Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 34
! MORGUNBLiA'ÐIÐ LAUGARDAGUR 3j. MARZ 1990 34 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú byijar á nýju verkefni, en getur átt í vandræðum með sam- skipti þín við samstarfsfólk. Þér vegnar betur á félagslega svið- inu á næstu vikum. Naut (20. apríl - 20. maí) (f Starf og leikur fléttast skemmti- lega saman á næstunni, en ein- hver hvellur getur orðið i dag út af peningamálum. Þú gengur bráðlega í nýtt félag. Tvíburar (21. maí - 20. júníj Það er annríki framundan hjá þér, en dagurinn í dag verður á rólegu nótunum. Þú kynnist ein- hveijum sem býr í fjarlægð. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HIS Þú ráðfærir þig við aðila sem þú treystir. Þig langar til að kaupa listaverk. Snurða hleypur á þráðinn hjá þér og einhveijum nákomnum þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það er rómantískur tími fram- undan hjá þér og maka þínum. Þú verður fyrir truflunum í vinn- unni og kemur ekki eins miklu í verk og þú ætlaðir þér. Meyja (23. ágúst - 22. september) Það er vaxandi skilningur milli þín og nákomins aðila. Sumir undirrita samning. Láttu skemmtanafíknina ekki koma í veg fyrir að þú sinnir því sem sinna þarf. Vog (23. sept. - 22. október) Það verður líflegt yfir félagslíf- inu hjá þér á komandi vikum auk þess sem rómantíkin verður ekki langt undan. Þú færð góðar hugmyndir sem koma þér að gagni við verkefni sem þú ert með í takinu. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú tekur óvenjulega oft á móti gestum heima hjá þér á næst- unni. Samband þitt við bamið þitt veiður betra. Taktu enga fjárhagslega áhættu í dag. Bogmaður (22. nóv. -21. desember) <50 Þú lest mikið á næstu vikum. Tækifæri til að ferðast kemur bráðum upp í hendumar á þér. Þráttaðu ekki um peninga í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er skapandi tímabil fram- undan hjá þér, en í dag verður erfitt að halda dampinum uppi við það sem þú ert að gera. Reyndu samt að þrauka. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Einhveijar spumingar sem tengjast rómantík vakna í huga þínum í dag. Þú ert að velta fyrir þér einhveijum viðskiptum sem varða þig miklu í náinni framtíð. Hresstu upp á útlitið. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú færð urmul nýrra hugmynda á næstu vikum. Þú ert að und- irbúa nýtt verkefni. Þetta er ekki rétti dagurinn til gestaboða heima fyrir. AFMÆLISBARNIÐ er fjölhæft, en hættir til að dreifa kröftum sínum um of. Þegar það hefur lært að hafa ekki áhuga á öllum sköpuðum hlutum og getur ein- beitt sér að einhveiju ákveðnu sviði gengur því allt að óskum. Það er einkar tungulipurt og oft og tíðum fætt inn í hlutverk rit- höfundarins. Það hefur góða sköpunarhæfileika og kann að iaðast að leikhússtarfi. Það hef- ur eðlislægan áhuga á öðm fólki og er umbótasinnað. Stj'úrnuspúna á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DYRAGLENS ©1969 Trlbuna Medla Servlces, Inc. EINHVeKN TÍAáAN E/tENUAIsn V/Ð Otcicfie E/G/fiJ FLÓÐHESTA ,. rW/NN 06 þ//ON f ----------------------J í VATNSMÝRINNI BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Greinilega ekki okkar mót,“ varð George Mittelman að orði eftir útreiðina í spili dagsins, sem kom upp í tvímennings- keppni í Kanada í fyrra. Mittel- man þekkja Islendingar vei, enda tíður gestur í bridshátíð. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ Á4 VÁD84 ♦ 102 ♦ G10943 Vestur ♦ KD1082 ¥532 ♦ 985 ♦ K2 Austur ♦ G97653 ¥ K ♦ DG7 ♦ 875 Suður ♦ - ¥ G10976 ♦ ÁK643 ♦ ÁD6 Vestur Norður Austur Suður - - - 1 hjarta 1 spaði 2 spaðar 4 spaðar 5 tíglar Pass Pass 6 hjörtu Pass Pass Útspil: lauftvistur! Mittelman var í austur, en félagi hans í vestur hafði fylgst vel með sögnum og taldi líklegt að laufásinn kæmi upp í blind- um. Tilgangurinn með laufút- skotinu var að þvinga sagnhafa til að taka afstöðu varðandi hugsanlega laufsvíningu strax í fyrsta slag, áður en hann gæti kannað aðra möguleika. Svo sem ekki vitlaus hugmynd. En ekki heppnaðist hún vel. Suður var sannfærður um að lauftvisturinn væri einspil og spilaði því snarlega hjarta upp á ás! Hann ætlaði ekki að gefa slag á hjartakóng og laufstungu í kjölfarið. Þegar trompkóngur- inn kom í var spilið í höfn, en þrátt fyrir allt fékk vestur slag á laufkónginn. Synd og skömm að vestur skyldi ekki eiga hjartakónginn líka. Umsjón Margeir Pétursson Á öflugu opnu móti í Róm í febrúar kom þessi staða upp í skák ■ sovézka alþjóðameistarans Lanka (2.480), sem háfði hvítt og átti leik, og júgóslavneska stór- meistarans Todorcevic (2.550). Svartur lék síðast 25. — Rd7-e5. 26. Bxf6! - exf6, 27. Dxd6 - Db6 (Hefði átt að tapa strax, en 27. - Rf7, 28. De6+ - Kf8, 29. Dxf6 var ekki mikið betra) 28. Hh8+? (Þótt Sovétmaðurinn hafi hugsað sig um í 45 mínútur sá hann ekki hina einföldu vinnings- leið 28. Dxb8+! — Dxb8, 29. Hh8+) 28. — Kf7 og samið var jafntefli, því eftir 29. Dxb8 — Dgl+, 30. Kb2 - Dd4+ þráskák- ar svartur. Englendingurinn Tony Miles sigraði á mótinu með 7 v. af 9 mögulegum, röð næstu manna varð: 2-7. Smyslov, Oll, Bareev og Chernin, Sovétríkjun- um, Vera, Kúbu og Todorcevic 6‘Av. Miles tryggði sér sigurinn með sigri yfir Chernin í síðustu umferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.