Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 Reykjavík: Framboðslisti Kvenna- listans ákveðinn Keflvíkingar vígja nýja og glæsilega sundmiðstöð á sandrifi RANNVEIG Sigurgeirsdóttir, sem vinnur í Boulogne í Frakk- landi, var á leið með ferju yfir Ermarsund á miðvikudagskvöld þegar veðrið var sem verst. Feijan komst við illan leik inn í höfnina í Boulogne en þar vildi ekki betur til en svo að hún strandaði á sandrifi. Fimm tíma tók að losa feijuna. Rannveig, sem er 25 ára göm- ul, vinnur við að selja íslenskan ferskfisk í Boulogne. Hún lagði af stað frá íslandi á miðvikudags- morgun til London. „Klukkan 17 fór feijan frá Folkestone sem er rétt hjá Dover. Að öllu jöfnu hefði siglingin átt að taka þtjá til íjóra tíma. Veðrið var afar slæmt og öldugangurinn mikill svo ég hafði nú bara hægt um mig. Stólar þeyttust um koll og öskubakkar flugu til og frá. Þegar feijan komst svo inn í höfnina í Boulogne stran- daði hún á sandrifi. Annað hvort hefur skipið borið af leið eða san- drifið færst til í óveðrinu. Þrír dráttarbátar reyndu að losa feij- una en ekkert gekk. Þarna sátum við föst í fimm tíma uns flóðið hreif feijuna með sér og losaði hana af rifínu. Tvær feijur sem á eftir komu gátu ekki siglt inn í höfnina í Boulogne og þurftu að dóla fyrir utan. Eg hefði ekki viljað vera þar um borð vegna öldu- gangsins," sagði Rannveig. KcOavík KEFLVÍKINGAR vígja í dag nýja og glæsilega útisundlaug, en undirbúningur og bygging Sundmiðstöðvarinnar hefur staðið yfir í áratug. Að lokinni vígsluathöfn sem hefst kl. 14.00 verður Iaug- in opnuð fyrir almenning og af þessu tilefhi verður öllum boðið að nota laugina endurgjaldslaust um helgina. Útisundlaugin sem verður tekin í notkun í dag er 12,5 x 25 metr- ar með 5 keppnisbrautum. Sam- tengd aðallauginni er bamalaug sem er 7 x 9 metrar á breidd og 60-70 sm djúp. í bamalauginni er sérstök skábraut fyrir hjóla- stóla sem er nýung við almenn- ingslaugar hérlendis. Þá er fyrir- hugað að koma fyrir vatnsrenni- braut við bamalaugina. Fjórir heitir pottar eru á Iaugarbakkan- um, þar á meðal er pottur með vatnsnuddi og grunnur buslpott- ur. Sundmiðstöðin er á tveimur hæðum og verður allt mannvirkið um 3.000 fermetrar. Af því verða teknir í notkun í dag um 2.000 fermetrar og er heildarkostnaður við þessa framkvæmd á núvirði um 150 milljónir króna. Á fyrstu hæð eru afgreiðsla, búningskle- far, böð og stór og rúmgóður veit- ingastaður. Á lofti, sem er að hluta til yfír fyrstu hæðinni, er loftræstibúnaður og þar verður einnig félagsaðstaða. í kjallara verður búningsaðstaða fyrir íþróttavellina, líkamsrækt og gufubað. Einnig verður þar öll hreinlætisaðstaða fyrir sundlaug- ar og potta. Síðar er fyrirhugað að byggja 12,5 x 25 m innilaug við Sundmiðstöðina, en búið er að steypa upp búningsklefa fyrir hana. Framkvæmdastjóri Sundmið- stöðvarinnar verður Hafsteinn Guðmundsson og starfsmenn verða 8. Arkitektar eru feðgarnir Gísli Halldórsson og Leifur Gísla- son, en aðalverktaki var Húsanes sf. í Keflavík. í byggingamefnd FRAMBOÐSLISTI Kvennalistans í Reykjavík vegna borgarsljórnar- kosninganna í vor, hefiir verið ákveðinn og er Elín G. Ólafsdóttir borgarfulltrúi i efsta sæti listans. í 2. sæti er Guðrún Ögmunds- dóttir félagsráðgjafi, 3. sæti Ingi- björg Hafstað starfskona Kvenna- lista, 4. sæti Elín V. Ólafsdóttir kennari, 5. sæti Margrét Sæmunds- dóttir fóstra, 6. sæti Hólmfríður Garðarsdóttir framkvæmdastjóri, 7. sæti Guðrún Erla Geirsdóttir myndlistarkona, 8. sæti Helga Tuli- nius jarðfræðingur og í 9. sæti Kristín A. Árnadóttir blaðakona. I 10. sæti er ína Gissurardóttir deildarstjóri, 11. sæti Hulda Ólafs- dóttir sjúkraþjálfari, 12. sæti Bryndís Brandsdóttir jarðeðlisfræð- ingur, 13. sæti Elín Guðmunds- dóttir húsmóðir, 14. sæti Stella Hauksdóttir fískiðnaðarkona, 15. sæti Guðrún Agnarsdóttir læknir og alþingiskona, 16. sæti Hólm- fríður Amadóttir framkvæmda- stjóri, 17. sæti Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri, 18. sæti Guðný Guðbjörnsdóttir dósent, 19. sæti María Jóhanna Lámsdóttir kennari og í 20. sæti Málhildur Sigurbjöms- dóttir fiskverkakona. í 21. sæti er Sigrún Sigurðardótt- ir dagskrárgerðarkona, 22. sæti Stúdentaráð: Kosið 13. mars KOSIÐ verður til stúdentaráðs og háskólaráðs Háskóla Islands þriðjudaginn 13. mars. Tveir list- ar eru í kjöri, listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta og Röskvu, samtaka félagshyggju- fólks. Þijátíu fulltrúar sitja í stúdenta- ráði og eiga fjórir þeirra einnig sæti í háskólaráði. Kjörtímabil full- trúanna er tvö ár og er kosið um helming þeirra árlega. Framboðsfrestur vegna kosning- anna rann út á hádegi í gær og höfðu þá tveir framboðslistar verið lagðir fram; listi Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta og Röskvu, samtaka félagshyggjufólks. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Utisundlagin er 25 m á lengd með 5 keppnisbrautum. Einnig er sérstök barnalaug tengd aðallauginni og íjórir heitir pottar eru á laugarbakkanum. eiga sæti: Hafsteinn Guðmunds- son formaður, Indriði Jóhannsson, Jón Halldórsson, Jóhann Ein- varðsson og Sigurður Steindórs- son. Jóhann Bergmann bæjar- verkfræðingur hefur starfað með nefndinni og hefur hann jafnframt verið eftirlitsmaður með fram- kvæmdum. BB Sigrún Ágústsdóttir kennari, 23. sæti Helga Thorberg leikkona, 24. sæti Sigríður Lillý Baldursdóttir eðlisfræðingur, 25. sæti Borghildur Maack hjúkrunarfræðingur, 26. sæti Magdalena Schram blaðakona, 27. sæti Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir mannfræðingur 28. sæti Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðing- ur, 29. sæti Laufey Jakobsdóttir, amma í Gijótaþorpi og í 30. sæti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagn- fræðingur. Morgunblaðið/Bjami Frá fundi sjálfstæðismanna um skattamál á Hótel Borg á fimmtudaginn. Ólafur B. Thors er í ræðustól, ----------------------------- en við borðið sitja Davíð Stefánsson og Þuríður Pálsdóttir. Ólafur B. Thors á fundi sjálfstæðismanna um skattamál: íslandsmet í skattheimtu og ríkisumsvifum í fyrra „VIÐ HÖFUM skömm á skatta- stjórnum" var yfirskrift opins fundar á vegum Sambands ungra sjálfstæðismanna og sjálfstæðis- félaganna i Reykjavík sem hald- inn var á Hótel Borg á fimmtu- daginn. Sagði Ólafur B. Thors, forstjóri, sem var einn firummæl- anda, að sett hefði verið íslands- met í skattheimtu og ríkisumsvif- um á síðasta ári. Þá sagði Davíð Stefánsson, formaður SUS, að sjálfstæðismenn stæðu einir gegn aukinni skattheimtu þegar á riði að borgaraleg öfl stæðu þétt um rétt landsmanna til eigin ákvarð- anatöku. Það hefði sjaldan verið augljósara en nú. Um hundrað og fimmtíu manns sóttu fundinn. Ólafur B. Thors, foretjóri, sagði að sett hefði verið Islandsmet í skattheimtu og ríkisumsvifum á síðasta ári. Hefðu skatttekjurnar í fyrsta sinn farið yfír 25,2% af lands- framleiðslu. Þetta hlutfall hefði aldreið áður verið jafn hátt. Fyrra met ætti síðasta vinstri stjóm, þetta hlutfall hefði verið 24,5% árið 1982. Á árinu 1988 hefði það verið 23,9%. Skattheimtan ein gæfí þó ekki rétta mynd af ríkisumsvifum. Ríkisumsvif færu að miklu leyti fram með miðstýringu og duttl- ungastjóm af ýmsu tagi. Það væri höfuðmeinsemdin í íslensku efna- hagskerfí. Ákvarðanir væm á ótrú- lega mörgum stöðum teknar af ráð- um og nefndum sem í ættu sæti fulltrúar stjórnmálamanna. Ólafur B. sagði það vera höfuðverkefni að afnema þetta „austantjaldskerfi" ef ekki ætti að stofna efnahagslegu sjálfstæði okkar í voða. Taldi hann síðan upp fjölda skatta og gjalda er lögð hefðu ver- ið á eða hækkuð að undanförnu og sagði allt miða að því að draga úr getu atvinnulífsins til að byggja sig upp. Sagði hann virðisaukaskattinn vera veigamestu breytinguna sem gerð hefði verið en í kringum hana væri gífurleg skriffínnska. Til dæm- is þyrfti að geyma allar nótur í þríriti í plastbindum í sjö ár. Hefði verið reiknað út að til þess að geyma þessar nótur myndi þurfa vel á aðra Þjóðarbókhlöðu.' Þuríður Pálsdóttir, kennari, ræddi þær breytingar sem gerðar hefðu verið á eignarskatti í tíð nú- verandi ríkisstjórnar. Sagði hún að vegna þéssara breytinga, hins svo nefnda ekknaskatts, væru til dæmi um að einstaklingur í skuldlausu húsnæði þyrfti að borga jafn mikið og 4-8 einstaklingar í hjónabandi í sambærilegu húsnæði gerðu til samans. Kristján Guðmundsson, verka- maður, ræddi skattbyrði launþega. Gagnrýndi hann hve mikið væri tekið í skatt af yfírvinnutekjum launafólks, tekjum sem það gæti ekki verið án ef það ætti að lifa af. Ekkert réttlæti væri { þessu og tími til kominn að snúa dæminu við. Geir H. Haarde, alþingismaður, sagðist telja að forsjárhyggjan ætti jafn litla framtíð fyrir sér hér á landi og í Austur-Evrópu. Enn væru menn þó ekki farnir að fínna fyrir vindum fijálsræðisins hér. Rakti hann ýmis dæmi um hvernig ríkis- stjórnin gerði allt til að auka álögur og sagði að því fyrr sem' hún hyrfi frá þeim mun betra. Halldór Blöndal, alþingismaður, tók síðastur til máls. Hann gagn- rýndi sérstaklega nýja skattlagn- ingu ríkisins á sveitarfélög og taldi þessa nýju skattheimtu munu eiga eftir að nema um milljarði á þessu ári. Óveðrið í V-Evrópu: Sat fimm tíma föst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.