Morgunblaðið - 25.02.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990 C 19
Ævintýraferð fyrir minna verð
FLUGLEIDIR
Sfmi 69 03 00
M/S4S
Laugavegi 3, sími 62 22 11
GOÐI SVEINSSON,
SJÓNVARPSSTJÓRI SÝNAR
Duglegur og kann
lagið á fólki
gengni, yfirvegaðan og rólegan
þótt ýmislegt hafi gengið á. „Ég
get ekki annað en gefið Goða hæstu
einkunn. Honum hefur örugglega
eitthvað orðið á eins og gengur, en
þegar upp er staðið er hann örugg-
lega einn farsæl-
asti framkvæmda-
stjórinn þarna.
Ekki síst þegar lit-
ið er til þess
hversu trausta
dagskrá hann hef-
ur byggt upp þrátt fyrir að deildin
hafi haft úr minni fjármunum að
spila.“
Ljóst er að Goði nýtur mikils
trausts og virðingar samstarfs-
manna sinna og á auðvelt með að
stjórna fólki og vinna með því. Fyrr-
um starfsfélagar á Stöð tvö voru á
einu máli um að það væri missir
fyrir stöðina að glata Goða til Sýn-
ar, ekki aðeins vegna þess hversu
góður starfsmaður hann er heldur
einnig vegna þeirra miklu viðskipta-
sambanda sem hann hefur aflað sér
á sviði myndefnis
víða um lönd.
Margir viðmad-
endur mínir töldu
Goða vera kjörinn
mann til þess að
stjórna nýrri sjón-
varpsstöð. „Ef einhver getur þetta
er það hann,“ sögðu fleiri en einn.
Sigurður K. Kolbeinsson, sagði eðli-
legt að Goði hefði orðið fyrir val-
inu, þegar eigendur Sýnar fóru að
svipast um eftir sjónvarpsstjóra inn-
an þeirra tveggja stöðva, sem fyrir-
eru: „Hann er einfaldlega hæfasti
maðurinn, sem er í boði.“
SVIPIVIYNP
eftir Atidrés Magnússon.
GOÐISVEINSSON er nýráðinn sjónvarpsstjóri stöðvar þeirrar,
sem Sýn h/f hyggst hleypa af stokkunum. Til skamms tíma var
Goði dagskrárstjóri á Stöð tvö, uns hann réð sig með skömmum
íyrirvara til Sýnar. Goði er vinsæll á vinnustað og voru flestir
viðmælendur þess, er þetta ritar, á einu máii um að Goði væri
manna hæfastur til þess að koma nýrri sjónvarpsstöð á skrið.
Flugfar til Thailands kostar litlu meira en til
evrópskra sólarlanda. Á móti kemur að
verðíag í Thailandi er svo lágt að í heildina
er ódýrara að ferðast til Thailands en
annarra sólarlanda.
Upplifun í Thailandsferð verður
hins vegar ekki jafnað við
venjulega sólarlandaferð.
í Thailandi kynnist þú framandi
menningu, fjölskrúðugu mannlifi,
stórkostlegu landslagi og glæsilegri
baðströndum en finnast annars staðar.
Er ekki kominn tími til að breyta til?
17 daga ferð til Bangkok og Pattaya kostar
aðeins kr. 94.072* fyrir manninn
í tvíbýli. Innifalið er m.a. flug,
gisting á fyrsta flokks hótelum og
morgunverður. Allt að 50%
afsláttur fyrir börn undir 12 ára.
Bæklingur um Thailand liggur
frammi á öllum ferðaskrifstofum.
Þar færðu allar nánari upplýsingar um
Thailandsferðir.
* Verð miðast við gengi og fargjöld 15. janúar 1990
var ráðinn þangað. Hann segir
Goða afskaplega þægilegan í um-
Goði er fæddur hinn 11. júní
1958 og er sonur hjónanna
Sveins Sæmundssonar, blaðafull-
trúa, og Maríu Jónsdóttur. Hann
lauk Verzlunarskólaprófi og hug-
leiddi menntskólagöngu að því lo-
knu en afréð þess í stað að fara
að vinna. Sveinn faðir hans segist
hafa rætt þetta nokkuð við hann,
en Goði hafi ekki hvikað frá ákvörð-
un sinni og sagst myndu vera búinn
að kaupa sér íbúð fyrir tvítugt. „Og
stóð við það,“ bætir Sveinn við með
stolt í röddinni.
Á yngri árum þótti Goði nokkur
poppari og vann m.a. sem plötu-
snúður á skemmtistöðum. Hann
vann hjá Flugleiðum fram til upp-
sagnanna miklu 1980, þegar hann
gekk Arnarflugi á hönd og fékkst
helst við pílagrímaflug og erlenda
samningsgerð. í ársbyijun 1987 var
hann ráðinn innkaupastjóri dag-
skrárdeildar hjá Stöð tvö og tók við
dagskrárstjórastöðunni nokkrum
mánuðum síðar.
Goði kvæntist Önnu Kristínu
Marteinsdóttur í október 1981 og
eiga þau þrjú börn, ínu — sem
Anna Kristín átti fyrir — Styrmi
og jMörtu.
Óli Tynes er gamall vinnufélagi
Goða hjá Arnarflugi. Hann sagðist
ekki hafa nema gott eitt um Goða
að segja. „Hann er mjög duglegur
og nákvæmur starfsmaður. Fer ör-
ugglega létt með að stjórna einni
sjónvarpsstöð."
Mönnum ber saman um áð Goði
sé mikill ijölskyldumaður. Hann
hefur gaman af ferðalögum og er
sagður mjög vel lesinn. Þá er hann
áhugasamur um veiði og er auk
þess sælkeri. Óli Tynes segir hann
mikinn áhugamann um hnit, en
kvartar undan því að Goði hafi ekki
verið nógu duglegur að mæta á
æfingar að undanförnu.
Sigurður K. Kolbeinsson var íjár-
málastjóri Stöðvar tvö þegar Goði
Stöð tvö:
Borð
fyrirtvo
„í hvíld“
Sem fram hefur komið er öll
starfsemi Stöðvar tvö í end-
urskoðun, en áhrifa þess er þó
ekki farið að gæta að ráði í
dagskránni. Upptökum á gam-
anþáttunum „Borð fyrir tvo“
með þeim Eggerti Þorleifssyni
og Þórhalli Sigurðssyni í aðal-
hlutverkum hefur þó verið hætt
í bili. Aðeins voru sýndir tveir
þættir, en ekki var búið að taka
fleiri upp. Að sögn Gunnellu
Jónsdóttur hjá Stöð tvö verður
þáttaröðin „í hvíld“ fram á
haust. Sagði hún lítilla breyt-
inga að vænta í dagskránni
enda ekki flanað að neinu með-
an verið er að endurmeta stöðu
og stefnu stöðvarinnar. Út-
sendingartími Stöðvar tvö er
svipaður og verið hefur — að
meðaltali 95 tímar í viku.