Morgunblaðið - 23.01.1990, Síða 18
MORGUNBIiAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR <28; JANUAR I990 '
18 i-í
Virðisaukaskattur:
Reglugerðarbreyting
um staðgreiðsiunótur
SAMKVÆMT gildandi reglugerð
um bókhald og tekjuskráningu
virðisaukaskattskyldra aðila skal
skrá nafn og kennitölu kaupanda
á alla sölureikninga nema þegar
selt er til neytenda og upphæðin
ekki hærri en 3.000 krónur. Að
sögn Jóns Guðmundssonar deild-
arstjóra ly'á ríkisskattstjóra þyk-
Úttekt Lands-
bankans á fjárhag
SÍS lokið:
Byijað að
vinnaefltir
skýrslunni
ir þetta ákvæði vera gallað og
stendur til að breyta því, þannig
að sé seljandinn með sjóðvél,
dugi kassakvittun og sölunóta án
nafns og kennitölu þótt keypt sé
fyrir hærri upphæð.
Eftir sem áður skulu allir skráðir
aðilar í virðisaukaskattskerfi til-
greina nafn og kennitölu, ætli þeir
að fá virðisaukaskattinn frádreginn
sem innskatt. Þá ber að taka fram
á sölunótu hvert söluverð hVerrar
einingar er, heildarverð, hvort virð-
isaukaskattur er innifalinn í fjár-
hæð eða ekki og nótumar skulu
vera í þríriti, kaupandinn fær frum-
ritið.
Jón Guðmundsson segir að ekki
verði gerðar athugasemdir við
færslu staðgreiðslugagna þegar selt
er beint til neytenda, þótt nafn og
kennitala séu ekki á nótunum, svo
fremi sem sjóðvélastrimlar séu fyrir
hendi í verslununum.
Vetrarríki á SigluGrði
Mikið fannfergi er nú á Siglufirði eins og myndin að ardag. Skaflarnir voru sumstaðar tveir metrar á
ofan ber með sér. Þar byijaði að snjóa síðastliðinn hæð. Enn er verið að ryðja snjó af götum bæjarins
fimmtudag og var samfelld snjókoma allt fram á laug- sem hefur torveldað bæjarbúum allar ferðir.
BANKASTJÓRN Landsbankans
hefiir fengið í hendur skýrslu
óms Niissonar íöggiits endur- ]Njý stióm Islenska sjónvarpsfélagsins hf:
skoðanda um uttekt a fjarhags- —si--“---------------------•?--------A--------£3----------
stöðu Sambands islenskra sam-
vinnufélaga. Samkomulag varð
um gerð skýrslunnar í kjölfar
fyrsta samkomulags Landsbank-
ans og SIS um kaup bankans á
hlut SIS í Samvinnubankanum.
Sverrir Hermannsson bankstjóri
Landsbankans sagðí í gær að upp-
lýsingar úr skýrslunni yrðu ekki
gerðar opinberar. „En við erum að
byija að vinna eftir henni,“ sagði
Sverrir. Hann sagði að á grundvelli
skýrslunnar yrði væntanlega auð-
veldara að vinna að endurskipu-
lagningu þeirri sem nú stendur yfir
á starfsemi Sambandsins og finna
viðreisnartillögur.
Þorvarður Elíasson ráðínn yfír-
maður Stöðvar 2 til eins árs
NÝ STJÓRN íslenska sjónvarps-
félagsins var kosin á hluthafa-
fundi fyrirtækisins siðastliðinn
laugardag. Jóhann J. Ólafsson
var kosinn stjórnarformaður.
Aðrir fiilltrúar núverandi meiri-
hluta i stjórninni eru Jón Ólafs-
Úr dagbók
lögreg’liinnar
í Reykjavík
19.-22. jan. 1990
— 12 ökumenn voru grunaðir
um ölvun við akstur um helgina
og 2 voru kærðir fyrir að aka
réttindalausir. Þá voru nokkrir
ökumenn kærðir fyrir að aka
of hratt og virða ekki rautt ljós
eða stöðvunarskyldu. Skráning-
arnúmer þurfti að fjarlægja af
7 ökutækjum vegna vanrækslu
á aðalskoðun. Eigendur á annan
tug ökutækja voru kærðir fyrir
að leggja ökutækjum sínum
ólöglega og 14 ökutæki til við-
bótar þurfti að fjarlægja með
kranabifreið vegna sérstaklega
slæmrar stöðu þeirra.
— í 77 tilvikum þurfti að
hafa afskipti af ölvuðu fólki og
5 sinnum kom til afskipta lög-
reglu vegna heimilisófriðar.
— Tilkynnt var um 35
árekstra á tímabilinu svo og eitt
umferðarslys. Gangandi vegfar-
andi varð fyrir bifreið í Síðum-
úla og var fluttur á slysadeild-
ina. Meiðsli hans eru ekki talin
alvarleg.
— 10 innbrot, 12 þjófnaðir
og 3 búðarhnupl voru tilkynnt
til lögreglunnar.
— 5 líkamsmeiðsl voru til-
kynnt, 2 rúðubrot og 4 skemmd-
arverk.
— 20 einstaklingar höfðu læst
sig úti og var veitt aðstoð við
að komast inn, ýmist í bifreiðir
eða íbúðir.
— 53 gistu fangageymslu lög-
reglunnar um helgina, 29 á að-
faranótt laugardags og 24 á
aðfaranótt sunnudags. Þeir sem
sýnt höfðu af sér ölvunarólæti,
eða 17, voru síðan færðir fyrir
dómara og mál þeirra afgreidd
með 6-10 þúsund króna sekt. 5
höfðu fengið að gista í fanga-
geymslu þar sem þeir áttu
hvergi höfði sínu að halla.
— Þrír drengir voru staðnir
að þjófnaði í verslun. Þeir voru
færðir á lögreglustöðina og
síðan í fangageymslu.
— Tvær ungar stúlkur voru
staðnar að hnupli í verslun.
Haft var samband við foreldra
stúlknanna og þeim tilkynnt um
málavexti.
— Piltar voru staðnir að því
að reyna að framselja stolna
ávísun í verslun.
— Tilraun var gerð til vopn-
aðs ráns í sölutumi. Góð við-
brögð afgreiðslustúlku komu í
veg fyrir að ætlunin næði fram.
— 7 ölvaðir ungir menn voru
handteknir eftir að hafa brotið
rúðu í verslun í miðborginni og
tekið varning úr glugganum.
— Slagsmál urðu á Café
Hressó. 3 ölvaðir menn hand-
teknir og einum ekið á slysa-
deild. Meiðsli hans talin óveru-
leg.
— Slagsmál að frumkvæði
skipshafnar einnar fyrir utan
Hótel Borg. 6 handteknir, færð-
ir í fangageymslu og fyrir dóm-
ara morguninn eftir.
— Maður kastaði sér til sunds
í höfninni. Hann komst af sjálfs-
dáðum á þurrt land.
— Til átaka kom í leigubif-
reið. Bílstjóranum tókst að hafa
stjórn á málum og kalla til að-
stoð. Ölvaður maður var hand-
tekinn og vistaður í fanga-
geymslu.
son forstjóri og Haraldur Har-
aldsson forstjóri. Ólafúr H. Jóns-
son var kosinn í síjórnina sem
fúlltrúi fyrri aðaleigenda og Orri
Vigfusson forstjóri sem fúlltrúi
Eignarhaldsfélags Verslunar-
banka Islands hf. Sljórnin hefúr
ráðið Þorvarð Elíasson skóla-
stjóra Verslunarskólans sem yfír-
mann félagsins og Stöðvar 2 í
eitt ár. Valdimar Hergeirsson
yfirkennari skólans tekur við
stöðu skólastjóra á meðan.
„Við ætlum að halda starfsem-
inni í horfinu fyrst í stað,“ sagði
Jóhann J. Ólafsson þegar hann var
spurður um áform nýja meirihlut-
ans í Stöð 2. „Við þurfum fyrst að
bæta fjárhagsstöðuna og er þegar
farið að rofa til í þeim málum. Að
því búnu förum við að skoða hvern-
ig við getum notað þann styrk til
að efla dagskrána," sagði Jóhann.
Þorvarður Elíasson sagði við
Morgunblaðið, að fyrir nokkru hefði
verið ákveðið að hann færi í árs-
leyfi. Hann hefði ætlað sér að
dvelja erlendis en mál sín hefðu
tekið skyndilega kúvendingu með
því að honum var boðið starf yfir-
manns Stöðvar 2.
Þorvarður er varaformaður Eign-
arhaldsfélags Verslunarbankans
sem á 100 milljóna hlut í Stöð 2.
Þorvarður sagði að rekstur
Stöðvarinnar væri verkefni sem
hann ætti eftir að setja sig betur
inn í og leiða síðan áfram. Hann
sagði að fjárþrengingar Stöðvar 2
Þorvarður Elíasson
hefðu bitnað á dagskrárgerð undan-
farið en á sama hátt hlyti nýtt 500
milljón króna hlutafé að geta gert
það kleyft að bæta dagskrána.
Hann sagði það síðan fjarri lagi,
að breytingar yrðu á fréttadeild
Stöðvar 2 eða hún jafnvel aflögð,
eins og getsakir hafa verið uppi um.
„Það eru allir sammála um það að
fréttadeildin er ein styrkasta stoðin
undir rekstrinum, þótt hún sé að
vísu dýr. Páll Magnússon mun
áfram ráða þar ríkjum og ég get
ekki ímyndaða mér að neinn reyni
Jóhann J. Ólafsson
sagði
að skerða hans sjálfstæðí,“
Þorvarður Elíasson.
Aðspurður um stöðu fyrri aðal-
eigenda Stöðvar 2 sagði Jóhann J.
Ólafsson að þeir væru starfsmenn
fyrirtækisins samkvæmt samning-
um sem við þá voru gerðir um ára-
mót. Þá hefðu þeir frest til 5. febrú-
ar til að greiða hlutafjárloforð sitt
og yrðu eigendur 150 milljóna hlut-
afjár að því loknu.
Jón Óttar Ragnarsson forstjóri
Stöðvar 2 vildi í gær ekki tjá sig
um stöðu mála á Stöð 2.
Tíu Grænlendingar í áhöfti-
um íslenskra loðnuskipa
TÍU Grænlendingar hafa verið í áhöfiium íslensku loðnuskipanna
Hábergs, Helgu II, Guðrúnar Þorkelsdóttur og Júpíters að undanf-
örnu til að kynna sér loðnuveiðar, að sögn Sveins Hjartar Hjartarson-
ar hagfræðings Landssambands íslenskra útvegsmanna. Grænlend-
ingar eiga hvorki loðnuskip, né loðnuverksmiðjur.
LÍÚ endurnýjaði samning við tíðinni. LÍÚ greiðir Grænlendingum
Grænlendinga um kaup á 21 þús- 7,2 danska aura fyrir kílóið af
und tonnum af loðnu en Landssam- loðnu, eða um 662 íslenskar krónur
bandið sagði samningnum upp fyrir tonnið, þannig að Landssam-
vegna lítillar loðnuveiði a haustver: bandið greiðir þeim samtals um 14
milljónir íslenskra króna fyrir þenn-
an 21 þúsund tonna kvóta. Um 30
skip veiða kvótann og eru þau nán-
ast búin að veiða hann, að sögn
Sveins Hjartar Hjartarsonar.
íslensku loðnuskipin fengu 662
þúsund tonna loðnukvóta í haust
og Einar Guðfinnsson hf. í Bolung-
arvík gerði samning um kaup á 10
þúsund tonnum af loðnu af Græn-
lendingum, sem Júpíter yeiðir,