Morgunblaðið - 23.01.1990, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
39
1
þakka Sigfúsi samfylgdina og allt
það gott, sem ég á honum upp að
inna bæði sem vinur, nemandi hans
í barnaskóla og nemandi í skóla
lífsins.
Blessuð sé minning hans.
Kristján Sigurjónsson
Hinn fimmtánda þessa mánaðar
andaðist Sigfús kennari Sigmunds-
son bóndi að Gunnhildargerði í
Norður-Múlasýslu. Við andlát hans
vakna margar minningar um sam-
veru- og vináttustundir frá löngu
liðnum árum og allt til þessa dags.
Það mun hafa verið árið 1933
sem kynni okkar hófust. Ég hafði
ráðið mig til vinnu við rafstöðvar-
byggingu Héraðsskólans á Laugum
í Þingeyjarsýslu. Skömmu eftir að
vinna hófst, snemma sumars, kom
Sigfús þangað til starfa. Hann hafði
verið á Kennaraskólanum um vetur-
inn og var ákveðinn að ljúka þar
námi næsta vetur. Sumarhýran á
Laugum átti að nýtast til fram-
færslu á vetri komanda. Sú hýra
reyndist léttari í vasa en vonir stóðu
til en sú saga verður ekki rakin
hér, skólinn fékk sitt rafmagn og
Sigfús lauk kennnaraskólaprófi vet-
urinn eftir með sæmd.
Fyrsta veturinn eftir kennara-
skólanámið var Sigfús ráðinn
stunda- og forfallakennari við Mið-
bæjarbarnaskólann en var fastráð-
inn eftir það. Sýnir það glöggt að
eitthvað hefur hann haft til að bera
fram yfir . meðalmennskuna — á
þeim árum gekk ekki hver sem var
beint frá prófborði inn í stærsta
barnaskóla landsins.
A þessum fyrstu kennaraárum
Sigfúsar voru laun kennara það lág
að nauðsyn var að vinna önnur störf
að sumri til. Sigfús brá sér því í
byggingarvinnu og var einnig
flokksstjóri við vegagerð sem ungl-
ingar úr Reykjavík unnu að í Þing-
vallasveit.
Einn af hornsteinum hamingj-
unnar er heimili. Það stofnaði Sig-
fús árið 1938 með konu sinni, Önnu
Guðrúnu Frímannsdóttur frá Efsta-
landi í Öxnadal. Anna er mikil
myndar- og mannkostakona og
henni tókst fljótlega að búa heimil-
ið þannig að þegar gest bar að
garði mætti honum birta og ylur.
Það skipti sköpum í lífi þeirra
hjóna er Sigfús veiktist og varð að
leggjast á sjúkrahús. Þar varð hann
að dvelja um þijú ár. Hann fékk
sæmilegan bata en bar alla tíð leif-
ar af sjúkdómnum og þoldijítt erfið-
isvinnu eftir þetta áfall. Á þessum
erfiðleikaáruni sýndi Anna, kona
hans, best hvað í henni bjó og af
einstökum dugnaði hélt hún hús-
næði þeirra og sá sér og elsta syni
þeirra hjóna farborða allan tímann
seni Sigfús lá á spítalanum.
Sigfús sat heldur ekki auðum
höndum. Eftir að hann fór að hress-
ast tók hann, ásamt fleiri stofufé-
BATAVELAR
Viöeigumtilá lager og til
afgreiöslu STRAX 4JH
bátavélar ásamt öllum
fylgihlutum I stæröunum
41, 52, 63 og 74 hö á sér-
lega hagstæöu verði.
Ráögjöf — Þjónusta
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SlMi 6812 99
lögum sínum, til við að mála á silki-
klúta sem síðan voru seldir her-
mönnum. En Sigfúsi nægði ekki
þessi iðja. Dugnaðurinn og áræðið
var slíkt að hann lét smíða sér skrif-
borð eða púlt sem hægt var að festa
við rúmið, og vann sér inn aukatekj-
ur með skrifum fyrir Skattstofuna.
Nokkrum árum eftir að Sigfús
náði þeirri heilsu að geta tekið við
fyrra starfi, hófst nýtt skeið á vin-
áttuferli okkar Sigfúsar er við
byggðum í sameiningu þak yfír
höfuðið. Þá höfðu þau hjón eignast
þijá syni sem allir hafa erft gáfur
og dugnað foreldra sinna og skipa
nú hver um sig öndvegissess í sinni
starfsgrein. Sambýli getur stundum
orðið dálítið brösótt en ég fullyrði
að betra sameignar- og sambýlis-
fólk verði vandfundið en fjölskyld-
una á neðri hæðinni í Blönduhlíð 31.
Sigfús var snyrtimenni, verk-
hagur og stjómsamur. Honum lét
því vel að sjá um sameiginleg fjár-
mál húseignarinnar og þar rann
allt í réttan farveg nema þá helst
að hann hallaði á sjálfan sig. Hann
fylgdist vel með að ekkert drabbað-
ist niður og var fljótur að grípa til
hendi ef eitthvað lét á sjá. Sigfús
var sögu- og bókfróður, átti gott
bókasafn en vann mikið á seinni
árum á söfnum og hélt áfram að
bæta við þekkingu sína. Átti ég
margar ánægjustundir með honum
þar sem hann sagði mér frá því sem
hann var að grúska í hveiju sinni.
Eftir að Sigfús „komst á aldur“
fór hann á bókbandsnámskeið og
náði fljótt góðum tökum á því starfí.
Kom þar fram sem annars staðar
handlagni hans og vandvirkni. Við
vorum þar félagar sem oftar og
gerði hann oft góðlátlegt grín að
þessari iðju okkar sem og ýmsu
öðru sem verið var að bjástra við.
Þegar ég nú að leiðarlokum lít
yfir þennan langa og farsæla vin-
áttu- og samvinnuferil með Sigfúsi,
fínn ég sterkt fyrir söknuði en jafn-
framt þakklæti fyrir ljúfar minning-
ar sem gott er að leita til.
Ég sendi Önnu hugheilar samúð-
arkveðjur svo og sonunum, Baldri,
Sigmundi og Rúnari og þeirra fjöl-
skyldum. Hollvættir leiðj ykkur.
Magnús Árnason
HOTELSTJÓRNUN
Sérhæft nám í stjórnun hótela og veítíngahúsa
Vaxandi umfang ferðaþjónustunnar á
íslandi undanfarín ár, fjölgun veítínga- og
gistihúsa og aukin samkeppni þeirra kallar í
auknum mæli á hæft fólk í stjórnunarstöður.
140 tímar.
Skráníng hafín í stma 626655.
Viðskiptaskólinn
HAGNÝTT NÁM - ÞEKKING SEM NÝTISTÍ
YOUNG CHANG
TILBOÐ
til 5. febrúar
YOUNG CHANG
FLYGLAR
185 sm.
338.300,-.
157 sm.
jis&eoo;-.
302.600,-.
175 sm.
JJTör0007-
321.300,-
TECHNICS ORGEL
EX5 EX25
.m^eo,-. js&eeo,-.
93.925,-. 168.300,-.
EX15 EX35
^274^500,-.
132.260,-. 233.325,-.
TECHNICS
HLJÓMBORÐ
K 700 AX7
jzzoeo;-. J2&Æ00,-
87.300,-. 106.250,-
AX5
94.350,-.
Opið laugardaga frá k. 10-14
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
ARMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SÍMI91 -32845
JAPIS ~ AKUREYRI
SKIPAGATA 1 - SÍMI 96-25611