Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 52. tbl. 78. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990__________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Veðrahamurí Vestur-Evrópu xveuuu Frá áramótum hefur gert hvert stórviðrið öðru meira í Vestur-Evrópu og í Frakklandi einu hafa áhlaupin kostað 82 menn lífið. Talið er, að þar hafí allt að fjórar milljónir ttjáa rifnað upp með rótum og önnur spjöll eru metin á tugi milljarða íslenskra króna. Francois Mitterrand Frakklandsforseti ræddi í gær við sjómenn í bænum Fecamp í Normandí en það eru ekki síst þeir, sem búa við sjávarsíðuna, sem orðið hafa fyrir þungum búsifjum. Vestur-Þýskaland: Hvorki landakröfiir né stríðsskaðabætur Bonn, Austur-Berlín. Reuter. VESTUR-þýska stjórnin vill, að eftir frjálsar kosningar í Austur- Þýskalandi samþykki þing beggja ríkjanna yfirlýsingu um, að engin breyting verði á vesturlandamærum Póllands svo fremi Pólverjar geri engar kröfúr um stríðsskaðabætur á hendur sameinuðu Þýskalandi. Stjórnvöld í Póllandi brugðust strax ókvæða við þessari tillögu og hótuðu að heimta bætur vegna einnar milljónar Pólveija, sem voru í nauðungarvinnu í Þýskalandi á stríðsárunum. Dieter Vogel, talsmaður vestur- þýsku stjórnarinnar, sagði í gær, að í yfirlýsingu þýsku þinganna um óbreytt landamæri yrði að krefjast þess, að Pólveijar stæðu við yfirlýs- ingu sína frá 1953 um að þeir afsöl- uðu sér öllum rétti til stríðsskaða- bóta. Þá yrði einnig að gera formleg- an samning um réttindi þýska minni- hlutans í Póllandi. Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í Vestur-Berlín á fimmtudag, að vestur-þýska og pólska stjórnin yrðu tafarlaust að gera með sér samning um óbreytt landamæri og gagnrýndi Kohl fyrir óljósar yfirlýsingar í þessu efni. Pólska stjórnin brást í gær hin versta við skilyrðunum, sem Kohl vili setja fyrir yfirlýsingu um óbreytt landamæri og sagði, að hugsanlega yrði krafist stríðsskaðabóta vegna þeirra Pólvetja, sem voru í þrælkun- aivinnu í Þýskalandi nasismans. Sagði talsmaður stjórnarinnar, að viðurkenning á núverandi landa- mærum ætti ekki að tengjast neinum öðrum málum en vildu Þjóðveijar hafa þann háttinn á væri eðlilegt að Pólvetjar endurskoðuðu afstöðu sína til stríðsskaðabóta. George Bush Bandaríkjaforseti: Bandarísk fyrirtæki styðji lýðræðisþróun í A-Evrópu Hótar Japönum hörðu opni þeir ekki dyrnar fyrir útlendri samkeppnisvöru Los Angeles, Tókýó. Sovétríkin: Kaupskipin sigli undir Kýpurfána Daily Telcgraph. Sovétmenn hafa í hyggju að auðvelda sér aðgang að vest- rænu fjármagni með því að láta stóran hluta kaupskipaflotans sigla undir Kýpurfána. Eru þeir nú að skrá 14 olíu-, gas- og efha- flutningaskip á Kýpur en um- skráningin getur náð til 120 skipa alls eða 2 milljóna tonna. Moskvustjórnin hefur samið um það við yfirvöld á Kýpur, að sov- éskar áhafnir verði á skipunum og utanríkisviðskiptabankinn sovéski hefur fengið leyfi til að koma upp útibúi á eyjunni. Sovétmenn telja, að með því að sigla undir Kýpurfána geti þeir lækkað reksturskostnað skipanna, fengið betri aðgang að vestrænu fjármagni við endurnýjun þeirra og fækkað í áhöfn með sama hætti og gerst hefur á Vesturlöndum. Þessi tíðindi þykja dæmigerð fyrir þær breytingar, sem eru að verða í Sovétríkjunum, og ljóst er, að þeir ætla sér að fara að keppa á hinum alþjóðlega siglingamarkaði nágranna okkar í suðri, í Panama og Nicaragua," sagði Bush og hvatti forráðamenn fyrirtækja til að beina stuðningi sínum að ákveðnum bæ eða borg eða fyrirtæki í skyldum rekstri. Á fundi þeirra Bush og Kaifu, forsætisráðherra Japans, í gær var umræðuefnið aðeins eitt, ágreining- urinn um viðskipti ríkjanna. Sagði Bush fyrir fundinn, að þráuðust Jap- anir við að opna sinn eigin markað fyrir erlendri samkeppnisvöru yrðu settir refsitollar á japanskar vörur. Japanir hagnast um milljarða dollara árlega á viðskiptunum við Banda- ríkjamenn en bandarískum ogöðrum erlendum fyrirtækjum er japanski markaðurinn eins og lokaður heim- ur. Segja bandarískir sérfræðingar, að japanskir framleiðendur, heildsal- ar og smásalar sameinist um að úti- Forsætisráðherrea Ungverjalands: Kommúnistar ráðgerðu valdarán Búdapest. Reuter. MIKLOS Nemeth, forsætisráðherra Ung- veijalands, skýrði frá því í gær að háttsett- ir embættismenn innan kommúnistaflokks landsins hefðu á síðasta ári skipulagt valda- rán og treyst á stuðning Tékka og Rúmena. Nemeth lét þessi orð falla á þingi er hann svaraði ásökunum stjórnarandstæðinga þess efnis að stjómvöld stunduðu enn hleramir og létu fylgjast grannt með ferðum og gjörðum hugsanlegra fjandamanna sinna. Nemeth kvaðst hafa fengið nafnlaust bréf í nóvember í fyrra þar sem sagði að embættis- menn í fjölmörgum flokksdeildum teldu valda- rán einu fæm leiðina til að hindra umbótaáform ríkisstjórnar sósíalista. Hefðu þeir þegar tryggt sér stuðning ráðamanna í fjölmörgum ríkis- fyrirtækjum og væri hugmyndin m.a. sú að skapa ólgu í Ungveijalandi með því að hindra miðlun raforku og vatns. Síðan yrðu leiðtogar ríkisstjómarinnar handteknir. í bréfinu sagði ennfremur að valdaræningjarnir reiddu sig á stuðning herafla Rúmeníu og Tékkóslóvakíu. Nemeth kvaðst hafa látið kanna sannleiks- gildi þessara fullyrðinga og hefði niðurstaðan orðið sú að þær ættu við rök að styðjast. Kom- ið hefði verið í veg fyrir áform þessi og sagði Nemeth það hafa verið gert áður en kommúnist- um var komið frá völdum í Rúmeníu og Tékkó- slóvakíu. Mánuði áður en bréfið barst Nemeth höfðu ungverskir kommúnistar hins vegar sam- þykkt að leysa flokkinn upp og stofnað nýjan sósíalískan flokk að vestrænni fyrirmynd. Forsætisráðherrann sagði höfund bréfsins hafa fengið þessar upplýsingar frá forstjóra ónefnds ríkisfyrirtækis er samþykkt hefði að taka þátt í valdaráninu. Hann gat þess hins vegar ekki hveijir hefðu bruggað launráð þessi og tíundaði ekki heldur hvernig brugðist hefði verið við þehn. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hvatti í gær kaupsýslumenn og aðra frammámenn í atvinnulífinu til að leggja sitt af mörkum við að byggja upp efnahagslíf Austur-Evrópuríkjanna og Rómönsku Ameríku. Lagði hann til, að stórfyrirtæki fyndu sér systurborg eða -fyrirtæki í þessum löndum og hjálpuðu þeim síðan með fjárfestingu, tæknikunnáttu og þeirri þekkingu, sem þau hafa á frjálsum viðskiptum. Bush og Toshiki Kaifu, forsætisráðherra Japans, hittust í gær í Palm Springs í Kali- forníu til að ræða ágreining rikjanna í viðskiptamálum og lét Bush svo um mælt, að opnuðu Japanir ekki heimamarkað sinn fyrir útlendri vöru yrði settur refsitollur á japanska vöru. Á fundi í verslunarráði Kaliforníu sagði Bush, að frammámenn í bandarísku athafnalífi hefðu nú fengið einstakt tækifæri til að láta að sér kveða og ryðja brautina fyrir fijálsu framtaki. „Styðjið austur- evrópsku fyrirtækin, sem eru að beijast við að hasla sér völl í nýjum heimi, og takið upp samstarf við loka útlerda vöru og njóti við það óbeins stuðnings stjórnvalda. Japanir virðast vera famir að átta sig á, að við svo búið má ekki standa og sagði Kaifu forsætisráðherra áð- ur en hann fór til Kalifomíu, að við- skiptaágreiningurinn við Bandaríkin væri mesta vandamál, sem við Jap- ansstjóm blasti. Reuter Fyrir fúndinn með Toshiki Kaifu, forsætisráðherra Japans, leitaði Bush ráða þjá forvera sínum í embætti, Ronald Reagan, og það er ekki að sjá, að þeim hafl mikið borið í milli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.