrátt er að ræða. Yfir allt árið er það kannski um 7%, en sé aðeins litið á síðari árshelming, þá hefur sorpið örugglega minnkað um 15-20% miðað við fyrri árshelming," sagði Jóhann Diego. Jón Rúnar Kristjónsson, fjár- málastjóri Granda, sagði í samtali við Morgunblaðið, að fyrirtækið hefði sent alla sína hausa snemma sumars 1986, um 5.000 pakka, utan með skipi á vegum Samein- aðra framleiðenda, en íslenzka umboðssalan hefði haft útflutn- ingsleyfið. Þeir hefðu haft í hönd- unum skeyti frá útflytjendunum þess efnis að greiðsla fyrir haus- ana væri tryggð. Sú greiðsla hefði aldrei borizt. Þá hefði Grandi átt 1.500 pakka af skreið.í því marg FRÍHÖFNIN á Keflavíkurflug- velli flutti um áramót bankavið- skipti sín frá Landsbanka til ís- umtalaða skiþi Horsham, sem fór utan síðar um sumarið, og fyrir þá hefði heldur engin greiðsla borizt. „Við viljum með þessu láta reyna á hvort umboðsmenn og útflytjendur beri ekki einhveija ábyrgð gagnvart framleiðendum. Hvort þetta fé fæst greitt er óvíst, en við vitum þá betur á eftir hver ábyrgð útflytjendanna er. Eins og málin hafa gengið, virðist hún anzi lítil, því miður,“ sagði Jón Rúnar Kristjónsson. landsbanka vegna hagstæðari samninga um vexti á veltureikn- ingum. Velta Fríhafnarinnar á síðasta ári nam um 1.300 milljón- um króna og að sögn Guðmundar Karls Jónssonar framkvæmda- stjóra Fríhafnarinnar eru kjþr þau sem fyrirtækið nýtur hjá Is- landsbanka hagstæðari sem nem- ur milljónum króna. Hann sagði að Fríhöfnin hefði leitað til Is- landsbanka um hvaða vexti bank- inn byði fyrirtækinu eftir að ekk- ert svar hafði borist við beiðni til Landsbankans um endurskoðun vaxtakjara. Guðmundur Karl Jónsson vildi ekki upplýsa í samtali við Morgun- blaðið hversu háa vexti innistæður Fríhafnarinnar bæru í Islands- banka, né hvaða vexti Landsbank- inn hefði greitt. Hann sagði að meðan á viðskiptum við Lands- bankann stóð hafi fé fyrirtækisins verið lagt á bók en fært yfir á tékkareikning eftir því sem þörf krafði en stæði á tékkareikningum hjá íslandsbanka. Almennir tékkareikningar í báð- um bönkunum bera 1% vexti. Sér- tékkareikningar og almennar spari- sjóðsbækur í Landsbanka bera 7% vexti en 9% í íslandsbanka sam- kvæmt upplýsingum á peninga- markaðssíðu Morgunblaðisins í dag. Guðmundur Karl Jónsson staðfesti að Fríhöfnin nyti betri kjara en þeirra sem almennt væru í boði enda væri um meira veltufé að ræða en gerist og gengur. Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR sagði að fyrir tveimur árum, þegar vaxtaákvarðanir færðust til bankanna, hefði ÁTVR leitað fyrir sér með hagstæðari viðskipti en stofnunin átti þá við Landsbankann. Þá hefði verið gengið að tilboði Alþýðubanka um hluta viðskipt- anna. Á liðnu hausti hefði ÁTVR að nýju leitað tilboða frá bönkum og þá hefði hluti viðskipta færst frá Alþýðubanka, nú íslandsbanka, til Sparisjóðs Reykjavíkur og Spari- sjóðs Hafnarfjarðar. Þá ætti ÁTVR viðskipti við Landsbankann á fjór- um stöðum úti á landi og sagði Höskuldur að á þeim stöðum hefði íslandsbanki ekki útibú. Hann vildi ekki skýra frá hveiju munaði á kjör- um þeim sem bankarnir býðu en sagði að hvatinn að þessum breyt- ingum hefði verið leit að bestu fáan- legum kjörum. Hann sagði að velta ÁTVR hefði verið um 10 milljarðar króna á árinu 1989. Aðspurður kvaðst Guðmundur Karl Jónsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar ekki vita hvort önn- ur fyrirtæki en það sem hann stjórn- aði ættu kost á betri kjörum fyrir veltufé sitt en þeim sem almennt væru boðin. Hann kvaðst þó telja víst að þau væru fleiri og að hans mat væri að þetta væri til marks um aukna samkeppni bankanna sem orðið hefði möguleg með frelsi bankanna til vaxtaákvarðana fyrir um tveimur árum. • • Oræfasveit: Bakpokinn fannst neðan við veginn BAKPOKI Bretans Steven W. Re- ader, sem saknað hefúr verið frá því hann lagði á Öræfajökui á mánudag í síðustu viku, fannst í gær 7-800 metra frá bænum Hofí og um 200 metra fyrir ncðan þjóð- veginn, utan þess svæðis sem mest hefúr verið leitað á. Leit að mann- inum átti að hefjast að nýju í birt- ingu í dag þrátt fyrir óhagstæða veðurspá. Svefnpoka Bretans, reku, ísöxi og mannbrodda vantaði í pokann, að sögn lögreglunnar á Höfn í Horna- firði. Björgunarsveitir hugðust fara á svæðið til frekari leitar í morgun. Fyrirhugað mun að ganga um undir- lendið en veðurspá eystra er slæm. Land er grýtt þar sem pokinn fannst og lá hann þar á hlið milli tveggja steina. Sjá frásögn í miðopnu. Grandi stefnir út- flytjendum á skreið Stefhuupphæð 13 milljónir króna GRANDI hf. í Reykjavík hefur stefiit Sameinuðum framleiðendum og íslenzku umboðssölunni vegna vanefhda við skreiðarútflutning á árinu 1986. Þá flutti íslenzka umboðssalan út 5.000 pakka af hertum hausum og 1.500 pakka af skreið fyrir Granda án þess að greiðsla kæmi. Stjórnendur Granda telja sig hafa verið blekkta og ábyrgðir fyrir greiðslu í Nígeríu hafí ekki verið fyrir hendi, en svo hafi veri gefið til kynna. Stefnuupphæð er 13 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.