Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐlÐ LAtÍGARDAGUR 3. MARZ 1990
Keflavíkurflugvöllur:
Á þriðja
tug iðnað-
armanna
sagt upp
Vogum, Vatnsleysuströnd.
BANDARÍKJAHER hefur sett
algjört bann við gerð samninga
um nýjar framkvæmdir á vegum
hersins. Bannið stendur til apríl-
loka næstkomandi og gildir fyrir
Bandaríkjaher hvar sem er í
heiminum. Á þriðja tug iðnaðar-
manna hjá undirverktökum ís-
lenskra aðalverktaka hf. hefiir
þegar verið sagt upp störfum af
þessum sökum.
Tímann, sem bannið stendur,
ætlar herinn að nota til að gera
úttekt á nýjum framkvæmdum
vegna strangra aðhaldsaðgerða
bandarískra stjómvalda.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekki talið að þessar að-
haldsaðgerðir hafí áhrif á fram-
kvæmdir á vegum hersins hér á
landi, vegna eðlis framkvæmdanna
hér. Hins vegar er áhrifa samnings-
bannsins farið að gæta. Á þriðja
tug iðnaðarmanna, sem starfa hjá
undirverktökum Áðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli, fiefur verið sagt
upp störfum. Þeir hafa unnið við
framkvæmdir á vegum Varnarliðs-
ins. E.G.
Forsetabíll nr. 1, Cadillac Brougham. Nýi bíllinn verður nákvæm-
lega eins og þessi.
Nýr forsetabm í vor
EMBÆTTI forseta íslands heftxr fest kaup á nýrri bifreið, sem
væntanleg er til landsins í vor. Bifreiðin er nákvæmlega sömu
gerðar og embættisbíll númer 1, Cadillac Brougham, og kostar
um 3,8 milljónir króna, að meðtöldum öllum opinberum gjöldum.
Að sögn Kornelíusar Sig-
mundssonar, forsetaritara, var
veitt fé á fjárlögum til að end-
urnýja bílakost embættisins og í
framhaldi af því var aflað tilboða
frá nokkrum aðilum með milli-
göngu Innkaupastofnunar ríkis-
ins. Lægsta tilboðinu var tekið,
um bifreið sömu gerðar og fyrir
er hjá' embættinu.
Komelíus segir að gamli
bfllinn, sem orðinn er átta ára
gamall, verði væntanlega seldur
á uppboði hjá Innkaupastofnun,
eftir að sá nýi er kominn. Hann
telur líklegt að fá megi um eina
milljón króna fyrir hann. Hugs-
anlegt er þó, að bifreið sem keypt
var til embættisins í fyrra af
gerðinni Chevrolet, verði seld og
gamla Cadillac-bflnum haldið
áfram í rekstri, þannig megi
spara nokkurt fé, þar sem hærra
verð fáist fyrir Chevroletinn.
SkoðanakönnunFélagsvísindastofhimar:
Sjálfstæðisflokkur
fengi 45,5% fylgi
TVEIR af ríkissljórnarflokkunum, Framsóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur, tapa fylgi samkvæmt skoðanakönnun er Félagsvísindastofti-
un gerði fyrir Morgunblaðið dagana 23.-27. febrúar, ef miðað er við
síðustu könnun sem var í október. 8,1% segjast nú ætla að kjósa
Alþýðuflokkinn miðað við 8,3% í október. 16,4% segjast ætla að kjósa
Framsóknarflokkinn miðað við 17,6% í október. Alþýðubandalagið
eykur aftur á móti fylgi sitt um 3,2%, fengi nú 11,9% miðað við 8,7%
í október.
Fjórði ríkisstjómarflokkurinn,
Borgaraflokkurinn, eykur einnig
fylgi sitt lítillega, fengi nú 0,6%
atkvæða miðað við 0,3% í október.
Sjálfstæðisflokkur tapar 2,1% ef
miðað er við könnun Félagsvísinda-
stofnunar frá því í október. Segjast
45,5% nú ætla að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn miðað við 46,6% í könnun-
inni í október.
í könnuninni var einnig spurt um
afstöðuna til ríkisstjómarinnar.
Reyndust 45,2% telja sig vera and-
stæðinga ríkisstjórnarinnar en
33,3% töldu sig stuðningsmenn
hennar. 20,0% vom hlutlausir eða
óvissir og 1,5% neituðu að svara
þessari spurningu.
Sjá nánar í miðopnu.
Forsætisráðherra
setur á stofii hagráð
SERSTAKT „hagráð“ verður á
næstunni skipað af Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra,
sem á að hafa eftirlit með efna-
hagsþróun, verðlagsþróun,
Ferskfískútflutningurinn:
Bannað verður að flytja út
flattan físk með skípum
Meiri háttar iBrelsissvipting segir Jón Ásbjörnsson
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefúr sett reglugerð, sem bannar
útflutning á ferskum, flökuðum, flöttum eða hausuðum fiski með
skipum á erlenda markaði. Með setningu þessarar reglugerðar, sem
tekur gildi eftir viku, verður úr sögunni útflutningur á ferskum flött-
um fiski. Slíkur útflutningur hefúr verið töluverður að undanfiirnu
og hefúr fiskurinn verið saltaður i Bretlandi og Danmörku og seld-
ur meðal annars á Spáni. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, segir að þetta sé gert til að tryggja að fiskur héðan komist
ferskur á markað ytra. Salflskverkendur styðja þessa reglugerð, en
Jón Ásbjörnsson, einn útflytjenda á flöttum físki, segir hana meiri
háttar frelsissviptingu.
Halldór Asgrímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að nauðsyn-
legt væri að stuðla að því að gæði
fisks, sem héðan væri fluttur á er-
lenda markaði, væru viðunandi.
Ennfremur yrði að standa að
vinnslu og meðferð físksins sam-
kvæmt gildandi vinnsluaðferðum,
bæði hér heima og eriendis. Allar
þjóðir byggðu á slíkum reglum til
að tryggja gæði útflutningsfram-
leiðslu sinnar og halda verði hennar
uppi. „Það var mjög nauðsynlegt í
ljósi þróunarinnar að undanfömu,
að setja þessa reglugerð. Bezt væri
að þurfa ekki að setja reglur af
þessu tagi, en það var því miður
nauðsynlegt," sagði Halldór.
Reglugerðin segir í raun, að
óheimilt sé að hausa, fletja eða
flaka físk nema hann fari tafar-
laust til frekari .verkunar. Þannig
unninn físk er þó heimilt að selja
ferskan á markað innan lands og
Ölvaður olli slysi
TVÖ umferðarslys urðu í
Reykjavík með hálftíma millibili
um miðjan dag í gær. Á Fríkirkju-
vegi við Skothúsveg rákust saman
fjórir bílar. Ökumaður eins þeirra
var fluttur á slysadeild.
Sá ökumaður sem talinn er hafa
valdið óhappinu er grunaður um ölvun.
Þá slasaðist maður í hörðum
árekstri tveggja bíla á mótum Flóka-
götu og Snorrabrautar....•
flytja með flugvél til sölu á erlendan
markað. Eftir flatningu, flökun og
hausun skemmist fískurinn mun
hraðar, en væri hann geymdur
slægður samkvæmt mati Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins og
Ríkismats sjávarafurða. Því er út-
flutningur á honum með skipum
bannaður, en þá tekur nokkra daga
að koma honum á markað eða til
frekari vinnslu.
Vegna þess hve miklu dýrara er
að flytja ferskan fisk utan með flugi
en skipum, verður útflutningur á
flöttum físki til söltunar ytra úr
Sögunni. Jón Ásbjömsson, útflytj-
andi, er einn þeirra, sem mikla
áherzlu hafa lagt á útflutning á
ferskum, flöttum fiski til söltunar
ytra. Hann hefur nýlega fest kaup
á söltunarstöð í Bretlandi og hefur
selt saltfísk til Spánar. Hann segir
þessa ákvörðun vera meiri háttar
frelsissviptingu og sé hún fyrst og
fremst til að vemda og viðhalda
einokun SIF á útflutningi á salt-
físki. Hann trúi því ekki að utanrík-
isráðherra, sem hafí með útflutn-
ingsleyfí að gera, muni stöðva þenn-
an útflutning. Jón bætir því jafn-
framt við að þetta hafi í för með
sér verðlækkun á físki á mörkuðun-
um hér heima og tekjur sjómanna
og útgerðarmanna lækki því.
Sigurður Haraldsson hjá SÍF seg-
ir saltfiskverkendur styðja þessa
ákvörðun sjávarútvegsráðherra.
Með henni sýni ráðherrann mikla
festu og skilning á markaðsmálum.
Ekki sé hægt að sætta sig við vax-
andi útflutning á hráefni til vinnslu,
sem selt sé í samkeppni við íslenzka
framleiðendur.
Sjá nánar i miðopnu.
vaxtastigi og þenslu. Forsætis-
ráðhérra greindi samráðherrum
sínum frá þessari ákvörðun sinni
á fúndi ríkisstjórnarinnar síðdeg-
is í gær.
„Eg kalla þetta hagráð," sagði
Steingrímur í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann sagði að það
yrði að líkindum skipað átta emb-
ættismönnum sem væru í hinum
ýmsu stofnunum sem tengdust
efnahagsmálum.
„Þessu hagráði er ætlað að vera
á varðbergi hvað varðar þróun verð-
lags, vaxta, þenslu og yfirleitt allt
sem gæti stofnað hugsanlegum
árangri kjarasamninganna í
hættu,“ sagði forsætisráðherra.
Hann sagðist telja að þetta væri
nauðsynleg ráðstöfun til þess að
gæta þess að ekkert færi úrskeiðis
sem stofnað gæti kjarasamningun-
um í hættu, jafnframt því sem hag-
ráðið myndi gera tillögur til ríkis-
valdsins um með hvaða hætti mætti
bæta það sem hugsanlega færi úr-
skeiðis. Steingrímur kvaðst í næstu
viku mundu tilnefna menn í ráðið.
/
Aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi:
800 milljóna virði afhrogn-
um hent af fískiskipum á ári
- segir Sigurjón Arason efiraverkfræðing-
ur hjá Rannsóknastofiiun fískiðnaðarins
„MIÐAÐ VIÐ veiðiskýrslur er það okkar mat að 3-4 þúsund tonnum
af hrognum að verðmæti 6-800 miiyónir króna sé fleygt af fiskiskip-
um á ári og ónýttar aukaafúrðir á frystiskipum geti aukið vinnslu-
virði allt að 700 milljónum króna á ári,“ sagði Sigurjón Arason efiia-
verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun fískiðnaðarins, en hann á sæti
í aflanýtingarnefiid, á ráðstefhu um aukningu vinnsluvirðis í sjávarút-
vegi sem Samtök fiskvinnslufyrirtækja stóðu fyrir í gær á Hótel Sögu.
Sjö sérfræðingar fluttu fram- frystihúsanna, sagði að lykilatriði
söguerindi og voru allir sammmála
um að auka mætti verðmæti sjávar-
fangs svo skiptir nokkrum milljörð-
um króna, en slíkt kostaði vinnu,
peninga, rannsóknir og markaðs-
setningu.
Alda Möller matvælafræðingur,
sem starfar hjá Sölumiðstöð hrað-
þess að auka verðmæti í fiskvinnslu
væri aukin markaðsþekking, tryggt
vöruframboð, stöðug og meiri vöru-
gæði, hagræðing í vinnslu, aukin
vinnsla hérlendis og vöruþróun.
Sem dæmi nefndi hún að verðmæta-
aukning í grálúðu milli ára vegna
nýrra markaða jjaf 300 milljónir
króna.
Sigurður Bogason, matvæla-
fræðingur, sem starfar hjá Sölu-
samtökum íslenskra fískframleið-
enda, sagði að SÍF hefði farið nýjar
leiðir og væri að skoða ýmsar auka-
afurðir í tilraunaverksmiðju sinni
meðal -annars saltfískmaming í til-
búna fískrétti.
„A næstu árum þurfum við að
beina kröftum okkar að frekari full-
nýtingu alls sjávarfangs, því enn
eru til ónýttir eða vannýTtir físk-
stofnar eins og gulllax, kolmunni,
tindabikkja og ýmis lindýr. Þá eru
vannýttir fískhlutar sem gætu gefíð
viðbótartekjur sem saltafurðir að
upphæð 371 fnilljón króna á ári,“
sagði Sigurður Bogason hjá SIF.
Forsætisráðherra
svarar Thatcher:
**T----------- 1* .
Vill samn-
ingaviðræð-
ur við þjóð-
imar þrjár
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra skýrði ríkis-
stjórrjinni í gær frá efni bréfs
sem hann hefúr ritað Margar-
et Thatcher forsætisráðherra
Bretlands, þar semhann árétt-
ar að ríkisstjórn íslands telji
skynsamlegt að þær Qórar
þjóðir sem setja fram kröfiir
á Rockall-svæðinu setjist að
viðræðu- og samningsborði.
Þjóðir þær sem hér um ræðir
eru Bretar, írar, íslendingar
og Danir fyrir hönd Færey-
inga.
Þetta bréf forsætisráðherra
er svarbréf við bréfi breska for-
sætisráðherrans, þar sem hún
lýsti sig fúsa tií viðræðna, eins
og greint hefur verið frá í frétt-
um í Morgunblaðinu.
„Ég þakka í bréfinu það boð
forsætisráðherra Breta að sér-
fræðingar geti rætt málið,“ sagði
forsætisráðherra, „en ítreka það
fyrra álit mitt að æskilegt væri
að löndin fjögur kæmu sér sam-
an.“
T