Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 19 Rannveig Fríða Bragadóttir og Jónas Ingimundarson halda ljóðatón- leika I íslensku óperunni á mánudagskvöld. Rannveig Fríða og Jón- as með ljóðatónleika Arnarflug hf.: Eiginfjárstaðajákvæð fyrsta sinni frá því ég hóf hér störf - segir Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri „EINS og ég sé þetta núna vænti ég þess að greiðslustaða Arnar- flugs verði komin í lag að þessum aðgerðum loknum og eiginfjár- staðan verði orðin jákvæð í fyrsta sinn síðan ég kom til félagsins fyrir þremur árum,“ segir Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri Arnarflugs. Samningar hafa tekist um aukið hlutafé í félagið, 200 milljónir króna, sem ásamt öðrum aðgerðum breytir stöðu félagsins á þennan hátt. Kristinn segir að 9 mánaða uppgjör síðasta árs sýni eiginfjárstöðuna neikvæða um 580 milljónir króna. RANNVEIG Fríða Bragadóttir og Jónas Ingimundarson halda ljóðatónleika í Islensku óperunni mánudaginn 5. mars kl. 20.30 á vegum Tónlistarfélagsins í Reykjavík. Rannveig Fríða er nú fastráðin við Ríkisóperuna í Vínarborg, en er hér í stuttri heimsókn, því auk þessara ljóðatónleika tekur hún þátt í flutningi á Sinfóníu nr. 2 eftir Mahler á afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands 9. mars nk. Samstarf þeirra Rannveigar og Jónasar hófst í nóvember 1988 þeg- Þjónustumið- stöðvar aldraðra í Reykjavík: Helga og Helgiflytja Myndir úr Brekkukots- annál MYNDIR úr Brekkukotsannál nefnist ný bókmenntadagskrá í flokknum Skáldin okkar, sem leikararnir Helga Bachmann og Helgi Skúlason flytja í þjónustu- miðstöðvum aldraðra í Reykjavík. Þau byija að flyija hina nýju dagskrá næstkomandi þriðjudag og verður flutt saman- tekt Hallgríms H. Helgasonar úr Brekkukotsannál eftir Halldór Laxness. Aður hafa þau flutt leik- gerð úr Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunnarsson. Flutningur þessarar bókmennta- dagskrár er liður í þjónustu Reykjavíkurborgar við eldri borgara og er ætlunin að flytja leiklestur úr verkum höfuðskálda þjóðarinnar. Myndir úr Brekkukotsannál verða fyrst fluttar í þjónustumið- stöðinni Lönguhlíð 3 þriðjudaginn 6. mars klukkan 14. Síðan verður dagskráin sem hér segir: Miðvikudaginn 7. mars klukkan 14 á Vesturgötu 7. Fimmtudaginn 8. mars á Afla- granda klukkan 14 og á Norður- brún 1 klukkan 20. Mánudaginn 12. mars klukkan 14 á Dalbraut 21-27. Miðvikudaginn 14. mars klukkan 14 í Gerðubergi. Fimmtudaginn 15. mars klukkan 14 í Bólstaðarhlíð 43. Þriðjudaginn 3. apríl klukkan 14 í Seljahlíð og kiukkan 20 í Hvassa- leiti 56-58. Fimmtudaginn 5. apríl klukkan 20 í Furugerði 1. Ókeypis aðgangur er að dag- skránni og öllum heimill. ar þau héldu tónleika í Ljóðatón- leikaröð Gerðubergs. A efnisskránni á mánudagskvöld verða gamlar ítalskar aríur, þýsk þjóðlög í útsetningu Brahms, svo og lög eftir Schubert, Schönberg, Ravel og Rossini. Miðasala stendur yfir í Islensku óperunni. í 9 mánaða uppgjöri síðasta árs, sem eru nýjustu tölur um stöðu félagsins að sögn Kristins, er eig- infjárstaðan neikvæð um 580 millj- ónir króna. „Þá er eftir að taka til- lit til niðurfellingar ríkisins, en það er bara formleg afgreiðsla sem enn vantar, það eru 150 milljónir. Við söluna á vélinni myndast sjálfsagt eigið fé upp á aðrar 150. Síðan kemur svo meira hlutafé og frekari niðurfellingar, þannig að þegar allt er tekið saman eigum við von á því að við verðum búnir að koma félag- inu í jákvæða eiginfjárstöðu,“ segir Kristinn Sigtryggsson. Hann kveðst ekki að svo stöddu geta nefnt tölur um væntanlega jákvæða eiginfjárstöðu. „Það er enn verið að setja pakkann saman í heild sinni,“ segir hann. Nýja hlutaféð, 200 milljónir, verður reitt fram í peningum til Arnarflugs, að sögn Kristins. Hann segir að verið geti að nýju hluthaf- arnir þurfí að selja eignir til að reiða fram féð, „en þegar það kem- ur hingað, þá eiga það að vera pen- ingar“. Kristinn segir að sex mán- uðir séu hámark fyrir aðgerðirnar, helst vilji félagið ljúka þeim fyrr. Hann kveðst vænta þess að greiðslustaða félagsins verði komin í lag að aðgerðunum loknum og eiginfjárstaðan jákvæð í fyrsta sinn á hans ferli hjá félaginu. „Þegar ég tók við félaginu fyrir þremur árum, þá var eiginfjárstaða þess neikvæð um 300 milljónir. Ætli það jafngildi ekki 500 milljónum í dag. Hver maður getur séð hvaða vandi það er að reka fyrirtæki við þessar aðstæður. Þó held ég að enginn sjái það, sem ekki hefur staðið í því.“ Öllu starfsfólki Arnarflugs var sagt upp störfum um mánaðamótin janúar/febrúar og segir Kristinn að unnið sé að því að ráða sem flesta aftur, enda sé mjög slæmt að halda fólkinu í óvissu um framtíðina. Hann segir að þetta ár muni Arnarflug hafa eina þotu í rekstri. Nú er verið að skoða þá kosti sem koma til greina, þegar félagið slepp- ir leiguvélinni sem það hefur nú frá Trans Wede. „Á meðan við erum að ná fluginu aftur og endurskipu- leggja okkur, verðum við á einni vél,“ sagði Kristinn Sigtrvore-sson Myndbandið er orðið að sjálfstæðum miðli, sem veitir fólki afþreyingu á ódýran og skemmtilegan hátt. Það er þó full sterkt til orða tekið að nefna eilíft líf í þessu sambandi, nema að tengja það við myndir eins og Cocoon II, þar sem sú umræða er ofarlega á baugi. Nú eru flestir farnir að setja Steinar Myndir í beint samhengi við gífurlegan fjölda kvikmynda, greinagóða flokkun og merkingu mynda og fleiri verðflokka en gengur og gerist. Sífellt fleiri nýta sér kosti þess að geta skilað á fjórum stöðum, í Mjódd, í Skipholti, í Hafnarfirði eða Austurstræti. Það er okkur mikið gleði- efni hversu fljótt fólk hefur fundið muninn á að geta fengið myndirnar í flestum tilfellum þegar það óskar SAKAMALAMYNDIR LETHAL WEAPON I & II BETRAYED STONING MURDER IN PARADISE (ÞÆTTIR) FARELL FORTHE PEOPLE A TOUCH OF SCANDAL BY THE RIVER OF BABYLON ® GRINMYNDIR FEDS POLICE ACADEMY CROSSING DELANCEY RIKKYANDPETE HERAI IBI THREE FUGITIVES DIRTY ROTTEN SCANDALOUS NAKEDGUN YOU MUST BE JOKING WOMEN ON THE VERGE OF A NERVOUS BREAKDOWN LEFTOVERS GESTABOÐ BABETTU SIDE BYSIDE BURBS WITHOUT ACLUE MY STEPMOTHER IS AN ALIEN TEENWITCH BARON MUCHAUSEN CANNONBALL FEVER ð DRAMAMYNDIR EVERYBODY'S ALL AMERICAN 1969 TROWAWAYWIFES STARLIGHT HOTEL KATHYSCHILD TORCH SONG TRILOGY BEECHES DISTANCE THUNDER GOLDSASSYTREE SPENNUMYNDIR TWIN PEAKS APPRENTICE TO MURDER SPY KIDCOLTER ARROGANT DEAD HEAT TRAPPED BREKING LOOSE TRAPPER COUNTY WAR BREAKING POINT GRECIOUS BODILY HARM HOLD MY HAND l'M DYING BULLDANCE INNTIMIDATOR CRASY MOON o GOLDSAS o ATHYGLISVERÐAR MYNDIR COCOON THE RETURN KISS OF THE SPIDERWOMAN DUELLESTS MADAM SOUSATZKA LOVE AND PASSION SANSOGULEGAR MYNDIR ,THE MAN WHO BROKE 1000 CHAINS CONVICTED BARNAMYNDIR EWOKS 1 DROIDS1 COCCÐN Bítti ■ LETHAL WEAPOIM Roger Murtaugh finnst lögreglu- maðurinn Martin Riggs, sem haldin er sjálfseyðingarhvöt, vera besta leiðin til að losa sig við áhyggjurnar af eftirlaununum. LETH AL WEAPON 2 Þessi mynd hefur slegið öllum öðr- um myndum við síðustu daga, enda engin furða. Betri spennu/grín- mynd er ekki hægt að finna. Frá- bær skemmtun frá byrjun til enda. Ekki gera þér og þinni fjölskyldu það að sjá hana ekki. COCOON -THERETURN Frá framleiðendum „Undrasteins- ins“ kemur þetta spénnandi og heillandi framhald. §em fyrr er það úrvalslið leikara, sem fer með aðal- hlutverkin í mynd, sem enginn má lata fram hjá sér fara. 84 CHARLIE MOPIC Ljósmyndari slæst í för með hópi hermanna í Vietnam og útkoman „ er spennandi og Ijóslifandi mynd um hvernig var í raun umhorfs og hvaða hugsanir leituðu á hugann. EVERYBODY'S ALL AMERICAN Frábær og mjög vel gerö mynd, þar sem hvergi er sparað til að lýsa á fullkominn hátt ást, hatri og tog- streitu milli þriggja aðila frá fyrstu kynnum fram á miðjan aldur. Væntanleg 5. mars CONVICTED Spennandi mynd um baráttu manns fyrir óréttmætum dómsúr- skurði og hetjulegri baráttu fyrir frelsi og hreinsun mannorðs síns. Frábær leikur undirstrikar þá kvöl og pínu, sem Douglas Forbes og fjölskylda hans þurftu að þola árið 1973. Væntanleg 5. mars 1969 Armstrong á tunglið, Woddstock, Nixon forseti, Easy Rider í bíó og Hárið á Broadway. Eiturlyf, nekt- arnýlendur og Vietnam. Ef þú vilt upplifa tímamótaárið 1969, þá fær- ir myndin þér stemmningu ársins beint inn í stofu. THEMAN WHO BROKE1000 CHAINS Átakanleg sönn saga um ungan mann, sem er saklaus dæmdur í nauðungarvinnu, þar sem hann má þola ofboðslegar misþyrmingar og yfirgang stjórnenda fangelssins. Þetta leiðir til ótrúlegrar flóttatil- raunar, því frelsisþráin á sér engin takmörk. S T E I N A R Þarsem myndirnar fást MYNDIR myndbandaleigur Álfabakka 14 Austurstræti 22 Reykjavíkurvegi 64 Skipholti 9 sími 79050 sími 28319 sími 651425 sími 626171

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.