Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 Ólíkt hafast þeir að Pistill, sem ekki mátti flytja á Rás 2 eftir Hannes Hólm- stein Gissurarson Góðir hlustendur! Flestir muna þá tíð. er róttæklingar réðust af mikilli heift á dr. Bjama Bene- diktsson. Bar einkum það tvennt til, að hann var einn öflugasti leið- togi fijálslyndra lýðræðissinna í landinu og ötull talsmaður vest- rænnar samvinnu, sem þá var eit- ur í beinum sósíalista, þótt nú vilji allir Lilju kveðið hafa. Nú ráðast róttæklingar hins vegar af svipuð- um ofstopa á Davíð Oddsson borg- arstjóra, enda finna þeir þar fyrir aðsópsmikinn stjómmálamann, harðskeyttan og hugvitssaman. Hér á Rás tvö hafa nokkrir fé- lagshyggjumenn með Bimu Þórð- ardóttur í broddi fylkingar notað þann tíma, sem þeim hefur verið skammtaður hér reglulega á morgnana, til árása á Davíð Odds- son. í þessum morgunpistli hyggst ég af því tilefni benda á nokkur atriði, sem stundum fara framhjá mönnum. Ólíkt hafast þeir að, Davíð Oddsson annars vegar og forkólfar félagshyggjunnar, sem nú ráða mestu í landsmálum, hins vegar. Lítum fyrst á Viðeyjarstofu, sem ríkið gaf Reykjavíkurborg á tvö hundruð ára afmæli höfuðstað- arins. Hún hefur nú verið endur- reist með miklum glæsibrag. Ber- um þetta saman við Þjóðarbók- hlöðuna, sem Alþingi gaf þjóðinni á ellefu hundruð ára afmæli Is- landsbyggðar. Hún stendur nú galtóm og í niðumíðslu norðan við Háskólann sem eins konar minnis- varði um ómyndarskap og óorð- heldni núverandi valdsmanna. Horfum þá á Ráðhúsið, sem er Hannes Hólmsteinn Gissurarson að rísa við Tjörnina. Vinstri flokk- amir klifa á kostnaðinum af því. En sannleikurinn er sá, að Ráð- húsið er ókeypis. Það er reist fyr- ir sparnaðinn, sem myndaðist af því að selja Bæjarútgerð Reykjavíkur, en síðasta árið, sem það fyrirtæki var í eigu borgarinn- ar, tapaði það einni milljón króna á viku. Þegar lagður er saman sparnaður af þessari breytingu á átta árum, andvirði fyrirtækisins bætt við og allt reiknað upp á núvirði, er kominn kostnaðurinn af Ráðhúsinu. Athugum síðan nýlegt smámál, sem er þó stórt í sjálfu sér. Þegar stjórnarherrarnir skipulögðu heimsókn Vaclavs Havels á dögun- um, gerðu þeir ekki ráð fyrir, að hann gæti hitt landa sína, sem búa hér. En þeir sáu auðvitað um, að margir gamlir sósíalistar (sem sumir hafa verið á launum hjá fangelsisstjórunum, er forðum réðu í Prag) væru boðnir í Þjóð- leikhúsið með Havel. Davíð Odds- son bauð hins vegar þeim Tékkó- slóvökum, sem hann náði til, að hitta Havel í Höfða og afstýrði þannig miklu hneyksli. Eg þarf ekki að bera saman hag Reykjavíkur, þar sem allt er í blóma, og hag Hafnarfjarðar og Kópavogs, sem eru óðum að sökkva í skuldafen. Allt sýnir þetta og sannar hið fornkveðna — að veldur, hver á heldur. - • - Ofangreindan pistil ætlaði ég að flytja á Rás tvö fimmtudaginn 1. mars síðastliðinn, en þar hef ég undanfarið flutt morgunpistla hálfsmánaðarlega samkvæmt samkomulagi. Forstöðumaður Rásarinnar, Stefán Jón Hafstein, meinaði mér þá um það og sagði mér í leiðinni upp pistlaflutningi. Bar hann því við, að ég kæmi reglubundið fram í öðrum fjölmiðl- um, þar á meðal í útvarpsstöðinni Bylgjunni. Er brottrekstur minn athyglis- verður af tveimur ástæðum. Onnur er sú, að ekki varð lítill hávaði, er Stöð 2 tryggði sér einkarétt á flutningi handknattleiksefnis fyrir einu og hálfu ári, og kvartaði þá Ríkisútvarpið óspart. Var horfið frá því við svo búið. Er þetta ekki sama reglan? Hin ástæðan er, að um Ríkisút- varpið hljóta að gilda aðrar reglur og strangari en einkastöðvar, þar eð það aflar fjár til starfsemi sinnar með skylduáskrift frá öllum landsmönnum. Það kemur okkur öllum við, hvað þar er flutt. Starf- semi einkastöðvanna er hins vegar einkamál þeirra, sem vilja þar hlusta og auglýsa. Fleiri eiga að komast að á Ríkisútvarpinu en Birna Þórðardóttir og hennar líkar. Höfundur er lektor í stjórnmálafræði í Félagsvísindadeild Háskóla íslands. Nýtt Músli frá OTA Hawaii músli Heildsölubirgðir H. Ólafsson & Bernhöft Vatnagörðum 18, s. 82499. Ný sending af Chrysler og Jeep árgerð 1990 var að koma til landsins. Ríkulega útbúnir bflar á sérstaklega hagstæðu verði. N>tChnsler Saratoga 4 Fyrir þá sem vilja láta sér líða vel við aksturinn. 4 Saratoga er með öllum hugsanlegum búnaði og > mjög rúmgóður. 4 Sjálfskipting, 4 rafdrifnar rúður og speglar 4 samlæsing o.fl. 4 Verð frá kr. 1.493.000 4 240 þúsund kr. afsláttur af Dodge Shadow ES Turbo ♦ Okkur tókst að útvega nokkra ríkulega útbúna Dodge Shadow ES Turbo, árgerð 1989 á frábæm verði eða nýjan bíl á kr. 1.320.000.1 Vökvastýri» sjáífskiptur t rafdrifnar rúður * samælsing t rafdrifinn ökumannsstóll o.fl. Chiysler Yoyager SE 4 Einstaklega fjölhæfur fjölskyldubíll. 4 í Voyager eru sameinuð þægindi og aksturseiginleikar lúxus fólksbfls og 4 farþegarými og burðargeta stærri bif- reiða. 4 3,0 lítra V6 vél með sjálfskiptingu 4 sam- læsing 4 rafdrifnar rúður o.fl. 4 Verð frá kr. 1.998.500 4 Jeep Cherokee 4 Ókrýndur konungur lúxus jeppa. 4 Einn með öllu. 4 4,0 lítra 6 cyl. með beinni innspýtingu, 4 sjálfskiptingu 4 samlæsing 4 rafdrifnar rúður og speglar o.fl. 4 Verð firá kr. 2.370.500 4 Umboðsmenn Jöfurs Akureyri: Skálafell, Draupnisgötu 4 * Víkingur sf., Furuvöllum 11 Akranes: Bílaverkstæðið Bílver, Dalbraut 14 Egilsstaðir: Bílasalan Fell, Kauptúni 3, Fellabæ Húsavík: Bifreiðaverkstæði Tryggva Guðmundssonar, Haukamýri 1 Höfn: Shell Skálinn, Hafnarbraut 38 ísafjörður: Hjólbarðaverkstæði ísafjarðar, Njarðarsundi 2 Keflavík: Bílasala Brynleifs, Vatnsnesvegur 29a Sauðárkrókur: Áki Bílaverkstæði, Hólavegi 21 Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Vestmannaeyja, Flatir 27 JÖFUR HF Nýbýlavegi 2, sími 42600 Haföu samband við sölumenn strax í dag. Söludeildin er opin alla virka daga kl. 9-12 og 13-18 og laugardaga kl. 13-17. Síminn er 42600. Sýning um helgjna, opið laugardag og sunnudag kl. 13-17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.