Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 9
MORGUIsBLAÐIÐ f'RIÐJUDAGIJR 23. ’JANÚAR 1990 9 Einhell vandaðar vörur Loftpressur FYRIR LIGGJANDI ALLTAF SAMA LÁGA VERÐIÐ Skeljungsbúðin Siðumula 33 simar 681722 og 38125 FESTINGAR boltar og rær, allar geröir og stærðir. I Opið frá 8 — 18 Laugardaga9-13 STRANDGATA 75 HAFNARFJÖRÐUR ■B 91-652965 a guaranlee lor quallty Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0 MB RUTLAND BB ÞÉTTIEFNI Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640 — " 1 1 ^ Allt á einum stað \ Komdu með bílinn á staðinn og þeir 0 á verkstæðinu sjá um að setja nýtt pústkerfi undir. p PÚSTKERFIÐ FÆRÐUHJÁ OKKUR 0 Verkstæðið er opið alla virka daga frá kl. 8.00-18.00 nema föstudaga frá kl. 8.00-16.00. Ath. Verslunin er opin laugardaga kl. 10-13. BíbvörubúÓin FJÖÐRIN. Skeifunni2 82944 Púströraverkstœði 83466 TOYOTA NOTAÐIR BÍLAR 44144 - 44733 TOVOTl COROLLA 414 '00 Hvítur. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 23 þús/km. Verð kr. 1.130 þús. TOYOTA COROLLA LD 88 Hvítur. Sjólfskiptur. 5 dyra. Ekinn 35 þús/km. Verð kr. 760 þús. TOYOTA COROLLA SPECIAL SERIES '87 Hvítur. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 27 þús/km. Verð kr. 580 þús. Mjög gott eintak. TOYOTA TERCEL 4X4 ’87 Hvítur. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 40 þús/km. Verð kr. 740 þús. < WAGONEER ’84 Hvitur. Sjólfskiptur. 4ra dyra. Ekinn 100 þús/km. Verð kr. 1.080 þús. Gott eintak. Skipti möguleg. MMC LANCER 4X4 '87 Hvítur. 5 gira. 5 dyra. Ekinn 60 þús/km. Verð kr. 830 þús. TOYOTA NÝBÝLAVEGI 6-8, KÓPAVOGI, S.:91 44144 ajLi Fært eða ófært? Er núna lag fyrir breiða samfylkingu til að fella Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík? Snarpar umræður til tæplega 2 að morgni um framboðs- mál á fjölmennum fundi ABR. Samþykkt með 78 atkv. gegn 66 að fresta ákvörðun til næsta fundar. Sterk krafa um forystu Alþýðu- bandalagsins Framboð án flokks Helsta keppikefli sumra andstæðinga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg sýnist nú vera það að bjóða fram utanflokka í borgarstjórnarkosningunum. Þær raddir eru háværastar innan Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins að stofnað verði til þver- pólitísks framboðs. Það myndi að öllum iíkindum leiða til klofn- ings í báðum flokkum, en ástandið er þannig í Borgaraflokknum að hann getur hvorki klofnað né staðið einn að framboði og flest bendir til að Kvennalisti og Framsóknarflokkur hafni slíkri sam- vinnu. Enn er of snemmt að segja fyrir um niðurstöðuna á þess- um vangaveltum. í Staksteinum er hins vegar staldrað við að- dragandann. Keypt atkvæði Lesendur. Staksteina ættu að gera sér í hugar- lund hvílíkt ramakvein hefði verið rekið upp meðal vinstrisinna í öll- um hornum, ef frá því hefði verið skýrt, að á fundi í Sjálfetæðisflokkn- um, þar sem rætt væri um forsendur fyrir fram- boði flokksins hefði einn fundarmanna lagt fram 300.000 krónur til að tryggja sínum sjónarmið- um atkvæði. Ætli það hefði staðið á fullyrðing- um um að nú hefði grímulaus kapítalisminn loksins birst í allri sinni mynd? Gkki væri nóg að stunduð væru atkvæða- kaup meðal almennra kjósenda heldur gætu menn tryggt sér stuðning innan flokksins á fundum hans með því að veife þar ávísunum — að visu væru víxlar ekki taldir nægja. Hvað ætli margir hefðu verið kallaðir til við- ræðna um þessi ósköp í rikisQölmiðlunum? Þegar alþýðubanda- lagsmenn deildu um það á fundi sl. miðvikudags- kvöld, hvort ganga ætti til sameiginlegs fram- boðs vinstrisinna í Reykjavik eða ekki hljóg mikill hiti í deilumar. í Þjóðvifjanum (Nýju helg- arblaði) á föstudaginn stóð: „Mikill ágreiningur kom fram um það, hveij- ir hefðu kosningarétt á fundinum. Bæði Guðrún Helgadóttir [forseti Sam- einaðs þings] og Reynir Ingibjartsson [fyrrum Möðruvellingur, þ.e. framsóknarmaður eins og Ólafur Ragnar, hús- vörðin- í Hamragörðum, félagsmiðstöð SIS, og frammámaður Búsetaj buðust til að lána við- stöddum fyrir skuldfölln- um félagsgjöldum og reiddi Reynir siðan fram 300 þús. kr. ávísun þessu til staðfestu." í DV á laugardag segir Reynir Ingibjartsson hins vegar, að sér hafí ofboðið að menn voru krafðir um að greiða félagsgjald, þegar þeir komu á fond- inn. Og hann bætir við: „Þar sem ég var með skjalatöskuna með mér náði ég í víxileyðublað sem ég fann og skrifaði á það þessa tilteknu upp- hæð, 300 þúsund krónur. Þá steig ég í pontu og bauð þeim sem höfðu ekki peninga á sér að þessi víxill kæmi til móts við þá sem greiðsla. Eftir smáþref var víxillinn ekki talinn nógu gildur og því beðið um ávísun. Ég reiddi hana þá fram, upp á sömu upphæð, með þeim orðum að þeir sem ættu ekki fyrir félags- gjaldinu en vildu gera upp gætu það og þeir peningar drægjust frá upphæðinni. Það var greitt þannig fyrir nokkra félagsmenn og það verður mitt að rukka þá.“ Og Reynir sagði í DV, að peningamir væru af sparisjóðsbók sem hann ætti eftir foður sinn I Alþýðubankanum. Sáttasemjari — borgar- stjóraefiii? Reynir Ingibjartsson reiddi fram ávísunina á fúndi í Alþýðubandalags- félagi Reylqavíkur (ABR), sem hefur verið þungamiðjan í starfi Al- þýðubandalagsins. Innan vébanda þess hafa for- ystumennimir talið sig komast í best samband við grasrótina. Frásögn Þjóðvftjans af þessum átakafúndi í félaginu um framboðslistann í vor bendir eindregið til þess að félagið sé ónýtt. Þar sé ekki samstaða um neitt heldur takist á tvær fylkingar og hefur önnur þegar stofiiað nýjan fé- lagsskap: Birtingu. Reynir borgaði að- gangseyrinn fyrir Birt- ingarfélaga að ABR- fundinum. Atkvæði féllu þannig á fúiidinum að hvorir tveggju segjast geta unað glaðir við sitt. Raunar kom það í hlut gamla Fylkingarfélagans og byltingarmannsins í nafni kommúnismans, Ragnars Stefanssonar, að leggja fram einskonar málamiðlunartillögu, það er einu tillöguna sem var borin undir atkvæði, en tillaga Birtingarmanna og breytingartiUaga Álf- heiðar Ingadóttur við hana komu ekki til at- kvæða og var vísað tíl næsta félagsfúndar ABR. Tillaga Ragnars og Guð- mundar Albertssonar var hins vegar borin tvisvar undir atkvæði og sam; þykkt í bæði skiptin! í henni er slegið úr og í til þess að cngum dyrurn sé lokað. Kann stjóm- viskan sem Ragnar sýndi á þessum upplausnar- fúndi ABR að verða til þess, að tU hans verði leitað að nýju og hann fenginn til að vera sátta- semjari flokkanna sem stefiia að sameiginlegu framboði vinstrisinna í Reylq'avík á vordögum. Gins og málum er nú háttað er líklegt, að Framsóknarflokkur og Kvennalisti bjóði fram sérstaka Usta í Reykjavík í vor. Viðræðumar yrðu þess vegna á miUi Al- þýðubandalags, Alþýðu- flokks og Borgaraflokks. Innan allra þessara flokka er ágreiningur um sameiningu þeirra um framboð utan flokka. Brautin í þá átt hefúr hins vegar verið mótuð og ef til viU á Ragnar Stefánsson eftir að vera málamiðlarinn sem leiðir flokkanna þijá saman. Verður hann borgar- stjórarefhi þeirra? SKAMMTÍMASPA R N A Ð U R Hvemig er best að ávaxta 300 þúsund krónur í ijóra til fímm mánuði? Átt þú peninga sem þú þarft að geyma í „ nokkrar vikur eða mánuði? T.d. afborgun af íbúð, lán sem þú varst að fá útborgaö en þarft ekki að nota strax, peninginn sem á að fara í sumarfríið eða bara sparifé sem þú vilt geta gengið að einhverntíma á næstu 10 mánuðum? Með því að kaupa Sjóðsbréf 3 hjá VÍB færðu 7,5-8% vexti yfír lánskjaravísitölu, getur tekið spariféð út án kostnaðar 50 dögum eftir að þú kaupir bréfin og verið viss um að það sé vel geymt. Vertu velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.