Morgunblaðið - 03.03.1990, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.03.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 25 Minning': Katrín S. Agústs- dóttir, Smáratúni Fædd 6. júní 1926 Dáin 22. febrúar 1990 í dag fer fram frá Kálfatjamar- kirkju útför Katrínar Sigrúnar Ágústsdóttur húsmóður í Smáratúni á Vatnsleysuströnd. Hún fæddist í Halakoti, dóttir hjónanna Þuríðar Halldórsdóttur og Ágústar Guðmundssonar, yngst 8 systkina, 6 bræðra og einnar systur, sem andaðist á fyrsta ári. Það var mikið athafnaheimili í Halakoti, Ágúst var það sem kallað var útvegs- bóndi, gerði út á skip á vetrarvertí- ðum, og þá var oft mannmargt á heimilinu, en Þuríður stýrði þvf með rósemi og festu. Nú er Kata, en það var hún alltaf kölluð, horfín úr okkar hópi. Það er erfitt að sætta sig við það. Við frænk- uraar ólumst upp á sitt hvorum bænum, og það var mikill samgang- ur þar á milli. Mæður okkar voru góðar vinkonur og fóru oft hvor til annarrar og fengu góð ráð í sam- bandi við saumaskap og þess háttar. Kata var alltaf glöð og kát, spil- aði meðal annars á harmónikku og munnhörpu og hafði góða söngrödd. Þuríður var mikill félagi okkar. Hún kenndi okkur að dansa og Kata spil- aði undir á munnhörpu eða jafnvel greiðu. Við áttum margar ánægju- stundir saman. Það var gott að vinna með Kötu, því hún var hörkudugleg. Svo var hún mjög nærgætin, bæði við menn og skepnur. Það er svo margs að minnast í sambandi við Halakotsheimilið. Kata tók töluvert þátt í félagsstörfum, meðal annars í Kvenfélaginu Fjólu, þar sem hún sat í stjóm um árabil, eða eins og hún komst einu sinni svo vel að orði um látna félagskonu: „Hún var ein af Pjólukonunum." Sömuleiðis var hún lengi í kór Kálfatjamarkirkju og þau hjón bæði. Það voru mörg sporin sem hún átti upp á söngloftið í kirkjunni sinni. Kata giftist Guðbergi Sigursteins- syni frá Austurkoti. Þau byggðu sér hús í landi Halakots og nefndu Smára’tún. Synir þeirra eru fjórir. Ágúst Þór, Steinar Smári, sem lést af slysförum 2 ára gamall. Það var mikil sorg sem sótti að þeim hjónum þá, en svo eignuðust þau annan Steinar Smára og svo Magnús ívar. Sömuleiðis ólu þau systkinin í Hala- koti upp bróðurdóttur sína, Guðfínnu Guðmundsdóttur, sem missti móður sína kornung. Gekk Kata henni í móðurstað. Mörg undanfarin ár voru búin að vera erfíð hjá Kötu. Hún var mikill sjúklingur, ýmist á sjúkrahúsum eða heima og Guðbergur annaðist hana af kostgæfni og í rúminu sínu fékk hún að ljúka sínu lífi. Við systkinin frá Naustkoti send- um eiginmanni og börnum samúðar- kveðjur. Gauja og Hrefna En hvers er að minnast og hvað er það þá, sem helst skal í minningu geyma? Þessi orð Valdimars Briem komu mér í hug er ég settist niður til að minnast Katrínar Ágústsdóttur sem lést á heimili sínu 22. febrúar sl. Kata, eins og hún var kölluð, fædd- ist 6. júní 1926 í Halakoti á Vatns- leysuströnd, dóttir Þuríðar Halldórs- dóttur og Ágústar Guðmundssonar útvegsbónda í Halakoti. Kata ólst þar upp ásamt 6 eldri bræðrum, og lærði snemma að vinna þau daglegu störf sem til féllu á svo mannmörgu heimili sem var í Hala- koti á þeim tíma. Kata var vinnusöm, dugleg og áræðin við hvað sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa öðrum, og gott var að leita til hennar með hvaðeina, það vissu þeir sem hana þekktu og kynnt- ust henni. Hún hafði ákveðnar skoðanir á hiutunum og lét það-óspart í ljós. Félagslynd var hún og tók virkan þátt í félagsstörfum og trúnaðar- störfum fyrir sitt byggðarlag. Kata unni Ströndinni sinni og bar hag hennar ætíð fyrir bijósti. Hún var í stjórn Kvenfélagsins Fjólu í mörg ár og vann þar mikið og óeigingjamt starf. Hún hafði unun af allskyns tónlist og söng, og söng lengi í Kirkjukór Kálfatjamarkirkju. Mínar fyrstu minningar um Kötu vom þeg- ar hún kom í heimsókn og alltaf var kátína og fjör með henni. Einnig minnist ég þess þegar við krakkam- ir úr hverfínu komum í Halakot, þá átti hún það til að taka upp harmon- ikkuna og fara að spila, en þá urðum við að syngja. Með aðstoð móður sinnar ól Kata upp bróðurdóttur sína, Guðfínnu Elínborgu Guðmundsdótt- 11 r, og reyndist henni ætíð sem best, sem væri hún hennar dóttir. Kata giftist 10. desember 1966 Guðbergi Sigursteinssyni skipasmið frá Austurkoti á Vatnsleysuströnd. Þau byggðu sér hús í landi Halakots sem þau nefndu Smáratún. Þar var oft gestkvæmt og þau gestrisin, tóku vel á móti fólki, allir vom velkomnir. Þau eignuðust fjóra syni. Steinar Smára f. 24. febrúar 1965 misstu þau af slysfömm 15. febrúar 1967, og var það mikið áfall. Hinir em: Ágúst Þór f. 12. nóv. 1960, Steinar Smári f. 3. ágúst 1967 og Magnús ívar f. 25. sept. 1969. Kata unni fjöl- skyldu sinni og bar ávallt umhyggju fyrir sonum sínum. Það er mikið horfíð þegar Kata er farin, en góðar minningar um mikla konu verða eft- ir. Ég bið góðan Guð að styrkja Begga, synina og alla hennar sem vom henni allt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem.) Þórdís Símonardóttir Viðtalstími borgarfulltrúa f Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík f Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur frá kl. 10-12. Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum. Allir borgarbúar velkomnir. Laugardaginn 3. mars verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumála- nefndar, í stjórn bygginganefndar aldraðra og SVR, og Hulda Valtýsdóttir, formaður menningamálanefndar. %y vy %& %4 %d w w w %j %/%#%# 2 5' S' 2 2' 2' 2. 2 2' 2' 2 2 2 Andrews hitablásarar fyrirgaseðaolíu eru fáanlegir í fjölmórgum stærðumoggeróum Algengustu gerðireru nú fyririiggjandi Skeljungsbúðin / Síðumúla 33 símar 603870 og 38125 ORÐSEIMDIIMG UM LEIÐRÉTTINGU Á VERÐBÓTUM Á SKYLDUSPARNAÐI Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga sem búsettir eru erlendis eða sem látist hafa og söfnuðu skyidusparnaði á árunum i 957 til l.júlí 1980, eru hér með hvattir til að kanna í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur vegna leiðréttinga á verðbótum liggi par fyrir. Allar leiðréttingar til þeirra, sem áttu skráð heimilisfang hér á landi l. desember 1989 s.l. hafa verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar- greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis og sem látið er. í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum. Leiðréttingarnar vörðuðu tímabilið l.júnf 1957 til l. júlí 1980 og náðu aðeins tii hluta þeirra sem áttu skyldusparnað umrætt tímabil. Upplýsingasímar eru 696946 og 696947 kl. 10-I2 virka daga. cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900 ' HÚSGAGNAÚTSALA Mikill afsláttur af vönduðum sófasettum, stökum sófum o.fl. Einnig lítið útlitsgölluð húsgögn. Opið f dag, laugardag, frá kl. 10-16 ONDVEGI, húsgagnaverslun, Opið virka daga frá kl. 10-18. Qg Bólstrun og tréverk. ATH: Útsalan er í Síðumúla 33, í húsnæði Bólstrunar og tréverks, gengið inn á suðurhlið hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.