Morgunblaðið - 03.03.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 03.03.1990, Síða 4
4 MORGUNBLÁÐIÐ LAUGARDAGUR'8. MARZ 1990 Norðurlandaráðsþingi lokið: Mikill meirihluti vill áfram- hald norrænnar samvinnu - segir Páll Pétursson forseti ráðsms PÁLL Pétursson forseti Norðurlandaráðs segir að þing ráðsins í Reykjavík hafí tekist með ágætum, bæði hvað varðar framkvæmd þess og þau málefni sem þar var fjallað um. Hann segist telja að mikill meirihluti þingfulltrúa hafi viljað að viðhalda norrænni sam- vinnu innan Norðurlandaráðs þótt einstaka hjáróma rödd hafi að vísjy talið best að leggja Norðurlandaráð niður. Þingi Norðurlandaráðs var slitið í gær. Páll Pétursson sagði við Morg- unblaðið, að framkvæmd þingsins hefði tekist mjög vel og komið hefði í ljós, að Háskólabíó hentar vel fyrir slíkar samkomur. Þá hefðu umræður á þinginu ver- ið mjög uppbyggilegar, sérstaklega almenna umræðan á þriðjudag, og umhverfismálaumræðan á fimmtu- dag. Páll sagði, að þær reglur, sem giltu um Norðurlandaráðsþing, tryggðu nánast að umræður yrðu málefnalegar. Ræðutími væri tak- markaður og stuttur, og því færu menn ekki upp nema þeir hefðu eitt- hvað að segja. Páll sagði að samþykktar hefðu verið merkar tillögur á þinginu. Hann nefndi samstarfsáætlun um vamir gegn sjávarmengun, tillögu um bann við að flytja úrgang milli landa, áætlun um að auka þýðingar milli norðurlandamála og samræm- ingu vinnumarkaðar fyrir menn með langskólamenntun. Þingfulltrúum varð tíðrætt um framtíð Norðurlandaráðs í ljósi þeirr- ar þróunar sem á sér stað í Evrópu. Þegar Páll var spurður hvort þingið hefði lagt línur í þeim efnum sagði hann að vissulega hefðu heyrst efa- semdaraddir um gagnsemi norrænn- ar samvinnu, sérstaklega í ljósi þró- unar Evrópubandalagsins og evr- ópsks efnahagssvæðis sem Norðurl- öndin tækju þátt í. Hins vegar hefði mikill meirihluti þingfulltrúa verið þeirrar skoðunar að halda ætti áfram þessu samstarfi þótt forsendur væru að breytast. Páll Pétursson verður forseti Norðurlandaráðs næsta ár. Aðspurð- ur um helstu verkefnin á því ári, sagði hann að fyrst yrði samþykkt- um þingsins komið á framfæri við þjóðþingin. Þá stæði fyrir dyrum ferð sendinefndar Norðurlandaráðs til Sovétríkjanna í boði Míkhaíls Gorbatsjovs á fund Æðsta ráðsins í Moskvu og þjóðþinga Eystrasalts- landanna. Nefndin var endanlega skipuð á fundi forsætisnefndar ráðs- ins í gær, og eru í henni, auk Páls sem verður formaður, Karin Söder frá Svíþjóð, Anders Talleraas frá Noregi, Mats Nyby frá Danmörku, Elsi Hetemáki-Olander frá Finnlandi og Lilli Gyldenkilde frá Danmörku. Þá mun forsætisnefnd ráðsins heim- sækja aðalstöðvar Evrópubanda- lagsins í Briissel á árinu. VEÐUR / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) VEÐURHORFUR í DAG, 3. MARS YFIRLIT í GÆR: Suðlæg átt, 5-6 vindstig vestanlands en hægari eystra. Slydda, rigning eða snjókoma var á Suður- og Vesturlandi, en annars þurrt. Hiti frá +3 til -r-4. SPÁ: Vestan- og norðvestanátt. Hvasst eða stinningskaldi. Úrkomu- laust um suðaustan- og austanvert landið, en él í öðrum lands- hlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNIMUDAG OG MÁNUDAG: Norðvestan- og vestan- átt, víðast 5-7 vindstig með snjókomu norðanlands en éljum á Vesturlandi. Hiti +2 til -e4 stig. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * f * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma # * * -J0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrír * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður m m > *• VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri +2 skýjað Reykjavfk 1 úrkoma Björgvin 0 snjóél Heisinki 0 alskýjað Kaupmannahöfn 4 hálfskýjað Narssarssuaq 4-9 snjókoma Nuuk +7 snjókoma Ósló 4 léttskýjað Stokkhólmur 0 skýjað Þórshöfn 4 skýjað Algarve 16 skýjað Amsterdam 5 léttskýjað Barcelona 10 alskýjað Berlfn 6 alskýjað Chicago 0 léttskýjað Feneyjar 13 léttskýjað Frankfurt 4 skýjað Glasgow 6 skúr Hamborg 4 úrkoma Las Palmas 20 léttskýjað Lundúnir 6 iéttskýjað Los Angeles 13 alskýjað Lúxemborg 1 snjóéi Madríd 9 skýjað Malaga 17 skýjað Mallorka 10 alskýjað Montreal 0 skýjað New Vork 0 léttskýjað Oriando 14 léttskýjað París 4 skýjað Róm 14 alskýjað Vfn 6 skýjað Washington 3 skúr Wínnipeg +14 heiðskírt Morgunblaðið/Sverrir Mikill fjöldi fólks koma á bókamarkaðinn í gær. Bókamarkaðnum að ljúka; Aðsókn með mesta móti „AÐSÓKN að bókamarkaðinum hefur verið framar öllurn vonura og undirtektirnar stórkostlegar. I fyrra sló aðsóknin öll met og mér sýnist hún vera svipuð nú. Markaðinum lýkur á morgun, sunnu- dag, en við erum enn að bæta nýjum bókum við,“ sagði Kristín Guðbjartsdóttir, hjá bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda í gær. Bókamarkaðurinn var opnaður í Kringlunni á fimmtudag í síðustu viku. „Við höfum verið með fímm ,þúsund. bókatitla, svo fjöldi bóka hefur skipt tugum þúsunda," sagði Kristín. Hún sagðist oft sjá sama fólkið koma aftur og aftur. „Þeir sem komu þegar örtröðin var mest i fyrstu koma gjaman aftur og þeir vita líka að það bætast við nýir titlar. Það er hægt að gera mjög góð kaup hér og ég nefni sem dæmi skáldsögur eftir John Stein- beck og Knut Hamsun, sem eru' seldar á 299 krónur." Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda er opinn frá klukk- an 10-18 í dag og á morgun, síðasta daginn, er hann opinn frá klukkan 12-18. Ríkisútvarpið: Stj órnmálaflokkar fá að auglýsa framboð Útvarpsráð hefúr samþykkt að breyta auglýsingareglum útvarpsins þannig að auglýsingar sfjórnmálaflokka verða ekki lengur bundar við fúndi, fúndarefiii, stað, tíma og ræðumenn. Auglýsingareglur, sem ríkisút- varpið setti sér, voru mun þrengri en sú reglugerð sem menntamála- ráðuneytið hefur sett um auglýs- ingar í ljósvakamiðlum. Þessum aug- lýsingareglum útvarpsins var breytt á fundi útvarpsráðs í gær og Inga Jóna Þórðardóttir formaður ráðsins sagði við Morgunblaðið að með þessu væri verið að tryggja, að Ríkisút- varpið sitji við sama borð og aðrir fjölmiðlar. Ákveðnir fyrirvarar eru þó í tillög- unni sem samþykkt var. Þannig eiga auglýsingar frá stjómmálaflokkum að falla innan þess tíma sem í al- mennri dagskrá er ætlaður til aug- lýsinga. Lengd auglýsinganna á að vera sambærileg við aðrar auglýs- ingar og óheimilt er að veita einum aðila aðgang að heilum auglýs- ingatíma. Þá má magn auglýsinga frá einum aðila í framboði ekki vera það mikið að það hindri auglýsingar frá öðmm. A kjördag má aðeins auglýsa hvar kosningaskrifstofur em og símanúmer þeirra. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Inga Jóna Þórðardóttir og Magnús Erlendsson, annar fulltrúi Framsóknarflokksins, Markús Á. Einarsson, og fulltrúi Alþýðuflokks- ins, Guðni Guðmundsson, greiddu atkvæði með breytingunni. Á móti voru fulltrúi Alþýðubandalags, Bríet Héðinsdóttir, annar fulltrúi Fram- sóknarflokksins, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og fulltrúí Kvenna- lista Magdalena Schram. Ráðið sam- þykkti síðan samhljóða að meta reynsluna af breytingunni að loknum sveitastjómarkosningunum í vor. Hjörtur Torfason skip- aður hæstaréttardómari FORSETI íslands hefiir skipað Hjört Torfason, hæstaréttarlög- mann, dómara við Hæstarétt Is- lands. Hann tekur við embætti því sem Magnús Thoroddsen gegndi áður. Auk Hjartar sóttu um stöðuna Jón Arnalds, borgar- dómari, Jón Oddsson, hæstarétt- arlögmaður, og Sveinn Snorra- son hæstaréttarlögmaður. Hjörtur Torfason er fæddur á ísafirði 19. september 1935. Hann er sonur hjónanna Önnu Jónsdóttur og Torfa Hjartarsonar, fyrrverandi tollstjóra. Hjörtur lauk stúdents- prófi frá MR 1954 og embættis- prófi í lögfræði frá Háskóla íslands 1960. Hann varð héraðsdómslög- maður sama ár en hæstaréttarlög- maður 1966. Hjörtur stundaði framhaldsnám og vann á lögfræði- stofu í Toronto í Kanada frá 1961 - til 1963. Eftir það hefur hann stundað Iögmannsstörf í Reykjavík og rekur nú lögmannsstofu hér í borg ásamt Eyjólfi Konráð Jóns- syni, hrl. Hjörtur Torfason er kvæntur Nönnu Þorláksdóttur. Þau eiga þrjú börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.